Morgunblaðið - 19.04.1963, Qupperneq 6
6
MORCV1SBLAÐ1D
Fðstudagur 19. aprfl 1983
Breytingar á lagafrumvarpi mn
TÆKNISKÓLA ISLANDS
Vélskðlinn starfi áfram
FUNDIR voru haldnir í báðum
deildum Alþingis á miðvikudag
auk fundarins í Sameinuðu A1
þingi um kvöldið, en útvarpað
var frá honum.
í Neðri deild urðu mestax um-
ræður um frumvarp til laga um
Tækniskóla íslands, en því hefur
áður verið lýst hér í hlaðinu.
Fyrir lágu breytingartillögur og
nefndarálit frá menntamála-
nefnd. Hafði nefndin talið
„ókleift að afgreiða frv. án veru-
legra breytinga“ og umsamið
það í samráði við menntamála-
ráðherra. Veigamestu nýjungarn-
ar eru þær, að
1) Vélskóla Islands verði ekki
blandað í þessa skólastofnun og
starfi hann áfram sem sjálfstæð
stofnun, og
2) ákvaeði um, að skólinn taki
til starfa haustið 1963, er talið
óraunhæft og því ekki rétt að
lögfesta það.
Annar liðurinn þýðir raunveru-
lega að lögunum er breytt í
heimildarlög, ef breytingartil-
lögurnar ná fram að ganga. Með
samþykkt slíkra laga „mundi Al-
þingi staðfesta vilja sinn til, að
'fækniskóla íslands verði komið
upp sem fyrst, og tryggja, að
undirbúningi verði haldið áfram
af fullum krafti“.
í breytingartillögumim er not-
að heitið skólastjóri, en ekki
rektor. Þá er og gert ráð fyrir
því, að undirbúningsdeildir megi
starfa bæði í Reykjavík og á
Akureyri. „Má telja, að þar með
kæmi vísir að fullkomnum tækni
skóla einnig á Akureyri“, segir
í nefndarálitinu.
Nokkrar umræður urðu um
breytingartillögu tveggja þing-
manna Norðurlandskjördæmis
eystra þess efnis, að skólinn yrði
staðsettur á Akureyri, en ekki í
Reykjavík. — Málinu var síðan
vísað til 3ju umræðu.
Tvr flugslys
ó sumu
sólurhring
Álaborg, 17. apríl
NTB-RB.
TVÖ flugslys hafa orðið í Ala
borg á síðastliðnum sólar-
hring. Um hádegi á þriðjudag
hrapaði þota af gerðinni F 86
D Sabre til jarðar, rétt fyrir
lendingu, og í morgun, mið-
vikudag, fór önnur þota af |
sömu gerð með sama hætti.
í báðum tilfellum voru flug-
mennirnir einir í þotunum og
björguðust báðir lifandi í fall-
hlíf, en annar fótbrotnaði á
báðum fótum.
Báðir mennirnir hafa áður
komizt lífs af úr flugslysum,
annar þeirra, Ungar að nafni,
varpaði sér árið 1961 í fall-
hlíf út úr þotu, þessarar sömu
gerðar, er vængirnir féllu af
henni yfir Kattegat.
Þrjár umræður fóru fram í
N. d. um frumvarp til laga um
breytingu á lögum um tilkynn-
ingar aðsetursskipta. Er þar um
að ræða breytingar, sem gerðar
eru vegna samstarfs Norðurlanda
á sviði almannaskráningar. Frum
varp þetta var samþykkt sam-
hljóða.
í N. d. fór einnig fram 1. um-
ræða um frv. um ferðamál, 2.
umr. um frumvarp um skemmt-
anaskatt og þjóðleikhús (vísað
til 3ju umr.), 3 umr. um frv. um
almannatryggingar (vísað til
Efri deildar), 2. umr. um frv. um
meðferð einkamála í héraði (vís-
að til 3ju umr.), og 2. umr. um
frv. um gatnagerð bæjar- og
sveitarfélaga. Öllum þessum
frumvörpum hefur áður verið
lýst hér í blaðinu.
★
f Efri deild var framhald 3ju
umr. um frv. um lyfsölulög. Var
frumvarpið samþykkt sem lög
með 11 atkv. gegn 2. Þá var frh.
2. umr. um frv. til laga um fé-
lagsheimili, 2. umr. um frv. til
þátttöku Síldarverksmiðja ríkis-
ins í útgerðarfélagi (vísað til 3.
umr.), 2. umr. um frv. til laga
um Stofnlánadeild landbúnaðar-
ins og framhald 2. umr. um drag-
nótaveiði í fiskveiðilandhelgi.
Olíubillinn, sem valt í Hrúta firði.
Olíubíll veltur í
Hrútafirði
STAÐ í HRÚTAFIRÐI,
13. apríl.
Sl. fimmtudag fór fullhlaðin
olíuflutningabifreið út af vegin-
um rétt hjá bænum Oddsstöð-
um í Hrútafirði. Fór bifreiðin
eina veltu, og er hún mjög mik-
ið skemmd. Bifreiðarstjórinn var
einn í bifreiðinni, og slapp hann
ómeiddur. Grenjandi norðanstór
hríð var á, er slysið varð. —
m.g.g.
Minningartónleikar
dr. Urbancic
Á MINNINGARTÓNLEIKUM um
dr. Victor Urbancic, sem haldnir
voru í Kristskirkju í Landakoti
í gærkvöldi, lék austurríski organ
leikarinn Anton Heiller verk eftir
tvö 17. aldar tónskáld, Georg
Muffat og Joh. Kaspar Kerll,
kóralforspil og Passacagliu í c-
moll eftir Bach og tvö verk eftir
austurrískt samtímatónskáld, Jo-
han Nepomuk David. Öll þessi
verk voru flutt með ágætri tækni
og talsverðum glæsibrag, þótt rök
ræða mætti meðferð þeirra í ein-
stökum atriðum, ekki sízt Passa-
cagliu Bachs. Eldri verkin voru
þau, sem mest áhrif höfðu á þann,
sem þessar línur ritar.
Partita Joh. Nep. Davids er
áheyrilegt verk og hóflega nýst-
árlegt, en „útlegging“ hans á
„Dies iræ“ ber á pörtum svip
skopstælingar, sem tæplega sýn-
ist viðeigandi.
Að lokum lék listamaðurinn
„af fingrum fram“ og án undir-
búnings „improvisation" um ís-
lenzkt lag, sem honum var afhent
á staðnum. Lagið var „Víst ert
þú, Jesús, kóngur klár“. Varð
það honum efni í langa „fantasíu“
en heldur lausrímaða, svo sem
vænta mátti. „Improvisation"
getur verið skemmtileg íþrótt, en
hún ætti að flokkast með töfra-
brögðum og sjónhverfingum
fremur en alvarlegri listviðleitni.
Og þessi töfrabrögð — eins og
önnur — eru í rauninni stórum
éinfaldari en áheyrandanum virð
ist í fljótu bragði.
Jón Þórarinsson.
AÐFARANÓTT gkírdags var
skeUAnöðru stolið frá bakihúsi
við Grettisgötu 22. Hjólið var
læst og talið bilað, svo að hér
virðilst ekki um nytjastuld að
ræðsu Hjólið er blátt og hvítt og
skrásetningarmerki þess R-312.
Lögreglan óskar upplýsinga.
Snndunnn
skrupuði bílunu
ÞEGAR hvasst er í Skaftafells-
sýslu getur orðið mikið sand-
fok á söndunum, og veigra bíl-
eigendur sér þá við að aka yfir,
því þeir eiga á hættu að skemma
lakkið á bílum sínum-
Á skírdag var þarna hvass-
viðri, og skrapaðist málning al
bílum sem fóru um Mýrdals-
sandinn. T.d. kom Volkswagen-
bíll vestur yfir, og varð fyrir
því óhappi að bila og tefjast um
klukkutíma úti á sandinum. Var
hann illa farinn á annarri hlið-
inni á eftir, alveg ganslaus og
málning skröpuð af, og rúðurnar
svo rispaðar að varla sá út um
þær. Eins lentu ferðabílarnir i
Öræfin í sandbylnum á leið aust-
ur og sá á sumum þeirra. T.d.
sást ekki lakk á höggdeyfurum,
en rúður sluppu heilar á þess-
um háu bílum.
Anna Borg
MEÐ undarlegum hætti hefur
þetta erindi eftir Bj arna Thor-
arensen sótt á mig síðustu
dagarva:
>á eik í stormi hrynur háa,
hamra þvú beltin skýra frá, —
en þá fjólan fellur bláa,
fallið það enginn heyra má:
en angan horfin innir fyrst,
urtabyggðin hvens hefur
misst.
Bjami gerir ekki ráð fyrir
þvi, að hljóðlátt fall ilmandi
smáblóms og hrun hávaxins
meiðar í stormiviðri geti ver-
ið einn og sami atburður, að
eikin og fjólan geti verið eitt.
Og þó hefur fregnin um hið
sviplega lát Önnu Borg, —
meðal svo margra sorgartíð-
inda, sem gerzt hafa á skönwn-
um túna, — í senn bergmálað
sem reiðarslag um ísland og
vakið orðlausan söknuð eins
og eftir horfna blómaangan.
Þvi að Anna var einmitt hvort
tveggja, eik og fjóla, — stór-
brotin listakona, sem hafði
klifið þrítugan hamar harðrar
vinnu til frægðar og frama,
markvfs og viljasterk, en um
leið viðkvæm og ljúf og gædd
ógleymanlegum kvenlegum
yndisþokka. Eins og hún
kunni að taka gæfu og gleði
opnum örmum, gat hún líka
með fágætu þreki boðið byrg-
inn örðugleikum, sem virtust
ofurefli. Hún reyndist fær um
að standast áfall, sem varð
ekki um flúið né yfirstigið, og
breyta afleiðingum þess í nýja
sigra á nýjutm sviðum.
Engin hætta er á þvf, að
ísland gleymi, hvað það lét
af hendi rakna, þegar Anna
Borg gerðist dönsk leikkona.
En hins má ekki síður minn-
ast, hvernig Danmörk reynd-
ist henni. Framar öllu má
ísland þakka eiginmanni henn
ar, hinum aldna stórmeistara
norrænnar leiklistar, Poul
Reumert, sem var henni jafh-
mikils virði í blíðu og striðu,
örugg stoð og nærgætinn vin-
ur og félagi. Til hans, af öll-
um þeim sem mikils hafa
misst, hljóta nú hugir okkar
að leita með innilegastri sam-
Sigurður Nordal.
'
1
:!
*
# Fyrirmyndarunglingr
í SkáJafeIli
„Skálafellsgestir" skrifa: ,
„Oft hefur verið deilt á ung-
linga nú á dögum, og margt
fundið þeim til foráttu. Vilj-
um við því nokkrir gamlir KR-
ingar, sem dvöldum um p>áska-
helgina í skíðaskála KR í Skála
felli, láta þess getið, að þeir
unglingar, sem þar dvöldust.
voru til fyrirmyndar í allri um-
gengni og framkomu. Þetta var
einstaklega félagslyndur og
skemmtilegur hópur. Mega for-
eldrar þeirra sannarlega vera
stoltir af framkomu þeirra.
Einnig vilju mvið nota tæki-
færið, til þess að þakka þjóð-
kirkjunni og æskulýðsstarfs-
semi hennar fyrir þá ánægju, er
okkur var veitt, með því að
senda séra Braga Friðriksson
í skálann til okkar á páska-
' dag. Flutti hann stutta en há-
tíðlega messugjörð.
Þökkum samveruna og von-
umst til þass að sjá ykkur
sem oftast á Skálafelli“.
• Stolið á páskadagsmorguu
„Undrandi“ skrifar:
„Páskadagsmorgun 1963.
Það setti óhug að mér nú fyr-
ír stundu síðan. Er ég kom úr
kirkju um kl. 9, fór ég og
keypti blóm handa móður minni
og tengdamóður. Þar sem þær
eiga heima sín í hvorum bæjar-
enda, skildi ég eftir blóm móð-
ur minnar í bílnum, meðan ég
skrapp rétt sem snöggvast inn
til tengdamóður minnar. Þegar
út var komið, voru blómin öíl
á bak og burt. Verði þeim að
góðu, sem tóku þau, en hver
get urverið svo undarlega sam-
an settur að hafa ánægju af
þvi á sjálfan páskadaginn að
skreyta heimili sitt með stoln-
um blómum eða gefa þau vina-
fólki?“
BOSCH
Rafkerfi í bíla og báta.
BRÆÐURNIR ORMSSON
Vesturgötu 3
Sími 11467.