Morgunblaðið - 20.04.1963, Side 3
M O R C V N R J * » I b
3
Ræða Gunnars Thoroddsen ffármála-
ráðherra við útvarpsumræðurnar
Samanburður f járlaga
1958 og 1963 varasamur.
Herra forseti!
Góðir áheyrendur!
Hv. 1. þm. Austf., Eysteinn
Jónsson, og hv. 6. þm. Sunnl.,
Karl Guðjónsson, gerðu báðir
að umtalsefni, hve mjög útgjöld
og álögur hefðu hækkað í tíð
núv. ríkisstj. Hv. 1. þm. Austf.
var þó öllu stórtækari og sagði,
að álögur hefðu hækkað um
1400 millj. á kjörtímabilinu. Vænt
anlega á hv. þm. við breyting-
nua frá 1958, sem honum og
flokksbræðrum han:s er tamt að
tala um, og hafa þeir oft sagt,
að þessi væri hækkunin frá 1958
til fjárlaga fyrir 1963. Saman-
burður milli þessara ára er harla
Vafasamur og varasamur. f>að
stafar af því, að árið 1958 var
iríkissjóðurinn klofinn í tvennt
og annar parturinn kallaður út-
fiutningssjóður. Útgjöld hans
námu á árinu nær 700 millj. kr.
en ríkissjóðsins sjálfs um 940
•nillj. Séu þessar upphæðir lagð-
ar saman, urðu ríkisgjöldin um
1640 millj og hafa þvi miðað við
þessar tölur, ekki hækkað um
1400, heldur um nær 540 millj.
En málið er nú ekki svona ein-
falt. Það er ekki rétt eða sann-
gjarnt að bera saman rikissjóðs-
gjöld 1958 og 1963, né heldur að
bera sjóðina báða frá árinu 1958
samanlagða saman við ríkisgjöld-
in nú. Það er heldur ekki rétt
að nota í þessum samanburði
tölur fjárl. fyrir árið 1958, held-
ur ríkisreikningsins vegna þess,
hve útgjöldin fóru þá stórlega
tfram úr áætlun fjárlaga. Það
gerir samanburðinn einnig erfið-
an, að árið 1958 var mikill hluti
af tekjum og gjöldum út.fmtn-
ingssjóðs yfirfærslugjald og yf-
irfærslubætur, en þetta var
grímuklædd gengislækkun. í
sanngjörnum samanburði er því
væntanlega rétt að sleppa yfir-
færslugjöldum og bótum, en eins
og kunnugt er, kom rétt skrán-
ing krónunnar í stað þeirra.
Þegar samanburðurinn milli ár
anna 1958 og 1963 er gerður á
eðlilegan og sanngjarnan hátt,
Jítur dæmið þannig út, að ríkis-
gjöldin hafi hækkað um 1105
millj. en ekki um 1400 millj.
Skakkar þar nærri 300 millj. í
samanburðinum hjá hv. þm.
En 1105 millj. eru vissulega
há tala og stór fúlga, og því er
rétt að kanna: í hvað hefur
Iþetta fé farið? Hefur það horfið
í einhverja eyðsluhít? Eða til
Ihvers hefur það verið notað?
Eramlög til félagsmála, en þar
eru alimannatryggingar stærsti
iiðurinn, hafa hækkað um 397
millj. kr. á þessum tíma. Framlög
til að lækka vöruverð innan-
lands og til uppbóta á útfiutt-
ar afurðir landbúnaðarins, hafa
'hækkað um 282 millj. Framlög
til skóla og fræðslumála hafa
hækkað um 138 millj. Framlög
til atvinnumála til sjávar og
eveita og til bættra samgangna
hafa hækikað um 133 millj. M.
ö.o., af hækkun ríkisgjaldanna
« þessum 5 árum hafa um 950
millj. gengið til félagsmála,
kennslumála, niðurgreiðslna, at-
vinnu- og samgöngumála, en öll
önnur ríkisúitgjöld, þ.á.m. hin
eiginlega stjórnsýsla, hafa vaxið
um 155 milfj., eða sem næst 30
millj. á ári að meðaltali. Miðað
við fjölgun landsmanna og si-
vaxandi framkvæmdir og þjón-
ustu rikisins, getur sú aukning
útgjalda ekki taliat úr hófi fram.
Og eins ber að hafa það í huga,
eð fólksfjölgun, aukning þjóðar-
tframleiðslu, innflutnings, veltu
og velmegunar skila ríkissjóði
ue sveitarsjóðum auknum tekj-
um ár frá ári, að óbreyttum toll-
og skattstigum*, án þess að siikt
sé á mæltu máli kallað tolla- eða
skattahækkanir. v
Framlög til verklegra
framkvæmda meira en
tvöfaldast.
Hv. 1. þm. Austf., Eysteinn
Jónsson, sagði, að framlög til
verklegra framkvæmda væru nú
mjög af skornum skamrríti og
vegamálin í hreinu öngþveiti. Og
Karl Guðjónsson sagði, að fram-
Lög til venklegra framkvæmda
hefðu í tíð stjórnarinnar verið
lækkuð hlutfallslega. Við skul-
um nú athuga sérstaklega hinar
verklegu framkvæmdir. Undir
það hugtak eru venjulega felld-
ir vegir, brýr, hafnir, flugvellir,
skólar, sjúkrahús. Ég tek hér
eingöngu framlög til nýflram-
kvæmda, en ekki til viðhalds.
Tölurnar eru þá þær, að árið
1958 var varið til þessara fram-
kvæmda 90. millj. kr., en í fjár-
lögum 1963 197 millj. kr. Hækk-
un er því 107 millj. kr. Þessi
framlög hafa í krónutölu meira
en tvöfaldazt. En tilkostnaður-
inn hefur hækkað, og ef um-
reiknað er eftir vísitölu bygg-
ingarkostnaðar, verður samt
raunveruleg hækun 42%. Það er
því ekki aðeins meira en tvö-
földun að krónutölu, heldur og
hækkun yfir 40% að notagildi.
Manni virðist því harla ein-
kennileg þau ummæli þessara
tveggja hv. þm., að framlög til
verklegra framkvæmda séu nú
mjög af skornum skammti og
hafi lækkað hlutfallslega frá
því, sem áður var.
Þær tölur, sem ég nefndi um
það, í hvað þessi aukning á ríkis-
gjöldum hefur farið á undan-
förnum árum, bregða upp nokk-
urri mynd af því, sem gerzt hef-
ur í þjóðmálunum þetta tímabil.
Stóraukin fjárframlög til verk-
legra framkvæmda, vaxandi
stuðningur við atvinnuvegi og
menningarmál og margföldun á
almannatryggingum.
Tekjuafgangur hjá
ríkissjóði.
En hvernig hefur þá afkoma
ríkissjóðs orðið á þessum tíma?
Það er alltaf mikils um vert, að
fjárlög séu afgreidd hallalaus og
ríkisbúskapurinn sé rekinn í
samræmi við það. Og greiðslu-
afgangur hjá ríkissjóði var mikil
vægur hlekkur í viðreisninni,
hlekkur, sem ekki mátti bresta.
A árunum 1950—1958 að báðum
meðtpldum, varð halli hjá ríkis-
sjóði 5 árin, en tekjuafgangur
4 árin. Öll þessi 9 ár var Ey-
steinn Jónsson fjármálaráðherra,
og eina heila árið, sem vinstri
stjórnin lifði, var tekjuhalli.
Síðan hefur orðið tekjuafgangur
öll árin, 1959, 1960, 1961 og 1962.
Engar lausaskuldir.
Þegar rætt er um lántökur
ríkisins, verður að greina sund-
ur, hvort tekin eru eðlileg hag-
kvæm lán til langs tíma eða
safnað lausaskuldum. Lausar
skuldir þykja hvarvetna til vanza
og hinn mesti þrifnaður að
hreinsa þar til og borga þær
upp. Lausaskuldir, meiri og
minni, hafa um langan aldur
verið hjá ríkissjóði, eins og sjá
má í ríkisreikningum. Það er
eðlilegt, að ríkissjóður hafi við-
skiptaskuld hjá Seðlabankanum
mikinn hluta árs, þar sem út-
gjöldin falla fyrr á en tekjur
koma inn. En til þess er ætlazt,
að slík viðskiptaskuld, eins og
Gunnar Thoroddsen
aðrar lausaskuldir, séu greidd-
ar upp fyrir reikningslok og svo
hefur verið gert í tvö undanfar-
in ár. í árslok 1961 og 1962
skuldaði ríkissjóður engar lausa-
skuldir.
Lánstraust og löng lán.
En hvað þá um föst lán til
langs tíma? Ég vil nefna tvennt,
sem sýnir breytt viðhorf erlendis
gagnvart ísLenzkum fjármálum.
Alþjóðabankinn, sem verið hafði
okkur Lokaður í 8 ár, hefur opn-
að okkur dyr sínar að nýju og
þegar Lánað tiL langs tíma 86
miLLj. kr. tiL hitaveitufram-
kvæmda. Og framkvæmdalánið
í Engiandi að upphæð 240 milij.
til 26 ára, sem fékkst á hinum
frjálsa peningamarkaði í Lund-
únum, verður á þessu og næsta
ári afigjafi mikilvægra fram-
kvæmda víðs vegar um Land.
SLík ián til langs tíma þarf ís-
Land að taka á næstu árum til
margháttaðra framkvæmda, en
til þess að þau fáist, þarf að
varðveita lánstraustið, efnahags-
og fjármálagrundvöilinn.
Ný tollskrá.
En hvernig er svo afiað tekna
til að standa undir ríkisbúskapn-
um, og hvaða breytingar hafa
þar á orðið á stjórnartíma nú-
verandi ríkisstjórnar?
MeginhLutinn af tekjum ríkis-
sjóðs fékkst áður með toiium
og tekjuskatti. Báða þessa tekju-
stofna þurfti að endurskoða frá
grunni og aiia iöggjöf um áiagn-
ingu þeirra. innheimtu og fram-
kvæmd. TiL þess Lágu margar
ástæður. Toiiarnir voru smám
saman orðnir svo margir, marg-
breytiiegir og flóknir, og reikn-
aðir á svo margvísiegan hátt, að
það var orðið á fárra manna
færi að kunna þar fuLL skil á.
Ósamræmið var óviðunandi.
Sem dæmi má nefna, að sams
konar hiutur bar ýmist 21%
toll eða 34% eða 77% eftir því,
hvort átti að setja hann sem
varahlut í bát, dráttarvél eða
bíl. Og tollarnir á ýmsum vör-
um voru komnir svo úr hófi, að
stórfelldur ólöglegur innflutn-
ingur átti sér stað, og var það á
allra vitorði.
í nóvembermánuði 1961 var
ráðizt í lækkun tolla á ýmsum
vörutegundum, sem höfðu borið
mjög háa tolla. Reynslan af
þeirri tollalækkun varð sú, að
hún færði almenningi lægra
verð á ýmsum vörum, hún dró
úr smyglinu og jók tekjur ríkis-
sjóðs.
Eftir þriggja ára starf hefur
nú verið lögð fyrir Alþingi ný
tollskrá, sem sníður aðalágall-
ana af núverandi tollakerfi, ger-
ir það einfaldara, samræmdara,
mun enn draga úr smyglinu til
viðbótar þeim tollalækkunum,
sem lögleiddar voru fyrir hálfu
öðru ári. Og í heild, miðað við
innflutning ársins 1962, mun
tollskráin nýja létta tollabyrð-
ina um 100 millj. kr.
Háttvirtur 1. þingmaður Aust-
fjarða, Eysteinn Jónsson, sagði
áðan: Bæjar- og sveitarfélögun-
um er ætlað að bera helming
af þessari 100 millj. kr. lækkun.
Þessi staðhæfing er alröng. Bæði
í grg. tollskrárfrumvarpsins og
í framsöguræðu minni í hátt-
virtir efri deild kom það svo
skýrt fram, að ekki verður um
villzt, að í stað hluta sveitarfé-
laganna af innflutningssölu-
skatti, — en sá skattur verður
nú felldur niður, — skyldi jöfn-
unarsjóður sveitarfélaganna fá
fullar bætur. Um árið 1963 er
beint ákvæði í tollskránni, en
varðandi framtíðina verða jöfn-
unarsjóði ætluð 5% af verðtolls-
tekjum ríkissjóðs. En þá er skör-
in farin að færast upp í bekk-
inn, þegar sá maður, Eysteinn
Jónsson, sem í áratug synjaði
óskum sveitarfélaganna um nýj-
an tekjustofn og hótaði eitt sinn
afsögn úr ráðherradómi, sem
því miður varð ekki af, ef sveit-
arfélögin fengju hluta af sölu-
skatti, — þá er skörin farin að
færast upp í bekkinn, þegar sá
hinn aami Eysteinn Jónsson
brigslar þeim mönnum, sem
beitt hafa sér fyrir lögfestingu
hins nýja tekjustofns, um, að
þeir ætli nú að ræna sveitarfé-
lögin helmingi þessara tekna.
Þegar Eysteinn var að
leika á vísitöluna.
Hv. þ.m. viðurkenndi, að um
tollalækkanir væri að ræða með
nýju tollskránni. En það stafaði
bara af því, að nú væri látið
undan pressunni frá framsóknar
mönnum. Þar nefndi hann sem
dæmi lækkunina á tollum af
dráttarvélum. Við skulum skoða
það mál nánar. Nú í dag eru
heildartollar af dráttarvélum
34%. 1958, þegar vinstri stjórnin
skildi við, voru jollarnir 2314%,
en samkv. nýju tollskránni verða
þeir 10%, eða tæpur helmingur
af því, sem þeir voru í stjórnar-
tíð vinstri stjórnarinnar.
Hv. 1. þm. Austf. undraðLst
að tollalækkunin muni ekki
lækka framfærsluvísitöluna að
ráði. Þessi undrun hans er eðli-
leg. Þessi hv. þm. hafði nefni-
lega, meðan hann var í stjórn-
arsessi og var að hækka tolla og
skatita, sem kom alloft fyrir,
aðalsjónarmið, það, hvernig væri
hægt að komast framhjá vísitöl-
unni ,að leika á vísitöluna, leggja
tolla á þær vörur, sem ekki væru
taldar í henni. En auðvitað var
hann að rýra lífskjör fólksins
með þessu engu að síður.
Nýja tollskráin miðar ekki að
því að leika á vísitöluna. En hún
felur auðvitað engu að síður í
sér kjarabót fyrir fólkið í land-
inu.
Skattasiðferðið batnar.
Tekjuskattslögin voru einnig
meingölluð. Skatturinn var það
hár, bæði á einstaklingum og at-
vinnufyrirtækjum, að hann dró
úr framtaki, vinnusemi og fram-
kvæmdum. Skatturinn var það
ósanngjarn, að hann leiddi til allt
of almenns undandráttar undan
skatti. En þar sem tekjur launa-
manna eru yfirleitt taldar fram
að fudlu, þá lenti skatbþunginn á
þeim í ríkara mæli en réttlátt var
Allsherjarendurskoðun skatta
laganna hefur farið fram og
tekjuskaftur lækkaður bæði á al-
menningi og atvinnurekstri. Við
þær umbætur hefur skattasið-
ferðið batnað mjög í landinu.
Til þess að vega á móti tekju-
tapi ríkissjóðs af skattalækkun,
til þess að afla fjár til sveitar-
félaganna, svo að þau gætu lækk
að útsvörin, og til þess að afla
fjár til almannatrygginga og ann
arra nauðsynja, var á fyrsta ári
stjórnarinnar lögleiddur 3%
smásöluskattur, en sú tegund fjár
öflunar hefur í flestum ná-
grannalöndum verið upp tekin
og þykir réttlátari, handhægari
og ódýrari í framkvæmd en háir
beinir skattar, og ólíkt vinsælli
en þeir, ef nefna má orðið vin-
sældir í sambandi við skatta. En
smásöluskatturinn er miklu
lægri hér en annars staðar, t.d.
er hann 6% í Svíþjóð og 11% í
Noregi, en 3% hér.
Síðan þessi söluskattur var lög
leiddur vorið 1960, hafa engir
tollar eða skattar verið hækk-
aðir né nýir álagðir. Þrenn fjár-
lög, fyrir árin 1961, 1962 og
1963 hafa því verið afgreidd án
nýrra tolla eða skatta.
Sveitarfélögum fengnir
nýir tekjustofnar.
En jafnhliða endurskoðun á
fjármálum ríkisins fór fram
gagnger endurskoðun á fjár-
hagsmálum sveitarfélaganna og
fyrstu heildarlög voru sett um
tekjustofna sveitarfélaganna. Út
svarsstigar voru samræmdir, einn
ákveðinn útsvarsstigi Lögfestur
fyrir öll sveitarfélög, í stað eldri
reglu um að jafna niður eftir
efnum og ástæðum. Sveitarfé-
lögum voru fengnir nýir tekju-
stofnar, landsútsvör og hluti af
söluskatti. Söluskatturinn hefur
fært sveitarfélögunum nýjar
tekjur, sem hér segir: Árið 1960
56 millj., 1961 71 millj., 1962 83
millj., og 1963 104 millj. Samtals
á þessum 4 árum 314 millj. kr.
Þessi ráðstöfun hefur gert hvort
tveggja í senn, að gefa sveitar-
félögunum aukið svigrúm til at-
hafna og gert þeim kleift að
lækka útvörin.
Verzlunorhúsnæði
Húsnæði, 70—100 ferm., óskast strax til leigu
fyrir heildverzlun. Æskilegt er að 50 ferm séu
á jarðhæð eða í kjallara.
VéSar & Verkfæri h.f.
Sími 12760.