Morgunblaðið - 20.04.1963, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 20.04.1963, Blaðsíða 8
8 UORCUNBLABIB Laugadaguv 20. aprll 1963 Ræða Jóhanns Hafstein við útvarpsumræðurnar Herra forseti! Káttvirtu hlustendur! í eldhúsuimræðum er það eðli máiisins samkvæmt ríkisstjórnar- innar og stuðningsliðs hennar að svara fyrir sínar gjörðir. Það hefir verið gjört. En í lok þessara umræðna er nú svo komið, að það er/stjórn- axandstöðunnar að svara til saka. Stjórnarandstaðan er að nafn- inu til tvíþætt. Það eru Fram- sóknarmenn og hinir. Þessir hinir kalla sig enn Al- þýðubandalagsmenn. En þetta lið er í svo mikilli upplausn, svo xniklum sárum, að það er naum- ast drengilegt að skjóta harka- lega að því. „Bi*eiðfylkingin“ og „aðrir vinstri menn“ Ég kenndi í brjósti um Karl öuðjónsson, þegar hann í gær- kvöldi var að lýsa „breiðfylk- ingu“ Aiþýðubandalagsmanna, sem nú væri að leggja út í kosn- ingarnar. Hann lýsti því, hvað stuðningsmenn hefðu þurft að bíða lengi og með miklum kvíða eftir framboðunum. En „aftur kemuir vor í dal“ sagði Karl. Þvl í gær hefði náðst breiðari samstaða vinstri manna í kom- andi kosningum en nokkru sinni, með skjalfestum samningi Al- þýðubandalagsins og Þjóðvarn- ar — „mikið var að beljan bar!“ Svo var liðið ávarpað í ræðulok- in: „Alþýðubandalagsmenn, — Þjóðvarnarmenn og aðrir vinstri n»enn!“ Já, — hverjir eru þess- ir ,iaðrir vinstri menn?“ Ekki voru kommúnistar nefndir á nafn! Var kannske bara átt við einhverja Framsóknarmenn? Nei — á þessa breiðfylkingu þarf ekki að eyða miklu púðri! Framsóknarviðlagið Ef menn reyna að gera sér grein fyrir inntakinu í ræðum Framsóknarmanna í gær og í kvöld, viðlaginu, sem sungið er aftur og aftur — oft með alveg sörnu orðunpm, en stundum nokkrum tilbrigðum, þá er það tválþætt: Annars vegar hversu hroða- lega erfitt sé nú að draga fram lífið af því að vél, bát- ur eða íbúð kosti nú svo miklu meir en á sæludögum vinstri stjórnarinnar. Hins vegar er bara allt svart, sem stjórnarliðið hefir gert, en þó ennþá svartara en svart það, sem stjórnarlið- ið hefir ekki gert — en ætlar að gera! Útreikningana í fyrri flokkn- uim annast minni spámennirnir, Sigurvin, Ásgeir og fleiri slíkir. En að sjáifsögðu er höfuð- kempan í sortanum. Sjálfur for- maður flokiksins, Eysteinn Jóns- son gengur þar fram fyrir skjöldu. Minni spámennirnir Fyrst ætla ég að víikja að minni spámönnunum. Það má taka dæmi Sigurvins. Hann seg- ir, að nú kositi íbúð 150 þús. kr. meira en fyrir 5 árum, í táð virastri sælu. — Þetta er dauða- dómurinn yfir viðreisninni! Hin- ir segja, að það sé dráttarvél, sem kostar meira, mjaltavél eða múgavél. Það er rétt, að verðlag hefir hækkað um of — dýrtíð meira en skyldi. En hvað veldur? Hvern ig leit hér út, þegar vinstri stjórn in gafst upp? Verðbólgualdan var skollin ylir — eins og Hermann Jónas- son staðfesti í fráfararræðu sinni. Við það hafði hann svo einu að bæta, eiras og hann sagði, að í ríkisstjórninni (þ.e. vinstri stjórninni) væri ekki samstaða um nein úrræði. Jteiknað var út af sérfræðing- um vinstri stjórnaxinnar og öðr- um hagfræðingum og óvéfengt, að með sama áframhaldi mundi vísitalan á næstu 10 mánuðum fara upp í 270 stig, þ.e. hækka um 70 stig. En þhð var sú óða- verðbólga, sem forsætisráðherra vinstri stjórnarinnar spáði. En þá var líka öruggt, að dýrtíðin væri búin að koma atvinnuveg- unum í þrot og enginn erlend- ur gjaldeyrir fyrir hendi til nauð- synlegra þarfa eða til þess að standa við erlendar skuldbind- ingar þjóðarinnar. Þá hefði ekki þurft að reikna út hvað íbúð hefði vax ið i verði — þvi að engin íbuð hefði enfaldlega verið byggð. Heldur ekki hægt að fiytja inn dráttarvélar eða aðrar vinnuvélar. Ef Framsóknarmenn halda, að fólkið sé búið að gleyma þeim hörmungum, sem vinstri stjórnin leiddi yfir okkur og við blöstu, þá munu þeir finna, að þeim skjátlast. Núverandi stjórnarflokkum hef ir giftusamlega tekizt að lyfta þjóðinni upp úr foraðinu og leggja grundvöll að traustarj og betri framtíð. — svart og svartara en svart — Þá kem ég að hinum þættin- um í viðlagi Framsóknarmanna — að alit sé svart og svartara en svart. Eysteinn Jónsson segir, að stjómarliðinu „hafi með öllu miistekist að ráða við verðbólg- una“. En hlaut ekki svo að fara, þegar sami maður segir í næstu setningu, að ríkisstjórnin hafi „aldrei leitað annarra ráða en að magna dýrtíðina". Eysteinn segir, að það sé algjörlega von- laust að „lifa mannsæmandi lífi í landinu af venjulegri vinnu“, að „stjómin hafi ekki ráðið við neitt síðan eftir gengisfelling- una 1961“, „að upplausnarein- kennin séu öllum ljós“, „óðadýr- tíð — fossandi verðbólga". Ljótt er það! Nú bið ég hvern og einn að líta í eigin barm — hvort allt sé svona svart og rotið í þjóð- félaginu. Svo leggur Eysteinn Jónsson stjórnarliðinu skýringar í munn á því, af hverju viðreisnin hafi brugðist. Við teljum að visu að hún hafi lánast — en Eysteinn Jónsson segir, að við teljum, að viðreisnin hafi misitekist „vegna aflauppgripanna", að ríkisstjórn- in telji, að vegna þess að „alls- staðar sé næg atvinna handa öll- um hafi viðreisnin brugðist“ — „viðreisnin farið út um þúfur, af því að eftirspurn eftir vinnu- afli var of mikil". Þefcta er formaður Framsókn- arflokksins, sem svona talar! Ég veit að margir spyrja, hvort þessum gamla stjórnmálaforingja sé eitbhvað alvarlega brugðið? En það er meira blóð í kúnni! Og þá er komið að því, sem stjórnarliðið hefir ekki gert, en andstæðingarnir segja að það ætli að gera. Eysteinn Jónsson segir, — að það löðri allt í ráðagerðum i stjórnar- herbúðunum, að veita útlend- ingum aðstöðu til að verka íisk hér í landí, að hleypa Jóhann Hafstein þeim útlendu inn í íslenzka fiskiðnaðinn og þar næst inn í íslenzku landhelgina! Og undir þetta tók Hermann Jón- asson í ræðu sinni í kvöld. Þarna hafa menn það! Það á að vera aðal áhugamál mitt og annarra þingrranna, sem stutt hafa ríkisstjórnina, og þó auðvitað fyrst og fremst ráðiherranna, að hleypa út- lendingum inn í islenzka land helgi! Ég vil aðeins hafa um svona málfli/tning eftirfarandi: Hann er til vanvirðu þeim, sem viðhafa hann. Svona glannaskapur er frek leg móðgun við hlustendur, því að hann ráðgerir fyllsta dómgreindarskort þess, sem til er talað. Svona háttalag í þingsölun um er niðrandi fyrir Alþingi. GMsli Guðmundsson talaði um okkur stjómarsinna sem þá „lít- iðtrúuðu á framtíð íslands". Ó- vildina í garð bændastéttarinn- ar eigum við að hafa sýnt með því að ákveða kjördag þann 9. júní. En þegar Framsóknarmenn rufu þingið, sem frægt er orðið, 1961, þá ákváðu þeir kjördag þann 12. júní. Lambær hafa sjálf sagit verið á Norðurlandi þá eins og nú. En vegir og samgöngu- skilyrði voru þá æði mikið önn- ur en nú. Það er von, að öðr- um stjórnarandstæðingum bregð- ist bogalistxn þegar jafn gjör- hugulum þingmanni fatast svo mjög. Ósannindi um heiðursmenn í Vafþrúðnismálum var það ein gá-ta Óðins, sem ekki varð ráðin— er hann spurði: * Hvat mælti Óðinn áður á bál stigi sjálfur í eyra syni? Þetta vissi hann einn, eftir bál- för Balduns, og gat því ekiki Vafþrúðnir ráðið gátuna. Það er hins vegax auðráðið, hverju Ey- steinn hvíslaði í gærkvöldi í eyra Sigurvini. Það var innskot Sigurvins í handrit sibt, að for- sætisráðlherra hefði sagt ósatt. Samibandið hefði ekki leitað eft- ir verðhækkunum eftir kaup- hækkanirnar 1961. Ólafur Jó- hannesson talaði hér áðan af miklum fjálgleik um það sama og taldi málílutning forsætis- ráðherTa alveg óverjandi. Hér skakkar sára litlu, sem gert er veður út af. Sambandið mun hafa látið hin einstökú kaupfélög um að óska mjög eindregið eftir verðhækkunum. En skeggið er skylt hökurani. Að kaupfélögin leituðu fast eftir hækkun álagn- ingar vegna kauphækkananna 1961 og jafnvel ainámi verðlags- eftirlits á þessum tima liggur fyrir ótvíræð vitneskja um hjá Verðlagsnefnd. Þetta eru öll ó- sannindin um þessa heiðurs- ■menn, sem mega ekki vamm sitt vita, þófct stundum slefctist á þá oláublettir eða annar óþverri Starfsöm ríkisstjórn. Ráðherrar og áðrir talsmenn rlkisstjórnarinnar hafa gert mjög ýtarlega grein fyrir stjórn- arframkvæmdum og löggjöf á síðasta 'kjörtímabili. Þarf ég engu þar við að bæta, enda almanna- rómur, að núverandi ríkisstjórn ihafi verið með afbrigðum starf- söm og aflkastamikil. Af marggefnu tilefni í þessum umræðum vil ég þó árétta eftir- farandi: Það er sagt, að afcvinnuvegirn- ir berjist í bökkum vegna láns- fj'árskorts og alveg sérstaklega, að bátafloti landsmanna hafi ekki verið endurnýjaður. Land'búnaðarráðherra og Magn ús Jónsson hafa svarað fyrir landibúnaðinn. Iðnlánasjóði hefir verið aflað lánsfjár og framlög aukin úr ríkissjóði. Ný löggjöf sett til stóreflingar sjóðnum á þessu þingi. Stofnlánadeild sjávarútvegsins var opnuð að nýju með löggjöf 1961. Breyfct var lausaskuldum og hengingarvíxlum útvegsins 1 löng og hagstæð lán, að upp- hæð nærri 400 millj. króna. Þetta er ein allra þarfasta lög- gjöf útvegsins um margra ára bil — enda að fullu metin af þeim, sem hennar hafa notið og munu njóta á næstu árum. Aukning fiskiskipa aldrei meiri Fiskveiðisjóði hefir verið gert kleift að standa undir meiri aukn ingu bátaflotans en nokkru sinni áður með mjög miklum lánveitingum. Svo staðhæfa menn blákalt hér i umræðunum það gagrastæða. Lúðvík Jósefs- son sagði, að skipastóllinn hefði rýrnað undanfarið og allt, sem gerzf hefði væri að þakka inn- flutningi frá tíð vinstri stjócn- arinnar. Á þessu ári er ráðgert sam- kvæmt samningum, að til landsins komi nýsmíðuð 45 fiskiskip erlendis frá. Aldrei hefir útgerðin eignast jafn marga nýja báta á einu ári, en innflutningur báta er nú frjáls. En það sem meira er, þetta eru yfirleitt allt miklu stærri fiskiskip en áður, 11 eikarskip og 34 stálskip, en stálskipin eru að jafnaði tvö hundruð tonn og miklu bet- ur búin að tækjum en áður. Þetta er aukning á þessum skipastól um 8000 rúmlestir á einu ári. Á síðasta ári vinstri stjórnarinnar komu til landsins 7 bátar, 586 rúmJest- ir. Ekki hefir verið brugðið snöggt við til stórræða. En hæsta rúmlestatalan fyrir ut- an 1963 er á árinu 1960, með 3972 rúmlestir. Lögð voru drög að byggingu sumra þess- ara skipa í tíð vinstri stjórn- arinnar, en hvergi nærri allra og þetta er þó ekki nema tæpur helmingur þess, sem nú er að gerast. Og ef innlenda smíðin er talin með, verður samanburðurinn miklu óhag- stæðari fyrir vinstri stjómar málsvarana. Verðmæti bátaflotans, sem nú er verið að smíða erlendis fyrir íslendinga og kemur til hafnar á þessu ári, er hvorki meira né minna en rúmar 400 miljónir króna. Efnahagsbandalagið Hæstv. dórrasmálaráðherra, Bjarni Benediktsson, flutti hér í krvöld ýtarlega ræðu um Efna- hagsbandalag Evrópu og afstöðu Sjálfstæðismanna og ríkisstjórn- arinnar til þess. Með þesisari ræðu var hlustendum gerð til hlítar efnisleg grein fyrir þessu vandamáli, sem stjórnarandstæð iragar fleipra um í þessum xxm- ræðum af fyllsta ábyrgðarleysi. Lúðví'k Jósefsson sagði áðan, að Bjarni Benediktsson vildi beina þátttöku i bandalaginu. Allar upplý'singar ráðherrans um yfir- lýsingar hans í þessu máli sem forsætisráðherra 1961 og fyrr og síðar vitna gegn þessu. Þessi staðhæfing Lúðvíiks Jósefssonar verður því talin vísvitandi ósann indi, ekki heldur gerð tilraun til að finna henni stað. Hannibal Valdimarsson var flaumósa og fullyrti — eins og honum er svo gjarrat — að um sókn um aðild að Efnahagsbanda- laginu þýddi, að umsækjandi verði skilyrðiislaust að játast und ir allar skuldbindingar Rómar- samningsins. Ég er alveg viss um, að jaL.vel Þórarni og Eysteini og Hermanni lika hefir liðið illa að hlusta á þessa fávizku. Hanni- bal þekkir ekki enn ákvæði 238. gr. Rómarsamningsins, sem kveð- ur á um aukaaðild, að ríki eða bandalög ríkja geti tengst Efna- hagsbandalaginu, með undanþág- um frá Rómarsamningnum, sér stæðum gagnkvæmum xéttindum og skilyrðum. Þetta hafa Gri'kkir gert. Aust- txrríki, Svíþjóð og Sviss sóttu um slíika sérstöðu með aukaaðild þann 15. des. 1961. Fleiri þjóðir hafa sent svipaðar umsóknir eins og PorfcúgaL Þetta verðxir að nægja til umhugsunar fyrir Hannibal eftir hinar fávísu full- yrðingar. Hannibal sagði' að nú mundu þeir Aliþýðubandalagsmenn „spretta upp eins og stálfjöður14 eftir framiboðsmókið. Mál var til komið! Vafalaust sprettur Hanni bal upp eins og fjöður mörgum sinnum í kosningabaráttunni nú eins og áður. Honum er það ekki of gott. Betra þjóðfélag — öruggari framtíð í einu er ég sammála stjórn arandstöðunni. Þjóðfélagsbygg- ingin hefir breytat gífurlega síð- ari árin. í stytztu máli er munurinn þessi: - Við bjuggom við innflutnings- höft og leyfafargan, gjaldeyris- skort og svartamarkað. Styrki og uppbætur til atvinnuveganna — sem afla þucrfti fjár til með sköttum á sömu atvinnuvegi og almenning. Látið í einn vasann það, sem tekið var úr hinum. Sú mynd, sem blasir við okk- ur í dag, eftir að viðreisnarstefn- an hefir verið að verki í tæpt kjörtímabil — er í önstuttu máli þessi: Innflutningur hefir verið gefinn frjáls nærri með öllu. Innflutningsnefndin lögS nið- ur, en bankarnir annast fram- kvæmd innflutnings- og gjald- eyrismála. Byggðir hafa ver- ið upp gildir gjaldeyrissjóðir i stað gjaldeyrisskorts. Svarta markaður með gjaldeyri þekk ist ekki og sérhver hefir greið- an aðgang að erlendum gjald- eyri hjá bönkunum, ef brýn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.