Morgunblaðið - 20.04.1963, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 20.04.1963, Blaðsíða 7
Laugadagur 20. apríl 1963 MORGU NBL 4Ð1Ð 7 Framkvæmdir aidrei meiri en nú Ræða Ingólfs Jónssonar landbúnaðar- ráðherra í úfvarpsumræðunum Herra forseti, Heiðruðu áiheyr- endur! Útvarpsumræður þær, sem fram fara að þessu sinni, bera stjórnarandstöðunni ekki gott vitni, sem heldur er ekki við að búast eftir því sem hún hef- ur hagað sér að undanförnu. Erf- itt er að gera upp á milli stjórn- arandstöðuflakkanna. Báðir leggja þeir kapp á að blekkja áheyrendur og segja það svart, sem er hvítt, og sjá ekki nema svart. Vonandi er þó að þeir sjái til sólar. Stjórnarandstaðan reyn- ir að kenna ríkisstjórninni um þær verðhækkanir, sem orðið hafa á ýmsum vörum og þjón- ustu. Stjórnarandstaðan ætlaðist til að þjóðin hafi gleymt því að vinstri stjórnin var við völd á árunum 1956 til ’58 og skóp þé dýrtíð, sem andstæðingar stjórn- arinnair tala nú mikið um. Gleggsta vitnið í þessu máli er fyrrverandi forsætisráðherra, Hermann Jónasson, sem lýsti því yfir að verðbólgualda væri risin, alda sem hlyti að falla, en vinstri stjórnin réð ekki við. f>essi verð- bólgualda ógnaði atvinnuvegun- um og öllijm almenningL Ljóst var að þjóðin hefði orðið gjald- þrota og fátækt og atvinnuleysi leitt yfir almenning, ef ekki hefði verið spyrnt við fótum og viðreisnarráðstafanir gerðar, sem dugðu. Þegar þessar stað- reyndir eru hafðar í huga, má það heita undur mikil, að stjórn arandstaðan skuli hafa uppi á- sakanir á hendur ríkisstjórn og stjórnarflokkunum fyrir það að hafa unnið björgunarstörfin og bætt úr því böli, sem vinstri stjórnin hafði leitt yfir þjóðina. Það er augljóst að ef stjórn- arandstöðuflokikarnir kæmust aft ur til valda, mundu þeir rýra krónuna þar sem þeir margsinnis hafa lýst því yfir, á óbeinan hátt að þeir muni kippa stoðunum und an efnahagslífinu. Til dæmis með J>ví að heimta 130% launahækk- un fyrir opinbera starfsmenn sem ekki gæti verið kjarabót. Stjórnarandstaðan telur einnig að varasjóður sá, sem geymdur er í Seðlabankanum, um 600 millj. króna, eigl ekki að geym- ast, heldur beri að láta þetta fé út í viðskiptalifið og nota það fyrir neyzluvörur og til aukinn- ar fjárfestingar. Myndi ýta undir verðbólguna. Þeir vilja eyða öllu trygging- arfénu. Þeir vilja nema í burtu þá baktryggingu, sem gerir fært að mynda gjaldeyrisvarasjóð og tryggir gengi krónunnar. Aug- ljóst er hvað áhrif það mundi hafa á fjármálakerfið. Það mundi ýta undir verðbólgu og grafa undan krónunni með aukinni þenslu og allt of mikilli eftir- spurn eftir vörum og vinnuafli, sem ekki er fyrir hendL Væri þannig haldið á málum, mundi gjaldeyrisvarasjóðurinn eyðast á fáum mánuðum. Þá kæmu aftur óskatímar Framsóknarmanna, tímar skömmtunar, vöruskorts, nefnda og hafta. Þegar stjórnar andstaðan ræðir um það að rrkisstjórnin búi ilia að ungu fóikinu og atvinnuvegunum með ráðstöfunum, sem óhjákvæmilegt var að gera, þá er eðliiegt að hugleitt sé hvað stjómarand- stoouflokkarnir gerðu á meðan þeu: voru við völd. Nauðsynlegt er ennig að gera sér grein fyrtr því, hvað skeður ef þjóðin yrði svo ógæfusom að auka fylgi þess ara flokka þannig að þerr fengju völdin á ný. Eins og áður var á minnzt, er sú dýrtíð, sem nú er ©ft um rætt, orsök mistaka vinstri stjórnarinnar. Vélar, byggingarefni og aðrar nauð- synjavörur hækkuð í íslenzkum krónum við það að gjaldmiðill- inn var sikráður með eðlilegum hætti eins og gerist hjá öðrum þjóðum. Framsóknarmenn hafa mikið talað um hækkað verð á landbúnaðarvélum og fundið rík- isstjórninni til foráttu, hversu hækkunin hefur verið mikil. Augljóst er að hækkun innfluttra vara er ekki sök ríkisstjórnar- innar nema ef hún hefir hækkað tolla á vörum frá því sem áður var. Samkvæmt nýju tollskránni verður tollur á landbúnaðarvél- um 10%. Er það miklu lægra en áður hefur verið. Allt frá 1948 hefir tollur á landbúnaðarvélum verið 20,7%, en 1957—’58 var tollurinn hækkaður upp í 23,2%, auk 55% yfirfærslugjaldsins. Framsóknarmenn sáu ekki á- stæðu til að lækka tolla á land- búnaðarvélum eða öðrum nauð- synjum meðan þeir voru í ríkis- stjórn. Þáð var ekki fyrr en núverandi rikisstjórn komst til valda, að þeir fóru að ræða um það. Engin vafi er á því að með breytingum á tollum eins og tollskráin nýja ber með sér, er hagur bænda og reyndar lands manna allra mjög mikið bættur. Framsóknarmenn hafa gert sam anburð á innkaupsverði á drátt- arvélum 1958 og 1963. Sá saman- burður er ekki réttur vegna þess að nú er ekki um sambæri- legar vélar að ræða. Þær vélar, sem nú eru á boðstólum, eru miklu vandaðri heldur en hinar eldri gerðir. Vélaaflið er meira og ýmis þægindi og tækniút- búnaður fullkomnari heldur en áður var. Sé miðað við aðstöðu bóndans nú og 1958, má fullyrða að ekki er erfiðara að eignast landbúnaðarvélar nú heldur en þá var. Landbúnaðarvörur hafa hækkað í verði í hlutfalli við hækkun á verði véla og annarra rekstrarvara. Auik þess er bændum nú veitt lán út á drátt- arvélar en það gerðist ekki á meðan Framsóknarmenn höfðu með þessi mál að gera. Fram- sóknarmenn hafa leikið þann ljóta leik, að skrökva að bænd- um og landsmönnum öllum. Einn þingmaður Framsóknarflokksins hefir fullyrt það í útvarpsumræð- um að sauðfjárafurðir hafi hækk að aðeins um 4% frá því 1958 til ársins 1962. Bændum tryggt sex-manna-nefndar vcrð. Sami þingmaður hefir einnig fullyrt að sölutrygging sú, sem bændur nú hafa, á allri fram- leiðslunni, sé ekkert betri held- ur en þær útflutningsbætur, sem bændur fengu þegar Út- flutningssjóður starfaði, en það var oft ekiki nema lítill hluti af því sem vantaði á fullt verð. Bændur töpuðu á þeim tímum tugum milljóna árelag, vegna þess að það vantaði á verðið. Bændur fá nú örugglega umsamið sex manna nefndar verð, en það gerðist ekki fyrr en núverandi ríkisstjórn breytti Framleiðslu- ráðslögunum í árslok 1959. Þá var tekin sölutrygging á útflutt- um landbúnaðarvörum og þannig tryggt, að bændur þyrftu ekki lengur að bera hailann eins og var á meðan Framsóknarmenn stjórnuðu þessum málum, en þá vantaði iðulega mikið til þess að sammngsbundið grundvallar- verð næðist. Eitt anð vantaði hjá mjólkurbúi allt að 30 aur- um á litra en það samsvarar 9000 kr. tapi hjá bónda, sem framleiddi 30 þús. lítra yfir árið, en það mun nálgast meðalfram- leiðslu. Sumir Framsóknarmenn eru svo langt leiddir, að þeir Ingólfur Jónsson geta ekki viðurkennt jafn aug- Ijósar staðreyndir og hér er um að ræða bændum til hagsbóta. Annað mál er svo það, að af- urðaverðið þyrfti að vera hærra, en um það verður ríkisstjórnin ekki borin sökum með réttu, þar sem hún kemur ekki að verð- lagningunni. Það mátti þó skilja það á hv. 3. þm. NorðuL e., að landbúnaðarráðherra stæði eitt- hvað í vegi fyrir því, að þessi endurskoðun gæti tékizt. En bændur hafa skipað nefnd til þess að endurskoða afurðasölu- löggjöfina. Og ríkisstjórnin hef- ir ekki staðið í vegi fyrir því að sú endurskoðun geti hafizt. Núverandi ríkisstjóm hefir gert það, sem ekki hefur verið gert áður, að tryggja bændum það verð, sem á hverjum tíma er samið um í sex manna nefnd- inni. Frmsóknarmenn hafa mikið rætt um afurðalán landbúnaðar- ins og halið því fram, að sjávar- útvegurinn fái mun betri fyrir- greiðslu í bönkunum heldur en landbúnaðurinn. Þessi metingur, sem Framsóknarmenn stöðugt eru með á milli þessara höfuð- atvinnuvega er hvimleiður og á- stæðulaus. Landbúnaðurinn fær ekki lakari fyrirgreiðslu nú í bönkum landsins heldur en áð- ur hefir verið. Bændur fá ekki seinna útborgað afurðaverðið nú heldur en áður. Þeir fá ekki heldur greiddan lægri hundraðs- hluta en var á meðan Framsókn- armenn voru við völd. Víða mun útborgun koma fyrr nú en áður hefur verið og víðs vegar um land er einnig greiddur hærri hundraðshluti út heldur en verið hefur. Þetta vita bændur og er því áróður Framsóknarmanna um afurðalánin út í hött og al- gjörlega skotið fram hjá markL Lánasjóðir landbúnaðar- ins endurreistir. í gærkvöldi fullyrti Framsókn- arþingmaður að bændur borguðu til Stofnlánadeildar landbúnaðar ins tvær krónur á móti hverri einni, sem Stofnlánadeildin fengi annars staðar frá. Þingmaðurinn skrökvar blygðunarlaust að bændum og áheyrendum öllum og má segja, að málflutningur eins og þessi sé tæplega svara- verður. Ekki er að efa, að Tím- irm prentar upp þennan ósóma, ekki einu sinni, heldur oft. Ætl- ast er til að ýmsir landsmenn lesi aðeins Tímann og trúi því, sem þar stendur. Framsóknar- menn fullyrða að þeir hafi skil- ið vel við lánasjóði landbúnað- arins. Sannleikurinn er sá, að lánasjóðir landbúnaðarins voru gjaldþrota, þegar núverandi ríkis stjórn tók að sér að endurreisa þá. Viðskilnaður Framsóknar við sjóði landbúnaðarins var með þessum hættL Það er staðreynd, sem ekki verður á móti mælt. Það er mælikvarði á hina nei- kvæðu stjórnmálahætti Fram- sóknarmanna, að þeir hafa bar- izt gegn því að Stofnlánadeild landbúnaðarins væxi byggð upp. Það hefur tekizt giftulega að reisa við fjárhag búnaðarsjóð- anna með innlendu fé og örugg- um tekjustofnum. Stofnlána- deildin mun innan fárra ára verða mikilsmegnandi fyrir landbúnaðinn og með hverju ári mun eigið fé deildarinnar aukast stórlega. Eftir fá ár mun deildin hafa eigið fé til ráðstöf- unar árlega um 100 millj. króna. Eftir 10—12 ár mun deildin geta lánað af eigin fé árlega um 150 millj. króna. Landbúnaðurinn hefir löngum vantað fjármagn. Þess vegna er það nauðsynlegt fyrir framtíðina að byggja upp örugga lánastofnun fyrir þennan mikilvæga atvinnuveg. Fram- sóknarmenn finna að því að bændur skuli greiða 1% af bú- vöruverðinu til Stofnlána- deildarinnar. Framsóknarmönn- um finnst eigi að síður sjálfsagt að greiða sams konar gjald til bændahallarinnar. Neytendur greiða án möglunar tilskilið gjald til Stofnlánadeildarinnar með þeim skilningi að það sé einnig hagur neytenda að land- búnaðurinn eflist. En Framsókn armenn berja höfðinu við stein- inn. Þótt ekki sé nema ár liðið síðan Stofnlánadeildin tók til starfa í því formi, sem hún nú er, hefir eigi að síður komið í ljós góður árangur af starfsemi hennar. Útlán hafa verið aukin mikið frá því sem áður var. Var því lýst hér í útvarpsum- ræðunum í gærkvöldi og verður því ekki endurtekið. Framsókn- armenn ræða mikið um erfið- leika ungs fólks að stofna heimili í sveit. Skal ekki gért lítið úr þeim erfiðleikum. Það er dýrt að byrja búskap með fullkom- inni vélvæðingu, góðum húsa- kosti fyrir fólk og búpening, mikilli ræktun og byggingum yfir heyforða og vélar. En það dugar ekki að tala eins og þess- ir erfiðleikar séu nýtilkomnir. Það dugar ekki fyrir Framsókn- armenn að halda því fram að þessir erfiðleikar hafi ekki ver- ið fyrir hendi 1957—’58, þegar þeir voru síðast við völd. Það er gagnslaust að halda þvi fram, að fólksflótti úr sveitunum hafi aukizt á síðustu þremur árum. Það er réttara fyrir Framsóknar menn að viðurkenna það að síð- ustu áratugina hefir fólk flutt úr sveitunum og ekki siður þau árin, sem þeir voru við völd. Um margra ára skeið hefir Veð deild Búnaðarbankans verið til samkvæmt lögum, en lítt starfs- hæf vegna fjárskorts. Nú er að því unnið að efla Veðdeildina til þess að hún geti veitt lán til jarðakaupa og þannig gert ungu fólki auðveldara að festa sér bújörð. Hækkun útlána í Veð- deild Búnaðarbankans mun koma til framkvæmda ínnan tíðar. Fólki auðvelt að stofna bú í sveit. Um áratugi hefur verið heimilt samkvæmt lögum að lana aut að 75% af byggingarkostnaði íbúð- arhúsa, útihusa og ýmissa fram- kvæmda annarra í sveitum lands ins. Vegna fjárskorts hefur ekki verið unnt að nota þessa heim- ild nema að takmörkuðu leyti. Þegar Framsóknarmenn hækk- uðu byggingarefni og rekstrar- vörur landbúnaðarins um 55% 1957—’58, gerðu þeir engar ráð- stafanir til þess að hækka út- lán vegna bygginga og ræktun- ar. Bændur söfnuðu því lausa- skuldum á þessum árum og Borg uðu víxilvexti af lánum vegna þess að Framsóknarmenn van- ræktu búnaðarsjóðina og skildu við þá tóma og gjaldþrota. Með uppbyggingu Stofnlánadeildar- innar og eflingu Veðdeildarinn- ar er að því unnið að auðvelda fólki að stofna bú í sveit. Það er öruggt, þótt Framsóknarmenn vinni að því öllum árum að telja kjark úr fólki, að hugur og dugur mun hafa yfirhöndina og sveitir landsins byggjast upp með eðlilegum hætti. Framsókn- armenn tala mikið um samdrátt í sveitunum. Þeir segja að rækt- un og byggingar hafi dregizt saman seinni árin, en þetta er ekki rétt eins og flestir vita, sem lesa opinberar skýrslur um þessi mál. Jarðræktarlögin í endurskoðun. Jarðræktarlögin eru í endur- | skoðun. Búnaðarþing skipaði milliþinganefnd til þess að endur s-koða þessa merfku löggjöf. Nefndin skilaði áliti á s.l. árL Þar sem hér eru um mjög mikil- væga og merka löggjöf að ræða en milliþinganefndin ekki stjórn skipuð eða kosin af Alþingi, þótti eðlilegt að nefndarálit bún- aðarþingsnefndarinnar væri at- hugað af stjórnskipaðri nefnd. Sú nefnd er að Ijúka störfum og hefir gert ýmsar breytingar á frumvarpi því sem fyrir lá. Breytingarnar munu tvímæla- laust vera til bóta og er þar um ýmis nýmæli að ræða til sam- ræmis við breytta búnaðarhættL Ætla má að ný jarðræktarlög verði sett á næsta þingi, þar sem frumvarp hinnar stjórnskipuðu nefndar mun vera fullbúið á þessu vori. Það var fullyrt í um- ræðunum í gærkvöldi, að land- búnaðarráðherra héldi jarðrækt- arstyrknum niðri með því að miða jarðræktarstyrkinn við skakka vísitölu. Þessi ásökun er ekki svaraverð. Þó þykir rétt að geta þess að jarðræktarstyrk- ur er greiddur nú eftir sömu reglum og gilt hafa síðan 1948 og vísitalan er útreiknuð eftir þeim reglum, sem í gildi eru um útreiking hennar. Jarðræktarstyrkur hækkar verulega til þeirra, sem hafa smærri tún með þeim lögum, sem nú ganga í gildi um breyt- ingu á lögum um Stofnlánadeild, þar sem miðað er við hærri styrk til þeirra, sem hafa tún undir 15 ha. í stað 10 ha. áður. í sömu lögum er gert ráð fyrir að hækka byggingarstyrk á íbúaðarhús í sveitum. Á það var minnzt í umræðunum í gærkvöldi að vega málin væru i miklu öngþveitL Ekki var leitazt við að færa rök fyrir þessari fullyrðingu. Þess ber að geta, að vegafé hefir á undanförnum árum verið of lít- ið til viðhalds og nýbygginga. í tíð núverandi ríkisstjórnar hefir vegafé verið aukið hlutfallslega mikið meira en nokkru sinni fyrr. Þannig hefir viðhaldsféð verið hækkað um 90% síðan 1958, fé til nýbygginga um 70%, til brúargerðar um 62% og til flugvalla 99%. Talið er að við- halds- og vegagerðarkostnaður hafi aukizt á þessu tímabili um 45%. Samkvæmt þessu er mun betur séð fyrir vegamálunum en var á meðan Framsóknarmenn fóru með þau mál. Framkvæmdir aldrci meiri en nú. Eigi að síður geta menn verið sammáia um að þörf sé á auknu Framhald á bls. 9.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.