Morgunblaðið - 20.04.1963, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 20.04.1963, Blaðsíða 16
VORCl'N m. 4 fílB Láúgardaglxr 20. apríl 1963. lf? iiarl Magnússon Bakkagerði Monika Sigurðar- dóttir, Reynistað Þriðjudaginn 16. þ.m. fór fram frá Innrahóimskirkju í Innri- Akraneshreppi útför Karls Magnússonar, verkamanns í Bakkagerði, nú Suðurgata 104 í Akraneskaupstað. Karl hafði ekki gengið heill til skógar það sem af ei þessu ári. Hafði hann kennt nokkurs sjúk- leika er hann gat ekki til hlítar fengið bót á ráðna. Gekk hann þó til vinnu sinnar næstum dag- lega. Hafði hann nú um nokkurt árabil verið að störfum hjá Akra. nesbæ og meðal starfa hans þar var að taka grafir í Garðakirkju garði og ganga frá legstað þeirra sem þar eru jarðsettir. Snyrti- legt handbragð hans, alvöru- gefni, hógvært og siðprútt dag- far hentar vel þeim, sem með umbúnaði slíkum sem í starfi þessu felst, flytur hinum dána hinztu kveðjuna hér á jörðu. Þriðjudaginn 9. þ.m. var Karl þar síðast að verki. Þegar hann, ásamt öðrum manni, sem var honum til aðstoðar, var að ganga frá leiði konu, sem hafði verið jarðsett þar um daginn, varð hann bráðkvaddur á grafarbakk- anum. Læiknisskoðun, sem fram- kvæmd var að heita mátti sam- stundis, staðfesti hið skyndilega fráfall hans. Þannig endaði lífsferill þessa geðþekka og háttprúða sæmdar- manns. Framh. af bls. 15 gekk hann með lærisveinum sín- um. Hinn aldni Davíð konungur fór þessa leið með sorg í sefa, er hann flúði undan Absalon syni sínum. Þessa leið gekk her- leidd þjóð komin austan að, til að taka að nýju við þvx landi, sem hún vissi að Guð hafði gefið henni í öndverðu og endurreisa hina heilögu borg. Og þessa leið fór rómversk hersveit á hrað- göngu með rómverskan örn, sem tákn í fylkingarbrjósti, tíunda hersveitin rómverska, sem dvald- ist í Jeríkó, og nú hélt upp til Jerúsalem, til þess að leggja borgina í eyði. Ég hugsa um alla þá mörgu pílagríma, sem stefnt hafa upp til þessarar borgar á umliðnum öldum og loks náð settu marki eftir margvíslegar þrengingar á langri og torsóttri leið. Sumir létu jafnvel lífið vegna hugsjónar sinnar, áður en settu marki var náð og dóu eins og hetjur Guðs. Það fer ekki hjá því, að samanburður læðist inn í hugann á þeim kjörum, sem þeip Jórsalafarar áttu við að búa á sinni ferð og þeim, sem við ís- lenzku Jórsalafararnir búum við á vegum Ferðafélagsins Útsýnar: Þeyst um loftið í hraðskreiðri flugvél, svo vegalengdir allar verða hverfandi smáar, búið í þeim beztu gistihúsum, sem völ er á, og hægt að lifa áhyggju- lausu lífi í trausti þess, að séð sé fyrir öllum þörfum á þann hátt, sem hagkvæmast má verða. Þannig breytast tímarnir, taka að vísu margt, sem eftirsjón er að, en hafa verið nútímamönnum einkar gjöfulir. — Ég minnist pílagrímanna sænsku, sem héldu til Jerúsalem á síðasta tug 19. aldar, Dalafólksins, sem yfirgaf allt, til þess að geta þjónað Guði og fetað í fótspor Krists í hinni heilögu borg. Og átakanleg er lýsingin hjá Selmu Lagerlöf í skáldsögu hennar „Jerúsalem“ á hinum deyjandi Dalamanni, sem kemur til borgarinnar. Lýsingin á hinni himnesku Jerúsalem Op- inberunarbókarinnar tvinnast ó- hugnanlegum staðreyndum hinn- ar raunverulegu borgar. Hann sér hvergi „veggi úr skíru gulli og hlið úr brenndu gleri". Hinn sóttveiki maður skynjar sína þráðu borg í glóð sólarlagsins að baki vesturfjalla. Upp í huga Karl Magnússon var fæddur á Sauðárkróki, 6. júní 1899, og ólst hann þar upp með foreldrum sín um, Guðnýju Jónasdóttur, ætt- aðri úr Húnavatnssýslu, og Magn úsi Benediktssyni, sjómanni, sem var Borgfirzkur að ætt, fæddur og uppalinn í Mýrarsýslu. Karl fór ungur úr foreldrahúsum og í vinnumennsku í Skagafirði. Árið 1922 fluttist hann með Borgfirðingi, Halldóri Jónssyni, frá Ausu, sem kvæntur var Skag firzkri konu og hafði búið í Skagafirði um skeið, að Syðstu- fossum í Andakil og var hann þar hjá þeim hjónum í vinnu- mennsku hin næstu ár. En frá Syðstufossum fluttist Karl að Ytra-hólmi, til þess er línur þess ar ritar, og var þar vinnumaður í nokkur ár, eða til þess, að hann kvæntist Guðrúnu Sigurðardótt- ur, frá Heynesi, mikilli myndar- og dugnaðarkonu. Eftir að Karl kvæntist flutti hann í Akranes- kaupstað, keypti þar hús og hefir búið þar síðan. Guðrúnu konu sína missti hann eftir 14 ára sambúð. Karl unni konu sinni mjög, og var honum fráfall hennar, á bezta aldri, þungt áfall. Þeim hjónum varð ekki barna auðið. Nokkru eftir andlát Guðrúnar tók Steinunn Skúladóttir, skag- firzk að ætt, við ráðskonustörf- um hjá Karli, og hefir hún gegnt minn kemur brot úr gömlu, ís- lenzku kvæði: Ó, Jerúsalem, upp til þín önd langar mín, þú, sem í gullinu glóir og skín með guðvefslín. Alltaf er ekið á brattann. Sand öidur rísa með skrælnuðum gróðri, vatnslaus gil, ófærur. Mér dettur í hug syndahafurinn, sem árlega var rekinn út á þessa hrikalegu eyðimörk til friðþæg- ingar-fyrir syndir lýðsins. Okkur nútímamönnum þykir þetta hafa verið ærið barnalegar athafnir hjá ísraelsmönnum, en því verð- ur ekki móti mælt, að þetta hef- ur ha;ft sín sálrænu áhrif á þá, sem þessu trúðu. Skuggarnir, sem höfðu skriðið í leyni undir steina og í hellis- skúta undan hádegissólinni og látið sem minnst á sér bera, koma nú fram úr leynum sín- um og skríða lengra og lengra fram, takandi á sig alls konar kynjamyndir. Brátt eru þeir alls ráðandi. Sólin hnígur í vestri og dagurinn deyr. Hér ber nóttina svo skyndilega að. Eftir stutta stund höfum við tindrandi stjörn ur yfir höfðum okkar. Sennilega hafa þeir komið þessa leið vitr- ingarnir úr Austurlöndum, sem fylgdu stjörnunni, úr því þeir héldu fyrst til Jerúsalem til að halda spurnum fyrir hinum ný- fædda konungi Gyðinga. Við ökum fram hjá Betaníu, sem er 2 km suðaustur af Jerú- salem. Þá erum við búin að aka 30 km frá Dauðahafinu. Þetta eru ekki miklar vegalengdir, og styttri en ég hafði búizt við. Þessum stað eru bundnar svo margar fagrar frásagnir úr lífi Jesú. Hér áttu vinir hans heima. Þarna hafði hann setið í húsi þeirra Mörtu og Maríu og Sím- onar líkþráa. Enn í dag eru þessi hús til sýnis fyrir auðtrúa erfða- menn — jafnvel gröf Lazarusar. Það er á öllum tímum reynt að græða á sem flestu. Mér er nóg að líta til Betaníu. Þarna áttu atburðirnir sér stað. Næsti áfanginn er hin heilaga borg, harðneskjuleg á að líta, eins og öldungur, sem býr yfir biturri lífsreýnslu langrar ævi, en tignarleg þarna uppi á 790 m háum fjallseggjum, geymandi í hjarta sér helgustu minningar allra kristinna þjóða. því starfi síðan af trú og dyggð. Eftir að Karl fluttist á Akra- nes, stundaði hann daglauna- vinnu. En lengi fram eftir æfinni var hann við sveitastörf á sumr- in, þar á rneðal um tvo áratugi hjá undirrituðum, næst eftir að hann lét hér af vinnumennsku og reisti sitt eigið bú. Um nokkurt ■reið veitti Karl forstöðu stóru kúabúi, sem Þórð- ur Ásmundsson, útgerðarmaður á Akranesi, rak. Þórður var mik- ill jarðræktarmaður og í forystu um bættar aðferðir við jarð- vinnsluna. Það var hann og Bjarni Ólafsson, skipstjóri, sem fluttu til landsins frá Bandaríkj- unum fyrstu stóru jarðvinnslu- vélina. Karli voru sveitastörfin eigin- leg og hugstæð. Innsta eðli hans var æfinlega mjög nánum tengsl- um við hina gróandi jörð, enda átti hann jafnan nokkurn kinda- stofn, er hann aflaði heyja handa og annaðist. Einnig átti hann ávallt góð- hesta, einn eða fleiri, því hann var kær að góðum hestum, féll þar í einn og hinn sama farveg Húnverskur og Borgfirzkur upp- runi hans. í haust sem leið gaf hann síð- asta reiðhestinn sinn frænda sínum, sem stundar nám í bænda skólanum á HvanneyrL Karl var hinn mesti dugnaðar- maður, og léku störfin í höndum hans. Hann var húsbóndahollur og grandvar til orðs og æðis. Karl var hagsýnn maður, ráð- deildarsamur og hinn mesti rausnarmaður. Rækti hann vel minningu konu sinnar. Lagði hann jafnan blóm á leiði hennar á hverjum afmælisdegi. Og nú á þessu ári færði hann Innrahólms- kirkju að gjöf rausnarlega fjár- hæð, en sú kirkja hafði verið sóknarkirkja Guðrúnar frá blautu barnsbeini til þess er þau hjón reistu bú í Akraneskaup- stað. Hafði Guðrún kosið sér þar hið síðasta leg, og þar var Karl jarðaður við hlið hennax. Karl var maður mjög trygg- lyndur og vinfastur. Honum varð því vel til vina um dagana. Eigi líður okkur, heimilisfólkinu á Ytrahólmi, úr minni trygglyndi hans, því okkur öllum til mik- illar ánægju taldi hann sig jafn- an vera i ríkum tengslum við þetta sitt gamla heimili. Þau voru fjögur systkinin, börn Guðnýjar og Magnúsar: Karl og tvær systur, Sigríður og Unnur, báðar búsettar í Reykja- vík. Þær eru báðar giftar og eiga marga afkomendur. Bróðir þeirra, Jón að nafni, fóx ungur til Vesturheims, en engar spurnir hafa þau systkinin haft af hon- um nú um langt árabil. Við hið skyndilega fráfall Karls Magnússonar söknum við hér á bæ vinar í stað. Hugheilar kveðjur okkar fylgja honum yfir landamærin. Fétur Ottesen, Fædd 2. ágúst 1894. Dáin 30. marz 1963. Monika var fædd á Spáná í Unadal. Foreldrar hennar voru Sigurður bóndi á Spáná og síðar á Hugljótsstöðum á Höfðaströnd Ólafssonar bónda í Bæ og siðast á Spáná Ólafssonar, en hann var bróðursonur Jóns prófasts Halls- sonar í Glaumbæ, d. 1894. Kona Sigurðar og móðir Moniku var Margrét Baldvinsdóttir bónda síðast á Stafnshóli í Deildardal Gottskálkssonar, en móðir Bald- vins var Þuríður dóttir séra Hann esar Bjarnasonar prests og rimna skálds á Ríp, d. 1838. Eru þetta kunnir skagfirzkir ættstofnar. Monika var elzt af 8 systkinum Hún ólst upp í foreldrahúsum og vann foreldrum sínum fram yfir fermingaraldur. Vorið 1916 fór hún í vist til frændfólks síns á Reynistað og átti þar heimili upp frá því óslitið til æfiloka, eða í tæp 47 ár. Á yngri árum gekk hún að útivinnu vor. og sumarmánuðina, en starfaði ein- göngu innanbæjar er á leið æf- ina og var rösk til allra verka. Á vetrum hafði hún lengst af nokk- uð frjálsar hendur þannig dvaldi hún vetrarlangt á Akureyri og lærði þar fatasaum og varð mjög vel fær í þeirri grein. Hún veitti einnig í mörg ár forstöðu sauma- námskeiðum, er kvenfélögin í framhluta Skagafjarðar héldu vetur eftir vetur fyrir félagskon- ur sínar og voru mikið sótt. Þess á milli vann hún Reynistaðar- heimilinu. Monika var einnig mikill og áhugasamur styrktar- maður ungmennafélags sveitar- innar sem á henni mikið að þakka. En stærstu þakkirnar til henn- ar verða frá Reynistaðarheimil- inu, þar starfaði hún undir stjórn þriggja ættliða er tóku við hver fram af öðrum og sá einnig fjórðu ættliðina vaxa úr grasi. Líklegt þykir mér að börnin á ÉG ÞAKKA þeim ágætis mönn- um, sem hafa skrifað skoðanir sínar, um þéringar — því þær eru talsvert áhugamál margra í á- kveðnum tilgangi — og skiptir engu hvort menn eru þar með eða á móti. Allir hafa sitt þjóðlega málfrelsi og vita að þéringar eru hvorki lög né list, sem geti orð- ið neinum til stuðnings og því síður hagsbóta. Enda aldrei til þess ætlast. Það gefst aldrei vel að hertaka hugi manna, skipa þeim að „standa fjær“ vegna em hverra mismunandi lífskjara, auðs og metorða. Nei, slík snjall- ræði missa marks og endast illa: Einn maður bar nýlega þá sök á mig, að ég hefði gjört gys að þéringum, og það er satt. Hefi nefnilega ekki þann menningar þroska að „snobba" fyrir þéring- um. — En mér finnst að þeir sem treysta svo mjög á öryggi þeirra, ættu að geta skilið hund-greyið á Bessastöðum, sem vildi auðvitað ekki láta svifta sig þeirri virðingu að vera þéraður. Og það eru fleiri en Björn Gunnlaugsson sem vilja sveigja eðli dýranna til mann- legra hneigða. T. d. þéra Eng- lendingar sína heldri hunda og gjöra þeim góð skil í daglegri háttvísi. Ég þakka Kristjáni Albertssyni fyrir það að hann tekur málstað bílstjórans, sem kærði sig ekkert um að láta þúa sig „eins og hund“. En skil ekki hvers vegna hann tekur endilega þá samlíkingu. Ekki verða ættingj ar, ástvinir né aðrir jafn háir menn — hundar þótt þúaðir séu og sízt mun svo litið á þá. Svo Sxef ég tekið eftir því að Reynistað, sem nú eru að vaxa upp, eigi henni allra mest að þakka. Umhyggja hennar fyrir þeim var alveg einstök. Börnin sem hafa verið á Reynistað til sumardvalar eða um lengri tíma eiga henni einnig mikið að þakka og varð hún þess lika oft vör. Monika hlaut verðuga viður« kenningu frá Búnaðarfélagi ís- lands fyrir langa og dygga þjón- ustu. Hún var eitt af þessum tryggu hjúum, sem ávallt var hægt að treysta og nú hverfa sem óðast. Þetta fólk var sam- gróið heimilum sínixm og hefir frá öndverðu verið einn af horn- steinum okkar gömlu og rót~ grónu sveitaheimila. Slíku heim- ilisfólki hefir aldrei verið full þakkað; það sést bezt nú, þegar það er að hverfa úr sveitunum. Hún var jarðsett á Reynistað, miðvikudaginn 10. apríl sl., að viðstöddu talsverðu fjölmenni, þrátt fyrir óhagstætt veður. J. Sig. hámenntaðir menn þurfa alls ekki þau hálmstrá að vera þéraðir —• til að bera af öðrum. Það var t.d. sagt að Magnús Stefenssen hefði mætt fátækum alþýðumanni, rétt honum hönd sína og talað við hann án þéringa. Þá kom annar höfðingi þar að og ávítaði mann inn harðlega fyrir þann dónaskap að þúa landshöfðingjann. Hina svaraði honum og sagði að lokum „mér finnst eiginlega að enginn ætti að þéra neinn nema andskot- ann og yður“. Mig grunar að þeir sem berjast mest fyrir menningarbáknmu fræga, að þérast — muni þó vita að þéringar eru brú, sem getur bilað á miðri leið. Menn þéra oft þá sem þeir hafa andstyggð á og fólk er yfirleitt að uppgefast á þeirri skynhelgi, sem hvergi hefur sína næringu frá hlýhug og bræðralagi. Og svo skulum við athuga eina rödd frá öðru sviði. Ég hef séð það á prenti að Jón biskup Vída- lín hafi sem ungur prestur verið að messa í höfuðborg Dana. Þar kom konungurinn inn í kirkjuna með kórónu sína á höfðinu. Þá leit presturinn við og sagði: „Ó, þú syndugi maðurl Berð þú ekki svo mikla respekt fyrir Konungi þínum að þú takir ofan þitt höfuð fat fyrir hans orði!“ Konungurinn lagði kórónu sína til hliðar og hlustaði með auðmýkt á framhald messunnar: Þarna mætast tvö mikilmenni, sem koma öllu sínu fram — án þéringa. Kristín Sigfúsdóttir, frá Syðri-Völlum. — Austurlandaför Enn um þéringar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.