Morgunblaðið - 20.04.1963, Side 8
8
UORCUNBLABIB
Laugadaguv 20. aprll 1963
Ræða Jóhanns Hafstein
við útvarpsumræðurnar
Herra forseti!
Káttvirtu hlustendur!
í eldhúsuimræðum er það eðli
máiisins samkvæmt ríkisstjórnar-
innar og stuðningsliðs hennar
að svara fyrir sínar gjörðir. Það
hefir verið gjört.
En í lok þessara umræðna er
nú svo komið, að það er/stjórn-
axandstöðunnar að svara til saka.
Stjórnarandstaðan er að nafn-
inu til tvíþætt. Það eru Fram-
sóknarmenn og hinir.
Þessir hinir kalla sig enn Al-
þýðubandalagsmenn. En þetta lið
er í svo mikilli upplausn, svo
xniklum sárum, að það er naum-
ast drengilegt að skjóta harka-
lega að því.
„Bi*eiðfylkingin“
og „aðrir vinstri menn“
Ég kenndi í brjósti um Karl
öuðjónsson, þegar hann í gær-
kvöldi var að lýsa „breiðfylk-
ingu“ Aiþýðubandalagsmanna,
sem nú væri að leggja út í kosn-
ingarnar. Hann lýsti því, hvað
stuðningsmenn hefðu þurft að
bíða lengi og með miklum kvíða
eftir framboðunum. En „aftur
kemuir vor í dal“ sagði Karl.
Þvl í gær hefði náðst breiðari
samstaða vinstri manna í kom-
andi kosningum en nokkru sinni,
með skjalfestum samningi Al-
þýðubandalagsins og Þjóðvarn-
ar — „mikið var að beljan bar!“
Svo var liðið ávarpað í ræðulok-
in: „Alþýðubandalagsmenn, —
Þjóðvarnarmenn og aðrir vinstri
n»enn!“ Já, — hverjir eru þess-
ir ,iaðrir vinstri menn?“ Ekki
voru kommúnistar nefndir á
nafn! Var kannske bara átt við
einhverja Framsóknarmenn?
Nei — á þessa breiðfylkingu
þarf ekki að eyða miklu púðri!
Framsóknarviðlagið
Ef menn reyna að gera sér
grein fyrir inntakinu í ræðum
Framsóknarmanna í gær og í
kvöld, viðlaginu, sem sungið er
aftur og aftur — oft með alveg
sörnu orðunpm, en stundum
nokkrum tilbrigðum, þá er það
tválþætt:
Annars vegar hversu hroða-
lega erfitt sé nú að draga
fram lífið af því að vél, bát-
ur eða íbúð kosti nú svo
miklu meir en á sæludögum
vinstri stjórnarinnar.
Hins vegar er bara allt
svart, sem stjórnarliðið hefir
gert, en þó ennþá svartara
en svart það, sem stjórnarlið-
ið hefir ekki gert — en ætlar
að gera!
Útreikningana í fyrri flokkn-
uim annast minni spámennirnir,
Sigurvin, Ásgeir og fleiri slíkir.
En að sjáifsögðu er höfuð-
kempan í sortanum. Sjálfur for-
maður flokiksins, Eysteinn Jóns-
son gengur þar fram fyrir
skjöldu.
Minni spámennirnir
Fyrst ætla ég að víikja að
minni spámönnunum. Það má
taka dæmi Sigurvins. Hann seg-
ir, að nú kositi íbúð 150 þús.
kr. meira en fyrir 5 árum, í táð
virastri sælu. — Þetta er dauða-
dómurinn yfir viðreisninni! Hin-
ir segja, að það sé dráttarvél,
sem kostar meira, mjaltavél eða
múgavél.
Það er rétt, að verðlag hefir
hækkað um of — dýrtíð meira
en skyldi. En hvað veldur? Hvern
ig leit hér út, þegar vinstri stjórn
in gafst upp?
Verðbólgualdan var skollin
ylir — eins og Hermann Jónas-
son staðfesti í fráfararræðu
sinni. Við það hafði hann svo
einu að bæta, eiras og hann sagði,
að í ríkisstjórninni (þ.e. vinstri
stjórninni) væri ekki samstaða
um nein úrræði.
Jteiknað var út af sérfræðing-
um vinstri stjórnaxinnar og öðr-
um hagfræðingum og óvéfengt,
að með sama áframhaldi mundi
vísitalan á næstu 10 mánuðum
fara upp í 270 stig, þ.e. hækka
um 70 stig. En þhð var sú óða-
verðbólga, sem forsætisráðherra
vinstri stjórnarinnar spáði. En
þá var líka öruggt, að dýrtíðin
væri búin að koma atvinnuveg-
unum í þrot og enginn erlend-
ur gjaldeyrir fyrir hendi til nauð-
synlegra þarfa eða til þess að
standa við erlendar skuldbind-
ingar þjóðarinnar.
Þá hefði ekki þurft að
reikna út hvað íbúð hefði vax
ið i verði — þvi að engin
íbuð hefði enfaldlega verið
byggð. Heldur ekki hægt að
fiytja inn dráttarvélar eða
aðrar vinnuvélar.
Ef Framsóknarmenn halda,
að fólkið sé búið að gleyma
þeim hörmungum, sem vinstri
stjórnin leiddi yfir okkur og
við blöstu, þá munu þeir
finna, að þeim skjátlast.
Núverandi stjórnarflokkum hef
ir giftusamlega tekizt að lyfta
þjóðinni upp úr foraðinu og
leggja grundvöll að traustarj og
betri framtíð.
— svart og svartara
en svart —
Þá kem ég að hinum þættin-
um í viðlagi Framsóknarmanna
— að alit sé svart og svartara
en svart.
Eysteinn Jónsson segir, að
stjómarliðinu „hafi með öllu
miistekist að ráða við verðbólg-
una“. En hlaut ekki svo að fara,
þegar sami maður segir í næstu
setningu, að ríkisstjórnin hafi
„aldrei leitað annarra ráða en
að magna dýrtíðina". Eysteinn
segir, að það sé algjörlega von-
laust að „lifa mannsæmandi lífi
í landinu af venjulegri vinnu“,
að „stjómin hafi ekki ráðið við
neitt síðan eftir gengisfelling-
una 1961“, „að upplausnarein-
kennin séu öllum ljós“, „óðadýr-
tíð — fossandi verðbólga". Ljótt
er það!
Nú bið ég hvern og einn að
líta í eigin barm — hvort allt
sé svona svart og rotið í þjóð-
félaginu.
Svo leggur Eysteinn Jónsson
stjórnarliðinu skýringar í munn
á því, af hverju viðreisnin hafi
brugðist. Við teljum að visu að
hún hafi lánast — en Eysteinn
Jónsson segir, að við teljum, að
viðreisnin hafi misitekist „vegna
aflauppgripanna", að ríkisstjórn-
in telji, að vegna þess að „alls-
staðar sé næg atvinna handa öll-
um hafi viðreisnin brugðist“ —
„viðreisnin farið út um þúfur,
af því að eftirspurn eftir vinnu-
afli var of mikil".
Þefcta er formaður Framsókn-
arflokksins, sem svona talar!
Ég veit að margir spyrja, hvort
þessum gamla stjórnmálaforingja
sé eitbhvað alvarlega brugðið?
En það er meira blóð í
kúnni!
Og þá er komið að því, sem
stjórnarliðið hefir ekki gert,
en andstæðingarnir segja að
það ætli að gera. Eysteinn
Jónsson segir, — að það löðri
allt í ráðagerðum i stjórnar-
herbúðunum, að veita útlend-
ingum aðstöðu til að verka
íisk hér í landí, að hleypa
Jóhann Hafstein
þeim útlendu inn í íslenzka
fiskiðnaðinn og þar næst inn
í íslenzku landhelgina! Og
undir þetta tók Hermann Jón-
asson í ræðu sinni í kvöld.
Þarna hafa menn það! Það
á að vera aðal áhugamál mitt
og annarra þingrranna, sem
stutt hafa ríkisstjórnina, og
þó auðvitað fyrst og fremst
ráðiherranna, að hleypa út-
lendingum inn í islenzka land
helgi!
Ég vil aðeins hafa um svona
málfli/tning eftirfarandi:
Hann er til vanvirðu þeim,
sem viðhafa hann.
Svona glannaskapur er frek
leg móðgun við hlustendur,
því að hann ráðgerir fyllsta
dómgreindarskort þess, sem
til er talað.
Svona háttalag í þingsölun
um er niðrandi fyrir Alþingi.
GMsli Guðmundsson talaði um
okkur stjómarsinna sem þá „lít-
iðtrúuðu á framtíð íslands". Ó-
vildina í garð bændastéttarinn-
ar eigum við að hafa sýnt með
því að ákveða kjördag þann 9.
júní. En þegar Framsóknarmenn
rufu þingið, sem frægt er orðið,
1961, þá ákváðu þeir kjördag
þann 12. júní. Lambær hafa sjálf
sagit verið á Norðurlandi þá eins
og nú. En vegir og samgöngu-
skilyrði voru þá æði mikið önn-
ur en nú. Það er von, að öðr-
um stjórnarandstæðingum bregð-
ist bogalistxn þegar jafn gjör-
hugulum þingmanni fatast svo
mjög.
Ósannindi
um heiðursmenn
í Vafþrúðnismálum var það
ein gá-ta Óðins, sem ekki varð
ráðin— er hann spurði:
* Hvat mælti Óðinn
áður á bál stigi
sjálfur í eyra syni?
Þetta vissi hann einn, eftir bál-
för Balduns, og gat því ekiki
Vafþrúðnir ráðið gátuna. Það er
hins vegax auðráðið, hverju Ey-
steinn hvíslaði í gærkvöldi í
eyra Sigurvini. Það var innskot
Sigurvins í handrit sibt, að for-
sætisráðlherra hefði sagt ósatt.
Samibandið hefði ekki leitað eft-
ir verðhækkunum eftir kaup-
hækkanirnar 1961. Ólafur Jó-
hannesson talaði hér áðan af
miklum fjálgleik um það sama
og taldi málílutning forsætis-
ráðherTa alveg óverjandi. Hér
skakkar sára litlu, sem gert er
veður út af. Sambandið mun
hafa látið hin einstökú kaupfélög
um að óska mjög eindregið eftir
verðhækkunum. En skeggið er
skylt hökurani. Að kaupfélögin
leituðu fast eftir hækkun álagn-
ingar vegna kauphækkananna
1961 og jafnvel ainámi verðlags-
eftirlits á þessum tima liggur
fyrir ótvíræð vitneskja um hjá
Verðlagsnefnd. Þetta eru öll ó-
sannindin um þessa heiðurs-
■menn, sem mega ekki vamm sitt
vita, þófct stundum slefctist á þá
oláublettir eða annar óþverri
Starfsöm ríkisstjórn.
Ráðherrar og áðrir talsmenn
rlkisstjórnarinnar hafa gert
mjög ýtarlega grein fyrir stjórn-
arframkvæmdum og löggjöf á
síðasta 'kjörtímabili. Þarf ég engu
þar við að bæta, enda almanna-
rómur, að núverandi ríkisstjórn
ihafi verið með afbrigðum starf-
söm og aflkastamikil.
Af marggefnu tilefni í þessum
umræðum vil ég þó árétta eftir-
farandi:
Það er sagt, að afcvinnuvegirn-
ir berjist í bökkum vegna láns-
fj'árskorts og alveg sérstaklega,
að bátafloti landsmanna hafi
ekki verið endurnýjaður.
Land'búnaðarráðherra og Magn
ús Jónsson hafa svarað fyrir
landibúnaðinn.
Iðnlánasjóði hefir verið aflað
lánsfjár og framlög aukin úr
ríkissjóði. Ný löggjöf sett til
stóreflingar sjóðnum á þessu
þingi.
Stofnlánadeild sjávarútvegsins
var opnuð að nýju með löggjöf
1961. Breyfct var lausaskuldum
og hengingarvíxlum útvegsins 1
löng og hagstæð lán, að upp-
hæð nærri 400 millj. króna.
Þetta er ein allra þarfasta lög-
gjöf útvegsins um margra ára
bil — enda að fullu metin af
þeim, sem hennar hafa notið
og munu njóta á næstu árum.
Aukning fiskiskipa
aldrei meiri
Fiskveiðisjóði hefir verið gert
kleift að standa undir meiri aukn
ingu bátaflotans en nokkru
sinni áður með mjög miklum
lánveitingum. Svo staðhæfa
menn blákalt hér i umræðunum
það gagrastæða. Lúðvík Jósefs-
son sagði, að skipastóllinn hefði
rýrnað undanfarið og allt, sem
gerzf hefði væri að þakka inn-
flutningi frá tíð vinstri stjócn-
arinnar.
Á þessu ári er ráðgert sam-
kvæmt samningum, að til
landsins komi nýsmíðuð 45
fiskiskip erlendis frá. Aldrei
hefir útgerðin eignast jafn
marga nýja báta á einu ári,
en innflutningur báta er nú
frjáls. En það sem meira er,
þetta eru yfirleitt allt miklu
stærri fiskiskip en áður, 11
eikarskip og 34 stálskip, en
stálskipin eru að jafnaði tvö
hundruð tonn og miklu bet-
ur búin að tækjum en áður.
Þetta er aukning á þessum
skipastól um 8000 rúmlestir
á einu ári. Á síðasta ári
vinstri stjórnarinnar komu til
landsins 7 bátar, 586 rúmJest-
ir. Ekki hefir verið brugðið
snöggt við til stórræða. En
hæsta rúmlestatalan fyrir ut-
an 1963 er á árinu 1960, með
3972 rúmlestir. Lögð voru
drög að byggingu sumra þess-
ara skipa í tíð vinstri stjórn-
arinnar, en hvergi nærri allra
og þetta er þó ekki nema
tæpur helmingur þess, sem nú
er að gerast. Og ef innlenda
smíðin er talin með, verður
samanburðurinn miklu óhag-
stæðari fyrir vinstri stjómar
málsvarana.
Verðmæti bátaflotans, sem
nú er verið að smíða erlendis
fyrir íslendinga og kemur til
hafnar á þessu ári, er hvorki
meira né minna en rúmar
400 miljónir króna.
Efnahagsbandalagið
Hæstv. dórrasmálaráðherra,
Bjarni Benediktsson, flutti hér
í krvöld ýtarlega ræðu um Efna-
hagsbandalag Evrópu og afstöðu
Sjálfstæðismanna og ríkisstjórn-
arinnar til þess. Með þesisari
ræðu var hlustendum gerð til
hlítar efnisleg grein fyrir þessu
vandamáli, sem stjórnarandstæð
iragar fleipra um í þessum xxm-
ræðum af fyllsta ábyrgðarleysi.
Lúðví'k Jósefsson sagði áðan, að
Bjarni Benediktsson vildi beina
þátttöku i bandalaginu. Allar
upplý'singar ráðherrans um yfir-
lýsingar hans í þessu máli sem
forsætisráðherra 1961 og fyrr og
síðar vitna gegn þessu. Þessi
staðhæfing Lúðvíiks Jósefssonar
verður því talin vísvitandi ósann
indi, ekki heldur gerð tilraun til
að finna henni stað.
Hannibal Valdimarsson var
flaumósa og fullyrti — eins og
honum er svo gjarrat — að um
sókn um aðild að Efnahagsbanda-
laginu þýddi, að umsækjandi
verði skilyrðiislaust að játast und
ir allar skuldbindingar Rómar-
samningsins. Ég er alveg viss um,
að jaL.vel Þórarni og Eysteini
og Hermanni lika hefir liðið illa
að hlusta á þessa fávizku. Hanni-
bal þekkir ekki enn ákvæði 238.
gr. Rómarsamningsins, sem kveð-
ur á um aukaaðild, að ríki eða
bandalög ríkja geti tengst Efna-
hagsbandalaginu, með undanþág-
um frá Rómarsamningnum, sér
stæðum gagnkvæmum xéttindum
og skilyrðum.
Þetta hafa Gri'kkir gert. Aust-
txrríki, Svíþjóð og Sviss sóttu
um slíika sérstöðu með aukaaðild
þann 15. des. 1961. Fleiri þjóðir
hafa sent svipaðar umsóknir eins
og PorfcúgaL Þetta verðxir að
nægja til umhugsunar fyrir
Hannibal eftir hinar fávísu full-
yrðingar.
Hannibal sagði' að nú mundu
þeir Aliþýðubandalagsmenn
„spretta upp eins og stálfjöður14
eftir framiboðsmókið. Mál var til
komið! Vafalaust sprettur Hanni
bal upp eins og fjöður mörgum
sinnum í kosningabaráttunni nú
eins og áður. Honum er það ekki
of gott.
Betra þjóðfélag —
öruggari framtíð
í einu er ég sammála stjórn
arandstöðunni. Þjóðfélagsbygg-
ingin hefir breytat gífurlega síð-
ari árin.
í stytztu máli er munurinn
þessi: -
Við bjuggom við innflutnings-
höft og leyfafargan, gjaldeyris-
skort og svartamarkað. Styrki
og uppbætur til atvinnuveganna
— sem afla þucrfti fjár til með
sköttum á sömu atvinnuvegi og
almenning. Látið í einn vasann
það, sem tekið var úr hinum.
Sú mynd, sem blasir við okk-
ur í dag, eftir að viðreisnarstefn-
an hefir verið að verki í tæpt
kjörtímabil — er í önstuttu máli
þessi:
Innflutningur hefir verið
gefinn frjáls nærri með öllu.
Innflutningsnefndin lögS nið-
ur, en bankarnir annast fram-
kvæmd innflutnings- og gjald-
eyrismála. Byggðir hafa ver-
ið upp gildir gjaldeyrissjóðir
i stað gjaldeyrisskorts. Svarta
markaður með gjaldeyri þekk
ist ekki og sérhver hefir greið-
an aðgang að erlendum gjald-
eyri hjá bönkunum, ef brýn