Morgunblaðið - 20.04.1963, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 20.04.1963, Qupperneq 10
10 MORCUNBLAÐIB Laugardagur 20. apríl 1963. Þórarinn glúpnar á stdryröunum Hvar er hetjan Hermann nú? „TtMINN" hefur nú alveg: gefizt upp á því að standa við stóru orðin frá því í marz 1961, þegar sigurinn vannst í landhelgismálinu, en ekki var sú uppgjöf með öllu sársauka laus, eins og blaðið hefur borið vitni um undanfarið. Á tveggja ára afmæli sig- ursins rifjaði Morgunblaðið upp ýmsar yfirlýsingar Þjóð- fylkingarmanna, Framsóknar- manna og kommúnista, frá því fyrir tveimur árum. Framsókn arflokkurinn lýsti því form- lega yfir á þingi 1961, að hann liti á samninginn sem hreinan nauðungarsamning (þ.e. ógild an frá upphafi), og mundi réyna að nota fyrsta tækifæri „til að leysa þjóðina undan oki hans,“ þ.e. reyna það við næstu kosningar. Hermann Jónasson, þáverandi formað- ur flokksins, lýsti því yfir á þingi, að samningurinn væri „markleysa ein.“ Þetta átti að verða stefna Framsóknar- flokksins „í framtíðinni“, og um þetta átti að berjast í næstu kosningum. Morgunblaðið skoraði þvi á Framsóknarmenn að svara því frammi fyrir þjóðinni, hvort þeir ætluðu að standa við hin tveggja ára gömlu gifuryrði við næstu kosningar. Þjóðin ætti heimtingu á að fá að vita, hvort þeix hygðust rifta samningnum, næðu þeir meiri hlutaaðstöðu ásamt kommún- istum á næsta þingi. Spurn- ingin var því einföld og af- dráttarlaus. En Þórarni Þórarinssyni vafðist tunga um tönn. í tvö ár hefur hann ekki þorað að hreyfa málinu, • því að hann veit, að þjóðin er ánægð með samninginn. Nú var hann skyndilega beðinn um að lýsa afstöðu Framsóknarflokksins yfir, hreint og ótvírætt, en auðvitað hlýtur það að vera erfitt fyrir Framsóknarmann. Fyrst í stað svaraði „Tím- inn“ spurningunni ekki einu orði. Ritstjóri „Tímans", Þór- arinn Þórarinsson, utanríkis- ráðherraefni flokksins, var önnum kafinn við að þýða greinar úr ,Newsweek“ eftir Þ.Þ., greinar úr „Christian Science Monitor" eftir Þ.Þ., og greinar úr „Berlingske Aftenavis“ eftir Þ.Þ. f stað þess að svara spurn- ingunni, tók blað hans að tala um landhelgismálið í eftirlæt- isstíl Þórarins. Komu þar helzt við sögu Jón Sigurðsson (1811—1879) og Adolf Hitler (1889—1945). Taldi Þórarinn þann fyrrnefnda vera leiðar- stjörnu Framsóknarflokksins í landhelgismálinu, en hinn síðarnefnda leiðarstjörnu Sjálf stæðisflokksins í sama máli. Ekki var þessi frumlega kenn- ing þó rökstudd nánar, og eig inlega skýrir hún fremur and- legt þroskastig ritstjóra „Tím- ans“ en landftelgismálið. — Annars er þetta ekki í fyrsta skipti, sem Þórarinn blandar Jóni Sigurðssyni og Hitler í hin óskyldustu mál. Er minn ingu hins fyrrnefnda takmark aður greiði gerður með því, — en hver fyrir sinn smekk. Það er ekki fyrr en 13. marz sl., að „Tíminn" tekur af skar- ið. Er Þórarinn þá gallharður og lýsir því yfir harla kok- hraustur, að við öll fyrri um- mæli verði staðið. Hafði Morg unblaðið þá daglega krafizt skýrra svara af Framsóknar- mönnum, og hér lágu þau loksins fyrir. Þótt gott væri að vita vissu sína í þessum efnum, setti ó- hug að almenningi við þessa stríðsyfirlýsingu. Átti enn á ný að tefla landhelgismálinu í fullkomna tvísýnu, gera það að bitbeini í kosningum, skapa um það ófrið innan lands og einnig utan lands, tækist Framsóknarflokknum að ná hinum langþráða meirihluta á Alþingi Islendinga ásamt kommúnistum? Svarið var því almennt fordæmt þegar 1 stað. Þetta munu hinir hyggnari Framsóknarmenn hafa fundið. Þeir sáu, að þetta svar átti engan hljómgrunn með þjóð- inni. Þórarinn hefði verið of fljótur á sér, látið æsa sig upp til þess að gefa hið versta hugsanlega svar. Honum hefði verið nær að reyna að láta Tímalesendur gleyma gömlu gífuryrðunum, en halda sér heldur við gamla heygarðs- hornið, þar sem hann var haga vanur eins og hver önnur nið- ursett skotta, og fjasa meira um Jón Sigurðsson og Hitler. Og Þórarinn var tekinn til bæna, eins og stundum áður. Og Þórarinn var skammaður, eins og stundum áður. Og Þór arinn lyppaðist niður, eins og svo oft áður. Árangurinn er hinn átakan- legi leiðarastubbur, sem hann skrifar í blað sitt. Þar er allt étið ofan í sig, og aftur farið að tala Um gamla og góða Hitler. Þar segir orðrétt: „Það, sem Fram sóknarmenn hafa sagt, er það (sic !), að þeir ætli að vinna að því að fá Breta til að falla frá samningnum." Leiðarinn endar á þessum eftirtektarverðu orðum, sem áreiðanlega eru töluð beint úr hjarta ritstjórans: „Þjóðin er illa komin ef hún fordæmir ekki slíkt siðleysi.“ Dragnótaveiðar / Faxaflóa VIÐ UMRÆÐUR á alft)ingi, eem spunnust út af fyrirspurn Jóns Skaftasonar, um dragnóta- veiði í Faxaflóa, kom í ljós það sem kunnugir vissu en ókunn- ugir ekki, að næsta lítið er hið vísindalega eftirlit með þeim veiðum og afleiðingum þeirra fyrir uppvaxandi fisk og fiski- göngur sem leita inn á grunnmið in í flóanum. Við opnunina fyrir dragnót, má öruggt telja, að alþingi gerði það í því trausti, að með vís- indalegu eftirliti mætti sjá um, að enginn skaði hlytist af þeim veiðum. Mörgum þótti þetta und arleg ráðstöfun, sem engin nauð- syn bæri til, að leyfa þá aftur notkun þessarar botnvörpu, sem áður hafði verið bönnuð, til að hlífa viðkvæmum uppældisstöðv- um í Faxaflóa. En við höfðum áður rökstutt friðun flóans með því að öllum kæmi síðar meir í hag, að stöðva rányrkju þar, og fengið útlenda menn til að fall- ast á þá röksemd. Alþingi leyfði þessar veiðar að nýju gegn mikilli andstöðu fé- laga og einstaklínga að fengn- um meðmælum fiskifræðinga, sem ekki virtust langminnugir á fyrri ára reynslu, af dragnót á grunnmiðum hér við land. Þeir gengu fram fyrir skjöldu í nýrri herferð á ungviðið á grunnmið- um, og sögðu öllu óhætt undir sinni vísindalegu handleiðslu, sem nú kemur í ljós að hefði mátt vera meirL Þegar farið er að skyggnast eftir handleiðslu vísindamann- anna upplýsir sjávarútvegsmála- ráðherra, Emil Jónsson, að á síðustu 10 árum hafi verið farnar 4 rannsóknarferðir á ári hverju, iem ekki nægi til ákvörðunar, þar sem sveiflur séu svo miklar í fiskigöngum, m.a. þorsksins og ýsunnar. Sveiflur í fiskigöngum eru eng in nýung, það mátti því strax reikna með þeim, þegar drag- nótaleyfið var veitt. En það var bara ekki þorskurinn og ýsan, sem dragnótaleyfið var veitt út á. Það var kolinn sem átti að veiða, og hann átti að vera orð- inn svo mikill að hann stæði öðrum fiski fyrir þrifum, og til þess að ráða skjóta bót á því, var helzta ráðið að eyða honum með dragnót. Um þorskinn og ýsuna gegndi öðru máli. Enginn hafði áhyggj- ur af þeim, eða því, að þeir stofn ar væru of stórir, enda höfðum við nóg önnur veiðarfæri til að grisja á stofna með, en dragnót- ina, sem ekki eru eins róttæk. Kolinn reyndist svo lítill þegar til kom, að enginn dragnótabát- ur mundi vera gerður út á þær veiðar einvörðungu. Ráðherrann gat þess ekki í hve mörg ár enn yrði að bíða eftir niðurstöðum vísindamann- anna, en nær er mér að halda að sú bið sé þýðingarlaus með sömu vinnubrögðum. Það verði sama útkoman og ef kviknar í og brunaliðið kemur ekki á staðinn fyrr en of seint. Á meðan beðið er, brennur húsið. Emil Jónsson hafði verið að snupra Jón Skaftason fyrir að vera að hlusta á það, sem gaml- ir sjómenn segðu eða á þá leið höfðu orð hans fallið út af fyrir- spurn Jóps. Gamlir sjómenn hafa hvað eftir annað tekið eftir því að ýmsir fyrirmenn taka lítið tillit til þess sem þeir segja eða vilja leggja tii af sinni reynslu. Það fór þó svo að þessu sinni vegna þess að Jón Skaftason hlustaði á gamlan sjómann , að ráðherrann varð að punga út með eina hina neyðarlegustu upplýsingu, næst- um því að segja gjaldþrotsyfir- lýsingu á vísindalegu eftirliti með dragnótaveiðum og áhrifum þeirra á fiskistofna í Faxaflóa. Eftirminnilegar var ekki hægt að rífa grundvöllinn undan drag nótarleyfinu í flóanum, og nú er ekkert annað að gera en að af- nema það strax, til að taka ekki frekari áhættu eða tjón en orðið er, þar sem ekki hefir verið hægt að sana það með vísindalegu aft- irliti, að dragnótaveiðar á grunn miðum í Faxaflóa séu skaðlaus- ar. Það verður nú að hlusta á gömlu sjómennina, og þarf ekki gamla til, sem stundað hafa veiðar á þessum miðum til margra ára. Þeir ljúka allir upp sama munni um það, að drag- nótina eigi að banna. Allir nema þeir fáu sem eiga bátana sem dragnótina stunda. Vitnisburður allra þeirra manna sem stundað hafa veiðar frá innanverðum Faxaflóa fyrir og eftir að dragnótin var leyfð, er á einn veg um það, að þar sem áður var góður og reytings- afli, fáist nú varla bein úr sjó. Þeim þýði því ekki lengur að fara á sjóinn. Bátar þessara manna voru litlir og miðaðir við stutta sókn. Þeir liggja nú naust- aðir og grotna niður hundruðum saman, meðan örfáir einstakling- ar láta greipar sópa um miðin á stórum bátum, sem byggðir eru fyrir meiri og lengri sókn. Minn- ir þetta óþægilega á það, er út- lendir togarar skófu alla firði og flóa upp í landsteina, með þeim afleiðingum að landsmenn sjálfir misstu af þeim aflaföngum sem þeir sárlega þörfnuðust. Fleiprið um hinn óskaplega mikla kola sem kominn átti að vera í Flóann, sýnist hafa verið tálbeita ein, til þess upp fundin og sett á oddinn, að snúa út dragnótaleyfið. Það vantaði ekk- ert á dramatískar lýisngar, kol- inn átti að vera orðinn svo mik- ill, að haglendið væri þrotið og hann farinn að eta sjálfan sig. Það voru formælendur drag- nótarinnar, sem héldu þessu fram. Það má hugsa sér að þeir hafi viknað við yfir þessari vitn- eskju sinni um þetta hryllilega ástand hjá íbúum hafsins, svona rétt við bæjardyrnar, sem þeir voru ófúsir að líkna. Og þetta hreif. Þeim var veitt leyfi til dragnótaveiði í mestu uppeldis- stöðinni sem við eigum, að marg- ir álíta. \ Þegar svo dragnótabátaeigend- ur og skipstjórar tóku til við veiðarnar, og komu að landi með góðan afla, ekki af kola, heldur af þorski og ýsu, sem þeir ekki voru sendir út til að vinna neitt miskunnarverk á, en veiddu nú samt í stærri stíl en kolann. Þá sendu þeir þeim tóninn, sem á móti dragnótaleyfinu höfðu lagzt með þeim orðum, hvort þessi feita ýsa og stóri þorskur mundi ekki vera orðin nógu vaxin, til að syndlaust væri að drepa þau. Þeir voru fáorðir um kolann, og hafa síðan alltaf verið það enda aldrei getað sannað full- yrðingar sínar um hann. Þeir voru hins vegar hróðugir yfir því að hafa þrengt sér inn að borði fátæka mannsins, á litla bátnum, og gæddu sér svo á feitri ýsu og fallegum þorski, sem hann hafði haft atvinnu af að öngulveiða, sem er tvímæla- laust vægasta inngripið í fiski- stofnana, og gerir því minnstan usla, sem er mjög þýðingarmikið í þeirri uppeldisstöð, sem Faxa- flói er. Enginn skyldi álasa fiskifræð- ingunum þó að þeir geti ekkert fullyrt um fi^kimagn eða stofn- inn árvíslega, byggt á 4 stikk- prufum á pri. Hún væri einfaldari, fiski- mennskan, en hún er, ef ganga mætti að fiskinum vísum á sama stað og sama tíma upp á dag ár hvert. Það sannar t.d. ekkert um minna fiskimagn í ár, þó ég fái engan fisk núna þann 12. maí, þar sem ég fékk nógan fisk á sama tíma, eða 12. maí í fyrra. Það er margt sem gripur þarna inn í og algengt er það, að eitt skip fiskar betur en önnur á sama stað. Og með botnvörp- una er þar svo, að stundum fæst fiskur í hana á örlitlum bletti, þó að ekkert sé að hafa þar í kring. Nokkrar stikkprófanir með botn vörpu, eins og fiskifræðingarnir hafa verið að gera undanfarin ár, eru því ekki sigurstranglegar til úrskurðar um fiakstofninn. Það má svo hins vegar benda á, að flotinn í heild er í raun og veru alltaf að gera þessar athug- anir óbeint með veiði sinni, og út frá veiðinni dæma svo fiski- mennirnir sjálfir um fiskigengd- na á miðin, og þeirri fyrirhöfn sem þeir verða að hafa fyrir á- kveðnu fiskimagni, og hvernig það kemur út frá ári til árs, eða um áraraðir. Þeir eru þvi alltaf á undan fiskifræðingunum að mynda sér skoðun um, ástandið og þær skoð anir hafa reynzt svo réttar, að fiskifræðingarnir hafa ekki hrundið þeim þegar þeir eftir dúk og disk hcfa verið búnir að gera sínar athuganir. Með þessum orðum er ég ekki Framh. á bls. 22

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.