Morgunblaðið - 20.04.1963, Page 12

Morgunblaðið - 20.04.1963, Page 12
12 MORCVTS BL Afílfí apríl 1963 „Évtúsenkó hefur saurgað málstað byltingarinnar" EINS og skýrt hefur verið frá, stendur nú yfir í Sovétríkjunum herferð gegn ungum listamönnum, sem foringjar kommúnista flokks landsins saka um að hafa látið hrífast af vest- rænni menningu og freist- azt til þess að beita túlk- unaraðferðum, sem ekki samrýmist stefnu komm- únistaflokksins og séu ekki í anda rússnesku þjóð arinnar. Ljóst er nú, að valdhafarnir í Kreml ætla sér að halda til streitu hinni sósíal-realísku stefnu Stalínstímabilsins og því andlega ófrelsi, sem henni fylgdi. Meðal þeirra ungu skálda, sem mest hafa orð- ið fyrir barðinu á gagn- rýni flokksins að undan- fömu, er Évgení Évtú- senkó. Hefur hann t. d. sætt harðri gagnrýni fyrir greinaflokkinn, „Sjálfsævi saga bráðþroska manns“, sem hirtist eftir hann í franska vikublaðinu L’ Express. Um greinaflokk þennan hefur verið rætt á rithöfundaráðstefnu í Moskvu og um hann ritað í málgagn ungkommúnista í Sovétríkjunum. Auk ungskáldanna hef- ur kommúnistaflokkur Sovétríkjanna gagnrýnt hinn aldna rithöfund Ilja Ehrenburg harðlega og á fundi rithöfunda, lista- manna, flokksleiðtoga og fulltrúa stjómarinnar, sem haldinn var í byrjun marz, var hann t. d. ávítaður fyr- ir hræsni á Stalínstímabil- inu. Hér á eftir fer útdráttur úr nokkrum greinum, sem birtst hafa á Vesturlönd- um og fjalla um það nýj- asta, sem vitað er um árás imar á Évtúsenkó og Ehr- enburg. „Ósannar og villandi fullyrðingar“ Sjálfsævisaga Évtúsenkós er eitt af fáum ritverkum sovétskálda, sem birzt hafa á Vesturlöndum án þess að hafa áður farið gegnum rit- skoðun í Sovétríkjunum. — Hún var fyrst rædd opin- berlega í Sovétríkjunum á rithöfundaráðstefnu í Moskvu síðustu vikuna í marz. Meðal þeirra, sem ræddu hana þar var Yuri Zhukov, Frakklands málasérfræðingur Pravda, málgagns Kommúnistaflokks Sovétríkjanna. Ræða Zhu- kovs var síðan hirt í sovézka bókmenntatímaritinu „Litera- turnaya Gazeta“. í ræðunni sagði Zhukov m.a. um sjálfs- ævisöguna: „Verkið úir og grúir af ósönnum og villandi fullyrðingum, ekki aðeins um bókmenntalíf í Sovétríkjun- um, en einnig um líf almenn ings I landinu." Zhukov sagði, að það væri furðulegt, að maður, jafnvel þó hann væri bráðþroska, kysi að gefa sovézku þjóðinni fyrst kost á að lesa minning- ar sínar þegar þær hefðu birzt í blöðum erlendis. Zhu- kov benti síðan á að L’Ex- press hefði einkarétt á sjálfs- ævisögunni og sagði: „Ef við vildum birta minn- ingar Évtúsenkós, yrðum við að biðja L’Express um að gera okkur þann greiða að selja okkur þær og greiða fyrir þær það, sem blaðið krefðizt" Évtúsenkó segir rit- stjóra L’Express hafa bætt í og sleppt úr Pravda birti einnar og hálfr ar síðu frásögn af áður- nefndri rithöfundkráðstefnu og m.a. útdrátt úr ræðu, sem Évtúsenkó hélt þar sér til varnar. í ræðunni sagði skáld ið m. a., að ritstjórár L’Ex- press hefðu rangfært ýmis atriði sjálfsævisögunnar, bætt dnn í og fellt úr. Um þessa staðhæfingu Évtúsenkós seg- ir einn ritstjóra Pravda: „Það er augljóst að Évtúsenkó tókst ekki með ræðu sinni að sannfæra fundarmenn. Orð hans sýndu, að hann skilur ekki af hvaða rótum mistök hans eru runnin hvorki hvað snertir minningarnar né sum ljóð hans.“ Sem dæmi um það, sem Évtúsenkó sagði að sleppt hefði verið úr sjálfsævisög- unni, nefndi hann niðurlagið á eftirfarandi frásögn. Hann sagðist hafa vitnað í orð fransks stúdents, sem sagði: „Þegar á allt er litið, er ég á ráðstefnunni. Annar þeirra, Andrei Voznesensky, sem hef ur verið gagnrýndur eins og Évtúsenkó, sagði aðeins: „Ég mun aldrei gleyma þessari lexíu. Ég ætla að vinna, vinna og vinna til þess að sýna hvaða hug ég ber til þjóðar minnar og kommún- ismans.“ Hinn ungi rithöfundurinn, Vladimir Firsov, sem er mik- ill andstæðingur vestrænna áhrifa, tók undir gagnrýnina á Évtúsenkó og Voznesensky. Benti hann á að Lenin hefði varað kommúnista við því að birta ritverk sín í borgaraleg- um blöðum. Ummælum Évtúsenkós um að skrif hans hefðu verið rangtúlkuð í vestrænum blöð um, svaraði Firsov á þá leið, að fleiri ungir sovézkir rit- höfundar hefðu orðið fyrir barðinu á hinum rotnu starfs aðferðum vestrænna blaða, en þó hefði engum þeirra dottið í hug að nota skrif þeirra sér til réttlætingar. Öskur vélanna yfirgnæfðu stunurnar úr fangabúðunum Að rithöfundaráðstefnunni afstaðinni birti „Komsomol- skaya Pravda“, blað ung- kommúnista í Sovétríkjun- um, grein þar sem ráðizt var á Évtúsenkó fyrir sjálfsævi- söguna. Greinina skrifuðu þrír rithöfundar, en tveir þeirra eru ritstjórar ung- kommúnistablaðsins. Þeir reyna að sverta Évtúsenkó og » Ehrenburg fýlgjandi sósíálisma, en ég ætla ekki að byrja að berjast fyrir honum fyrr en þið eigið verzlanir eins og „Galaries Lafayette“ (stórverzlun í París).“ Évtúsenkó sagðist hafa bætt við: „Ég skammaðist mín fyrir þennan ungling. Hann vildi að framtíðin væri bor- in fyrir hann á silfurdiski svo hann þyrfti ekki annað en stinga gaffli sínum í hana. Yið sköpuðum framtíð okkar sjálfir, neituðum okkur um það, sem við þörfnuðumst mest, við þjáðumst, okkur urðu á mistök, en aðalatriðið er að við sköpuðum framtíð okkar sjálfir." Þessu segir skáldið að ritstjórarnir hafi sleppt. „Ég ætla að vinna, vinna og vinna“ Pravda skýrði einnig frá því,' að tveir aðrir ungir rit- höfundar hefðu tekið til máls Évtúsenkó stimpla hann andkommúnista með því að slíta ýmsar setn- ingar sjálfsævisögunnar úr samhengi og birta glefsur úr henni. Rithöfundarnir saka Évtú- senkó um að hafa saurgað málstað byltingarinnar með því að segja, að hún hafi auk- ið þjáningar og tár rússnesku þjóðarinnar. Einnig segja þeir hann rang túlka iðnvæðingu þjóðarinn- ar á þriðja tug tuttugustu aldarinnar með eftirfarandi orðum: „Rússneska þjóðin“, skrifar Évtúsenkó, „kaus fremur að vinna, en velta fyr ir sér gátum tilverunnar. Með hetjulegri þrautsegju, sem á sér fáar hliðstæður í verald- arsögunni, reisti hún orkuver eftir orkuver, verksmiðju eft- ir verksmiðju. Hún vann af beiskju og öskur vélanna, landbúnaðartækjanna og jarð ýtanna yfirgnæfðu grátinn og stunurnar, sem bárust gegn- um gaddavírsgirðingar þræla búðanna í Síberíu.* Einnig fannst hinum komm únísku rithöfundum eftirfar- andi lýsing Évtúsenkós á rússnesku þjóðinni á stríðs- tímum svik við málstað flokks ins: „Það veldur sársauka, að neyðast til þess að viður- kenna, að frá andlegu sjónar- miði var líf sovézkú þjóðar- innar auðveldara á stríðsár- unum vegna þess að þá var hún einlægari. Það er ein meginástæðan til sigurs okk- ar.“ Étúsenkó lýsir hátíðahöld- um Moskvubúa í lok síðari heimsstyrjaldarinnar á eftir- farandi hátt: „Það var sér- stæður dagur. Flugeldum var skotið til himins, uppgjafa- hermenn, sem vanir voru að selja mönnum vindlinga gáfu þá. Ég sá hershöfðingja kaupa allar birgðir rjósaíssala og , skipta þeim milli barnanna. 1 Menn kysstust, grétu og hlóu. Þeir töldu að það versta væri afstaðið og loksins biði þeirra betra líf.“ í ungkommúnistablaðinu eru tölur prentaðar með breyttu letri, til þess að vé- fengja, að Évtúsenkó finnist ástandið í Sovétríkjunum hafa batnað frá stríðslokum. 1 lok greinar sinnar segj- ast rithöfundarnir þrír ekki vera að reyna að sanna, að eitthvað illt hafi leg- ið að baki athæfi Évtús- enkós (þ. e. að birta greina- flokk sinn í erlendu blaði), en þeir halda áfram: „Hann verður þó að minnast þess, að öllu eru takmörk sett, þar á meðal stjórnmálalegum barnaskap. Hann verður að gera sér ljóst, að hann getur ekki endalaust haldið áfram að hrasa, standa upp aftur og hrista sig eins og ekkert hafi í skorizt. Sá tími getur kom- ið, að honum reynist ókleifc að rísa á fætur.“ Þér þögðuð ekki Nýjustu fregnir af árásum á hinn aldna sovétrithöfund, Ilja Ehrenburg, bárust að af- loknum fundi rithöfunda, listamanna, flokksieiðtoga og fulltrúa sovétstiórnarinnar, sem haldinn var ‘ marz. Þar réðst Leonid Iljitjov, ritari kommúnistaflokksins og for- maður nýstofnaðrar nefndar, sem fjalla á um hugsjónaleg vandamál, mjög harkalega á Ehrenburg fyrir afstöðu hans á valdatímum Stalíns. Eins og kunnugt er, varð Ehren- burg einnig fyrir gagnrýni á fundi rithöfunda og flokks- foringja í des. sl. Síðan hefur hann ritað nokkrar greinar sér til varnar og átt í ritdeil- um við Vladimir Jermilov, gagnrýnanda Izvestija, blaðs stjórnarinnar. Jeremilov sak- ar Ehrenburg m. a. um að hafa með yfirlýsingum sínum undanfarið „traðkað á og sví- virt heila kynslóð sovétborg- ara um leið og hann reyni að afsaka sjálfan sig.“ I ræðu sinni á áðurnefnd- um fundi leggur Iljitjov út af endurminningum Ehren- burgs, þar sem skáldið segist hafa kosið að þegja um ógn- arstjórn Stalíns og bendir á að margir aðrir hafi gert slíkt hið sama. Iljitov sagðist vilja taka það fram, að þögn hefði aldrei verið á stefnuskrá fiokksins og Ehrenburg hefði heldur ekki þagað. Hann beindi orð- um sínum beint til Ehren- burgs og sagði: „Þegar þér sjálfur og verk yðar áttu 1 hlut, II ja Gregorevitj, þá þögðuð þér ekki. Þér beittuð öllum rithöfundahæfileikum yðar til þess að lofa Stalín eins og aðrir gerðu. Er það þögn þegar þér skrifið um Stalín 1951: „Ei ns og hann hjálpaði okkur öllum, hjálp- aði hann mer t:l þess að skrifa það merkasta, sem ég hef skrifað, en hver getur skrifað það, sem njig dreymir um?“ Iljitjov hélt áfram: „Eftir dauða Stalíns var það aúki vilji annarra heldur tilfinn- ingar yðar sjálfs, sem fengu yður til þess að lýsa Stalín sem manni, er ,elskaði þjóð- ina, þekkti veikleika hennar og styrk, sem skyldi ótta móð urinnar við að missa son sinn í styrjöld, skildi kolanámu- mennina og steinhöggvarana .... sem þekkti hugsanir og tilfinningar hundruð milljóna manna, vilja þeirra til þess að lifa hamingjusömu lífi og þrá þeirra eftir friði.“ Ég vitna ekki í orð yðar vegna þess, að ég vilji ávíta yður fyrir þau. Við töluðum allir eins á þessum tima, en án bræsni. Við trúðum og skrifuðum, en það hefur komið í ljós, að þér trúðuð ekki, en skrifuðuð samt. Það er meginmunur á þessu tvennu.“ Fundarmenn fögnuðu þess- um ummælum ákaft. Einn andlegur leiðtogi, kommúnista- flokkurinn Iljitov lét síðan svo um mælt, að gagnrýni flokksins á nútímalist hefði verið mis- skilin. Sakaði hann lista- mannasamband Moskvu um að hafa reynt að halda hlífi- skildi yfir hinum uppreisnar- gjörnu listamönnum og það hefði gefið „ýmsum ábyrgð- arlausum lýðskrumurum tæki færi til þess að vaða í vill- unni.“ „í heild sinni eru bók- menntir og listir Sovétríkj- anna óspilltar'V hélt Iljitjov áfram, „við erum hamingju- samir vegna þess að hin rétt- Framh. á bls. 17.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.