Morgunblaðið - 20.04.1963, Síða 13

Morgunblaðið - 20.04.1963, Síða 13
apríl 1963 MORCVNBL4ÐIÐ 13 Landið okkar Það er sjaldgæft að koma í íslenzkt sjávarþorp, þar sem nær öll hús eru ný. Á flestum stöðum tróna fleiri eða færri gamlir kumbaldar, sem gefa til kynna aldur þorpsins. í Grundarfirði á Snæfellsnesi er aðeins eitt hús, sem getur talizt gamalt. Fyrir rúmum tuttugu árum var ekkert þorp í Grundarfirði. Elzta atvinnu- mannvirkið þar er frystihúsið sem byggt var á stríðsárun- um. Allar aðrar byggingar eru nýrri. Þarna hefir því á Séð til Grundarfjarðar. Kirkjufell í baksýn Grundarfjðrður er eitt yngsta og grdskumesta kauptún landsins Þar er afkoma góð og mikil atvinna tæpum tveimur áratugum ris ið upp blómleg byggð frá grunni. Til staðarins hefir val izt ötult fólk, enda ber hann þess glögg merki. Við hittum að máli Emil Magn- ússon, framkvæmdastjóra Verzl- unarfélagsins Grund, en hann er einn af abhafnamönnum Grund- arfjarðar, og spyrjum hann um lífið og starfið á staðnum. Hon- um sagðist svo frá: — Grundarfjörður er í hreppi þeim, sem einu nafni nefnist Eyr- arsveit, en í þorpinu og sveitinni búa um 500 manns. Þorpið bygg- ir afkomu sína einvörðungu á sjó sókn, og þar eru nú gerðir út 7 bátar frá 40 og upp í 115 tonn að stærð. Sjómenn eru hér harð- duglegir, margir aðfluttir, en þó hefir þorpið nokkuð byggzt frá sveitinni í kring. Tvær verzlanir eru hér í Grundarfirði, Verzlun- arfélagið Grund, og Kaupfélag Grundarfjarðar. Verzlunarfélag'- ið rekur fiskverkun, verkar salt- fisk og skreið. Þá er Hraðfrysti- hús Grundarfjarðar h.f., sem á 4 báta og áfast við það er beina- mjölsverksmiðja. Hreppurinn á myndarlegar verbúðir, sem rekn ar eru sem hótel á sumrin. Mörg hús eru í byggingu í Grundar- firði. Þar er nýbyggður skóli. Þá er verið að reisa kirkju og haf- inn undirbúningur að byggingu prestseturs, en Grundfirðingar hafa átt kirkjusókn að Setbergi. Gruhdfirðingar eiga nú ungan, dugandi prest, sr. Magnús Guð- mundsson, sem hefir haft for- ystu um kirkjubygginguna. Kona hans, frú Áslaug Sigurbjörns- dóttir, hefir einnig verið byggð- arlaginu mikil hjálparhella, því ekki er neinn læknir í nágrenn- inu, heldur þarf að leita_ hans inn til Stykkishólms. Frú Áslaug er hins vegar lærð hjúkrunar- kona, og þarf því oft að leita til hennar er bráðrar þörf er hjúkr- unar. Frúin er einnig organisti kirkjunnar og ötul í félagsstarfi. Við spyrjum Emil um, hvort sé raunverulegt nafn kauptúns- ins. — Grundarfjarðarkauptún er byggt úr landi Grafar á ofurlitlu nesi, sem nefnist Framnes. Þessu hefir svo ranglega verið sullað saman og nefnt Grafarnes, sem er síðari tíma uppspuni, enda nafnið bæði ljótt og leiðinlegt. Það mun hafa verið landssíminn sem kom þessu ónefni á staðinn, og væri honum skylt að losa hann við það aftur. Einfaldast er að nefna staðinn Grundarfjörð, enda sækir staðurinn líf sitt og tilveru til fjarðarins, sem veitir honum beztu sjálfgerðu höfnina, sem til er á Snæfellsnesi. Við spyrjum Emil Magnússon um önnur fyrirtæki staðarins. — Hér var fyrir tveimur árum sett á stofn vélsmiðja og rekið er hér trésmíðaverkstæði. Þá er verið að reisa mjólkurvinnslu- stöð, sem vinna mun úr þeirri mjólk, sem framleidd er á norð- anverðu Snæfellsnesi og kannske víðar. Það er Mjólkursamsalan í Reykjavík, sem annast um fram- kvæmd þessa. Mjólkurstöðin mun síðan annast um alla mjólk fypir Stykkishólm, Grundarfjörð, Ól- afsvík og Hellissand. Vegurinn fyrir Búlandshöfða, brúin yfir Hraunsfjörð, og uppbygging veg- anna á innanverðu Snæfellsnesi, breytir mjög allri aðstöðu til sámeiginlegrar þjónustu fyrir alla þessa staði í senn. Vegurinn fyrir Ólafsvíkurenni, sem gerður verður í vor eða sumar, mun svo reka endahnútinn á samgöngurn- ar um norðanvert Snæfellsnes og gera þetta að nokkru leyti að einni heild. Það er fleira en mjólkurbú, sem þessum sveitum og þorpum er þörf á sameiginlega. Hér hefir verið starfræktur sparisjóður í Eyrarsveit í 9 ár. Hins vegar þarf hér að koma bankaútibú, til þess að annast lánastarfsemi fyrir framleiðsluna. Það er mjög ó- hægt að þurfa að fara hverju vinnuvegi Grundfirðinga, sjáv- arútveginum. — Smábátaútgerð hefir verið frá aldaöðli stunduð héðan úr Grundarfirði. Stærsta útræðið var hér áður fyrr frá Kvía- bryggju. Þessi staður var ekki til, ef svo má segja, áður en vél- bátaútgerðin byrjaði hér fyrir 2Ö árum. Þá færðist mikið líf í allt hér. Gfundarfjörður er skil- yrðislaust bezta höfnin á Snæ- fellsnesi frá náttúrunnar hendi. Hingað hafa oft sótt fjöldi skipa undan veðrum. Ég man, það var 1934 eða 5, að hingað flúðu 60 norskir línuveiðarar undan suð- vestan veðri. Til þess að gera hér góða líf- höfn fyrir 20 báta þarf ekki nema hálft togaraverð, eða um 20 milljónir króna. Þessi höfn getur einnig nægt 10 togurum, ef menn vilja heldur miða við þá. Okkur vantar hingað í dag duglega og framtakssama fjár- málamenn, sem flyttu hingað meiri atvinnutæki og stærri framkvæmdir. Félagsútgerð hefir gefizt illa hér, en hins vegar hef- ir einkaútgerð gengið vel. Hér er næg atvinna fyrir alla, sem vettlingi. geta valdið. Afkoma fóiks er góð enda er það harð- duglegt Og vílar ekki fyrir sér að leggja á sig mikla vinnu. Okkur vantar hér síldarverk- smiðju, því síldarævintýrið hefir að mestu farið fram hjá okkur, þótt aflinn sé langtímum saman aðeins fárra stunda siglingu héðan. Það er ekki hægt að salta hér síld nema geta einnig tekið á móti bræðslusíld. Okkur vant- ar fiskvinnslustöðvar og þá get- um við nýtt allar gerðir afla. Fiskstaflar í fiskverkunarhúsi í Grundarfirði Emil Magnússon, framkv.stjóri sinni til Reykjavíkur, sem er í góðu færi 6 tíma ferð, til þess að annast veðsetningu afla og reka önnur bankaviðskipti, sem ekki eru framkvæmanleg nema í fram leiðslulánabönkum. — Uimið er að framkvæmd- um við höfnina hér, en hún er, sem fyrr segir, hin langbezta á Snæfellsnesi frá náttúrunnar hendi, og eina trygga lífhöfnin. Þá mun það samdóma álit skip- stjórnarmanna á flutningaskip- um okkar, að hér sé bezta útskip unarhöfnin, trygg til út- og inn- siglingar, hvernig sem viðrar, og hingað nær úthafsaldan ekki, svo ekki er hætt við súg við bryggj- urnar. — Og svo að' síðustu, Emil, hvernig er stjórnmálaástand stað arins og samvinna framkvæmda- manna? — Sjálfstæðismenn eru í meiri hluta í hreppsnefnd og samkomu lag er gott meðal framkv.manna, enda er það lífsnauðsyn staðar, sem er í örri uppbyggingu, og öll orka verður að nýtast til fulls og ekkert er aflögu til að níða skó- inn niður af öðrum. Afkoma fólk;s er hér góð, en það þarf mikið að vinna, enda er hér miklu meira en nóg að gera. Einna tilfinningalegastur er skortur á iðnaðarmönnum til hinnar öru uppbyggingar. Er við höfum um stund rætt við Emil Magnússon, hittum við aS máli Soffanías Cecilsson, skip- stjóra. Hann er kunnur aflamað- ur og á Grundfirðing II. Sof- fanías segir okkur frá lífsat- Þróunin virðist sú, að fiskaflinn færist meir og meir yfir á bát- ana í stað togaranna. Það verður því að stefna að því að bátunum sé búin sú aðstaða að þeir geti róið frá heimahöfn sinni. Hér höfum við orðið að sækja að heiman megin hluta ársins, nema blá vertíðina, sem þó er alltaf að styttast. Það er vitað, að byggja verður síldarverksmiðju við Breiða- Framh. á bls. 14. •Í5V..XO.W... •..'••s. $$$& s, S.S N s ^ Soffanias Cecilsson, skipstjórl

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.