Morgunblaðið - 20.04.1963, Side 14

Morgunblaðið - 20.04.1963, Side 14
14 MoncVWBL 4ÐIÐ apríl 19G3 Magnús Árnason, Tröð Fæddur 5. júní 1884. Dáixtn 24. febrúar 1963. „Drottinn nú lætur þú, þjón þinn í friði fara“. Þessj gömlu orð komu í huga minn, þegar ég heyrði lát Magn- úsar í Tröð. Mér var það full- komlega ljóst, að heilsa hans var biluð. Þó var það fyrir mér eins og fleirum, að ég vonaðist til hinztu stundar að hann fengi heilsubót. Mennirnir óska, en Drottinn ræður. „Einn er vor ævivegur, allt ber að sama punkti, fetar hann fús sem treg- ur, hvort fellur létt eða þungt Magnús í Tröð var einn af beztu skilamönnum, sem ég hef kynnzt Hann vildi borga hverja skuld á réttum gjalddaga. Ég er viss um að hann hefur búið sig undir það að borga seinustu skuld lífsins á réttum gjalddaga. Þrátt fyrir erfið veikindi var hann alltaf með hugann við heimili sitt og þau verk, sem hann vildi ljúka af, áður en hinzta kallið kæmi Hann reyndi að fylgjast með öllu og lagði á ráð hvernig haga skyldi þeim verkum. Líka gerði hann ráðstöfun til þess að allir sem hjá honum unnu fengju fulla borgun fyrir sín verk. Hann þráði heitt að mega kom- ast heim, og dveljast seinustu ævidagana heima. Þegar hann sá að hinzta stundin nálgaðist, tók hann því með sálarró og undir- gefni undir guðs vilja. Ragna, dóttir hans, vakti hjá honum seinustu nóttina sem hann lifði, eins og svo riiargar aðrar stundir, sem hún dvaldi við sjúkrabeð hans og hlynnti að honum í banalegúnni. Þá bað harin hana að skíla kveðjum frá sér til ástvina og kunningja hér heima. Hann vissi að það mátti ekki dragast lengur. Guð gaf honum ráð og rænu fram á andlátsstund. Andlátið hans má líkja við fagurt sólarlag, þó sól- aruppkoman sé dýrðleg, þá er fagurt sólarlag engu að síður friðsælt og dýrðlegt. Eftir sól- ríkan dag verður jörðin alvot af dögg, eins og hún gráti sáknaðar tárum eftir sambúðina. Ég vil líkja tárum syrgjandi ástvina við náttdöggina, þau eru mann- lífinu jafn mikils virði og dögg- in er gróðri jarðar. Magnús var fæddur i Holti í Fróðárhreppi, það er hjáleiga frá Brimilsvöllum. Föstudaginn 8. marz sl., var hann jarðaður í Brimiisvallarkirkjugarði. Það er nokkur hundruð metrum frá þeim stað, þar sem vagga hans stóð. Þrátt fyrir nærri því 79 æviár er svona stutt frá vöggu til grafar. Poreldrar Magnúsar voru hjónin Karitas Magnúsdóttir og Árni Árnason, þau voru bæði af snæfellskum ættum. Mér var kunnugt um að þau áttu 9 börn, þó geta þau hafa verið fleiri. Elztir voru tvíburarnir Magnús og Bjarni, sem lengi bjó í Ein- arsbúð, hjáleigu frá Brimilsvöll- um, mikill dugnaðarmaður. Næst ir voru tvíburarnir Þorsteinn og Kristján faðir Lúðviks rithöf- rún og Ása. Af þessu má sjá hve fljótt hefur hlaðizt ómegð á þessi fátæku hjón. „Fast þeir sóttu sjóinn," það var eina leiðin til að afla viður- væris fyrir ört vaxandi fjöl- skyldu, hjáleigan var of lítil til þess. Ungur fluttist Magnús með foreldrum sínum til Ólafsvíkur, og snemma varð hann að vinna fyrir sínu brauðL Hann var lán- aður sem smali suður í Staðar- sveit og inn á Skógarströnd, kaup ið var það sem hann fékk að borða á hverjum stað. Þegar hann var orðinn svo tápmikill að hann hefur búið sig undir það að róa með föður sínum. Á þess- um árum, sem hér um ræðir, var mór eingöngu notaður til elds- neytis í Ólafsvík og víðar. Bæði var móverkað á Ólafsvíkurfjalli og inn á Haukabrekku. Frá Ólafsvík ^ að Haukabrekku er um klukkutíma ganga aðra leið- ina. Þegar Magnús var langt fyrir innan fermingu fór hann margar ferðir þessa leið að sækja mó í poka og bar hann á bakinu til Ólafsvíkur. Kaupið var ein rúgkaka með einhverju viðbiti fyrir ferðina. Það sagði hann sér hefði þótt vel borgað. Rúmlega tvítugur fór Magnús sem vinnumaður að Guðlaugs- vík, BæjarhreppL Strandasýslu, þar er hann eftir því sem ég bezt veit í tíu ár, nokkuð sem vinnumaður og seinast lausa- maður. Stundaði hann sjóvinnu við ísafjarðardjúp á vetrum. Þá fóru menn gangandi í verið og báru föt sín og fleira. Margar þessar ferðir voru erfiðar og reyndu á þol manna og þraut seigju. í þeim ferðum dugði Magnús alltaf vel. Á lausamanns árunum var hann á skútum á vorin fram að slættL Á þessum árum kom hann sér upp allgóð- um fjárstofni, því að hann ætlaði að verða sveitabóndi. Á seinni árunum sem hann var í Guð- laugsvík, kom þangað ung stúlka sem vinnukona, Ragnheið- ur Skarphéðinsdóttir. Þeirra kynning fór á þann veg að þau gengu í hjónaband í apríl 1914. Vildu þau þá fá sér jörð og byrja búskap, en engin jörð var þá laus til ábúðar. Næstu tvö árin eiga þau heimili hjá for- eldrum Ragnheiðar. Þau höfðu byggt sér bæ í túninu í Guð- laugsvík. Svo liggur leið Magnúsar vest ur á Snæfellsnes að finna ætt- fólk sitt. Þá er laus til kaups og ábúðar jörðin Tröð í Fróðár- hreppi. Hann afræður að kaupa hana, þá er fæddur elzti sonur þeirra, Árni. Snemma vors 1916 er lagt upp í ferðina vestur og heim í átthaga Magnúsar. Kafaldsbylur er þegar þau fara ýfir LaxárdalsheiðL Ragn- heiður reiðir Árna litla í kjöltu sinni. í Búðardal er farið um borð í m.b. Hans fxá Stykkis- hólmL Það var lítil skonnorta með hjálparvél. Með honum er farið til Ólafsvíkur, þá er stutt heim að Tröð. Síðan hafa þau búið þar. Tröð er lítil jörð, eins undar. Alls voru bræðurnir sex j og fleiri jarðir á þeim tíma, ó- en systurnar 3, af þeim dó ein á ræktuð og illa hýst. Bústofninn bernskuskeiði. Af þessum syst- kinahóp lifa tvær systur, Guð- *- Landið okkai Framhald af bls. 13. fjörð, enda rrkir skilningur á því meðal ráðamanna. Það þarf ekki að benda á annað en þá miklu hættu, sem er samfara því að sigla með drekkhlaðna báta, hvernig sem viðrar að vetrinum, yfir þveran Faxaflóa. Það leiðir svo af sjálfu sér að slíka verk- smiðju verður að byggja, þar sem hafnarskilyrði eru bezt. Hér með látum við staðar numið viðræðum við framkv.- menn Grundarfjarðar. Sýnilegt er, að sá staður á blómlega fram- tíð fyrir sér, enda ráði þar áfram ríkjum dugandi menn og sam- heldnir. — vig. var lítill, þær skepnur sem þau áttu fyrir norðan, seldu þau þar, nema þrjá hrúta. Keyptu svo bústofn hér. Sá bústofn varð að miðast við kaupgetuna, sem ekki var nógu mikil, til að koma upp nógu stóru búi og jörðin ekki heldur í þeirri rækt að hægt væri að framfleyta á henni þeim skepnufjölda sem nægði til lífs- viðurværis fjölskyldunnar. Varð Magnús því að stunda sjóinn með búskapnum, og kom þá í hlut konunnar að sjá um heimil- ið í fjarveru hans. Þannig voru kjör sveitakonunnar á þeim ár- um. Þau hjón voru aldrei rík að krónutali, en þau áttu í ríkum mæli þann auð, sem mölur og ryð fær ei grandað. Hús þeirra stóð opið hverjum vegfaranda, sem að garði bar, sem oft kom fyrir. Þá ferðuðust margir gang- andi og báru björg til heimilis síns á sínu eigin bakL Á fyrstu búskaparárum þeirra í Tröð sóttu Ólafsvíkurbúar beitu í fjöruna á Búlandshöfða, og lá leið þeirra eins og fleiri um hlað- ið í Tröð. Þessir menn voru oft þurfandi fyrir aðhlynningu og hvíld. Þeim þótti gott að koma að Tröð, þar stóð skóli um þjóð- braut þvera. Magnús sagði: „Mitt verður ekki minna, þótt ég gefi manni bita eða sopa“. Á- nægjan yfir því að veita veg- farendum, var þeim hjónum fullkomnasta greiðslan. Borgun þáðu þau aldrei fyrir veittan greiða. Þau hjón eignuðust 7 börn; 4 þeirra eru á lífi: Margrét, gift Sigurði Brandssyni, Fögruhlíð, Fróðórhreppi; Karl, giftur Láru Ágústsdóttur, þau búa í Tungu, Fróðárhreppi; Ragna, gift Alfons Sigurðssyni, þau eru búsett í Kópavogi; og ÁrnL elzta barnið, ekkjumaður í Keflavík. Auk þess ólu þau upp tvö fósturbörn, Guð- rúnu Lárusdóttur, systurdóttur Ragnheiðar, hún er gift Eiríki Eiríkssyni og eiga heima í Kefla- vík, og Guðmund Pálsson, ó- giftur -heima hjá fóstru sinni. Magnús var þéttur á velli og þéttur í lund og þrautseigur í hverri raun, hann var söngelsk- ur og gleðimaður í góðra vina hóp. Þá þótti honum góð vísa aldrei of oft kveðin. Hann var góður og umhyggjusamur heim- ilisfaðir, sem allt vildi á sig leggja, til þess að geta séð sem bezt fyrir fjölskyldu sinni. Marg vísleg óhöpp á eignum og heilsu- leysi á fjölskyldu hans, þjökuðu hag hans, en aldrei heyrðist að honum væri uppgjöf í huga. Jörð ina sína bætti hann eins og rækt- unarmöguleikar leyfðu, en þeir eru takmarkaðir. Skepnuhús og hlöður eru nýuppbyggt í hlut- falli við það, sem jörðin gefur af sér. Ibúðarhús byggði hann fyrir 30 árum, stækkaði það nokkru seinna. Veturinn 1961—1962 færð ust óthöppin í aukana. í nóvem- ber brann meirihlutinn af kúa- heyinu, en hlöðunni var bjarg- að. I janúar brann íbúðarhúsið með öllu innbúL Magnús slapp naumlega, en þó brenndur, út úr eldinum. Þá var hann fluttur á sjúkrahús í Stykkishólmi. Eftir 3 vikur kom hann heim. Þá byrj- aði hann strax að hreinsa til í brunarústunum og undirbúa nýja byggingu. Þegar honum fannst hann ekk i geta unnið meira gagn heima, fór hann í fiskaðgerð í Ólafsvík, þangað til hægt var að byrja á byggingu nýs íbúðarhúss. Þetta síðasta dæmi lýsir óvenjulegum dugn- aði og kjarki hjá manni, sem er að verða 78 ára. Um uppgjöf var ekki að tala frekar en fyrr. Þeg- ar hann fór að heiman voru ýms- ar ráðstafanir fyrir því sem ó- gert var við húsið. Þeim ráðstöf- unum hélt hann áfram til hinztu stundar. Þegar hann fór að heim- an var kona hans búin að vera undir læknishendi um nokkrar vikur í Kópavogi. Áður en hún fór að heiman var hann farinn að kenna lasleika, vildi hún að þau færu bæðL en hann vildi láta ganga fyrir að leita henni lækninga. Vildi vera heima og vinna að byggingunni. Við höfum þekkzt í 31 ár, af þeim tíma verið nágrannar í 17 og hálft ár. í ársbyrjun 1960 urð- um við samferða til Reykjavík- ur, báðir að leita okkur lækn- inga. Við vorum svo heppnir báðir að fá lækningu á meinum okkar og urðum samferða heim. Þegar hann fór í sína síðustu ferð að heimari fylgdi ég honum til Ólafsvíkur. Nú er samfylgd- inni lokið. Hann er farinn á undan mér yfir hafið sem skilur. „Ég kem á eftir, kannske í kvöld,“ þá getur samfylgdin byrjað aftur. „Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt“. Magnús var einlægur trúmað- ur. Það var trúin á algóðan guð, er gaf honum þrek til að yfir- vinna alla erfiðleika lifsins. Hér er góður drengur genginn. Við, samferðamenn hans, kveðjum hann með söknuðL Ragnheiði í Tröðum og öllum hans nánustu flyt ég samúðarkveðju okkar hjónanna. Ágúst Lárusson. Hrepptu versta veður Bíldudal 17. apríl. HEILDARAFLI línubáta, sem róa héðan frá Bíldudal er frá ára mótum til 15. apríl sem hér segir: Andri 604 tonn í 63 sjóferðum. Pétur Thorsteinsson 589 tonn í 63 sjóferðum. Hér hefir að undanförnu verið leiðinda veður, hvass NA og A en ekki úrkoma. Línubátar réru héðan að kvöldi 2. páskadags og komu að í nótt og höfðu hreppt eitt versta veð- ur á vertíðinni, urðu þó ekki fyrir línutapi, en afli var tregur 5—8 tonn. Landlega er í dag. — Hannes. 172 af 254 félögum eiga íbúðir AÐALFUNDUR Byggingafélags alþýðu var nýlega haldinn I S.Í.B.S.-húsinu Bræðraborgar- stíg 9. Formaður félagsins Erlendur Vilhjálmsson gerði grein fyrir störfum stjómarinnar á liðnu starfsári og reikningum félagsins en endurskoðunarskrifstofa B. Steffensen og Ara Thorlacius, hafði annast enduirskoðun reikn- inga, ásamt kjörnum fuldtrúum félagsins. Reikningarnia’ sýndu góðan bag félagsins og vaxandi sjóðasöfnun. í félaginu eru nú 254 félagar og hafa 172 þeirra fengið ibúðir. Úr stjórninni áttu að ganga formaður, og var Erlendur Vil- hjálmsson endhrkosinn i einu hljóði. Aðrir í stjórninni eru Guðgeir Jónsson, bókbindari og Reynir Eyjólfsson kaupmaður. bengio a ijorur við Eyjaf jörð DALVÍK, 16*. apríl. EKKI hafa enn fundizt rekin lík manna af bátunum, sem för- ust hér við Eyjafjörð, nema lík Bjarmars Baldvinssonar, eins og áður hefur verið greint frá. Enn er gengið á fjörur, en víða er óhægt að koma því við vegna snjóþyngsla, og sums staðar tal- in hætta á snjóflóðum undir sjávarhömrum. — Kári. Hjörleifur Kristmannsson HJÖRLEIFUR Kristmannsson ánægjunni af niðjum sínuim. Hjör, var fæddur að Lambhúsum a Aikranesi 21. septemiber 1896, sonur hjónanna Kriistmanns Tómassonar yfirfiskknatsmanns og Helgu Nielsdóttur. Óls>t hann upp í foreldrahúsum til 16 ára aldurs, en fluttist þá til Reykja- víkur til náimis í skósmiðaiðn, Að námi loknu varð þessi iðn hans ævistarf. Kom hann sér upp verkstæði, sem hann rak 'hér í bæ fram á síðustu ár, lengst í húsi sínu að Þórsgötu 23. Árið 1918 kvæntiist Hjörleif- ur eftirlifandi konu sinni, Krist- ínu Þorleifsdóttur frá Þverlæk í Holtum, stórmyndarlegri dugn- aðarkonu, sem hann æ síðan unni hugástum og virti afar mikils. Eignuðust þau hjónin 6 börn, og eru fimm þeirra nú uppkomin, en einn drengur lézt í bernsku. Hið fallega heimili þeirra hjóna bar vitni um starf þeirra og atorku. Eítir því sem fjöl- skyldan stækkaði, lengdi húsbónd inn vinnudag sinn og vann oft nótt með degi af fádæma þreki, þót-t ekki gengi hann heiil til skógar. Það var ekki skap Hjör- leifs að láta sitt eftir liggja. og var honum mikið kappsmál að koma börnum sinum til þroska og styrkja þau til náms eftir því, sem hugur stóð til. Enda varð hann sá gæfumaður að hljóta laun erfiðis sins í leifur var hlýr maður og barn- góður, og nutu barnabörn hans bezt viðkvæmni heitra skaps- muna hans. Hann unni þeim með ærslum og leik sem vinur og félagi, og mátti vart sjá, hver hafði mesta ánægju af samskipt- unurn — slík gleði var honum að hinum ungu vinum sínurn. Þótt Hjörleifur væri búinn miklum iíkamlegum gjörvileik var isá hængur á, að fætur hans voru illa bæklaðir. Má þvi nærri geta, hver raunabaggi þar var bundinn tápmiklum og kappsfúllum manni til leiks og starfs. Markar það glöggt, hversu styrkri skaphöfn og æðrulausri karlmennsku Hjörleifur var gæddur, að aldrei lét hann þrúg ast eða beygjast til biturleika eða aumikunar með sjálfum sér af þessum orsökum, þótt hann vissulega aldirei sættist við annmarka. Glaður og reifur gekk hann dag hvern til starfa. Hjörleifur var greindur vel, skemmtilegur í viðræðum og hrókur alls fagnaðar í glöðum hópi kunningja. Hann var söng rnaður góður og Ihafði miikið yndi af söng og hljómlist. Söng hann lengi í kinkjukór Fríkirkju saifna J acrins og með Kariakór Reykjavíkur og var alls staðar virtur og vinsæU. félagi. Hann var áhugamaður mikill um í- þróttir og lét sig sjaldan vanta á álhorfendapalla íþróttavallarins þegar von var á góðum knatt- spyrnulei'k, og hreifst hann jafn an mjög af leikni og irækn- leik góðna íþróttamanna. Nú þegar vinur minn, Hjör- leifur Kristmannsson, er á brautu genginn, færi ég hom- um þaikkir minar fyrir trausta vináttu hans og bið honum bless unar guðs. Mun mér likt fara og þeim, er minntist fóstra síns þessum orðum: „Þá mun hann mér í hug koma, er ég heyri góðs manns getið“. Frú Kristínu Þorleifsdóttur og niðjum Hjörleifs öllum flyt ég mánair einlægustu samúðar- kveðjur. Ragnar Stefánsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.