Morgunblaðið - 20.04.1963, Side 20

Morgunblaðið - 20.04.1963, Side 20
20 MORGL'NTtLAÐlÐ Laugardagur 20. apríl 1963. Enn um flugvallar- mál frá A til Z Aðalfundur Frí- ksrkjus afnaðar >AÐ er einkenni lýðræðisþjóð- íélags, að skoðana- og málfrelsi er í heiðri haft, og þess vegna gefast tækifæri til að kryfja ein- stök mál til mergjar. Flugvallarmál Reykjavíkur ihefur borið all hátt í riti og ræðum manna að undanförnu. Þau hafa fengið á sig blæ kapp- ræðna, þar sem misjafnar skoð- anir hafa komið fram, oft íneira af kappi en forsjá. Það má ef til vill segja um okkur „leikmennina“ að á okkur sé ekki mark takandi um tækni- leg og sérfræðileg atriði. í þessu máli má þó segja að við getum vel við unað, því margir hinna sérfróðu manna um flugvallar- mál hafa svo rækilega undir- strikað okkar álit, að á betra varð ekki kosið. Blöðin hafa leit- að álits sérfræðinga um þessi mál og þar hafa margar og mis- jafnar skoðanir komið fram. Bæði flugstjórar, flugmenn, viðgerðarmenn flugvéla og aðrir hafa ófeimið látið þá skoðun í ljós, að Reykjavíkurflugvöllur sé ekki fær um að gegna því hlut- verki, sem honum er ætlað. >að sem kom mér til að stinga niður pænna um þessi mál, er ekki það, að ég telji mig öðrum fróðari um þau, heldur hitt, að ég taldi vitneskju almennings um þau, að mestu frá einni hlið, komna út á all hála braut. Ör- yggismál Reykvíkinga og allra farþega er þar fara um völlinn eru engin einkamál eins eða fárra manna, þau varða þjóðina alla. Öryggismál fámennrar þjóð- ar mega aldrei verða að ósk- hyggju, sem stangast á við stað- reyndir. Ég efast ekki um það, að álit manna eins og Jóhannesar Mark- ússonar yfirflugstjóra Loftleiða, sem hefur langa reynslu að bajci, hlýtur að verða þungt á metum í þessu tilfelli. Þar er enginn „leikmaður" á ferð. Sama má segja um grein Brands Tómas- sonar yfirflugvirkja hjá Flugfé- lagi íslands. Það efast enginn maður um að þessir menn viti ekki hvað þeir eru að segja. Brandur undirstrikar það sem ég sagði í grein um þessi mál í Morgunblaðinu 6. marz sl„ hvað Viðkemur hindrunum og annað er varðar öryggismál vallarins. Aðflugsskilyrði, brautalengd, hindranir og annað öryggi varðar er að hans dómi í fullu samræmi við það sem ég sagði um þetta í áður áminntri grein. Allt þetta stangast all verulega á við það, sem flugmálastjóri sagði þjóð- inni á blaðamannafundinum fræga í útvarpinu á dögunum. Þar er spu.rt: „En í samibandi við öryggið flugmálastjóri, ég hef heyrt flugmenn tala um það að þeir telji alls ekki að öllu öryggi sé íullnægt með því að lenda hér á Cloudmastervélum“. „Það er ekki rétt, segir flugmálastjóri, og ég vildi mjög undirstrika það eð ég skal með mestu ánægju mæta þeim flugmanni eða flug- mönnum, sem halda því fram. Með stuttu millibili fæ ég frá mín llm starfsbræðrum í austri og vestri færustu sérfræðinga, sem þeir hafa í þessum öryggismál-. um og s.l. vor var hér starfandi hjá okkur einn af allra færustu sérfræðingum flugmálastjórnar- Snnar bandarísku í þessu. Hann fór yfir þetta mjög nákvæmlega frá A til Z og það var ekki eitt einasta atriði, sem ekki var full- komlega innan réttra reglna. Þetta er því alveg út í bálinn". Nú hefur flugmálastjóri séð framan í þessa flugmenn á eftir- minnilegan hátt, svo ekki verður um villzt, að þeir eru honum ekki sammála um öryggisreglurn- ar. Það er þá ekki nema eðli- legt að „leikmaður" spurji: Er hugsanlegt að þaulvanir flug- menn og starfsmenn flugmála viti ekki um hvað þeir eru að tala? Ég get ekki betur séð, eftir ummæli þessara manna, sem stang I ast svo algjörlega við ti- færð ummæli flugmála- stjóra en hann sé neydd- ur til að afsanna þau, eða láta þögnina geyma sitt samþykki að öðrum kosti. Raunar hefur hann nú þegar tekið síðari kostinn með því að neita að svara spurning- um blaðamanna um þessi mál opinberlega. Hann segir að einn allra færasti sérfræðingur Banda- ríkjanna hafi farið yfir þetta frá A til Z. Okkar stafróf er þremur stöfum lengra og eftir ummælum áðurnefndra flugmanna og flug- starfmanna má lesa úr þrem síð- ustu stöfum stafrófsins þetta: Þol brautanna er lélegt vegna veikrar undirstöðu. Æskilegir stækkunarmöguleik- ar ekki fyrir hendi. / Öryggismálin ekki í samræmi við reglur alþjóðaflugmálastofn- unar. Brandur Tómasson segir í upp- hafi greinar sinnar: „Ég er ásamt mörgum öðrum mönnum, sem að flugmálum starfa, orðinn ugg- andi útaf flugvallarmálum höfuð borgarinnar, og ekki síst vegna þess algjöra stefnuleysis, sem virðist ríkja í þeim málum. Við sem störfum á flugvellinum að staðaldri sjáum það. ljóslega að þar er svo mörgu ábótavant að furðu sætir að ekki skuli vera hafizt handa fyrir löngu síðan um að byggja nýjan flugvöll, þar sem alþjóða öryggisreglum er fullnægt“. Síðan telur hann upp lið fyrir lið í hverju öryggis- málunum er áfátt. Mig langar til að nefna aðeins tvö atriði í grein vinar míns Jó- hannesar Snorrasonar. Hann tel ur upp vegalengdir í kílómetrum í nokkrum stórborgum Evrópu frá borg til flugvallar. S4 saman burður er gerður til að sýna fram á hver fjarstæða er að nota Keflavíkurflugvöll. Það lítur vel út á pappínum að sýna fjarskyld ar tölur og telja sig sanna með þeim að leiðin hingað suðureftir sé frá tvisvar til fjórum sinnum lengri en í/'þeim borgum, sem hann til tekur. Hann sagði hins vegar ekki frá því, að þessar vegalengdir. sem hann nefnir eru frá tvisvar til fjórum sinnum seinfarnari en leiðin frá Reykja- vík til Keflavíkur vegna geysi- legrar umferðar. Þetta vita hins vegar þeir, sem hafa þurft að ferðast um þessa staði. Annað, sem hann nefnir, til þess að vekja tortryggni á nýja veginum til Keflavíkur var það, að nú þegar — hafa orðið á hon- um tvö bifreiðaslys. Að draga það fram, er að mínum dómi mikill skortur á háttvísi, og mig rak í rogastanz er ég sá það koma úr penna Jóhannesar Snorrason ar. Þessi slys urðu bæði fyrir- villimannslegan akstur bílóðra unglinga. Annan þeirra sögðu blöðin að hefði verið nýbúið að taka fyrir 110 km. hraða á Miklu braut nokkru áður. Þegar svona langt er seilzt til raka, á mál- staðurinn orðið erfitt uppdrátt- ar. Gunnar Sigurðsson flugvallar- stjóri í Eaykjavík telur unnt að gera 12000 feta langa braut á núverandi Reykjavíkurflugvelli með litlum tilkostnaði. Ég býst við að hann sé einn um það álit og læt hann um að dunda við að leysa það verkefni. Dreg þetta aðeins fram sem samnefnara á allt hans langa mál í Morgun- blaðinu. Þórarinn Jónsson kemur fram á ritvöllinn í dag og segir. „Hitt er svo annað mál, að í þessum blaðagreinum hefur verið látið að því liggja, að mikil hætta sé borgarbúum búin vegna stað- setningar flugvallarins og hafa þessi skrif vakið talsverðan ugg hjá mörgum. Þessi skrif eru heldur óviðkunnanleg, sérstak- lega þegar menn, sem takmark- aða þekkingu hafa á þessum mál um koma fram með fullyrðing- ar sem hafa við lítil rök að styðjast. í einu dagblaðanna seg- ir greinarhöfundur að hann vilji ekki hugsa þá hugsun til enda, ef einn hreyfill þessara flugvéla bilaði, þegar hún væri að hefja sig til flugs, en það er einmitt þetta, sem kom mér til að skrifa þessar línur“. Út frá þessum orðum mínum leggur Þórarinn í tvegigja dálka grein. Eg vil strax undirstrika það, að ég hef aldrei í greinum mínum sneitt að íslenzkum flug mönnum, tel þá þvert á móti muni vera á heimsmælikvarða góðir flugmenn, sem m.a. hafa fengið óvenjulega góða þjálfun við erfið skilyrði í okkar vinda sama og fjöllótta landi. Hins veg ar eru það óvenjulegu aðstæðurn ar, sem hér geta komið til greina eins og hvar annarsstaðar, þar sem flugslys hafa borið að höndum, við margfalt betri flug skilyrði en hér eru fyrir hendi. Það er kannske kaldhæðni ör- laganna, að í sama blaði og Þór arinn skrifar grein sína birtist á öftustu síðu fjögra dálka mynd af flugvél, sem klesstist niður á húsþök. Undir myndinni stendur þetta: „Þessi óvenjulega mynd sýnir, hvernig reynsluflugi lauk við Gloucester á Englandi um miðja vikuna. Flugmennirnir tveir er létu lífið í slysinu voru að æfingu með annan hreyfil vél arinnar í gangi, en höfðu stöðvað hinn. Þá brást sá er gekk. Straukst flugvélin við skólahús og lenti á þaki í nágrenninu. Þrennt var í húsinu, sem vélin rakst á, en enginn lét lífið utan flugmennirnir.“ Þetta veit Þórarinn og allir að alls staðar getur hent, en hvar er hættan samt mest, ef ekki þar, sem flugvöllur er staðsettur inni í miðri borg, þar sem flug- tak stórra véla af stuttum braut um er beina línu yfir íbúðar- hverfi. Þórarinn spyr: „Hvað halda menn að flugfélögin og loftferða eftirlitið sé að gera? Halda þeir raunverulega að menn hafi ekki gert sér grein fyrir afleiðingum ef hreyfill bilar í flugtaki? Trúir fólk því í raun og veru, að flug félögin og flugmálastjórnin leiki sér þannig að hættunni?" Eg vil í beinu tilefni af þessu spyrja Þórarin og aðra flug- stjórnarmenn: Teljið þið að flug stjórnarmenn í Gloucester og ann ars staðar sem svipuð slys hafa átt sér stað, hafi verið að leika -sér að hættunni? Gæfa okkar er slík til þessa, að ekkert svipað þessu hefur komið fyrir hjá okkur. Kæmi það hins vegar fyrir, sem allir góðir og réttsýnir menn vona að ekki verði, eru þá allir lausir við ábyrgð? Það er þetta, sem ég Og aðrir eru að benda á, hvernig sem reynt er að snúa útúr orðum okkar og vega 'og meta okkar þekkingarleysi. Keflavíkurflugvelli 30/3 1963. Þórður E. Halldórsson SJÖTÍU OG FIMM ár eru nú lið- in frá því að Leikfélag Sauðár- króks, hið eldra, var stofnað. 16 menn undirskrifuðu stofnskrá fé- lagsins, en aðalhvatamenn að stofnun félagsins munu hafa verið þeir kaupmennirnir Valgarð Claessen og Popp eldri. Stofndag urinn var 13. apríl 1888. Leikfélagið starfaði til ársins 1907, en þá var því formlega slit- ið. Leikstarfsemi lagðist þó aldrei niður, enda hafa Sauðkræklingar jafnan staðið framarlega í hvers kyns félagsstarfsemi, og þá ekki sízt leikli^t. Leikfélág Sauðárkróks var end SEXTUGASTI og þriðji aðal- fundur Fríkirkjusafnaðartns í Reykjavík var haldinn sunnudag inn 24. marz 1963 í FríkirkjunnL Fundarstjóri var kjörinn Óskar B. Erlendsson, lyfjafræðingur og fundarritari Siguroddur Magnús son, rafvirkjameistarL í fundarbyrjun minntist prest ur safnaðarins þeirra safnaðar- manna er látizt höfðu á árinu og tóku safnaðarmenn undir þau orð með því að rísa úr sætum. Úr skýrslu formanns safnaðarins: Rekstrarafkoma safnaðarins var góð á árinu og tekjuafgangur viðunandi, eftir að afskriftir höfðu verið frádregnar. Við- haldskostnaður með mesta móti þar sem gagnger viðgerð hafði farið fram á kirkjunni að utan og mun kirkjan verða máluð á komandi sumrL Eignin Njálsgata 41 var seld Borgarsjóði á sl. ári. Söluverðið var kr.- 300.000,00, sem skiptist til helminga ipilli Hallgríms- kirkju og Fríkirkjunnar. Var andvirðinu bætt við hina rausn- arlegu dánargjöf frú Sigríðar heitinnar Tómasdóttur, og nem- ur gjöfin nú kr. 171.533,14. Fræðslunefnd Safnaðarins gekkst fyrir samkomu í kirkj- unni 25. maí sl. Meðal annars flutti Páll Kolka, læknir, afar fróðlegt erindi um þróun kristn- innar hér á landi, organisti flutti verk eftir Bach, kirkjukórinn, ásamt einsöngvara, skemmti o.s. frv. Bréf barst frá Kvenfélagi Frí- kirkjunnar, þar sem félagskonur bjóðast til að láta mála kirkj- una að innan og standa straum af öllum kostnaði. Var þessu veg lega boði tekið með þökkum. Fær söfnuðurinn seint fullþakk- að kvenfélaginu allar þær rausn- arlegu gjafir og aðstoð, sem það h^fur veitt kirkju sinni bæði fyrr og síðar. Bræðrafélag Fríkirkjusafnað- arins hefur boðizt til að láta mála kirkjuna að utan og greiða allan kostnaðinn. Hefur Bræðra- félagið ávallt verið boðið og búið til að leggja lið sitt öllum fram- kvæmdum, kirkju sinni til fegr- unar og blessunar. Slippfélagið í Reykjavik hefur lofað að gefa söfnuðinum alla utanhússmálninguna. Var þessi rausnarlega gjöf þökkuð af heil- um hug. Nefnd hefur verið skipuð til að athuga sætabúnað í kirkj- unni og möguleika á því að kaupa nýjan sætabúnað líkt og er í Neskirkju. Leitað verður til safnaðarfólks um fjárhagsaðstoð, með það fyrir augum að safnað- armenn og konur gefi sem svar- ar andvirði eins eða tveggja sæta. Mikill áhugi ríkir meðal safnaðarmanna um að þessar framkvæmdir megi takast. Nefnd urvakið árið 1941 og hefur starf- semi þess verið í blóma síðan. Nú verandi stjórn þess skipa: Kári Jónsson, formaður, Jónas Þór Páls son, ritari og Kristján Skarphéð insson, gjaldkeri. Vegna afmælisins hafði leikfé- lagið sérstaka hátíðasýningu 31. marz. Leikinn var „Fjalla-Eyvind ur“. Með hlutverk fóru: Kári Jónsson, Eva Snæbjörnsdóttir og Haukur Þorsteinsson. í tilefni afmælisins var afhjúp uð brjóstmynd af Sigurði Guð- mundssyni málara á Sauðárkróki, en hann fæddist á Hellulandi fyr ir 130 árum. ina skipa Kristján Siggeirsson, formaður; Vilhjálmur Árnason, frú Pálína Þorfinnsdóttir, frú Elín Þorkelsdóttir og Friðsteinn Jónsson. Úr safnaðarstjórn áttu að ganga Þorsteinn J. Sigurðsson, kaupmaður, og Magnús . Brynj- ólfsson, forstjóri. Voru þeir báð- ir endurkjörnir. Safnaðarstjórnin er nú þannig skipuð: Kristján Siggeirsson, for- maður, Valdemar Þórðarson, varaform., Magnús . Brynjólfs- son, ritarL frú Ingibjörg Stein- grimsdóttir, frú Pálína Þorfinns- dóttir, Vilhjálmur Árnason, Þor- steinn . Sigurðsson. Varamenn: Óskar B. Erlendsson og Magnús Blöndal Jóhannesson. Um heyverkun Framhald á bls. 19. unum, færa það upp fyrir hey- brúnina í turninum og ganga frá því aftur eins og áður. Einn- ig þarf að losa vírnetið úr strompinum, með því að kippa upp járnteininum og færa það upp á móts við hið fyrrnefnda. Að því búnu er haegt að taka á móti heyi að nýju, fylla upp næsta turnsmótið og byggja turnínn upp á nýjan leik. Þannig héldi verkið áfram, með eina heyfæruna af annarri, þar til heyturninn væri kominn í þá hæð, er þurfa þætti hverju sinnL Að nokkrum dögum liðnum frá því að gengið hefur verið frá heyinu í turninum, fer hiti og gerð að koma fram í því. Hvort tveggja heldur jafnan áfram að aukast næstu daga um nokkurn tíma. Til þess að koma í veg fyrir að sú þróun gangi lengra en góðu hófi gegnir, hafa tilraunir leitt í Ijós, að með því að greiða fyrir útrás hitagufunn- ar í heyinu, minnki gerðin í þvi að meira eða minna leyti, og fóð- urefnatapinu er þar með minni hætta búin en ella. Ljóst má vera af framansögðu, að breidd turnveggsins skiptir miklu máli í umræddu sambandL Þó hún hafi hér verið tilgreind 2,10 m, er ekki hægt að segja ná- kvæmlega þar um, án frekari reynslu, enda færi það nokkuð eftir heytegundum o.flí, hverju sinni. Nokkurn veginn rétt hug- mynd um breidd veggsins, er samt mikilvægt atriði í þessu sambandi. Þegar grasþurrt hey, eða eftir lítinn þerrL hefur staðið nokkra daga í heyturninum, fer hiti og gerð að verka í því. Eftir því sem hitinn færi hærra, ornar heyið tilsvarandi meira eða minna. Þegar hann hefur komizt upp í 70—80 gráður C, dökkornar heyið, samkvæmt fyrrnefndum tilraunum. Og við það hefur tapazt fóðurgildL að nokkru leyti. Við læg'ra hitastig en hið fyrrnefnda, ornar heyið tilsvar- andi minna en áður. Þegar hér væri miðað við nokikurn veginn ljósornaða töðu, og því mark- miði, ætti að vera auðvelt að ná með því að notfæra sér heppilegt heyturnsform o.fl. aðgerðir, sem að því stuðla, má fullyrða, að nothæfni brúnheysverkunar er er vel borgið hér á landi. Því samkvæmt gamalli notkun hefur léttornuð taða reynst lystugt og kjarngott fóður handa mjólkur- kúm og öðrum búpeningi, sem til greina kemur, í því tillitL Heystrompa ættu bændur að notfæra sér í óþurrkatíð, þegar laklega þurrúm heyjum hefur verið dembt í hlöður, og hætt er við að eldur geti brotizt út i þeim, fyrr eða síðar. í heystromp um myndast oft töluverður loft- trekkur, sem dregur úr hitanum og brunahættunni í heyjunum. Lúðvík Jónsson. 75 ára leikstarf- semi á Sauðárkróki

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.