Morgunblaðið - 01.05.1963, Síða 7

Morgunblaðið - 01.05.1963, Síða 7
Miðvikudagur 1. maí 1963 MO'RCrvm 4 ni t> 7 A SUNNUDAG hélt Frjáls menning ráðstefnu um stúd- entsmenntunina. Hófst ráð- stefnan kl. 2 e. h. í Hagaskól- anum og stóð til 6*4 e. h. Um 50 manns sátu ráðstefnuna og meðal þeirra voru mennta- málaráðherra, rektor Háskól- ans, fræðslumálastjóri, rekt- or og skólameistarar mennta- skólanna, skólastjóri Verzl- unarskólans, fræðslustjóri Reykjavíkur, margir mennta skóla- og háskólakennarar, ýmsir þekktir læknar, verk- fræðingar, raunvísindamenn og listamenn. Þeir Jóhann S. Hannesson, skólameistari að Laugarvatni og dr. Gunnar FYRIR þennan fund er lögð sú spurning, hvort stúdentsmennt- un á íslandi sé orðin úrelt. Mér virðist bezt að byrja á því, fyrir mitt leyti, að svara þeirri spurn- ingu hiklaust játandi. En ég vil bæta því við strax, að mér er það fyllilega ljóst, að með þessu hefi ég í rauninni ekkert sagt. í fyrsta lagi liggur það í aug- um uppi, að menntaskólarnir eru úreltir. Og í öðru lagi er þetta miklu flóknari spurning en svo, að einfalit, já, varpi nokkru Ijósi á hana, jafnvel þótt það svar væri sannanlega eins rétt- mætt og ég er sannfærður um að það er. En sem betur fer þarf hér ekkert að sanna. Þetta er um- ræðufundur, og þótt fundarboð- endur hafi sýnt mér þann óverð- skuldaða sóma, að láta mig eiga þátt í að hefja umræðurnar, veit ég, að ekki er til þess ætlazt, að ég komi hér fram með nein þau grundvallarsannindi, er hver maður hljóti að fallast á. Ég hefi tiitölulega ákveðnar skoðanir og hugmyndir um ástand og þarfir stúdentsmenntunarinnar á ís- landi. En ég er ekki kominn hingað til þess að fá þær hug- myndir samþykktar — né heldur endilega til þess að fá þeim breytt. Ég hefi engar kenningar, enga teóríu, ekkert dogma fram að færa í þeim efnum, sem hér eru til umræðu, og ég er heldur ekki í leit að neinu slíku. Ég tók að mér þessa framsögu af eins- konar starfrænni eigingirni. Þær skoðanir og hugmyndir, sem ég þarf á að halda í starfi, þrífast ekki vel í tómrúmi né í því sér- kennilega andrúmslofti, sem ætíð myndast innan hverrar þröngt afmarkaðrar stéttar eða starfs- greinar. Um þær þarf að leika sá frjálsi andvari, sem ekkert nema óháðar og áhugasamar og sifcHd- ar samræður allrar menntastétt arinnar getur skapað. Ég á ekki von á að mér verði mótmælt, ef ég segi það, að talsverð lægð sé og hafi verið yfir vitsmuna- legum samskiptum islenzkra menntamanna í ræðu og riti. Boðun þessa fundar er örvandi vottur um það, að nú kunni að bregða til bjartara veðurs. En hverfum nú að umræðu- efninu sjálfu. Ég hefi þegar lýst því yfir, að ég tel stúdentsmennt- un á íslandi úrelta, og þessuim orðum verð ég að finna nokkurn stað. Efnið er mér of náið til þess, «ð ég geti látið mér nægja höfuð Böðvarsson fluttu merk er- indi um eðli og hlutvcrk stúdentsmenntunar og þær nauðsynlegu breytingar, sem á henni þyrfti að gera til þess, að stúdentsmenntun svaraði kröfum tímans í nútírna þjóð félagi. Þá, sem til máls tóku, má greina í þrjá hópa. Fyrstan má telja hóp framþróunarmanna með Jóhann S. Hannesson, skóla meistara í broddi fylkingar, en hann taldi, að róttækar breyt- ingar þyrfti að gera á mennta- skólanáminu, bæði námstilhög- un, kennslu og námsefni, til þess að námið svaraði eðli undirbún- ingsnáms undir æðri menntun, er jafnframt væri nám í almenn- um menntum. Þá má telja þá, atriði og megindrætti — áður en lýkur hlýt ég að koma að ein- stökum smáatriðum. (Þýðir ekki pedant upprunalega kennari?) Fyrst vil ég þó leiða að því nokkrar almennar líkur, að ég kunni að hafa á réttu að standa. Um víða veröld má heita að í menntamálum sé nú allt á öðrum endanum. í hverju landinu á fæt- ur öðru fer fram róttæk endur- skoðun á skólakerfum, námsefni, kennsluaðferðum. Rannsóknir, álitsgerðir, tillögur reka hver aðra í óþrjótandi röð. Svo ekki sé minnzt á þau mörgu lönd, sem eru að koma sér upp skólakerfi í fyrsta sinn, má nefna að í Englandi birtist árið 1960 ræki- leg skýrsla um menntaskólastig- ið, og svipuð rannsókn á vanda- málum háskólanna stendur þar yfir. í Danmörku birtist nefnd- arálit um nýja menntaskóla 1960 í Sviþjóð gengur í gildi nýtt menntaskólakerfi í haust, en að baki því liggur margra ára rann- sókn og umfangsmikið tilrauna- starf. í tímaritum almenns efnis og jafnvel í dagiblöðum úir og grúir af greinum um hin marg- víslegu skólamál. „Seinagang- urinn í skólunum", „Strandið á stærðfræðiskerinu," „Kostir og gallar kennsluvéla,“ „Bylting stúdenta gegn hefðbundnu sið- ferði“ — þetta eru nokkrar fyrir sagnir greina í amerískum dag- blöðum. Síðast í gær barst mér í hendur tölublað af New York Times, þar sem heilt fylgiblað er helgað skólamálum — en slík fylgiblöð þess dagblaðs fjalla annars venjulega um við- skiptamál. Ég tek það fram, að það er tilviljun ein, að ég les einkum blöð og tímarit á ensku. Skólamálin eru hvarvetna efst á baugi. Ástæðan til þessa er augljós. Á síðustu áratugum — ekki sízt eftir síðari heimsstyrjöldina — hafa orðið þær byltingar í lifn- aðarháttum flestra þjóða heims og vissulega allra þjóða hins vest- ræna heims, sem hljóta að hafa í för með sér nýjar hugmyndir og nýjar kröfur í skólamálum. Hin hraða framvinda vísinda og tækni krefst fleiri menntaðra manna og jafnframt betur og öðruvísi menntaðra manna en nokkru sinni áður hefir verið brýn eða augljós þörf fyrir. Sízt ómerkari orsök nýrra þarfa í skólamálum er það, að með vax- andi velmegun og velmegunar- skilyrðum (einkum, að sjálf- sem héldu fram íhaldssamara sjónarmiði; þeirra tök dýpst í árinni Þórhallur Vilmundarson, prófessor, sem taldi, að búið væri að valda stórtjóni í neðri hluta gagnfræðaskólanna með ofháum einkunnum, sem ekki væri mæli kvarði á hæfni nemenda, er hærra drægi í skólastiganum, og farið hefði verið út af réttri braut, er sérskólum var veittur réttur til þess að brautskrá stúd- enta. Fjölmennastur var þriðji flokkurinn, sem taldi, að nauð- synlegar breytingar þyrfti að vísu að gera á stúdentsmenntun- inni, en að rammi stúdentsnáms- ins mætti haldast í heild að því frátöldu, að nýtt námsefni þyrfti að taka upp, stúdentar þyrftu að útskrifast yngri en nú er og að nýrri kennslutækni þyrfti að beita. sögðu, í hinum tsekniþróuðu lönd um) hafa möguleikar til skóla- göngu opnast margfalt fleirum en fyrr. Heilar stéttir, sem aldrei fyrr áttu kost á menntun, hafa nú uppgötvað menntaþörf sína og menntagetu. Af þessu hefir sprottið sívaxandi þörf á fleiri og stærri skólum en jafnframt krafa um fleiri tegundir skóla, Jóhann Hannesson nýjar menntaleiðir. Áhrifanna gætir á öllum skólastigum, frá barnaskólum upp í háskóla. ísland hefir ekki farið var- hluta af þessari þróun, og þarf ekki að orðlengja það. Sú skóla- löggjöf, sem við nú búum við, á að nokkru rætur sínar að rekja til hins nýja ríkjandi kjör- orðs í skólamálum „Framhalds- menntun fyrir alla.“ En tvö skóla stig á íslandi eru því sem næst ósnortin af því, sem verið hefir að gerast allt í kringum þau: menntaskólastigið og háskóla- stigið. Almennar líkur benda því til þess, að menntaskólarnir muni vera farnir að úreldast. Á sama tíma og risið hefir nýtt og áður allsendis óþekkt þjóðfélag á ís- landi, hafa menntaskólarnir stað- ið í stað í öllum grundvallarat- riðum. Þetta er það, sem ég átti við, er ég sagði í upphafi máls míns, að það lægi í augum uppi, að menntaskólarnir væru úreltir. En ég sagði lika, að spurning- in, sem ég hefi verið svo fljótur til að svara, væri mjög flókin. Hvað er í rauninni átt við, þegar spurt er, hvort stúdentsnám á íslandi sé úrelt? Er verið að spyrja hvort leggja skuli niður stúdentsmenntun og taka upp einhverja aðra menntun í stað- inn? Eða er verið að spyrja, hvort það hlutverk, sem stúdents menntun er ætlað að gegna, sé ekki lengur eins mikilvægt í þjóð félaginu og það eitt sinn var? Eða er verið að spyrja, hvort skipulag og námsefni stúdents- menntunarinnar hæfi ekki leng- ur hlutverki hennar? Ég geri mér í hugarlund, að verið sé að spyrja um þetta allt og sennilega margt fleira, sem mér ekki dettur í hug, þegar ég velti þessari spurningu fyrir mér. Það er von mín og traust, að í þessum umræðum komi það Ijóst fram, að við byrjum þær ekki með fastan grundvöll und- ir fótum, að spurningin er í sannleika ekki einföld, að vanda mál menntaskólanna er ekki op- in bók, að við verðum að grafa djúpt, áður en við komum niður á fast. f trausti þessa ætla ég að láta það eftir mér, að vekja máls á — eða öllu heldur tæpa á — nokkrum einstökum atriðum, sem mér liggja á hjarta. Það mun ekki ósanngjarnt, að byrja á því að nefna nokkra aug- ljósa kosti menntaskólanna. 1. Skólarnir gera háar kröfur um menntun kennara, og kjarni kennaraliðsins er vel hæfur í starfi. Hitt er svo annað mál, að erfitt ^getur reynzt að fá kenn- ara, sem uppfylla allar kröfur. 2. 3(kólarnir reyna að velja hæfustu nemendurna, og breytir það engu um viðleitni þeirra, að ekki er völ á ýkja góðum mæli- kvarða til að velja eftir. 3. í menntaskólunum er ekkert kennt, sem ekki er betra að vita en að vita ekki. Þessari stað- reynd má ekki rugla saman við hina, að af praktískum ástæðum kunna menn að vilja losna við einhverjar þær greinar, sem þar eru kenndar. 4. Góður nemandi kemur úr menntaskóla vel fróður um margt og að því leyti vel búinn undir háskólanám, hvað sem líður öðr- um æskilegum undirbúningi und ir slíkt nám. 5. Með góðum vitnisburði kem ur ekki út úr skólanum nema góður nemandi. 6. Enn má ef til vill telja það, sem ég vil ekki fullyrða, að sé kostur, sem sé, að menntaskól- inn er hæfilegt framhald af próf. inu, sem veitir inngöngurétt í hann. Sitthvað annað mætti vafa- laust telja skólanum til gildis, og treysti ég því, að þeir geri það, sem minni áhuga hafa en ég á því, að telja gallana, en að því óljúfa verki sný ég mér nú. Efst á blað vil ég hér setja atriði, sem ekki snertir beinlín- is skólana sjálfa, heldur hefð- bundin viðhorf okkar til þeirra. Þessi viðhorf birtast í málvenj- um okkar. Við tölum um æðri skóla, æðri menntun; við lítum á skólakerfið sem tignarstiga, ekki sem samfellda lífræna heild. Menntaskólastigið hefir verið tignað sem hinn sjálfsagði og óumdeilanlegi hápunktur allr- ar framhaldsmenntunar neðan við háskólastigið. Þetta kann ein hverntíma að hafa átt rétt á sér; ég læt sagnfræðingum eftir að skýra það. En þessi dýrkun er þröskuldur í vegi framfara nú, þegar á því ríður að fjölga teg- undum framhaldsskóla, að auka fjölbreytni menntunarinnar, að opna sem flestar dyr að háskól- unum. Það getur ekki gengið, að ein tegund skóla njóti ástæðu- lausrar virðingar fram yfir aðra skóla fyrir sama aldursstig. Það ber að stefna að því — og verður án nokkurs vafa stefnt að því — að allir séu við nám að ein- hverju eða öllu leyti til 18 ára aldurs, að minnsta kosti. En það er ekki hægt, nema öll sú marg- víslega menntun, sem þjóðfélagið þarf á að halda, njóti jafnréttis í grundvallaratriðum. Fullvissan um það, að mennta- skólanámið væri eins fullkomið og hugsazt gæti, hefir þegar orð- íð okkur að skaða. Þegar settir hafa verið á stofn sambærilegir skólar, hefir fyrirmynd mennta- skólanna ætíð verið fjötur um fót þeirra. Hver nýr skóli fyrir þetta aldursstig er nýtt tækifæri til að víkka, rýmka, auka fjöl- breytni. Sköpunarsaga allra slíkra skóla hefir verið að ein- hverju leyti saga glataðra tæki- færa. Ég held það sé ekki fjarri sanni að segja, að menntaskól- arnir á íslandi hafi að nokkru gegnt sama afturhaldshlutverki og hinir eldri háskólar Breta. Þeir háskólarnir hafa átt og eiga dýrmætar þjóðfélagsmótanir, hefðir, þótt margir telji þær nú úreltar. En hafa íslenzkir mennta skólar nokkrar slíkar hefðir að varðveita? (Því má skjóta inn hér, þótt ekki sé tækifæri að ræða það nánar, að í menntaskólanum er fólk á því aldursstigi sem í mörg um öðrum löndum er kennt í háskólum.) Ein skaðvænleg afleiðing þess, að skólarnir hafa ekki fylgzt með þjóðfélagsþróuninni er það, að þeir gera enn ráð fyrir því, að nemendur hafi allan náms áhuga frá sjálfum sér. Þetta mun hafa verið réttmætt meðan flest- ir, sem skólana sóttu, færðu til þess stórar fórnir og meðan lang- skólaganga var eina leiðin til vegs og valda í þjóðfélaginu, en svo má heita að væri til skamms tíma. Þessu er ekki lengur að heilsa. Menntaskólanám er ekki lengur arðvænna en svo í fjár- hagslegu eða þjóðfélagslegu til- liti, að námshvötin kemur ekki af sjálfu sér. Þetta munu margir harma, en það breytir ekki stað- reyndinni. Skólarnir verða að laða nemendur, ef sú námsgeta, sem til er í landinu, á að nýtast. En það er einmitt þetta, sem skólarnir gera ekki. Allt stúdents námið, að heita má, er yfirlits- nám. Fagafjöldinn og tímaþröng- in eru áhugadreifandi og áhuga- drepandi. Hvergi er næði til að staldra við og sökkva sér niður í nokkra grein. Kennsla er því sem næst al- gjörlega bóklega bundin og það sem verra er — kennslubók- bundin. Ef undantekningar eru frá þessu, er það því nær ein- göngu ágæti einstakra kennara að þakka, en við menntaskól- ana er, eins og ég hefi þegar sagt, ágætra kennara völ. Þó verð ur að minnast þess, að ágætir kennarar eru sjaldgæfir, og þeim fækkar að tiltölu eftir því, sem stéttin vex. Við munum allir sammála um það, að ekkert geti komið í stað afbragðskennara. En sé afbragðskennara ekki völ, verður kerfið að bera sinn hluta byrðarinnar. Ég verð að fara hér fljótt yfir sögu, enda yrði það ekki skemmti legur lestur, _að tína allt til, sem tina mætti. Ég vil aðeins nefna það, að allt, sem virðist liggja nemendum verulega á hjarta, allt sem þeir af ánægju og löngun leggja sig fram um, virðist falla utan við hið eiginlega skólastarf. Ég er ekki svo einfaldur að vænta þess, að nemendur hætti skyndilega að leiðast að sitja á skólabekk, að þeir verði allt í einu eins fullir af áhuga og kenn arana, leiða á ítroðslunni, dreym ir um. Ég á einungis við það, að kennslan virðist ekki veita nem- endum neina verulega andlega fullnægingu. Ég þykist ekki þurfa að leggja áherzlu á það við þenn an hóp, að þegar bezt lætur er nám andleg fullnæging. Ég ei jTramh. á bls. 8. Framsöguerindi Jóhanns llannes- sonar, skólameistara, á fundi Frjálsrar menningar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.