Morgunblaðið - 01.05.1963, Qupperneq 9
Miðvikudagur 1. maí 1963
MORGUISBLAÐIÐ
<3
Aðalfundur
Kúseigenda-
félagsins
AÐALFUNDUR Húseigendafé-
lags Reykjavikur var haldinn 20.
marz. sl. Formaður félagsins
Páll S. Pálsson hrl. flutti skýrsiu
Um starfsemi félagsins á sl. ári,
og Valdimar J. Magnússon las
upp og skýrði reikninga ársins.
Starfsemi félagsins var með
líkum hætti og undanfarin ár að
því er snerti fyrirgreiðslur til
félagsmanna með lögfræðilegar
leiðbeiningar, upplýsingar varð-
andi brunavarnir o. fl.
Félagið gaf nokkrum sinnum
á árinu félagsrit sitt, Húseig-
andann, og var það sent hverj-
um félagsmanni án endurgjalds.
1 ritinu birtist margskonar fróð-
leikur varðandi húsnæðismál og
fasteignir og virðist það eiga
vinsældum að fagna.
Félagsstjórnin vann ötullega
að því að fá alþingi og ríkis-
stjórn til þes að afnema hinar
hvimleiðu leifar gömlu húsa-
leigulaganna frá stríðsárunum,
svonefndu lög um hámark húsa-
leigu o. fl. >ó komst það mál
ekki í höfn. Félagsstjórnin á-
kvað í þessu sambandi, þar eð
lasaslitur þessi samræmist ekki
réttarmeðvitund fólks og sé að
litlu haldi í raunveruleikanum,
oð mælast til þess við Rjörgvin
Sigurðsson hdl., er fyrir meir en
12 árum síðan var skipaður í
Húsaleigunefnd skv. tilnefningu
félagsins, segði af sér stöfum
í nefndinni, og hefði hann tekið
Iþeim tilmælum vel.
Félagsstjórnin hefur stöðugt í
athugun að taka í þjónustu sína
ráðunaut er hafi eftirlit með við-
gerðum Og nýbyggingum fyrir
húseigendur er þess kynnu að
óska, bæði að því er snertir
vinnugæði og verð.
>á skýrði formaður félagsins
frá því að félaginu hefði verið
sagt upp leigu á skrifstofuhús-
næðinu í Austurstr. 14, en féiags
stjórninni hefði heppnazt að
festa kaup á húsnæði á 1. hæð
hússins Grundarstlgur 2 A, sem
væri mjög vel staðsett svo nærri
Miðbænum, og hefði þannig
■tryggt framtíðaraðsetur fyrir fé-
lagið í eigin húsnæði. Markaði
þetta tímamót í starfssögu fé-
lagsins.
Að loknum umræðum um
ískvrslu félagsstiórnar og önnur
ínál var samþykkt svohljóðandi
ólyktun:
Aðaifundur Húseigendafélags
Heykjavíkur 1963 þakkar stjórn
félagsins fyrir atbeina hennar til
þess að fá lagabókstafinn um
hámark húsaleigu afnuminn.
Skorar fundurinn á alþingi að
afnema þessa hvimleiðu oig úr-
eltu löggjöf án tafar.
S t j ó r n Húseigendafélags
Heykjavíkur skipa nú: formaður
Páll S. Pálsson hrl. og meðstjóm
endur Friðrik Þorsteinsson hús-
gagnasmíðam. (varaform.), Ólaf-
ur Jóhanness. kaupmaður, Jón
Guðmundss. frá Nesi fulltr. og
Heifur Sveinss. lögrf. Til vara
Sighvatur Einarsson, Jens Guð-
björnsson og Óli M. ísaksson.
Frá nk. fimmtudagi verður
skrifstofa félagsins til húsa að
Grundarst. 2 A 1. hæð. Skrif-
stofutími kl. 3.30—6.30 e. h. alla
virka daga nema laugardaga kl.
10—12.
Háshóla-
fyrirlestur
Frú Áse Gruda Skard dósent í
uppeldisfræði við Oslóar-háskóia
ílytur fyrirlestur í fyrstu kennslu
etofu háskólans nk. föstudag 3.
maí kl. 17,30. Fyrirlesturinn, sem
fluttur verður á norsku, fjallar
um hin ýmsu skeið á þroska-
ferli barnsins.
Öllum er heimill aðgangur að
fyrirlestrinum.
(Frá Háskóla íslands).
Girðíngorefni ■ Grnsiræ
Norsku túngirðinganetin eru komin. — Finnsku
girðingarstaurarnir væntanlegir á næstunni. —
Grasfræblandanir og einstakar tegundir fyrir-
liggjandi.
Mjólkurfélag Reykjav'ikur
Heildverzlun óskar að ráða
Skrifstofustúlku
strax, til vélritunar og símavörzlu. Umsóknir sendist
Mbl. fyrir 3. maí, merkt: „Stundvís — 6625“.
Skrifstofustúlka
Stúlku vantar okkur nú þegar til vélritun-
ar- og símavörzlu. Reynsla í vélritun ásamt
nokkurri enskukunnáttu nauðsynleg. —
Upplýsingar á skrifstofu okkar kl. 4—6
í dag.
FORD-umboðið
KR. KRISTJÁNSSON H.F.
Suðurlandsbraut 2. Sími 35300.
FramboSslistar
við alþingiskosningar í Reykjavík, sem fram eiga
að fara sunnudaginn 9. júní 1963, skulu afhentir í
skrifstofu yfirborgarfógeta, Skólavörðustíg 12, eigi
síðar en miðvikudaginn 8. maí 1963.
Yfirkjörstjórnin í Reykjavík, 29. apríl 1963.
Kristján Kristjánsson,
Sveinbjörn Dagfinnsson.
Páll Líndal.
Eyjólfur Jónsson,
Þorvaldur Þórarinsson.
Síldveiðiskipstjórar
Skipstjóra, vanan síldveiðum, vantar á góðan síld-
veiðibát að lokinni þorskvertíð eða er veiðar hefjast
fyrir Norðurlandi. Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir
10. maí merkt: „Aflamaður — 6631“.
Aðstoðarmaður
óskast á trésmíðaverkstæði nú þegar.
Mikil vinna.
Trésmiðja BIRGIS ÁGÍJSTSSONAR,
Brautarholti 6. — Sími 100-28.
Stúlka — Saumaskapur
Stúlka vön saumaskap óskast frá kl. 1—6. Upplýs-
ingar í síma 19928 milli kl. 1 og 3.
Kantskorin eik
Japönsk kantskorin eik fyrirliggjandi.
1%”, 2” og 2%”.
Kristján Siggeirsson
Laugavegi 13. — Símar 13879 og 17172.
Tilkynning
Athygli innflytjenda skal hér með vakin á því, að
samkvæmt auglýsingu viðskiptamálaráðuneytisins í
120. tbl. Lögbirtingablaðsins 1962, fer fyrsta úthlut-
un gjaldeyris- og/eða innflutningsleyfa árið 1963,
fyrir þeim innflutningskvótum, sem taldir eru í I.
kafla auglýsingarinnar, fram í júní 1963. Umsóknir
um þá úthlutun skulu hafa borizt Landsbanka ís-
lands eða Útvegsbanka íslands fyrir 1. júní n.k.
Landsbanki íslands.
Útvegsbanki íslands.
Óskum að ráða
afgreiBsl umann
í vélaverzlun. — Upplýsingar hjá
verzlunar st j ór anum.
== HÉDINN =
Vé/averz/un
simi 24260
Seljavegi 2.
Sumaráœtlun
Reykjavík — Fljófshlíð
1. maí hefjast daglegar ferðir.
FRÁ REYKJAVÍK:
Alla virka daga nema laugardaga kl. 18.00.
Laugardaga kl. 13.30. Sunnudaga kl. 21.30.
FRÁ MÚLAKOTI:
Alla virka daga kl. 9.00.
Sunnudaga kl. 17.00.
Athugið breittan burtfarartíma frá Reykjavík á
laugardögum kl. 13.30.
Afgreiðslur í Múlakoti og Bifreiðastöð íslands.
Sími 1-89-11.
Austurleið h.f., Hvolsvelli.
Sími 17.
Rangæingar — Vestur
— Skaftfellingar —
Við undirritaðir sérleyfishafar á leiðunum Reykja-
vík — Fljótshlíð og Reykjavík — Vík — Kirkju-
bæjarklaustur, höfum stofnað hlutafélag um sam-
eiginlegan rekstur leiðanna og munum reka þær
undir nafninu „Austurleið h.f.“.
Óskar Sigurjónsson, Hvolsvelli.
Steinþór Jóhannsson, Kirkjub.klaustri.
Helgi Ingvarsson, Hvolsvelli.
Sumardvalir
Þeir, sem ætla að sækja um sumardvalir fyrir börn
hjá Reykjavíkurdeild Rauða kross íslands, komi í
skrifstofuna í Thorvaldsenstræti dagana 6. og 7. maí
kl. 9—12 og 13—18. Tekin verða börn fædd á tíma-
bilinu 1. jan. 1956 til 1. júní 1959. Aðrir aldurs-
flokkar koma ekki til greina. Ætlunin er að gef a kost
á 5 vikna, 6 vikna eða 11 vikna sumardvöl.
Stjórnin.
Skrifstofustarf í Hafnarfirði
Framtíðarstarf á góðri skrifstofu í Hafnarfirði er
laust til umsóknar fyrir pilt eða stúlku, með verzl-
unarskólamenntun, eða reynslu í skrifstofustörf-
um. Umsóknir sendist afgr. Mbl. fyrir 6. maí, —
merkt: „Framtíðarstarf — 6999“.