Morgunblaðið - 01.06.1963, Page 1

Morgunblaðið - 01.06.1963, Page 1
II Laugard. /. júm /963 fHw£miWðbtfe Unnið að velferðar- og menningar- málum sjdmanna Rætt við formann Sjómaimadagsráðs, Pétur Sigurðsson Á ANNAN dag hvít^sunnu er sjómannadagurinn. Morjun- blaðið átti af því tilefni sam- tal við Pétur Sigurðsson for- mann Sjómannadagsráðs. — Hverjir eru aðilar að Sjómannadagsráði? — Fulltrúar allra sjómanna félaganna í Reykjavík oig Hafnarfirði, bæði félaga yfir- og undirmanna. — Hvað er »vo að segja um starfsemi og verksvið sam takanna? — Starfsemin hófst fyrir rúmum aldarfjórðuntgi, sagði Pétur, þegar Sjómannadagur- inn var í fyrsta skipti hald- inn hátíðlegur. Megin hlut- verk Sjómannadagsráðs og sjómannadagsins hefur verið að kynna líf og störf sjómanna stéttarinnar. Á hverjum sjó- mannadegi hefur verið minnzt látinna sjómanna o.g aldraðir sjómenn sem eiga að baki sér larngan starfsferil á sjónum, hafa verið heiðraðir. Einnig hefur Sjómannadagsráð geng izt fyrir að heiðra sjómenn, sem sýnt hafa sérstök afrek á sjó og nú í seinni tíð einn- ig fyrir námsafrek. íþrótta- keppni sjómanna er einnig háð á þessum degi. Fyrst og fremst hefur verið unnið eft- ir þeirri grein starfseglna sjó mannadagsins, sem segir að unnið skuli að menningar- og velferðarmálum sjómannastétt arinnar. — Ber þar ekki haest Dval arheimili aldraðra sjómanna, Hrafnistu? — Jú, meginstarfsemi sam takanna þann aldarfjórðung, Pétur Sigurðsson, formaður Sjómannadagsráðs. sem þau hafa verið við líði hefur verið fjársöfnun og rekstur uppbygging Hrafnistu. Talið frá vinstri: Tómas Guðjónsson, fulltrúi Vélstjóraféiags íslands, Kristens Sigurðsson, fulltrúi Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Kára í Hafnarfirði, Hilmar Jónsson, fulltrúi Sjómannafélags Keykjavíkur, Gróa Pétursdóttir, formaður Kvennadeildar Slysavarnafélagsins, Jónína Loftsdóttir, formaður Kvenfélagsins Keðjunnar, Hrefna Gísladóttir, formaður Kvenfélagsins Hrannar, Guðrún Sigurðardóttir, formaður Kvenfélagsins Bylgjunnar, Laufey Halldórsdóttir, formaður Kvenfélags- Ins Öldunnar og Pétur Sigurðsson, formaður Sjó mannadagsráðs, fulltrúi Sjómannafélags Reykja- víkur. — Hvernig miðar því starfi ykkar? — Á síðastliðn.u ári var tek in í notkun vistmannaálma er rúmar 66 menn. Þá eru sam tals 196 vistmenn á Hrafnistu, þar af 44 á sjúkradeild. Þegar hefur verið hafizt handa um bygginigu nýrrar álmu, sem einnig mun rúma 66 menn, og er þá enn óbygigð ein álma fyrir 54 menn. — Vinnur Sjómannadags- ráð að fleiri málum en bygg- ingu Oig rekstri Hrafnistu? — Já, við höfum ýmislegt á prjónunum, en því miður verður oft minna úr fram- kvæmdum en skyldi, vegna annarra anna þeirra, sem að þessum málum vinna, en öll þessi störf eru unnin í frí- stundum og með öllu ólaunuð. — í fyrsta lagi er mikiU áhuigi stjórnar Sjómaimadagsráðs á því að finna raunhæfa leið til að koma á slysa- og örorku- tryggingum fyrir þá, sem stunda sjó á skipum, sem ekki er lögskráð á. Hinir hörmu- legu mannskaðar í páskahret ínu eru alvarleg ábendimg til sjómanna- og verkalýðsfélaga um land allt um að ekki hafi verið staðið sem skyldi að þessu máli; sem við teljum ekki til kjaramála, heldur vel ferðarmála þeirra stéttar þjóðfélagsins, sem býr við mestar hættur og erfiðleika í starfi sínu. — Eru fleiri slík mál, sem (þið beitið ykkur fyrir? ’ — Eitt þeirra mála, er hæst ber hjá sjómannastéttinni, er að sjálfsöigðu auknar slysa- varnir og aukið öryggi á sjó. Við höfum því ákveðið að beita þeim áhrifum sem sjó- mannadagurinn hefur, til þess að benda á mikUvægi ör yggis- og slysavarnamála, og mun sá, sem talar fyrir hönd sjómanna við hátíðarhöldin á Austurvelli, Garðar Pálsson, stýrimaður hjá landhelgis- gæzlunni, ræða þau mál sér- staklega. Enn eitt áhugamál Sjómannadagsráðs er að koma upp sjómannastofum eða sjómannaiheimilum í helztu verstöðvum landsins. Eitt baráttumál okkar er ný leiga orðið að raunveruleika. Það er sumardvalarheimili fyrir sjómannsbörn, þar sem forgangsrétt hafa börn sem misst hafa föður eða móður, eða búa við erfiðar heimilis- ástæður. Sjómannadagsráð hefur tekið á leigu heima- vistarskólann að Laugalandi í Holtum og þar fá 40 börn sumardvöl frá 15. júni til 15. ágúst. Skólinn, sem er ný- legur og glæsilegur, veitir beztu skilyrði til að börnun- um geti liðið vel þar, og auk þess höfum við verið svo hepp ir að fá hina ágætustu konu, Pálínu Árnadóttur, sem er fóstra að mennt, -U þess að veita heimilinu forstöðu. — Hver er dvalarkostnaður inn? — Kostnaður fyrir þau börn sem forgangsrétt hafa, verð- ur sá sami og hjá Rauða krossi Islands; 300 kr. á viku Þetta gjald hrekkur þó ekki fyrir helmingi dvalarkostnað ar barnanna, en á móti kemur framlag frá hlutaðeigandi bæj arfélögum og framlag frá Sjó manpadagsráði. Til þess að afla þess fjár, sem þá vantar á, ætla hinar dugmiklu sjó- mannskonur, sem staðið hafa fyrir kaffisölu á sjómannadag inn og varið ágóðanum til jóla glaðning fyrir vistm. Hrafn- istu, að koma til hjálpar. Þær hafa starfað með stjórn Sjó- mannadagsráðs að undirbún- ingi og stofnun sumardvalar- heimilisins og sýnt á því sama áhuga og öðrum málum, sem þær hafa tekið sér fyrir hendur. Sjómannadaguri nn ann an í hvítasunnu STJÓRN Sjómannadagsráðs hélt í gær fund með fréttamönnum í tilefni þess, að sjómannadagur- Inn er á annan hvítasunnudag. Geir Ólafsson, loftskeytamaður, framkvæmdastjóri sjómannadags Ins, skýrði frá dagskránni, sem verður á þessa leið: Kl. 08.00 Fánar dregnir að hún á skipum í höfninni. Kl. 09.00 Sala á merkjum Sjó- tnannadagsins og Sjómannadags- blaðsins hefst. Kl. 10.30 Hátíðamessa í Laug- erásbíói. Prestur séra Óskar J. Þorláksson. Söngstj.: Gunnar Sigurgeirsson. Kl. 13.30 Lúðrasveit Reykja- víkur leikur sjómanna- og ætt- jarðarlög á Austurvelli. Kl. 13.45 Mynduð fánaborg með sjómannafélagsfánum og ísl. fánum á Austurvelli. Kl. 14.00 Útihátíðahöld Sjó- mannadagsins við Rusturvöll. (Ræður og ávörp flutt af svöl- um Alþingishússins). 1) Minningarathöfn: a) Biskup fslands, herra Sig- urbjörn Einarsson minnist drukknaðra sjómanna. b) Guðmundur Guðjónsson óperusöngvari syngur. 2) Ávörp; a) Emil Jónsson, sjávarútvegs- málaráðherra, fulltrúi ríkis- stjórnarinnar. b) Baldur Guðmundsson, út- gerðam., fulltrúi útgerðarm. c) Garðar Pálsson, stýrimað- ur, fulltrúi sjómanna. d) Pétur Sigurðsson, form. Sjó mannadagsráðs afhendir verð- laun og heiðursmerki (Björgun- arafreksverðlaunin verða afhent í Vestmannaeyjum). e) Guðmundur Guðjónsson, óperusöngvari syngur. Lúðrasveit Reykjavíkur, stjórn 'andi Páll Pampichler Pálsson, annast undirleik og leikur á milli dagskráratriða. Kl. 15.45 Að loknum hátíða- höldunum við Austurvöll hefst kappróður (og ef til vill sund) við Reykjavíkurhöfn. — Verð- laun afhent. Sjómannskonur annazt kaffi- veitingar frá kl. 14.00 í Sjálf- stæðishúsinu og húsi Slysavarna- félags íslands á Grandagarði. — Allur ágóði af kaffisölunni renn- ur til jólaglaðnings vistfólks í Hrafnistu. Kvöldskemmtanir verða á veg- um Sjómannadagsins á eftirtöld- um stöðum: Súlnasal Hótel Sögu — þar verður Sjómannadagshóf — Breiðfirðingabúð, Glaumbæ, Ingólfscafé, Silfurtunglinu, Sjálf- stæðishúsinu. Sjómannadagsblaðið verður af- hent blaðsölubörnum í Hafnar- búðum og Skátaheimilinu við Snorrabraut á laugardag 1. júni kl. 14.00 — 16.00. Einnig verða merki Sjómanna- dagsins og Sjómannadagsblaðið afhent sölubörnum á Sjómanna- daginn 3. júní frá kl. 09.30 á eítir töldum stöðum: Hafnarbúðum (nýja verkamannaskýlinu og sjó- mannaheimilinu við höfnina), Skátaheimilinu vð Snorrabraut, Réttarholtsvegi 1, Sunnubúð við Mávahlíð, Vogaskóla, Melaskóla, Vesturbæjarskóla (Gamli stýri- mannaskólinn), Laugalækjar- skóla. Venjulega er sjómannadagur- inn fyrsta sunnudag í júnímán- aðar, nema þegar hann ber upp^, á hvítasunnudag eins og nú er, en þá er honum yfirleitt frestað til annars sunnudags mánaðarins. Að þessu sinni fara hins vegar fram kosningar 2. sunnudag 1 júní, að tekinn var sá kostur að halda daginn hátíðlegan á annan hvítasunnudag. Minnzt verður þeirra sjó- manna, sem látizt hafa af slysför um síðan á síðasta sjómannadag Framhald á bls. 4.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.