Morgunblaðið - 15.06.1963, Síða 24
Sáttafundur í ndtt
Síldveiðarnar í hættu?
FUNDUR sáttasemjara í fyrri-
nótt með aðilum kaupgjaldsdeil-
unnar á Akureyri og Siglufirði
stóð til klukkan fjögur um morg-
uninn. í gær hófst fundur að
nýju kl. 16, og stóð hann enn,
þegar blaðið fór í prentun. Verka
Vöruskipta-
jöfnuðurinn
VÖ-IU SKIPTAJÖFNUÐURINN á
tímabilinu janúar-apríl í ár var
óhagstæður um 41.641.000 krónur.
Á þessu tímabili var flutt út fyr-
ir 1.165.910.000 krónur. en inn
fyrir 1.227.551.000 krónur. Árið
1962 var flutt út fyrir 1.127.877
krónur á tímabilinu janúar-apríl
en inn fyrir 980.318.000 krónur.
Vísitalon óbreytt
fró í maíbyrjun
KAUPLAG SNEFND hefur reikn
að vísitölu framfærslukostnaðar
í byrjun júnímánaðar 1963, og
reyndist hún vera 131 stig eða
óbreytt frá vísitölunni í maí-
byrjun 1963.
Síldin
SEINT í gærkvöldi var . ekki
mikið að frétta af síldveiðunum.
Síldin var þá að veiðast, en ekki
mikið.
Síldin veiðist aðallega 60
milur NA af Langanesi. Síldin
er óvenjustór og feit og jöfn,
frá 19 og upp í 21% feit.
í fyrradag komu inn til Seyð-
isfjarðar þessir bátar með síld:
Dalaröst 560 mál og 100 í fryst-
ingu Þráinn NK 832 mál og
Stefán Árnason með 680 mál.
í gær komu þangað inn Hal-
kion VE með 550 mál, Jón. Gunn-
laugs frá Sandgerði með 500 mál,
Hoffell frá Fáskrúðsfirði með
800 mál, Einar frá Eskifirði með
600 mál og Vattarnes frá Eski-
firði með 600 mál.
Verksmiðjan á Seyðisfirði hef-
ur vinnslu í næstu viku. Þrærn-
ar í nýju verksmiðjunni taka
18:000 mál.
í fyrrakvöld lagði vb Þorleifur
Rögnvaldsson upp 125 tunnur til
frystingar á Ólafsvík, en afgang-
urinn fór til bræðslu á Hjalteyri.
lýðsfélögin á Akureyri hafa boð-
að verkfall „frá og með“ 16.
júní, en félögin á Siglufirði „frá
16. júní“. Á Húsavík hefur verk-
fall verið boðað 19. júní og á
Raufarhöfn 20. júní.
Kaupkröfur munu vera mjög
miklu hærri en atvinnurekendur
telja sig geta fallizt á. Náist ekki
samkomulag í tíma, hefur það
alvarlegu hættu í för með sér
fyrir síldveiðarnar nyrðra.
Skagamenn fara á
á humar og síld
AKRANESI, 14. júní. — Humar-
bátar fjórir lönduðu hér í dag.
Aflahæstur var Ólafur Magnús-
son með 7,5 tonn. Þá Ásbjörn
RE með 4,7, Ásbjörn ÍS með 4,2
og Bjarni Jóhannesson með tæp
3 tonn.
í gærkvöldi fóru norður á síld-
ina Fiskaskagi, Keilir og Sigurð-
ur. Áður voru farnir Ver, Sigrún
og Hörfungur II. — Oddur.
Skipið rennur á grunn.
Mjólkin
hækkar
FRAMLEIÐSLURÁÐ landbúnað-
arins hefur auglýst hækkað verð
á mjólk og mjólkurafurðum frá
og með deginum í dag. Ástæðan
er hækkun á vinnslu- og dreif-
ingarkostnaði mjólkur. Mjólk
kostar nú í heilflöskum 5.10 kr.,
rjómi í heilflöskum 51.85 kr.,
eitt kg af skyri 13.20 kr., eitt
kg. af smjöri 85,20 kr. og eitt
kg. af 45% osti 74.00 kr.
Framkvœmdastjóri Alex Plevens:
Akureyringum þakklátur
Of mikið gert úr hœftunni
Akureyri, 14. júní.
TOGARINN Alex Pleven lá í
nótt og fram eftir degi í dag
utan á brezku freigátunni Keppel
og var dælt látlaust úr skipinu
með sjö dælum. Gerðu þær bet-
ur en hafa við lekanum, svo að
togarinn var vel risinn að fram-
an síðdegis í dag.
Á flóðinu kl. 4 sigldi togar-
inn svo að landi og renndi stefn-
inu upp í marbakkann norðan
við ytri Torfunefsbryggjuna, en
þar er botninn sendinn og mjúk
iu-. Stendur stefnið þar á grunni
og fjarar undan því, en þó sækir
það í að síga í mjúkan sandinn.
Verður nú hægara um vik að
dæla sjónum út og komast að
skemmdunum innan frá, en þær
eru svo langt undir sjávarlinu,
að þær koma tæpast upp úr,
jafnvel ekki um fjöru.
Ákveðið var að grípa til þess
ráðs eftir komu framkvæmda-
12 minkar veiddir
AKRANESI, 14. júní. — Fáir ^ í förinni, og athugaði byssurnar.
höfðu brugðið blundi s.l. þriðju-
dagsmorgun, þá er hnellinn og
snaggaralegur Reykvíkingur
hrökk upp af værum nætursvefni
og hélt að hann hefði sofið yfir
sig. Nei! Það var allt í lagi,
klukkan ekki nema hálfsex. Hann
klæddi sig í hvelli. Nú var það
minkaveiðileiðangur, sem stóð
fyrir dyrum. Þeir ætluðu að vera
tveir saman; hann fékk sér kaffi-
sopa, fór síðan út og gaf hund-
unum tveimur, sem áttu að vera
ESanaslys í Skagafirði
Sauðárkróki, 14. júní.
UM TÍU-leytið í morgun
varð heimilisfólkið á Hafra-
gili í Laxárdal þess áskynja,
að dráttarvél lá á hliðinni í
vegkanti milli bæjanna Hafra
gils og Skíðastaða. Reyndist
þetta vera vél Þórarins bónda
Jónssonar á Fossi, Skefils-
staðahreppi á Skaga. Hafði
Þórarinn lent niðri í skurði
undir hægra afturhjóli velar-
innar og var örendur, þegar
að var komið.
Hringt var til héraðslæknis
ins á Sauðárkróks, sem kom
á slysstaðinn eftir örskamma
stund.
Þórarinn var á leið heim
til sín frá Skagaströnd og
hafði farið Þverárfjallsveg.
Var hann með snúningsvél á
vagni aftan í dráttarvélinni.
Þórarinn var aðeins 48 ára
að aldri og lætur eftir sig
konu og fjögur börn, tvö
þeirra í foreldrahúsum, átta
og þrettán ára. Þórarinn var
hinn mesti dugnaðarbóndi og
vel metinn sæmdarmaður.
— jón.
Kl. rúmlega sex var allt tilbúið,
og þeir óku af stað. Léttu þeir
ekki ferð sinni, fyrr en uppi í
Reykholtsdal. Þar tókst þeim að
veiða sjö minka. Þaðan héldu
þeir, eins og leið liggur, vestur
á Mýrar. Gerðu þeir rannsókn-
ir á landslagi og tóku sér varð
stöðu hér og þar. Eftir margvís-
lega fyrirhöfn og eltingaleik
veiddu þeir fimm minka niðri í
Álftaneshreppi. Leiðangurinn
tók þrjá daga, þriðjudag, mið-
vikudag og fimmtudag. Höfðu
veiðimennirnir þá lagt að velli
tólf minka, þ.e.a.s. þrjár minka-
læður og níu minkahvolpa.
— Oddur.
stjóra útgerðarinnar, Yves Leg-
rand, en hann kom til Akureyr-
ar í morgun, ásamt verkfræð-
ingi útgerðarinnar.
Fréttamaður Morgunblaðsins
hitti Yves Legrand snöggvast að
máli í dag, en hann er jafn-
framt tengdasonur togaraeigand-
ans. Honum fórust svo orð:
(Ljósm. Mbl. Sv. P. ),
— Ég er þeirrar skoðunar, að
skipstjórarnir og Bretarnir hafi
gert allt of mikið úr þeirri hættu,
sem skipið var 1 eftir árekstur-
inn við jakann. Ég tel persónu-
lega, að engin hætta hafi verið
á ferðum. Veður var stillt og
sjólaust, og auk þess hefðu vatns-
þétt skilrúm varnað því, að sjór
kæmist í skipið að því marki, að
ástandið teldist alvarlegt. Ég
held, að því hafi ekki verið nein
hætta búin. — En nú, þegar fjar-
ar undan stefninu, og sjónum
verður dælt út, sláum við með
timbri fyrir skemmdirnar og renn
um steypu í, svo að skipið þétt-
Framh. á bls. 23
Drengur drukkn-
ar á Akranesi
ÞAÐ hörmulega slys varð á skipað honum að fara heim.
Akranesi í gær, að fimm ára Var nú enn leitað að drengn
drengur drukknaði í kælivatns um. Þegar háiffallið var út úr
þró eins íshússins.
Drengurinn fór heiman að
frá sér um fjögur-leytið, og
um klukkan hálffimm fór
móðir hans að leita að hon-
um, en fann hvergi. Þegar
systir drengsins og frænka,
sem báðar vinna í viðkom-
andi frystihúsi, komu heim,
skýrðu þær frá því, að dreng-
urinn hefði komið þangað, en
þær rekið hann í burtu og
þrónni í frystihúsinu, kl. 21.20
í gærkvöldi, sást iík drengs-
ins á þróarbotninum, en vatn-
ið í henni er mjög gruggugt.
Þar, sem lík drengsins lá, er
vel mannhæðardýpi, þegar
þróin er full, en talsvert dýpra
þar sem dýpst er.
Lögreglan á Akranesi
hermdi Morgunblaðinu í nótt,
að umrædd kælivatnsþró væri
ógirt.
T augaveiki á ný í Sviss
Lausanne 14. júní (NTB)
TUTUGU íbúar þorpsins Betten,
skammt frá Lausanne í Sviss,
hafa verið settir í sóttkví og
leikur grunur á að beir séu smit
aðir af tugaveiki. Heilbrigðisyfir
völdin í Lausanne hafa farið þess
Góður afli norskra
srldarbáta við ísland
SÍLDVEIÐI Norðmanna við
ísland er nú haíin og allt
bendir til þess að afli verði
góður. t upplýsingum, sem
fiskimálastjórn Noregs barst
í dag frá rannsóknarskipinu
„Anna G.“ segir, að á síðast-
liðnum sólarhring hafi margir
bátar veitt vel.
Von er á fyrstu bátunum
af íslandsmiðum til Noregs
á laugardagskvöld eða sunnu-
dagsmorgur,
á leit við íbúa Betten, að þelr
drekki ekki vatn, því að talið er
að taugaveikisýkillinn sé í
drykkjarvatnsbrunni þorpsins.
Nákvæm rannsókn verður gerð
á drykkjarvatninu.
Það var sex manna fjölskylda
bónda eins í þorpinu, sem fyrst
var grunuð um að hafa tekið
veikina. Er fjölskyldan nú í sótt
kví en ekki hefur verið staðfest
hvort um taugaveiki sé að ræða.
Hinir 14, sem settir hafa verið i
sóttkví, eru vinir og venzlamenn
fyrrnefndrar fjölskyldu.
Viðræðufundir
við Dagsbrún
DAGSBRÚN, félag verkamanna !
Reykjavík, og Vinnuveitendasam
band íslands hafa átt með sér
tvo viðræðufundi, annan á
fimmtudag og hinn í gær.