Morgunblaðið - 04.07.1963, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 04.07.1963, Qupperneq 8
8 MORCVNBLAÐID Fimmtudagur 4. júlí 1963 — Kjaradómurinn Framhald af bls. 1. Höfuðrökum sóknaraðila að því er varðar launakröfur, lýsa umboðsmenn hans í greinargerð m.a. þannig: „undanfarin ár hef- ur sívaxandi óánægju gætt með- al ríkisstarfsmanna með launa- kjörin. Ríkisstarfsmenn eru yfir- leitt verr launaðir en menn, sem vinna sambærileg störf hjá öðr- um. Lítið tillit hefur verið tekið til ábyrgðar, menntunar og sér- hæfni starfsmanna. Hefur þessi óánægja m.a. leitt til þess, að einstakir hópar ríkisstarfsmanna hafa sagt upp störfum samtímis". Að því er varðar höfuðrök sóknaraðila fyrir kröfum sínum um styttan vinnutíma, komast umboðsmenn hans m.a. þannig að orði: „Sóknaraðili telur eðli- legt og sjálfsagt, að við kröfu- gerð í þessu efni sé því gaum- ur gefinn, hver þróunin er í öðr- um menningarlöndum um vinnu- öryggi og vinnuvernd, en þar er vinnutími einn aðalþátturinn. Virðist það hafið yfir deilur, að raðandi grundvallarsjónarmið í þeim efnum sé það, að tækni og vinnuhagræðing eigi að koma starfsfólki til góða á þann veg einkum að létta erfiði eða á- reynslu við störfin eða/og stytta daglegan og vikulegan starfs- tíma. Er þá um leið höfð í huga sú staðreynd, að nauðsyn beri til að lengja þann tíma, sem launþegi getur notað til hvíld- ar og menningarlífs". Höfuðrök varnaraðila fyrir kröfum sínum og gegn kröfum og rökum sóknaraðila, að því er varðar laun koma m.a. fram 1 neðangreindum ummælum um- boðsmanna hans I greinargerð: „Með þessum launastiga er rík- isstarfsmönnum boðin launa- hækkun, er nemur að meðaltali um 23% og er þá ekki tekið til- lit til kjarabóta, sem boðnar eru fram í sambandi við vinnutíma og yfirvinnu. I>á er óhætt að full- yrða, að ríkisstarfsmönnum hafi hér verið boðnar miklu meiri kjarabætur en þeir hafa nokkru sinni áður fengið, auk þess sem sem hér er um sérhækkun til ríkisstarfsmanna einna að ræða, en ekki launahækkun í kjölfar annarra stétta, eins og jainan áður..... Launastigi sóknaraðila felur í sér kröfu um launahækkun, er nemur að meðaltali 81%, eða um 410 milljón króna hækkun á ári....Að auki felst í kröf- um sóknaraðila um vinnutímann og yfirvinnugreiðsiur hækkun, sem nemur tugum milljóna á ári. Er því hér um margfalt stórtæk- ari kröfugerð að tefla, en nokkru sinni áður hefur þekkzt hér á landi hjá nokkurri stétt, og mundu slíkar kröfur, ef á þær væri fallizt kalla fram risavaxn- ar kröfur um kjarabætur frá öðrum stéttum. í launastiga sóknaraðila eru ýmsum láglaunastéttum áskilin mun hærri laun, en tíðkast hjá hliðstæðum starfshópum sam- kvæmt kjarasamningum stéttar- félaga, en laun manna í hæstu launaflokkum eru sett hærra en nokkurs staðar þekkist í þessu þjóðfélagi... Hafa verður í huga, þegar kröfur sóknaraðila eru kannaðar, að á undanförnum áratug hafa opinberir starfsmenn fengið svipaðar kauphækkanir og aðrar stéttir þjóðfélagsins, svo þeir hafa á þessu tímabili ekki dregist aftur úr í launum, a.m.k. ekki svo neinu nemi.... Launastigi varnaraðila er grundvallaður á þeim meginregl- um, sem koma fram í 20. gr. laga nr. 55/1962, þ.e. kjörum laun- þega, er vinna við sambærileg störf hjá öðrum en ríkinu, kröf- um, sem gerðar eru til mennt- unar, ábyrgðar og sérhæfni og afkomuhorfum þjóðarbúsins.1* Höfuðrök varnaraðila gegn vinnutímakröfum sóknaraðila, eru þau m.a. „Slik stytting vinnu tímans, sem hér er farið fram á mundi kosta ríkissjóð stórfé og leiða til mikils ósamræmis milli ríkisstarfsmanna og annarra". ★ Hinn 12. nóv. 1959 skipaði fjár- málaráðherra nefnd til að at- huga um undirbúning löggjafar um samningsrétt opinberra starfs manna. Nefnd þessi vann að mál inu um tveggja ára skeið og skil- aði áliti til ríkisstjórr.arinnar í nóvembermánuði 1901. Af hendi ríkisstjórnarinnar var síðan lagt fram á Alþingi á árinu 1962 frumvarp til laga um kjarasamninga opinberra starfs- manna. Er frumvarp þetta byggt að nokkru á tillögum fyrr- greindrar nefndar. Frumvarp þetta hlaut samþykki Alþingis og var gefið út sem lög nr. 55/ 1962. Með lögum þessum var í fyrsta sinn hér á landi lögfestur samn ingsréttur opinberra starfsmanna gagnvart rikisvaldinu um laun og kjör. Samkvæmt ákvæðum 1. gr. laganna taka þau til starfsmanna sem skipaðir eru, settir eða ráðn ir i þjónustu ríkisins, ríkisstofn- ana eða atvinnufyrirtækja þess, með föstum launum og minnst þriggja mánaða uppsagnarfresti, enda verði starf þeirra talið að- alstarf. Þó taka lögin eigi til iðn- aðarmanna, sjómanna, verka- fólks né starfsfólks í iðjuverum, ef um kaup þeirra og kjör fer eftir kjarasamningum stéttarfé- laga þeirra og vinnuveitenda sbr. lög nr. 80/1938. Ekki taka lögin heldur til bankastarfsmanna og starfsmanna Alþingis. 1 2. gr. laganna er tekið fram, að fjármálaráðherra fari með fyrirsvar ríkissjóðs að því er varðar kjarasamningana, og í 3. gr. er sagt, að Bandalag starfs- manna ríkis og bæja fari með fyrirsvar rikisstarfsmanna um kjarasamninga og aðrar ákvarð- anir. í IV. kafla laganna er fjallað um Kjaradóm, er skera skuli úr ágreiningi milli aðila. í 20. gr. laganna segir, að Kjaradómur skuli við úrlausn sína m.a. hafa hliðsjón af: 1. Kjörum launþega, er vinna við sambærileg störf hjá öðrum en ríkinu. 2. Kröfum, sem gerðar eru til menntunar, ábyrgðar og sér- hæfni starfsmanna. 3. Afkomuhorfum þjóðarbús- ins. Dómur Kjaradóms, sá er nú gengur, gildir skv. ákvæðum 4. til 2. mgr. 29. gr. laganna, frá 1. júlí 1963 til ársloka 1965. Samkv. lögum nr. 97/1962 gildir dómurinr. þó, að því er sjúkra- húslækna varðar, frá 1. ágúst 1962 til ársloka 1965. « ★ Kjaradómur hefur kynnt sér framlögð sóknar- og varnargögn aðila og kallað fyrirsvarsmenn þeirra fyrir sig til að svara spurningum, er dómurinn hefur talið rétt að leggja fyrir þá til skýringar málinu og þá fyrst og fremst um þau atriði, er dóm- inum ber samkvæmt 20. gr. lag- anna m.a. að hafa hliðsjón af. Kjaradómur sjálfur hefur einn ig eftir föngum aflað sér gagna og upplýsinga í samræmi við á- kvæði 18. greinar laganna. Þá hefur Kjaradómur sérstak- lega talið þörf á að afla gagna og upplýsinga um, hver séu raun veruleg laun opinberra starfs- manna, einstaklinga og/eða hópa og í hvaða mynd þau séu greidd, hver sé raunveruleg launabyrði ríkisins nú og í hvaða mynd. Gagna og upplýsinga um þessi efni hefur dóminum reynzt tor- velt að afla á þeim skamma tíma, sem hann hefur haft til umráða, en telur þó á grundvelli þeirra takmörkuðu upplýsinga, er aðilar hafa aflað og dómur- inn sjálfur, að ljóst sé, að auk fastra launa, njóti ýmsir rikis- starfsmenn viðbót.artekna frá ríkinu, auk greiðslna fyrir venju lega yfir- og aukavinnu. Enn- fremur er ljóst, að launabætur þessar koma misjafnt niður og ná ekki til allra starfsmanna. Ekki er ljóst, að hve miklu leyti þessar launabætur muni niður falla með breytingum á launa- kerfi ríkisins. Kjaradómur get- ur ekki kveðið á um þetta atriði, enda hlýtur framkvæmd öll í þessu efni að hvíla á fram- kvæmdavaldinu. Þá hefur dómurinn, að því leyti sem kostur er á, gert sér grein fyrir fyrirkomulagi launa- mála opinberra starfsmanna í nágrannalöndunum, að því leyti sem slíkt er sambærilegt, en vegna mismunandi þjóðfélags- hátta í hverju landi, er erfitt að draga traustar ályktanir af slíkum samanburði. Viðfangsefni Kjaradóms al- mennt falla í þrjá meginflokka: 1. Fjöldi launaflokka og skipt- ing starfsmanna í þá. 2. Föst laun í hverjum launa- flokki. 3. Vinnutími, yfirvinnugreiðsl- ur og önnur starfskjör. Um fyrsta viðfangsefnið ligg- ur fyrir samkomulag málsaðila um fjölda launaflokka og röðun starfsmanna í þá, og leggur dóm- urinn það samkomulag til grund vallar og miðar við það í dóm- inum. Varðandi upphæð fastra launa eru báðir aðilar sammála um, að nauðsyn beri til að auka launa- mismun milli flokka til að tryggja, að ríkið eigi kost hæfra starfsmanna og sé um það sam- keppnisfært við einkareksturinn. Dómurinn er þeirrar skoðunar, að nauðsyn sé verulegrar hækk- unar á launum rikisstarfsmanna, ef leiðrétta á það misræmi, sem orðið er og tryggja þeim viðun- andi launakjör með tillit til þeirra launþega, er vinna sam- bærileg störf hjá einkaaðilum. Þessi launahækkun hlýtur að verða mest í efri launaflokkun- um bæði vegna samanburðar við launakjör í einkarekstri og þeirr ar menntunar Og ábyrgðar, sem störf í þessum flokkum krefjast. Við ákvörðun launa ríkisstarfs- manna hefur Kjaíadómur haft til hliðsjónar launakjör sam- kvæmt gildandi kjarasamning- um, þ. á m. þær breytingar, sem almennt hafa orðið á þeim nú nýverið, er margir hópar laun- þega fengu hækkuð laun sín um 7,5%. Varðandi samræmingu kjara ríkisstarfsmanna og ann- arra launþega hefur dómurinn einnig litið til þess, að atvinnu- öryggi ríkisstarfsmanna er meira en launþega í einkarekstri, og þeir njóta auk þess ýmissa rétt- inda 'og hlunninda umfram aðra launþega. Samræming sú á laun- um rikisstarfsmanna og annarra, sem að er stefnt, takmarkast einn ig að nokkru af þeirri launa- flokkun, sem liggur dóminum til grundvallar, en hún bindur að verulegu leyti launahlutföllin á milli einstakra starfshópa. Á móti þeirri leiðréttingu, sem dómurinn telur nauðsynlega og réttláta á launakjörum ríkis- starfsmanna, hefur hann reynt að meta áhrif hennar á afkomu þjóðarbúsins, þ. á m. á fjárhag ríkissjóðs. Er í þessu sambandi Krafan: Fl. Byrjun- Kaup á Kaup á Kaup á Eftir 1 arkaup 2. ári 3. ári 4. ári 10 ár 1. 4800 2. 5050 3. 5330 5620 5930 6260 6600 4. 5620 5930 6260 6600 6960 5. 593C 6260 6600 6960 7350 6. 6260 6600 6960 7350 7750 7. 6600 6960 7350 7750 8180 8. 6960 7350 7750 8180 8630 9. 7350 7750 8180 8630 9100 10. 7750 8180 8630 9100 9600 11. 8180 8630 9100 9600 10130 12. 8630 9100 9600 10130 10690 13. 9100 9600 10130 10690 11270 14. 9600 10130 10690 11270 11890 15. 10130 10690 11270 11890 12550 16. 10690 11270 11890 12550 13240 17. 11270 11890 12550 13240 13970 18. 11890 12550 13240 13970 14730 19. 12550 13240 13970 14730 15540 20. 13970 14730 15540 16400 21. 14730 15540 16400 17300 22. 15540 16400 17300 18250 23. 17300 18250 19260 24. 19260 20320 25. 22610 26. 23860 27. 25170 28. 26550 Tilboðið: Eftir Byrj- Kaup Kaup Kaup 15 ár unar- eftir eftir eftir kaup 1 ár 3 ár 10 ár 3750 4000 6960 4750 5000 5250 5500 7350 5000 5250 5500 5750 7750 5250 5500 5750 6000 8180 5450 5700 5950 6250 8630 5650 5900 6150 6450 9100 5850 6100 6350 6650 9600 6050 6300 6550 6850 10130 6250 6500 6800 7150 10690 6500 6750 7100 7400 11270 6750 7050 7350 7650 11890 7000 7300 7600 7900 12550 7250 7550 7850 8200 13240 7500 7800 8150 8500 13970 7750 8100 8450 8900 14730 8050 8400 8900 9400 15540 8400 8900 9400 9950 16400 9200 9700 10250 10850 17300 9600 10150 10750 11350 18250 10050 10650 11250 11850 19260 10550 11150 11750 12350 20320 12300 12900 21430 12850 13450 13400 14000 14500 15000 15500 Uómuiinn: Byrjun- • Eftir Eftir Eftir Eftir Eftir arlaun 1 ár 3 ár 6 ár 10 ár 15 ár 4800 5000 5220 5510 5730 5960 6200 6450 5430 5730 5960 6200 6450 6710 5650 5960 6200 6450 6710 6970 5880 6200 6450 6710 6970 7250 6110 6450 6710 6970 7250 7540 6360 6610 6870 7150 7430 7730 6610 6870 7150 7430 7730 8040 6870 7150 7430 7730 8040 8360 7150 7430 7730 8040 8360 8700 7430 7730 8040 8360 8700 9040 7730 804C 8360 8700 9040 9410 8040 8360 8700 9040 9410 9780 8360 8700 9040 9410 9780 10170 8700 9040 9410 9780 10170 10580 9040 9410 9780 10170 10580 11000 9410 9780 10170 10580 11000 11440 9930 10470 11050 11660 12300 10470 11050 11660 12300 12980 11050 11660 12300 12980 13690 12300 12980 13690 14440 13690 14440 15240 14440 15240 16070 15240 16070 16960 16960 17890 18870 19910 rétt að benda á, að á móti hækk« un fastra launa virðist geta kom- ið verulegur sparnaður útgjalda með niðurfellingu a n n a r r a greiðslna, hagkvæmari rekstri vegna betri aðstöðu til að fá hæft starfslið og með fastari framkvæmd um skipun manna i launaflokka. Að því er varðar þriðja flokk viðfangsefna dómsins, vinnutíma, laun fyrir yfirvinnu og önnur starfskjör, hefur dómurinn talið rétt að líta fyrst til þeirra reglna, sem um þetta hafa gilt til þessa. Þó hefur hann ákveðið ýmsar breytingar starfmönnum til haga bóta og hefur þá einkum verið st.fnt að því að leiðrétta mis- ræmi og koma á réttlátari og hagfelldari skipan í ýmsum efn- um en verið hefur. Að þessu öllu athuguðu ákveð- ur dómurinn laun og kjör ríkis- starfsmanna, er hér skipta máli, þannig: (Hér er sleppt niðurröðun I launaflokka, sem Mbl. hefur birt áður í heild. — Varðandi ákvörð- un dómsins um laun hvera flokks, sjá neðst á síðu 8.) Til glöggvunar má geta þess, að í 1. flokki eru t.d. nýliðar á skrifstofum, í 5. flokki t.d. dyra- verðir, húsverðir, saumakonur Þjóðleikhúss og vinnumenn á ríkisbúum, í 10. flokki t.d. að- stoðarmenn á Veðurstofu, At- vinnudeild og rannsóknarstofum, afgreiðslumenn Á.T.V.R., birgða- verðir, leiktjaldasmiðir og leik- sviðsmenn Þjóðleikhúss, í 15. flokki t.d. barnakennarar, varð- stjórar lögreglu, slökkviliðsstjórl á Rvk. flugvelli, þulir Og örygg- isskoðunarmenn, í 20. flokki t.d. aðstoðarlæknar II, menntaskóla- kennarar, sendiráðsritarar I,og ræðismenn, skrifstofustjórar IL yfirumferðarstjóri Keflavík (að- flugsstjórn), í 25. flokki t.d. bæjarsímastjóri í Reykjavík, deildarlæknar, deildarstjórar i Stjórnarráði, ríkisiféhirðir, sendi- ráðunautar og skattstjórar utan Reykjavíkur. ★ Eftirfarandi reglur skulu gilda um vinnutíma ríkisstarfsmanna, yfirvinnu, yfirvinnukaup og önn ur kjör, er hér skipta máli: 1. grei Vikulegur starfstími starfs- manna ríkisins, sem hin föstu laun eru greidd fyrir, skal vera sem hér segir: A. 48 stundir. Verkstjórar og verkamenn við hvers konar útivinnu, starfsmenn á ríkisbúum, ráðsmenn og ráðs- konur, fólk við eldhússtörf, bif- reiðastjórar og þeir, ?em vinna á reglubundnum vinnuvökum og ekki eru taldir annrs staðar. B. 44 stundir. Lögreglumenn, fangaverðir, tollverðir, slökkviliðsménn, hjúkr unarfólk, aðstoðarfólk við hjúkr- un, starfsmenn á verkstæðum, við birgðavörzlu, vöruafgreiðslu, iðnað og iðjustörf, vélgæzlu og önnur hliðstæð störf. C. 38 stundir. Starfsmenn á skrifstofum, teiknistofum, rannsóknarstofum. eftirlitsstofnunum, söfnum og aðrir, sem hliðstæð störf stunda. D. 36 stundir. Sjúkrahúslæknar, sjúkraþjálf- arar, starfsfólk við röntgen. eða geislavirk efni. Ennfremur eftir- taldir starfsmenn, er vinna á reglubundnum vinnuvökum: Tal- símamenn, símritarar, loftskeyta menn, veðurfræðingar, flugum- ferðarstjórar og aðrir, er hlið- stæð störf stunda. E. Kennarar. 1. Barnaskólakennarar: allt að 36 kennslustundir, er fækki í 3tt stundir á því skólaári, sem kenn- ari verður 55 ára, og í 24 stundir, þegar hann verður sextugur. Lengd hverrar kennslustundar skal vera 45 mínútur. 2. Gagnfræðaskólakennarar, húsmæðraskólakennarar, iðn- skólakennarar: allt að 30 kennsltt stundir, er fækki í 25 stundir, er Framhald á bU. 13.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.