Morgunblaðið - 04.07.1963, Qupperneq 24
£)W©1TTrA^
147. tbl. — Fimmtudagur 4. júlí 1963
FERBAPJÖNUSTA OG
FARMiÐASALA
An ENDURGJAIOS
liappsaltað á
Raufarhöfn
I FYRRINÓTT veiddu 40 síldar-
skip rúm 20 þús. mál, mest af því
50 sjómílur A að N frá Raufar-
höfn og var kappsaltað á Raufar-
höfn á öllum stöðvum í gær og
fram á nótt. Skip fóru einnig
, með afla á aðrar hafnir, þar sem
hann var saltaður.,, í gærkvöldi
var veður ákaflega gott, og skip
byrjuð að verða síldar vör, en'
lítið farið að veiðast. Suður í
Reyðarfjarðardýpi, þar sem hóp-
ur skipa var í fyrrinótt, varð vart
mikils kolmunna í gær.
Fréttaritari blaðsins á Raufar-
höfn símaði: Kappsaltað var á
öllum stöðvum í dag. Bátar hafa
verið að koma allan daginn og
bíða alltaf 2—4 eftir losun.
Síldin er ágæt. í>eir sem ekki
komust að hér fóru arinað.
Eftir kl. 7 í gærmorgun til ki.
10 í gærkvöldi tilkynntu þessi
skip um afla: Fiskaskagi 250, Har
aldur 350, Halkion 300, Jón Finns
son 600, Hugrún 350, Steinunn
700, Friðbert Guðmundsson 120,
Björgúlfur 350, Eldey 300, Fákur
200, Helgi Helgason 1500, Akra-
borg 500, Sæfari BA 850, Þor-
björn 1300.
Sigifirðingar bjartsýnir
Fréttaritarinn á Ólafsfirði sím-
aði að þangað heíðu komið Guð-
rún Þorkelsdóttir og Sigurpáil
og hefði síldin úr þeim verið
söltuð.
Fréttaritarinn á Siglufirði
símaði:
Hér hafa nú borizt á land um
40 þús. mál bræðslusíldar, 11000
til Rauðku og 28.200 til SR. Salt-
aðar hafa verið rúmar 5000 tunn-
ur síldar og nokkur þúsund tunn-
ur farið í frystingu. í dag mun
Jón Finnsson koma með söltun-
arsíld til Pólstjörnunnar, Har-
aldur til Haraldar Böðvarsson &
Co og Svanur RE til Kristins
Óvön á nýjum
bíl
f GÆRKVÖLDI var kona
ein svo óheppin að skemma
glænýjan Volkswagen bíl.
Hún hafði ekki ekið bíl í mörg
ár, en haldið við ökuskírteini
sínu. Svo fékk hún sér bíl og
ók af stað í honum í gær-
kvöldi. Er hún kom niður Skál
holtsstíginn rann bíllinn hjá
henni út í Fríkirkjuveginn,
sem er aðalbraut. Þá vildi svo
til að þar kom ungur og óþol-
inmóður ökumaður í sínum
bíl og ók á nýja bílinn hjá
henni. Urðu nokkrar skemmd
ir á honum, en fólk sakaði
ekki.
Halldórssonar, Gjafar til ísafold-
ar.
Frekar dauft er yfir Vestur-
svæðinu þrátt fyrir ágætisveður,
en vonir manna studdar nokkrum
líkum standa til góðs síldarsum-
ars.
Á Austfjarðahöfnum var salt-
að smávegis í gær, en síldin úr
Reyðarfjarðardýpinu var mjög
blönduð og ekki nema sumt af
henni söltunarhæft.
Brazk.iiv1 to|jan *»g
sildarbátur rákust á
Sá brezki sigldi brott
I GÆRMORGUN rákust brezki
togarinn Ephesian GY 604 og
Guðbjörg ÍS 14 á í svarta þoku
um 11 mílur SA af Norðfjarðar-
horni og skemmdust bæði skip-
in. Guðbjörg kom inn til Seyðis-
fjarðar, en brezki togarinn, sem
hafði líka ætlað þangað, hvarf
íslenzka skipinu í þokunni upp
undir Dalatanga, og hafði ekki
komið fram í gærkvöldi, og ekki
náðzt samband við hann.
Mbl. átti símtal við Ásgeir
Guðbjartsson, skipstjóra á Guð-
björgu og skýrði hann frá árekstr
inum.
Guðbjörg var á leið inn með
slatta af síld í gærmorgun. Stýri-
Eyðibýli Kristins
bjornarbana í Horncz
vík brann til ösku
ÍSAFIRÐI, 3. júlí. — Sl. sunnu-
dag kviknaði í íbúðarhúsi Krist-
ins Grímssonar á eyðibýlinu
Horni á Hornvík. Brann húsið
til kaldra kola á skammri stundu.
Þrír af bjarnarbonunum frá
um daginn fóru aftur til Horna-
víkUr eftir eggjum, en Kristinn
Grímsson var annar síðasti ábú-
andi á Horni. Héldu þeir félagar
til í öðru íbúðarhúsi, en Kristinn
var að öðrum þræði í sínu gamla
húsi.
Á sunnudaginn var Kristinn
einn heima við og kveikti upp
í eldavél, til að hita upp húsið
og þurrka það, því raki var í því.
Skömmu eftir að hann hafði
kveikt upp, sá hann tófu nokkuð
undan, náði sér í byssú og var
að elta hana í um klukkustund,
en missti af henni.
Þegar Kristinn kom heim, sá
hann að eldhúsið var fullt af
reyk. Eldurinn komst í olíubrúsa
og húsið fuðraði upp á tæpum
klukkutíma. Brann það til ösku.
Þetta var einlyft timburhús,
»<£-
Skýrsla um vítis-
sódamálið inrtan tíðar
RANNSÓKN heldur áfram á
ástæðum fyrir því, að verkstjóri
í Reykjavik fannst aðbrunninn
af vítissóta skammt frá Hafnar-
búðum fyrir rúmri viku, en hann
lézt aðfaranótt laugardags sl.
Rannsóknarlögreglan telur, að
maðurinn hafi orðið fyrir árás
og benda til þess m. a. áverkar
á höfði.
Samkvæmt upplýsingum frá
rannsóknarlögreglunni má búast
við skýrslu um málið innan tíð-
ar.
járnklætt, um 35 ára gamalt. Það
var vátryggt.
Þeir félagar tóku á annað þús-
und egg í ferðinni og Kristinn,
sem er 68 ára gamall, seig í bjarg
ið.
Þeir töldu sig hafa séð spor
eftir annað bjarndýr, en engin
önnur merki sáust um annað
dýr. — H.T.
Hrukku af bílpalli
VESTMANNAEYJUM, 3. júlí —
Nokkrir unglingspiltar úr Tý
voru í fyrrakvöld að byrja að
undirbúa þjóðhátíðina inni í
Herjólfsdal og voru með vöru-
bíl.
Hrukku fjórir þeirra af bíl-
pallinum, er bíllinn lenti utan í
moldarbarði. Var farið með þá
í sjúkrahúsið, en meiðsli þeirra
reyndust minni en á horfðist.
Upplýsinga-
bæklingur
um SÞ
FÉLAG Sameinuðu þjóðanna á
íslandi hefur gefið út upplýs-
ingabækling um starfsemi SÞ og
verður honum einkum dreift
meðal skólanemenda í iandinu
fyrir milligöngu fræðslumála-
skrifstofunnar. Er í honum að
finna haldgóðar upplýsingar um
hin margþættu og víðtæku störf,
sem SÞ vinna af hendi á sviði
stjórnmála, menningar- og mann-
úðarmála.
maðurinn var við radarinn, en
Ásgeir var sjálfur aftur á. Svarta
þoka var. Er klukkuna vantaði
15 mínútur í 6 var skipið statt
10,8 mílur SA af Norðfjarðar-
horni, er skipin stímdu allt í
einu hvort á móti öðru og rákust
bakborðskinnungarnir á. — Við
sáum hann ekki, segir Ásgeir.
Stýrimaðurinn hafði radarinn á
þriggja mílna fjarlægð og missti
hann of nálægt.
Ásgeir sagði að skellurinn
hefði verið talsverður, en Guð-
björg var á 9 mílna ferð. Hann
hljóp strax fram á. Bakborðs-
kinnungurinn var talsvert
skemmdur, og stefni brotið, en
skemmdirnar voru fyrir ofan sjó.
Ellefu manna óhöfn er um borð,
en engan sakaði. Eftir 8 mínútur
nóðu skipstjórarnir tali hvor af
öðrum. Fundust með radarnum
og Guðbjörg keyrði upp að tog-
aranum. Brezki skipstjórinn
spurði hvort allt væri í lagi, og
Ásgeir svaraði að skip sitt væri
skemmt, en það væri engin
Framhald á bis. 23.
! A MÁNUDAGSKVÖLD komu I
fimm fulltrúar frá Stokk- |
hólmsborg hingað í heimsókn
í boði Reykjavíkurborgar. —
Ferð þessi er liður í gagn-
kvæmum heimsóknum full-
trúa frá höfuðborgum Norð-
urlanda, og munu fulltrúarn-
ir dveljast hér til laugardags-
morguns og kynna sér ýmis
konar starfsemi borgarinnar.
Myndin var tekin á flugvell-
inum er þeir komu. — Nöfn
þeirra, sem sjást þar eru, talið
frá vinstri: Hans Calmfors
borgarritari, Knútur Brunn
fulltrúi borgarstjóra, Bengt
Lind varaforseti borgarstjórn-
ar Stokkhólms, Geir Hall-
grímsson borgarstjóri, Gösta
Wennström varaforseti borg-
arráðs og fyrrv. borgarstjóri,
frú Vera Söderström borgar-
ráðsmaður, Gunnar Dalgren
borgarstjóri menntamála og j
Páll Líndal skrifstofustjóri
borgarstjóra.
Hart í bak
á Hvammstanga
Hvammstanga, 2. jú’í.
LEIKFÉLAG Reykjavíkur sýndi
sjónleikinn „Hart í bak“ að Laug
arbakka í kvöld, húsfyllir var og
undirtektir áhorferida með ágæt-
um. — str.
Haiskip iær nýtt
Hutnintyaskip
HAFSKIP h.f. á í smíðum nýtt
vöruflutningaskip í Vestur-Þýzka
landi og er það væntanlegt til
landsins um mánaðamótin sept-
ember—október í haust, að því er
Sigurður Njálsson, framkvæmda
stjóri, tjáði blaðinu i gær.
Þetta er um 150 lesta skip,
nokkru stærra en Rangá og svip
að, enda smíðað á sama stað.
Kirkconnel flyt-
ur fyrirlestur
í dag
DR. WATSON Kirkeonnel, for-
seti Acadia-háskólans í Kanada,
flytur fyrirlestur í háskólanum
kl. 5.30 síðdegis í dag.
Fjallar fyrirlesturinn um ís-
lenzkan skáldskap í Kanada í 4
áratugi.
Dr. Watson Kirkconnel er
kunnur hér á landi fyrir þýðing-
ar sínar á ensku á skáldskap
Vestur-íslendinga.
Ölium er heimill aðgangur á
fyrirlesturinn.
Þetta verður þriðja flutninga-
skip Hafskips, sem á Rangá og
Laxó, en ekki vildi Sigurður
segja hvaða nafn nýja skipið
fengi. Skipin hafa að undanförnu
verið í flutningum til Póllands
og Sviþjóðar og sagði Sigurður
að nýja skipið yrði notað svipað,
ákveðið hverju sinni hvaða ferðir
það tæki.
Kvöldfagnaður
á Akureyri
Kvöldfagnaður verður haldinn
í Sjálfstæðishúsinu Akureyri
fyrir starfsfólk og stuðningsmenn
D-listans í Norðurlandskjördæmi
eystra, laugardaginn 6. júlí og
hefst kl. 9 e.h.
Aðgöngumiðar verða afhentir
eftir því, sem húsrými leyfir, í
skrifstofu flokksins Hafnarstræti
101, kl. 4-7 sama dag.
Kjördæmisráð