Morgunblaðið - 21.07.1963, Page 20
20
MORCVISBLAÐIO
Sunnuclagur 21. júlí 1963.
HlfLBÍRl FOOIMER:
H
Æ
T
T
U
L
E
G
U
R
FARMUR
En svso eru alltaf einhverjir,
sem bíða eftir tækifæri til að
sneypa eftirlætisgoð almennings
álitsins, og sum blöðin tóku á
sig krók til þess að benda á, að
nú loks hefði hlé orðið á hinni
glæsilegu áfrekabraut frú Storey
Horace Laghet hefði ráðið hana
til að venda sig fyrir samsæris-
mönnunum, og henni hefði mis-
tekizt það.
Þetta var næstum meira en ég
gæ-ti þolað. Eg brann í skinn-
inu að setjast niður og skrifa
blöðunum allan sannleikann í
málinu, hvernig húsmóðir min
hefði tekið að sér verkið með
vissum, ákveðnum skilyrðum.
hvernig Horace Laghet hefði æ
ofan í æ svikið samninginn, og
h ernig hann hefði með þver-
höfðaskap sínum gert henni ó-
kleift að framkvæma verk sitt og
bjarga honum. En hún vildi ekki
jPWcjamMaðid
A
Hafnarfjörður
Afgreiðsla Morgunblaðsins
í Hafnarfirði er að Arnar-
hrauni 14, sími 50374.
Kópavogur
Afgreiðsla blaðsins í Kópa-
vogi er að Hiiðarvegi 35,
sími 14947.
Garðahreppur
Afgreiðsla Morgunblaðsins
fyrir kaupendur þess i Garða-
hreppi, er að Hoftúnj við
Vífilsstaðaveg, sími 51247.
Árbæjarbl. og
Selási
UMBOÐSMAÐUR Morg-
unbiaðsins fyrir Arbæjar-
bletti og Selás býr að Ar-
bæjarbletti 36. ,
leyfa mér að skrifa þetta bréf.
Lofum þessum ásökunum að falla
niður dauðum af sjálfu sér....
þetta gleymist fljótlega!
Allir þeir. sem höfðu verið um
t ð í skipinu voru umsetnir af
biaðasnápum Adela Holder og
Frank Tanner höfðu sínar gildu
ástæður til að vera fámál. Emil
og Celia voru rugluð af öllum
þessum óskapagangi, en Soffía
naut hans til fullnustu. Málæði
hennar var eins og ótæmandi gull
æði fyrir blaðamennina.
Miriam var komið burtu, svo
að blaðamennirnir gátu ekki of-
sótt hana. Hún hafði ásett sér að
sjá ekki Martin oftar, og það
stóð hún við. Og vitanlega gat
hann ekki komið við þessu djöf
ullega áhrifavaldi jínu á henni,
meðan hann var í fangelsinu.
Þegar málið loksins kom fyrir
réttinn, vildi hvorugur aðilinn
kalla hana sem vitni: sækjand-
inn vegna þess, að hann vildi
ekki en verjandinn vegna þess,
að hann þorði ekki.
Einhvernvegin tókst Martin að
róða dýrasta málfærslusnilling
landsins, en samt hefur hann lík-
lega sjálfur verið klókasti mað-
urinn, sem þarna kom við sögu.
Hann stjórnaði sjálfur aðgerðum
í vörn sinni og fór það snilldar-
lega úr hendi. Hann reyndist að-
dáanlegt vitni sér í hag. Rólegur
og í góðu skapi og að því er virt
ist hreinskilinn eins og bezt varð
á kosið, og sækjandanum tókst
aldrei að snúa á hann eða flækja
hann í mótsögnum um neitt at-
riði, sem máli skipti Alla dagana
sem réttarhöldin stóðu yfir, var
salurinn fullur af þúsundum
kvenna. Það var sagt að hann
hefði fengið hlaðana af bréfum
frá þeim daglega.
En sækjandinn hafði heldur
ekki legið í letinni Líkskoðun
lc'ddi í ljós, að Horale Laghet
hafði fengið miðtaugakerfið lam
að af innspýtingu meðals, sem
hafði sömu verkanir og curare.
Kafarar voru fengnir til að rann
saka flakið af Sjóræningjanum,
og með myndatökum neðansjávar
leiddi þeir í Ijós, að skipið
hafi eyðilagzt af sprengju, sem
komið var fyrir undir þiljum. En
vitanlega hafði upprunaleg ætlun
Martinis verið að sprengja það
upp í einhverri erlendri höfn, en
ekki svo að segja við sínar eigin
bæj ardyr.
Frú Storey fór skyndiferð til
Hollands og með hjálp hin dug
lega hr. Joannots, gat hún kom
izt nákvæmlega á .;noðri um at-
hafnir Martins þar í landi. Auk
vitneskjunnar um demantakaup
Martinis þar, komst nán að því
að hann hafði einnig keypt þar
strigabát, og efni í tímasprengju
og heimsótt illrændan grasalækni
sem hann gat hafa fengið eitrið
hjá. En sá grasalæknir var horf-
inn.
Adrian hafði róazt um það
leyti eem- réttarh(l.din nófust
og leysti fúslega frá skjóðunni og
virtist ákafur að gera það. Fyrir
réttinum var hann í sýnilegu
jafnvægisleysi og taugaveikiaður,
og vitnisburður hans varð Martin
að miklu ógagni.
Morðið var sannað á Martin.
Síðar meir lét einn kviðdómand-
inn þess getið, að hann og félag
ar hans hefðu orðið fyrir einna
mestum áhrifum af þeirri stað-
reynd, að Miriam hefði reynt að
aðvara Horace um samsærið gegn
honum, enda þótt vitnisburður
um það kæmi ekki beint fram
fyrir dómnum. Ef það væri ósatt,
hversvegna hafði Miriam þá ekki
verið kölluð sem vitni? spurðu
kviðdómendurnir sjálfa sig. Þann
ig varð Miriam honum til falls
j. 'nvel fjarverand.
Hann fór í rafmagnsstólinn, tin
andi og iðrunarlaus. Úti fyrir
fangelsishliðinu var hópur
kvenna grátandi.
Næst tóku við réttarhöldin yfir
Adrian. Hann játaði sig sekan
um að hafa tekið þátt í samsæri
til að drepa Horace, og fékk
langa fangelsisvist. Eg hef heyrt,
að heilsu hans fari ört hnign-
andi og að hann muni aidrei
lifa það að taka út alla fangavist
ina.
Adela Holder fékk arfinn, sem
henni var ætlaður, samkvæmt
erfðaskránni og hún giftist Frank
Tanner. En það hjónaband stóð
ekki lengi. Milljónarar voru það,
sem Adela sóttist eftir og bráð
lega fann hún einn í viðbót,
en Tanner fékk álitlega fjárupp-
hæð til þess að geta dregið fram
lífið, án þess að þurfa að snerta
á verki, og hann verður feitari
og úteygari með degi hverjum.
Þegar réttarhöldunum var lok
ið gátum við frú Storey og Soff
ía laumað ungu elskendunum til
EtLkton í Maryland, þar sem
hægara er að komast í hjónaband
en á nokkrum öðrum stað í
Bandaríkjunum. í Elkton standa
prestarnir úti í dyrum og lyfta
fingri að þeim, sem framhjá fara
í bíl. Síðar sama dag komum við
nýgiftu hjónunum um borð í ó-
merkt skip í Baltimore, undir
gervinöfnum. Leyndarmál þeirra
var varðveitt þangað til þau
voru sloppin burt.
— Guð minn góður, að geta
hugsað sér að sleppa svona burt
í ró og næði! sagði Emil. — Eg
held ég sé búinn að mölva einar
tíu myndavélar, en það spruttu
alltaf tvær upp fyrir hverja eina,
sem mér tókst að eyðileggja.
— Já, en sjáðu nú til, sagði
Celia, sem nú var orðin eigin-
konuíeg. — þú verður nú að læra
að haga þér vel, þegar við kom
um innan um hina farþegana. Við
skulum láta eins og við séum
buin að vera gift árum saman.
Þú verður að sýna mér kæru-
leysi, og við gætum meira að
segja rifizt dálítið.
— Eg gæti aldrei haldið því
áfram til lengdar, sagði Emil.
— Nú, jæja, þegar vð hættum
að geta haldið það út, getum við
alltaf komið hingað niður og lát
ið eins og bjánar.
Þegar þau komu aftur frá út-
löndum lá næst fyrir að ákveða,
hvernig fara skyldi með öll auð-
æfin. Hverniig sem Soffía grét og
bað voru þau ófáanleg til að
lifa eins og auðkýfingar. Frú
Storey stakk upp á að festa nægi
lega upphæð handa þeim að lifa
á, en afganginn skyldi leggja í
sjóð, sem kenndur væri við Hor
ace Laghet og ætlaður væri til
að hjálpa bágstöddum í öllu land
inu. Emil og Celia samþykktu
þessa tillögu með gleði.
Þannig hefur nafn Horace Lag
het komizt í meðvitund almenn
ings, sem nafn eins af velgjörða
mönnum þjóðarinnar. Fyrir okk
ur sem erum öllum hnútum kunn
ug, er ekki laust við, að dálítil
kaldhæðni sé í sambandi við
þessa sjóðsstofnun.
Les Farman hafði sýnt sig
þann afreksmann í sambandi við
þetta mál, að hann fékk óðar en
varði skipstjórn á skipi, sem
gekk til Florida. Aðra hvora
viku er hann þrjá daga í New
York og er þá venjulega að hitta
í íbúð Miriam, þar sem hann sit
ur og brosir til hennar með undr
un og aðdáun. Henni hlýtur að
vera það mikil tilbreyting frá
Martin. Eg býst við, að hún
giftist honum áður en lýkur, þótt
ekki væri nema í þakklætis skyni
Og ef hún gerir það, mun hún
komast að raun um, að enn er
ekki öllu lokið hjá henni. Les
kann að koma konum á óvart.
Meinhægur maður kann að vera
ekki eins skemmtilegur og fant
ur, en hann endist betur.
Frú Storey segir. — Stúlkur
eru svoddan bjánar, þegar karl-
menn eru annars vegar. Ef þær
bara vissu það, þá eru það
feimnu mennirnir, sem eru svo
skemmtilega miklir prakkarar,
innst inni við beinið.
(Sögulok).
aiUtvarpiö
SUNNUDAGUR 21. JÚLÍ.
8:30 Létt morgunlög. — U:00 Fréttir.
9:10 Morguntónleikar.
10:10 Veðurfregnir.
10:15 Útvarp frá Skálholti: Vígð kirkju
byggingin nýja. (Sjá dagskrá
hátíðahaldanna á öðrum stað í
blaðinu).
12:30 Hádegisútvarp.
14:00 Miðdegistónleikar: ,,Hnotubrjót-
urinn“ eftir Tjaikovsky (hljóm-
sveit og kór Bolshoj leikhúss-
ins í Moskvu flytja; Hosedest-
vensky (Hljómsveit og kór Bols-
hoj leikhússins 1 Moskvu flytja;
Hosdestvenskij stjórnar).
15:30 Sunnudagslögin. — (16:30 Veður-
fregnir).
17:30 Barnatími (Anna Snorradóttir):
a) Sendibréf svarað.
b) Framhaldsleikritið „Ævin-
týri Rikka Nikka og Pikka" eftir
Ingibjörgu Jónsdóttur; II. hluti.
— Leikstjóri: Klemens Jónsson.
c) Áttúnda kynning á verkum
Jóns Sveinssonar (Nonna):
Haraldur Hannesson talar um
Nonna og Steindór Hjörleifsson
les úr bókinni „A Skipalóni.44
13:30 „Ó blessuð vertu, sumarsól";
Gömlu lögin sungin og leikin.
18:55 Tilkynningar. — 19.20 Veðurfr.
19:30 Fréttir.
20:15 Organleikur: Chaconne eftir Pál
ísólfsson um stef úr Þorlákstíð-
um (Höfundur leikur).
20:30 Erindi: Byggingar og búskapur
1 Skálholti (Vilhjálmur Þ. Gísla
son útvarpsstjóri),
21:05 „Segðu mér að sunnan": Ævar
R. Kvaran sér um þáttinn.
22:00 Fréttir og veðurfregnir.
22:10 Danslög. —-
23:30 Dagskrárlok.
MÁNUDAGUR 22. JÚLÍ.
8:00 Morgunútvarp.
12:00 Hádegisútvarp.
13:00 „Við vinnuna": Tónleikar.
15:00 Síðdegisútvarp.
18:30 Lög úr kvikmyndum — 18:50
Tilkynningar. — 19:20 Veðurfr.
19:30 Fréttir.
20:00 Um daginn og veginn (Guð-
brandur Magnússon- fyrrverandi
forstjóri).
20:20 Kórsöngur: Söngvitnisflokkur-
inn frá Þórshöfn í Færeyjum
syngur andlega söngva. Söng-
stjóri: Össur Berghamar.
20:40 Erindi: Býflugur (Ingimar Ósk-
arsson náttúrufræðingur).
21:05 íslenzk tónlist: Verk eftir Helga
Pálsson.
21:30 Útvarpssagan: „Alberta og Jak-
ob“ eftir Coru Sandel; XVI.
(Hannes Sigfússon).
22:00 Fréttir, síldveiðiskýrsla og veð-
urfregnir.
22:20 Búnaðarþáttur: Heyskapur að
Meðalfelli í Kjós (Gísli Kristjáns
son ræðir við heimamenn).
22:40 Kammertónleikar í útvarpssal;
Dönsku listamennirnir Poul
Birkelund og félagar hans
^ leika.
23:25 Dagskrálok.
ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ.
8:00 Morgunútvarp.
12:00 Hádegisútvarp.
13:00 „Við vinnuna"; Tónleikar.
15:00 Síðdegisútvarp.
18:30 Þjóðlög frá ýmsum löndum.
18:50 Tilkynningar.
19:20 Veðurfregnir. — 19:30 Fréttir.
20:00 Einsöngur: Eileen Farrell syng-
ur ,Wesendonck söngva4 eftir
Wagner, við undirleik Fílhar-
moniusveitar New York borgar
undir stjórn Leonards Bern-
stein
20:20 Frá Japan; II. erindi: Haldið frá
Tokíó til Kobe (Kjartan Jóhanns
son verkfræðingur).
20:45 Tónleikar: Tríó í a-moll fyrir
píanó, fiðlu og knéfiðlu eftir
(Artur Rubinstein, Jascha Heif-
etz og Gregor Piatigorsky leika)
21:10 „Alþýðuheimilið", bókarkafli
eftir Guðrúnu Jacobsen (Brynj-
ólfur Jóhannesson leikari).
21:30 Ný íslenzk tónlist: Píanósónata
eftir Leif Þórarinsson; —
frumflutt (Rögnvaldur Sigur-
jónsson leikur).
21:45 íþróttir (Sigurður Sigurðsson).
22:00 Fréttir og veðurfregnir.
22:10 Lög unga fólksins Gerður Guð-
mundsdóttir).
23:00 Dagskrárlok,
uorur
K.artöflumús — Kakómalt
Kaffi — Kakó
AÐALKJÖR Grensásveg
KALLI KÚREKI
-k - * —
Teiknari: Fred Harman
—Nú veit ég hvað! Ég sendi mynd-
ina af Rauði. Svo þegar ekkjan kem-
ur hingað, get ég virt hana fyrir mér,
án þess hún viti í rauninni, hver ég
er!
— Ho, ho! Það væri dálaglegt, ef
hún léti telja sér trú um, að Rauður
væri ég. En ef ég þegi eins og steinn,
þá getur hann ekki átt neitt sökótt
við mig.
— Enginn sá, þegar ég tók hana. Ég
hef eiginlega aldrei áttað mig á því,
hve ég er geðfeldur náungi! Vita-
skuld er ég það — undir skegginu.