Morgunblaðið - 27.08.1963, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 27. ágúst 1963
Harður árekstur
í Mosfellssveit
jAtUST fyrir tniðnætti aðfara-
fcótt mánuda&s varð geysiharður
irekstur milll Skoda-bifreiðar
Fatnaður sá, er keyptur var fyrir peningana, sem stolið var
hjá Kveldúlfi.
föt og greiddi gamla skuld,
alls liðlega 9,000 krónur, og
eydi síðan því sem eftir var.
Af hinum örláta vini hans
er það að segja að hann fór *
út með karli og konu um
kvöldið, greiddi dýrar veit-
RANNSÓKNARLÖGREGLAN
hefur haft hendur í hári
manns þess, er í s.L viku
stal um 40 þúsund krónum
úr peningakassa á skrifstofu
Kveldúlfs í Reykjavík. Er hér
um að ræða gamlan kunningja
lögreglunnar, nýnáðaðan af
Litla-Hrauni vegna Skálholts
hátíðarinnar. Komst upp um
þjófinn vegna flottræfilshátt-
ar hans, en hann hafði fatað
upp kunningja sína, boðið
mönnum í flugferð um ná-
grenni Reykjavikur og loks á
dansleik austur fyrir Fjall og
var gnægð drykkjar með í
þeirri för.
Nánari atvik voru þau að
um þrjúleytið á laugardag
barst rannsóknarlögreglunni
vitneskja um að maður einn,
sem henni er kunnur frá
fornu fari, hefði talsverð jár-
ráð, og hefði m.a. keypt sér
ný föt og leigt sér flugvél á
Reykjavíkurflugvelli á föstu-
dagskvöld. Kostaði flugferðin
1500 krónur í Piper Apache-
flugvél flugskólans Þyts.
Rannsóknarlögreglan fékk
staðfest að hér væri um rétt-
ar upplýsingar að ræða, og
var þá lýst eftir umræddum
manni.
Kveldúlfsþjdfur-
inn handtekinn
Hélt sig ríkmannlega, bauð í flugferðir
og fataði félaga sína
Um 11 leytið á laugardags
kvöld hringdu lögreglumenn
sem voru við löggæzlu í Ara-
tungu, til Reykjavíkur og til-
kynntu að þeir hefðu handtek
ið hinn eftirlýsta mann. Var
hann þá með 770 krónur á sér.
Rannsóknarlögreglumenn
fóru þegar austur, sóttu mann
inn og færðu til Reykjavíkur.
f í fyrradag viðurkenndi hann
C að vera valdur að þjófnaðin-
t um í Kveldúifi og greindi frá
% aðdragandanum.
Maður þessi hafði verið á
togara hjá Kveldúlfi, en var
hættur og hafði fengið upp-
gjör sitt að öðru leyti en því,
að hann átti enn hjá fyrirtæk-
inu sparimerki. Kvaðst hann
hafa farið á skrifstofuna til
þess að athuga hvort hann
gæti ekki fengið merkin.
Er maðurin kom á gjald-
keraskrifstofuna reyndist hún
ólæst og enginn maður inni.
Segist maðurinn þá hafa sezt
niður inni á skrifstofunni og
beðið en að sér hafi leiðst
biðin og hafi hann þá staðið
upp. Sá hann þá hvar peninga
kassi stóð fyrir innan af-
greiðsluborðið og stóð lykill L
Vatt maðurinn sér þá inn fyr-
ir og leit í kassann. Var þar
allmikið fé og tók hann það
alt og fór.
Skömmu síðar hitti þjófur-
inn kunningja sinn. Fannst
honum hann svo klæddur að
ekki hæfði heldri manni. Bauð
hann kunningjanum heim, til-
kynnti honum að sér hefði
tæmst arfur eftir móður sína,
gaf honum 11.000 krónur og
skipaði honum að klæða sig
upp. Keypti kunninginn sér
— Ofnotkun
fúkalyfja
Framh. af bls. 1
hugsanlegt, að lyfið breytti eðli
kjarnasýrunnar með þeim afleið-
ingum, að fruman þroskaðist
ekki eðlilega.
— ★ —
Morgunblaðið átti í gær símtal
\rið Arinbjörn Kolbeinsson, for-
mann Læknafélags Reykjavíkur,
sem er sérfræðingur í sýklafræði,
og innti hann eftir nánari upplýs-
ingum um mál þetta.
Arinbjörn sagði, að auk þess
sem Tetracyclinsamböndin hefðu
verið mikið notuð sem lyf, hefðu
þau verið notuð með góðum ár-
angri í landbúnaði til þess m.a.
að örva vöxt ungra dýra, til
dæmis í Bandaríkjunum. Sú verk
un væri þó í rauninni óbein —-
þannig, að lyfin hindruðu vöxt
smárra lífvera í þörmum dýr-
anna, sem annars gætu staðið
þeim fyrir þrifum.
Hinsvegar taldi hann, að ekki
hefði fyrr komið fram vísbending
um, að þau hefðu hamlandi verk-
anir á vöxt manna og æðri dýra.
Arinbjörn taldi ólíklegt, að
þessar nýju uppgötvanir
mundu á nokkurn hátt rýra
gildi þessara efna, sem lyfja,
gegn sýklasjúkdómum hjá
mönnum. Enda væri læknum
Ijóst, að hér væri um mikil-
virk lyf að ræða, sem nota
bæri með gát og að sjálfsögðu
aðeins, í þeim sérstöku tilfell-
um, þar sem bau eiga við.
„Ég tel ósennilegt", sagði
Arinbjörn að lókum, „að Tetra-
cycline-samböndin geti valdið
vaxtartruflnum hjá mönnum, þar
ingar og vín og hélt sig vel
og ríkmannlega.
Á laugardagsmorguninn hitt
ust þeir þrír, þjófurinn, kunn
inginn í nýju fötunum og mað
ur sá, sem hann bauð út kvöld
ið áður, og var ákveðið að
fara í yfirreið um sveitir Suð-
urlands. Fengu þeir sér leigu-
bíla og óku um borgina;
keyptu m.a. kassa (12 flöskur)
af brennivíni og nokkra brúsa
af Genever í leiðangrinum.
Brátt kom þar að, að í tal
barst að óhæfa væri að fara
í sveitina í svo fínum fötum
og nýkeyptum. Var þá keypt-
ur vinnuklæðnaður á mann-
skapinn, og greiddi erfinginn,
fínt skal það vera.
Síðan var haldið austur fyr-
ir Fjall, á Eyrarbakka og Sel-
foss, þar sem maðurin bauð
vinum sínum til kvöldverðar.
Síðar um kvöldið var hald-
ið í Aratungu á dansieik, og
þar lauk hinum mikla fagn-
aði með því að höfðinginn
var handtekinn og færður til
Reykjavíkur.
Mestu af þýfinu hafði hann
eytt, enda maður örlátur.
sem þau eru yfirleitt notuð í
stuttan tíma í senn. En varðandi
penicillín og súlfalyf, þá hefur
fengizt svo mikil reynsla af þeim
lyfjum eftir langvarandi notkun
þeirra gegn sjúkdómum, m.a. hjá
börnum, að teljast verður afar ó-
líklegt, að þau geti valdið vaxtar-
truflunum“.
og jeppa á Veslurlandsvegi,
rétt fyrir ofan Grafarholt hjá
veginum að Engi og Reynisvatni.
Sex manns voru i bílnum, og
slasaðist fólkið meira og minna.
Jeppinn, sem er úr Kópavogi,
var á leið vestur, en bíllinn á
leið til Reykjavíkur. Þar sem
áreksturinn varð, er vegurinn
beinn og breiður, og var ekki
fullrannsakað í gær, hvað olli
hohpm, Skoda-bíllinn var ný-
kominn úr beygju, sem er á
veginum, en jeppinn var ekki
enn kominn að henni. Árekstur-
inn varð mjög harður, svo að
Skoda-bíllinn fór heila veltu og
kom niður á hjólin aftur. Báðir
bílarnir skemmdust mjög mikið.
I Skoda-bílnum voru ökumað-
urinn, Oddur Jíelgasón, Álfheim-
um 68, Jónatan Jónsson og
Ragna Jónsdóttir, Laugarásvegi
13, og Árni Guðjónsson, Sól-
vallagötu 41. í jeppanum voru
bræðurnir Ásgeir og Reynir
Hólm, Álfhólsvegi 61 í Kópavogi,
og meiddist sá síðarnefndi tals-
vert, skarst í andliti. Var hann
fluttur í Landsspítalann. Hitt
fólkið fékk að fara heim, eftir
að gert hafði verið að sárum
þess í Slysavarðstofunni, nema
Ragna Jónsdóttir, sem beinbrotn
aði og lá enn í Borgarsjúkrahús-
inu í gær.
Samið við kjöt-
iðnaðarmenn
FYRIR helgi tókust samning-
ar milli kjötiðnaðarmanna og at-
vinnurekenda. Fá þeir sams kon
ar kauphækkun og aðrir iðnað-
armenn hafa þegar fengið.
Skodabifreiðin og jeppinn eftir áreksturinn. — Sjá ennfremur
mynd á forsíðu. (Ljósm. Mbl. Sv. Þ.).
Valt heila veltu
Á þriðja tímanum aðfaranótt
sunnudags valt fólksbíll út af
Biskupstungnavegi. Var hann á
leið til Reykjavíkur. Á eftir hon-
um ók áætlunarbíll, sem lá mik-
ið á, og flautaði bílstjóri hans
ákaft. Vegurinn er þarna þröng-
ur, og ætlaði bílstjórinn á fyrra
bílnum að leita út á næsta út-
skot. Var hann kominn utar-
lega á vegbrúnina, þegar kantur-
inn, sem er allhár, lét undan.
Valt bíllinn heila veltu oig er
mjöig skemmdur. Hins vegar
meiddist fólkið ekki, svo heitið
geti.
Skipað 1 gerðar-
dóm
HÆSTIRÉTTUR hefur nú skip-
að í gerðardóm þann, sem á-
kveða skal kjör þeirra verk-
fræðínga, er starfa hjá öðrum
aðiljum en ríkinu, skv. bráða-
birgðalögunum um lausn kja^a-
deilunnar við verkfræðingana,
Formaður gerðardómsins er Ein-
ar Arnalds, borgardómari, en
aðrir í dóminum eru Björn
Steffensen, endurskoðandi, oig
Arni Vilhjáknsson, prófessor.
100 árekstrum
fleira nú en
í fyrra
UMFERÐARDEID rannsóknar-
lögreglunnar tjáði Morgunblað-
inu í gær, að nú væru skráðir
hjá henni 160 árekstrum fieira
en á sama tíma í fyrra.
Tónlistarstjórar allra ríkisútvarpanna á Norðurlöndum halda um þessar mundir sameiginlegan
fund hér í Reykjavík. Hófst fundur þeirra í gær í húsakynnum Ríkisútvarpsins við Skúlagötn
og mun standa í 3 daga. Rætt verður um norræna samninga um músikmál og þá fyrst og fremst
á sviði útvarpsins. — Myndin hér að ofan er af hinum fimm tónlistarstjórum útvarpsstöðvanna
á Norðurlöndum. Á henni eru talið frá vinstri: Árni Kristjánsson, Island, Magnus Enhörning, Sví-
þjoð, Vagn KappeX, Uanmörk, Kristian Lange, Noregur, Kai Maasalo. Finnland.
(Ljósm. Mlbl. Sv. Þ.),