Morgunblaðið - 27.08.1963, Blaðsíða 14
14
MORGUNBIAÐIO
Þriðjudagur 27. ágúst 1963
Vinna
Slúlkur helzt vanar saumaskap óskast.
Verzlunin SEL
Klapparstíg 40.
Hjartans þakkir til vina og vandamanna fyrir heim-
sóknir, gjafir og hlýjar kveðjur á 75 ára afmæli minu
13. ágúst s.L — Guð blessi ykkur öll.
Helga Ásmundsdóttir, Nesi, Grindavík.
Þakka öllum þeim, er minntust mín á 70 ára afmælinu
12. júlí s.L — Lifið heil.
Magnús Kristjánsson, Bolungarvík.
Móðir okkar
SIGURDÍS ÓLAFSDÓTTIR
andaðist 23. ágúst að Elii og hjúkrunarheimilinu Grund
í Reykjavík.
Ólafur Magnússon, Ingibjörg Magnúsdóttir,
Áslaug Magnúsdóttir, Sigrún Bernburg.
GUÐMUNDUR KRISTJÁNSSON
frá Súgandafirði,
andaðist 16. þessa mánaðar í Osló.
Kristín, Þorleifur, Eiríkur.
Maðurinn minn og faðir okkar
SIGURÐUR BALDVIN EINARSSON
andaðist að heimili okkar Gnoðavogi 42, 25. þ. m.
Ingveldur Filippusdóttir og börn.
Jórtas Thorvald
Guðmundsson
Jarðarför
MARGRÉTAR GRÍMSDÓTTUR
Hvaleyrarbraut 5, Hafnarfirði,
sem lézt 21. þ. m. fer fram frá Fossvogskirkju, laugar-
daginn 31. ágúst kl. 10% f.h.
Blóm eru vinsamlega afþökkuð, en þeim sem vildu
minnast hennar er bent á Slysavarnafélag íslands.
Athöfninni verður útvarpað.
Vandamenn.
Móðir okkar
GUÐNÝ SIGURÐARDÓTTIR
(frá Njarðvík),
Norðurbraut 15, Hafnarfirði,
andaðist 20. ágúst. Minningarathöfn fer fram frá kap-
ellunni í Fossvogi laugardaginn 31. ágúst kl. 10% f. h.
Athöfninni verður útvarpað. Blóm afþökkuð. Þeim sem
vildu minnast hennar er bent á líknarstofnanir.
Jarðsett verður í Neskaupstað.
Börnin.
Móðir min,
JÓHANNA GESTSDÓTTIR
Stýrimannastíg 7,
andaðist 25. þ. m. — Útförin fer fram frá Dómkirkjunni
laugardaginn 31. ágúst kl. 10,30 árd.
Fyrir hönd aðstandenda. •
Kristján Pétursson.
Minningarathöfn um móður okkar
ÖNNU SIGRID GUNNLAUGSSON
frá Vestmannaeyjum,
fer fram í Fossvogskirkju miðvikudaginn 28. þ. m. kl.
10%. — Athöfninni verður útvarpað. — Jarðsett verður
frá Landakirkju í Vestmannaeyjum laugardaginn 31.
þ. m. kL 2 e. h.
Ella Halldórsdóttir,
Ólafur Halldórsson, Gunnlaugur Halldórsson,
Axel Halldórsson, Gunnar Halldórsson.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát
og jarðarför mannsins míns, föður, tengdaföðuT og afa
JÓHANNS BERNHARD
Svava Þorbjarnardóttir,
Guðný Bernhard, Guðmundur Magnússon,
Þorbjörg Bernhard, Ingvi Örn Jóhannsson,
Helga Kristín Bernhard, Jóbann Guðmundsson.
IUinning
REYKAVÍK er að verða það
fjölmenn, að það vekur æ minni
athygli, þótt einn og einn af sam-
borgurunum hverfi úr hópnum
út á hafið mikla. En það eru ekki
nema fáir áratugir síðan að segja
má, að hver einstakur hafi sett
einhvern svip á bæinn, með sinni
tilvist, og þannig var það í mín-
um augum um Jónas Thorvald
Guðmundsson, sem nú hefur ýtt
sínum báti úr vör.
Já, hann kom einmitt gjarnan
í hugann, ef bátur var nefndur
því faðir hans var einn þeirra
Reykvíkinga þeirra daga, sem
átti bát og var sífellt á bóti —
oft einn á báti með byssur í
hendi og hvassan svip. Það var
hinm kunni sjósóknari og fugla-
skytta Guðmundur frá Helgastöð
um, sem batt sína bagga á sinn
hátt, fór sínar leiðir og setti
7/7 sölu
Mercedes-Benz 220, ’55. Selst
ódýrt.
Ope( Karavan ’60, mjög góður
bíll.
Skoda Ok'tavia ’61 sem nýr.
Meriedes-Benz 180 ’55, mjög
vel með farinn.
Volkswagen ’63.
Opel Rekord ’55.
FW»i«mai=ES5i
Bergþörugötu 3. Simar 19032. 20070
,o
r/BÍLÁ^LÁNw
Vörubíll — Benz ’62—3 ósk-
ast til kaups.
TIL SÖLU
Volkswagen ’62 og ’63.
Opel Caravan ’63.
Volvo Station ’63.
Opei Rekord ’59.
Chevrolet ’56, einkab.
Mjög mikið úrval af fallegum
bílum.
INGÓLFSSTRÆTl 11
, Símar 15-0-14 og 19-18-1.
Sigurgeir Sigurjónsson
hæstaréttarlögmaður.
Málfiutningsskrifstofa
Austurstræti 10 A. Sími 11043.
Félagslíf
Knattspyrnufélagið Valur
Meistara, I. og II. fl. æfing í
kvöld kL 8. Áríðandi að allir
mjætL
Þjáifarar.
FRAMARAR!
Framvegis verða æfingar, sem
hér segir:
Meistara- og I. flokkur:
Mánud. 9—10, miðviku- og
föstudaga 8,30—10.
II. flokkur: Mánud. 8—9, mið-
viku- og föstud. 7,30—8,30.
III. flokkur: Þriðjudaga og
fimmtudaga 8—10.
IV. flokkur: Mánudaga, þriðju
daga og fimmtudaga 7—8.
V. fl. A og B: Mánud. 6—7,
miðvikuda.ga og föstudaga
6,30—7,30.
V. flokkur C: Þriðjudaga og
fostudaga 5,30—6,30.
Þjálfarar.
sannarlega svip á fábrotið líf
bæjarins þá. Kona hans og móðir
Jónasar Thorvalds, hét Jóhanna
Gísladóttir og var hin mesta fríð
leiks og gæðakona. Hún dó á
heimili Jónasar og konu hans
fyrir fáum árum.
Æskuheimili Jónasar var ná-
lægt mótum Grettisgötu og Bar-
ónsstígs. Þar stóð hann oft á stétt
inni sem unglingur, hár og herða-
breiður, bjartur og drengilegur.
Og þannig reyndist hann alla æv-
ina; hvort sem hann var heima,
eða á vinnustað, þá fylgdi honum
ávallt bæði styrkur og birta.
Hann klæddi ekki hugsanir sín
ar í búning ritaðs, máls, gjörðist
ekki skáld eins og Kristmann
bróðir hans. Hann fór troðnar
brautir eins og þeir hinir bræður
háns tveir: Jón Guðmundsson og
Kristinn Guðmundsson, útvarps-
virki á Siglufirði — hann vann
þessari borg á mestu byltinga-
tímunum, sem yfir hana hafa
gengið. Hann réðist ungur að ár-
um sem verkamaður hjá Reykja-
vikurbæ og þar stóð hann trúfast
ur í starfi fram á hinzta daginn.
Þannig notuðust kraftar þessa
atgervis- og drengskaparmanns.
Jónas Thorvald eignaðist mikla
heimilishamingju. Hann fékk þá
konu, sem 'hann unni og eldur
alúðarinnar og kærleikans slokkn
aði þar aldrei. Þau giftust, hann
og Guðrún Jóhannsdóttir, eftirlif
andi kona hans, þann 1. október
1927. Eg kom um skeið oft á
heimilið, og ég fór hverju sinni
ríkari þaðan brott, svo göfug-
mannlega og yndislega sá ég þau
bera byrðarnar saman.
Þau eignuðust tvo mannvæn-
lega syni, sem nú horfa jafn hug-
djarfir fram á veginn og Jónas
Thorvald gjörði í upphafi sinnar
ferðar.
„Verið karlmannlegir verið
styrkir, allt hjá yður sé í kær-
leika gjört.“,
Þannig kom hann fram -gagn-
vart oss öllum þessi mæti vinur.
Nú er báturinn hans horfin,
eins og báturinn hans Guðmund-
ar frá Helgastöðum áður hvarf.
Þannig hverfa bátarnir frá oss
allir smátt o" smátt út á hafið.
Garðar Svavarsson
— Utan úr heimí
Framh. af bls. 12
Diem út af þeirri braut, er
hann nú hefði hætt sér inn
á, — og sagði, að efnahags-
aðstoð hennar yrði til einskis,
því að stjórn Diem væri „jafn
vel enn óvinsælli en stjóm
Than Bao Dai hefði verið“,
— en Than Bao Dai var kon
ungur áður en Diem tók völd
in fyrir áratug. Sendiherr-
ann bætti því við, að efna-
hagsaðstoð Bandaríkjanna
færi ekki nema að nokkru
leyti til þess að standa und-
ir kostnaði við baráttuna við
kommúnista. Verulegur hluti
hennar væri notaður til þess
að festa Diem og fjölskyldu
hans í sessi. — Bætti hann
því við, að Ngo Dinh Nhu,
bróðir forsetans og tengda-
sonur sinn, væri fullkomlega
valdasjúkur maður. Hins veg
ar reyndi hann aðeins að
bera í bætifláka. fyrir dóttur
sína, Madame Nhu, sagði, að
hún væri orðin algert fórn-
arlamb stjórnarinnar. Áður
hefur sendiherrann lýst því
yfir, að dóttur hans skorti
alla virðingu fyrir Búddatrú-
armönnum í S-Vietnam.
Sendiherrann sagði að lok-
um við fréttamann AP, að
hann byggist við að fara ein-
hvern tíma aftur til S-Viet-
nam. „Ég er ékki stjórnmála
maður og óska ekki eftir
völdum“, sagði hann, — „en
ég fer einhverntíma heim aft
ur, því að hvað svo sem nú
kann að gerast, munu sið-
gæðisöflin í S-Vietnam halda
áfram að vera sterk — og
þau mimu sigra áður en lýk-
ur.
★
Sem fyrr segir, er sendi-
herrann faðir Madame Nhu,
sem gift er hinum áhrifa-
mikla bróður forsetans. Litlir
kærleikar eru með þeim
feðginunum og hefur svo
lengi verið. Dóttirin er alger
andstæðingur beggja foreldra
sinni í trúmálum. Hún hefur
opinberlega lýst því yfir, að
faðir sinn se hugleysingi —
og fyrir nokkrum árum tók
Ngo Dinh-fjölskyldan allar
eignir Tran van Chuongs
eignarnámL Fyrir alllöngu
lýsti hún því yfir, að bezta
ráðið til þess að hafa Búdda
trúarmenn góða væri að kúga
þá enn meir. Og það virtist
í engu hafa áhrif á frúna,
þegar Búddamunkurinn Qu-
ang Duc brenndi sjálfan sig
til bana í mótmælaskyni við
meðferðina á trúarbræðrum
sínum. Hún hafði um það
þau orð í viðtali við frétta-
menn, að þeir hefðu að vísu
„steikt“ einn af múnkum sín
um, en áður hefðu þeir gef-
ið honum deyfilyf — „og þeir
voru svo sem ekki sjálfum
sér nógir við þennan bruna,
heldur urðu þeir að nota
innflutt benzín, til að hella
yfir manninn", bætti hún við.
Þessi ummæli vöktu hryll-
ing og viðbjóð viða um heim
og í Washington lýsti sendi-
herrann, faðir hennar þvi
yfir, að hún hefði þama túlk-
að sínar eigin skoðanir, en
• ekki skoðanir ríkisstjórnar-
innar.
★
Kaþólskir menn og Búdda
trúarmenn hafa lengi átt í
illdeilum í S-Vietnam. Búdda
trúarmenn staðhæfa enn 1
dag, að það hafi verið fyrir
tilstilli kaþólskra, að Frakk-
ar náðu tangarhaldi á Viet-
nam. Madame Nhu segir hins
vegar, að forfeður hennar
sjálfrar, er voru Búddatrú-
ar, hafi brytjað niður ka-
þólska og Búddatrúarmenn
hafi fyrir rúmum tíu árum
brennt mest alla Ngo Dinh
fjölskylduna lifandi, þar sem
hún var í kirkju.
Diem, forseti hefur yfir-
leitt reynt að forðast átök
við Búddatrúarmenn þau
tíu ár, er hann hefur verið
við völd. Aðeins þriðji hluti
stjórnarinnnar, sem skipuð
er 17 ráðherrum, — og hers-
höfðingjum landsins, sem
eru nítján talsins, — eru
kaþólskrar trúar og kaþólsk-
ir menn, er aðild hafa átt
að tilraunum til stjórnarbylt-
inga hafa hlotið sömu refs-
ingu og Búddatrúarmenn, er
dæmdir voru fyrir . sömu
sakir. Á hinn bóginn hefur
hann hlynnt að trúbræðrum
sínum eftir mætti, þar sem
um var að ræða stöðuveit*
ingax og aðstöðu ýmiss ko»-
ar.