Morgunblaðið - 27.08.1963, Side 13
Þriðjudagur 27. ágúst 1963
MORGUNBLADID
13
Enginn kemur svo inn í Hóla-
dómkirkju, að hann verði ekki
snortinn af helgi staðarins. Þar
er ekkert prjál en sérhver hlutur
eða mynd vekur lotningu. Altar-
istaflan, Kristslíkneskið, skírnar
fonturinn, prédikunarstóllinn,
ásamt fjölda helgra muna og mál
verka, lætur fólkið finna, að
þarna er heilagur staður.
Undir gólfi kirkjunnar hvíla
margir biskupar, sem gert hafa
staðinn frægan, en biskupsstól!
var þar frá 1106 til 1801. Allir
minnast þeirra Jóns biskups Ög-
mundssonar, hins helga, sem sat
á biskupsstóli '1106 til 1121. í
þann tíð myndaðist orðtæki, sem
ennþá lifir á tungu þjóðarinnar:
„Heim að Hólum“. Þá varð Guð-
mundur Arason biskup»um 1200.
Fékk hann hjá alþjóð viðurnefn-
ið „hinn góði“, enda mátti hann
ekkert aumt sjá og vildi öllum
gott gera.
Þó er Jón Arason okkur kunn-
astur. Var honum til vegsemdar
reistur veglegur turn nálægt
dómkirkjunni. Þetta veglega
minnismerki um Jón Arason
mun halda uppi nafni hans um
aldir. Þá má ekki gleyma fræði-
manninum og bókaútgefandan-
um Guðbrandi Þorlákssyni, sem
að Hólum sat 1571 til 1627. í því
mikla safni, sem hann gaf út,
mun Guðbrandsbiblía vera merk
ust og halda uppi nafni hans
meðan kristin kirkja er við iýði
í landi hér.
Kirkjuathöfnin öll var hin
virðulegasta. Öll sæti voru skip-
uð og mikil þröng standandi
fólks milli bekkja. Einnig var
Bjarni Benediktsson, kirkju-
málaráðherra, flytur ávarp
sitt.
að að setja þar upp klukkur en
fé hefði vantað. Nú hefði verið
úr því bætt af rausn.
Eftir kirkjuathöfnina var
hlé. Voru þá veitingar fram
reiddar handa kirkjugestum. Kl.
5 hófst svo annar liður hátíða-
haldanna með samkomu í dóm-
kirkjunni. Söngflokkurinn söng
„Heyr himna smiður“ og dr: Páll
ísólfsson lék þrjú tónverk á
orgel kirkjunnar. Svipmyndir úr
sögu dómkirkjunnar voru fluttar
af dr. Kristjáni Eldjárn, dr.
Brodda Jóhannessyni og Andrési
þær dyr_ er letrað á marmará-
töflu: „Hinum þríeina Guði og
Friðrik konungi V. — 1762“. Frið
rik konungur og kirkjustjórn
munu hafa safnað og látið til
kirkjunnar um 50 þús. dali, en
Gísli • biskup Magnússon gekkst
mest fyrir byggingu hennar.
Biskupinn yfir íslandi, herra Sigurbjöm ELnarsson flytur hina postullegu kveðju fyrir altan
Hóladómkirkju.
Minnzt 200 ára afmælis
dómkirkjunnar á Hdlum
Samkvæmt frdsögn Björns í Bæ af
hdtíðahöldunum sl. sunnudag
ÞAÐ era ekki lengur troðnar
götur, sem farið er um, og ekki
sjást ríðandi eða gangandi á leið
heim að Hólum í þetta sinn —
nei, það er beinn vegur og upp-
hleyptur frá Laufskálaholti og
alla leið heim að dómkirkjunni.
Bílárnir bruna með prúðbúið
fólk, því að í dag er merkisdag-
ur, — tvö hundruð ára afmæli
kirkjunnar, og við heyrum fólk-
ið segja: „Gleðilega hátíð!“
í Hjaltadalnum var nokkuð
þungbúið loft en rigningarlaust,
svo að hinir mörgu gestir, lík-
lega um 500 talsins, gátu notið
helgi staðarins og athafnarinnar,
er fram fór.
—
Kelgaraflinn
41 þús. múl
og tnnnur
Hafa Norðmenn
fundið mikla síld?
SÓLARHRINGINN frá laugar-
dagsmorgni til sunnudagsmorg-
uns fengu 43 skip 19.100 mál og
tunnur, og næsta sólarhring
fengu 43 skip 22.040 mál og tunn-
ur. Síldin fékkst aðallega á
Seyðisfjarðar- og Norðfjarðar-
dýpi um 40 mílur frá landi. — í
gærkvöldi voru skip að byrja að
kasta á sömu sjóðum.
Óljósar fréttir bárust af því í
gærkvöldi, að norski síldveiði-
flotinn væri í mikilli síld 80—90
mílur austur af Langanesi og
Þistiffjarðargrunni. Munu skip
hafa fengið þar góða veiði á all-
stóru svæði. Búizt var við, að
síldarleitarskipið Pétur Thor-
steinsson og e.t.v. einhver íslenzk
síldveiðiskip mundu verða þar nú
með morgninum.
Athöfnin í dómkirkjunni að
Hólum hófst klukkan tvö, er/56
prestar, biskup Islands, vígslu-
biskup Hóladómkirkju og dóm-
kirkjupresturinn gengu skrúð-
búnir í fylkingu til kirkju. í há-
tíðaskrúða gengu þeir fyrir alt-
ari, vígslubiskup, séra Sigurður
Stefánsson og dómkirkjuprestur-
inn, séra Björn Björnsson. Þá
las meðhjálparinn, Árni Sveins-
son, bæn í kórdyrum, en kirkju-
kór Sauðárkróks undir stjórn
Eyþórs Stefánssonar söng. Vakti
söngurinn mikla hrifningu við-
staddra og rómuðu kirkjugestir
bænina, sem sungin var með
ágætum.
HátíSamessan hófst, er biskup
inn yfir íslandi steig í stólinn.
í ræðu sinni lagði hann út af
orðunum: „Ég mun gera þá
glaða í mínu húsi“.
Dómkirkjuprestur flutti einnig
stólræðu og lagði út af orðunum:
„Drag skó þína af fótum þér,
því að sá staður, sem þú stendur
á, er heilög jörð“. í ræðu sinni
rakti séra Björn, sem þjónað
hefur Hóladómkirkju í 23 ár,
sögu þessa merkilega, elzta guðs-
húss landsins.
Of langt mál yrði að áera ná-
Skrúðganga presta á leið til kirkjiu.
kvæma- grein fyrir sögu þessarar
byggingar, en aðeins má þó
stikla á helztu atriðum. Þess má
geta, að kirkjan er um 28 metra
löng, um 9 metra breið og um
4% metri undir loft. Þykkt
veggja er 90 cm. Eru þeir reistir
úr blágrýti, en sandsteinn er að
utan og innan. Má því segja, að
húsið sé allt traustlega reist. Svo
kallaðar „frúardyr“ eru á suður-
hlið en aðaldyr að vestan. Yfir
nokkuð af fólki úti, sem eigi
komst inn í kirkjuna. Eftir stól-
ræðu gekk biskup íslands fyrir
altari og lauk guðsþjónustu. Að.
því loknu flutti Bjarni Benedikts
son, kirkjumálaráðherra, ávarp,
þar sem hann tilkynnti, að ríkis-
stjórn íslands hefði ákveðið að
gefa klukkur í turn þann ,er
reistur var til minningar um Jón
biskup Arason. Þakkaði dóm-
kirkjuprestur gjöfina og sagði,
að í öndverðu hefði verið áætl-
Björnssyni. Þá lék dr. Pájl aftur
þrjú tónverk. Dagskránni lauk
með því, að söngflokkurinn
flutti þjóðsönginn.
Öll athöfnin frá byrjun fór
fram með miklum hátíðabrag.
Hinn nýi skólastjóri á Hólum,
Haukur Jörundsson, hafði veg
og vanda af öllum undirbúnmgi,
sem var honum til sóma og gef-
ur vonir um, að í fleiru verði
störf hans Hólum og Hólaskóla
til blessunar.
Séð heim að Hólum, er 200 ára afmælis dómkirkju nnar þar var minnzt sl. sunnudag. (Ljóm,. S. K.).