Morgunblaðið - 27.08.1963, Qupperneq 15
Þriðjudagur 27. ágúst 1963
MORGUNBLAÐIÐ
15
— Lyndon Johnson
Framh. af bls. 8.
„Lady Bird“ kynntist Lyndon
Johnson stuttu eftir að hún út-
skrifaðist, og þau giftust tveimur
mánuðum síðar. Stjórnmálaferill
Johnsons var þá þegar hafinn. í
fyrst bjuggu þau hjónin við lítil
efni, en þegar „Lady Bird“ erfði
móður sína, keypti hún útvarps-
stöð, sem þá lá undir þungum
skuldum. Með mikilli seiglu
og kænsku tókst henni smám
saman að gera þessa stöð að arð-
vænlegu fyrirtæki, og fór svo að
lokum, að hún eignaðist myndar
lega sjónvarpsstöð. „Lady Bird“
er gædd óvenju þroskuðu kaup-
sýsluviti, og virðist sem allt það
fé ávaxtist, sem hún kemur ná-
lægt.
Margir halda því fram, að
Johnson hefði aldrei náð svo
langt á framabraut sinni, ef
,Lady Bird hefði ekki notið við.
Hún var honum ómetanleg hjálp
kosningabaráttunni — og ekki
létu dætur þeirra hjóna sitt eftir
liggja.
Heimili þeirra hjóna má segja,
að sé tvískipt — þegar þau eru
Skreiðast þurfti inn eftir þröngri gjá við Þingvallavatn til að
ná í úrin. (Ljósm. Mol.).
Aðeiris
grennstu
fyrir
menn
Litið á gjána þar sem úrin voru falin
í flösku 4 þröngri
Morgublaðsmenn skruppu
í gær til Þingvalla til að
líta á gjána við Vatnsvík,
þar sem úraþjófurinn faldi
hluta þýfisins.
Gjáin er fremst á litlum
tanga, sem gengur út í
Vatnsvíkina og nokkrum
metrum frá vatninu hverf-
ur hú;n inn í berg. Gjáin er
mjög .þröng, frá 25 til 60
sentimetra að breidd, all
hlykkjótt og vatnið í henni
er um 1 til 1% fet að dýpt.
Þjófurinn hafði kastað úr-
unum inn í gjána, þar sem
hún hverfur í bergið. Eftir
að hann hafði viðurkennt
þjófnaðinn, og var færður
austur af þeim Ingólfi Þor-
steinssyni og Nirði Snæhólm
til að vísa þeim á felustað-
inn, kom 1 ljós, að það var
ekki auðvelt verk að ná
úrunum úr gjánni aftur.
Dæmdist á Njörð Snæ-
hólm að gera tilraun til að
skreiðast inn eftir úrunum,
enda er hann með grennstu
rannsóknar lögreglumönnum.
Kastaði Njörður nú klæðum
unz hann stóð á nærfötunum
einum, því ekki var að vita
hvort yfirvöldin myndu
borga viðgerð eða hreinsun
á fötunum. Fór lögreglumað-
urinn nú niður í gjána
fikraði sig varlega innar
innar unz aðeins sá í iljarn
ar. Þreifaði hann fyrir sér
í vatninu og viti menn! Úr!
Eitt, tvö og þrjú.
Þau urðu tuttugu áður en
Njörður gat farið upp úr
gjánni aftur, hruflaður, út-
ataður og hrollkaldur.
Á svipaðan hátt var blaða-
maðurinn útleikinn í gær eft
ir stutta veru í gjánni. Ljós-
myndarinn vildi endilega fá
hann niður í gjánna á nær-
fötunum svo að myndin yrði
sem líkust því er Njörður
var á úraveiðunum.
Blaðamaðurinn ætlaði að
andmæla kröftuglega þess-
ari ósk ljósmyndarans og
heimta að hann færi sjálfur
ofan í gjána, en gerði sér
þó í tíma grein fyrir, að hann
myndi sitja fastur eins og
tappi
gjánni.
Það fór því eins fyrir blaða
manninum og Nirði Snæhólm
Hann skreiddist upp úr
gjánni, hruflaður, skítugur og
hrollkaldur. —■ Allt þetta
vegna þess að innbrot var
framið í úraverzlun í Reykja
vík.
— Úraþjófurinn
Framh. af 'bls. 10
lét reikningsnúmer og undir-
skrift útgefanda standa
óbreytt. Útgefandinn er trú-
verðugur viðskiptavinur
bankans, og nóg fé var inni
á reikningi hans, þannig að
engan grunaði neitt.
if Gjaldkerinn vildi
ekki trúa
Eftir að pilturinn viður-
kenndi þetta fals í gærmorg-
un, hringdi Ingólfur til bank-
ans, og skýrði frá málinu.
Gjaldkeri bankans skoðaði
ávísunina í krók og kring,
bæði með berum augum og
stækkunargleri en gat á eng-
an hátt séð að hún væri föls-
uð. Vildi hann helzt ekki trúa
því að svo væri. Var það ekki
fyrr en ávísunin var skyggð
og með sólarljósi að' lítilsháttar
og litbrigði sáust í henni; svo vel
var fölsunin úr garði gerð.
Eins og fyrr getur, er rann-
sókn málsins ekki lokið, enda
er hér um að ræða umfangs-
mikið og flókið þjófnaðar- og
fölsunarmál. En nokkurn lær-
dóm mega bankamenn af
þessu draga, og undarlegt ma
heita að menn geti gengið inn
í banka, opnað þar ávísana-
reikning undir fölsku nafni,
svikið fé af bankanum með
falskri ávísun til þess að
i leggja inn tilskilda lágmarks-
upphæð, án þess að uppvíst
verði. Víðast erlendis er sá
háttur á að menn eru í það
minnst krafðir um persóuskil
ríki til þess að sanna að þeir
séu sá, sem þeir segjast vera.
Fyrr er ekki hægt að opna
þar ávísanareikning undir
neinu nafni.
ekki í Washington, búa, þau í
gömlu húsi í Texas, sem þau
keyptu fyrir rúmum tíu árum.
Gestrisni þeirra er við brugðið
og vinir þeirra óteljandi — og er
það ekki sízt að þakka „Lady
Bird“.
Adlai Stevenson lýsti eitt sinn
„Lady Bird“ þannig, að hún
væri bæði „heillandi og dugleg“.
Þessi orð lýsa vel frú Johnson.
Hún heilla alla með látlausri og
fágaðri framkomu sinni og er
forkur duglegur við allt það, sem
hún tekur sér fyrir hendur,
hvort heldur sem það er kosn-
ingabarátta fyrir mann sinn,
kaupsýsla og rekstur fyrirtækja
sinna eða venjuleg heimilisstörf.
Ætla mætti, að konu varaforset-
ans gæfist lítill tími til þess að
sinna heimilinu, en það er eins
og „Lady Bird:: vinnist tími til
alls.
(Frá Upplýsingaþjónustu
- Bandaríkjanna)
stuldur
AKRANESI, 26. ág. — Pening-
um, 14 þús. krónum, var stolið
af rosknum manni í ölver á
laugardag. Var málið kært til
lögreglunnar. Hefur henni tek-
izt að finna þann er stal, en
að því búnu faldi hann veskið
tómt sunnan undir skálanum.
— Oddur.
Bílvelta í Bisk-
upstungum
SÍÐDEGIS á sunnudag var
Volkswagen á ferð austur í
Biskupstungum. Skammt fyrir
sunnan Torfastaði skrikaði bíll-
inn í lausamöl í beygju, valt út
af veginum og fór heila veltu.
Fernt v.ar í bílnum og slasað-
ist eitthvað, þó ekki alvarlega.
Bíllinn skemmdist nokkuð.
Trésmiðir — Trésmiðir
Vinnuflokkur óskast í mótauppslátt á 4. hæða stiga-
húsi við Kaplaskjólsveg.
Sigurjón Guðjónsson, sími 33395.
Nýkomið:
M O S A I K á gólf og veggi
og fugusement frá V-Þýzkalandi.
Glæsilegt úrval.
ENSKUR LINOLEUM GÓLFDÚKUR
Bezta tegund.
IFÖ W. C. OG HANDLAUGAR á fæti
Sænsk úrvalsvara.
VINYL GÓLFFLÍSAR
sænskar og amerískar.
Bezta tegund.
HARÐPLAST á borð
Hálfmatt og gljáandi. Einnig lím.
ARMSTRONG hljóðeinangrun
í 12“ x 12“ hvítum plötum og lím.
Gjörið svo vel að líta inn í verzlunina
að Suðurlandsbraut 6.
Þ. Þorgrímsson & Co.
byggingavöruverzluri,
Suðurlandsbraut 6 — Sími 222 35.
Kúlupennar
frábær sænsk gæðavara
★ Stórt og vandað blekhylki.
★ Létt og jöfn skrift.
ýf Blek-kúla, sem er nýjung
á heimsmarkaðinum.
ýf Blek, sem fölnar ekki.
ýt Skrifar um leið og oddur-
inn snertir pappírinn.
1ao£> *
epoca
Reynii
Ballograf
Seldir um
allt land.
Heildsaala: Þórður Sveinsson & Co. *