Morgunblaðið - 30.08.1963, Blaðsíða 2
2
MORGU N BLAÐIÐ
r
fðstudagur 30. ágúst 1963
Fellin. Myndin var tekin rétt eftir, að honum var bjargaff úr
Hazelton-námunni.
Ætlar Fellin aftur í ið-
ur jarðar að leita Bova?
FRA því hefur veri skýrt i
fréttum, er tókst að bjarga
námamönnunum tveimur,
David Fellin og Henry
Throne, úr Hazelton-námunni
í Pensylvania. Þeir höfðu þá
verið 14 daga innilokaðir í
iðrum jarðar.
Aðeins eitt skyggði á björg-
unarafrekið. Þriðja náma-
manninum, Louis Bova, hafði
enn ekki verið bjargað. Ekk-
ert hafði heyrzt frá honum
í mjög langan tíma, og óttast
er — og reyndar talið full-
víst — að hann sé ekki leng-
ur í lifenda tölu.
Fellin, sem er á miðjum
aldri, var lagður í sjúkrahús,
þegar eftir björgunina. Hann
virðist þó hvorki hafa beðið
varanlegt tjón á líkama eða
sál. Félagi hans, Throne, kól
aðeins á höndum, og verður
hann aðeius nokkra daga í
sjúkrahúsi.
Fellin hefur sýnt nær ofur-
mannlegan vilja. Hann hefur
miklar áhyggjur af Bova, sem
hann telur enn vera á lífi.
Hefur Fellin boðizt til að
fara aftur niður í námuna,
ef vera megi, að þekking hans
verði til þess, að Bova verði
bjargað.
Fellin hafði lofað konu
sinni því, að hann skyldi
aldrei aftur fara niður í
námu. Það loforð gaf hann
við endurfundina. Nú hefur
hann gengið á bak þeirra orða
sinna.
Aðeins eitt kann að koma
í veg fyrir, að Fellin fari
aftur niður í námuna: Hann
verður að liggja a. m. k. í
viku í sjúkrahúsi, og á þeim
tíma verður væntanlega feng
in vissa fyrir örlögum Bov
— de Gaulle...
Framh. af bls. 1
legrar samvinnu við stjórn S-
Vietnam um að losa landið við
erlend áhrif. Hann sagði, að Viet-
nam hefði miklu hlutverki að
gegna í Asíu, svo framarlega
sem landið losnaði undan er-
lendum ítökum. Ekki hafði for-
setinn minnzt á yfirráð komm-
únista í Norður-Vietnam né
hina kommúnísku skæruliða,
sem stjórn S-Vietnam hefur átt
í höggi við undanfarin ár.
De Gaulle sagði m.a.: „Það
starf, er Frakkland áður innti
af hendi í Cochine, Annam og
Tonkin — þau tengsl, sem Frakk
ar höfðu við fólkið þar og sá
áhugi, sem Frakkland hefur á
þróuninni þar, gerir okkur eink-
ar vel fært að skilja óhamingju
íbúanna í Vietnam“.
Fréttamenn benda á að í yfir-
lýsingu forsetans er hvergi
minnzt á styrjöldina í Indó-Kína
á árunum 1946-54 eða ósigur
Frakka þar. Eru fréttamenn í
París margir þeirrar skoðunar, að
þessi yfirlýsing De Gaulle sé
beinlínis ætluð sem högg í and-
lit Kennedys Bandaríkjaforseta.
í Washington var upplýst í
dag, að Bandaríkjastjórn hefði
fengið orðsendingu frá stjórn
S-Vietnam varðandi orðsending-
ar Bandaríkjastjórnar og mót-
mæil við aðförinni að Búddatrú-
armönnum í S-Vietnam. Ekki
hefur verið skýrt frá efni svars
S-Vietnam. -
★
í fregnum frá Saigon í dag
segir, að ástandið virðist vera
að færast í eðlilegt horf. Haft
er eftir áreiðanlegum heimild-
um, að stjórn Ngo Dinh Diems,
forseta hyggist efna til fjölda-
funda í mörgum borgum og bæj
um. Verði þessir fundir skipu-
lagðir með það fyrir augum, að
þeir sýni aukinn stuðning við
stefnu stjórnarinnar í deilunni
við Búddatrúarmenn. Ennfrem-
ur er talið, að þar eigi að hylla
Ngo Dinh Nhu, bróður forset-
ans sem jafningja hans
★
Utanríkisráðherrann Vu Van
Mau, sem sagði af sér á dögun-
um, en var neitað um lausn frá
embætti, fór í dag flugleiðis til
Indlands Flugvél hans hafði
skamma viðdvöl á flugvellinum
í Bangkok á leiðinni til Nýju
Delhi og náðu fréttamenn þar
tali af Mau. Þar neitaði hann
því afdráttarlaust að hafa ver-
ið handtekinn, svo sem talið
var. Ekki vildi hann ræða ást-
andið heima fyrir, né heldur
framtíðar fyrirætlanir sínar —
kvaðst bíða með að taka um
þær ákvarðanir þar til hann
kæmist til Nýju DelhL
★
Yfirmaður hersins í Saigon,
Ton That Dinh hershöfðingi
sagði á fundi með fréttamönn-
um í dag, að færi svo fram
sem horfði í landinu yrði her-
lögum létt eftir nokkra daga.
Hann tilkynnti, að 1380 stúdent
ar hefðu verið látnir lausir, —
en áður hafði stjórnin sagt, að
flestir stúdentanna hefðu verið-
fluttir í herbúðir, — um 18
Frá aðalfundi Prestafélags Vestfjarða:
Vilja þrjá biskupa
Aðalfundur Prestafélags Vest-
fjarða var haldinn á ísafirði dag-
ana 9.—10. ágúst s.I. Sr. Bjarni
Jónsson vígslubiskup sótti fund-
inn og hafði framsögu í aðal-
máli fundarina.
Formaður, sr. Sgurður Krist-
jánsson prófastur á IsafirðL gat
þess í yfirlitsskýrslu sinnL að
enn hefði byggð dregizt saman
á Vestfjörðum og enn eitt presta-
kallið lagzt niður, Staðarpresta-
kall í Grunnavík.
" Nú eru laus á félagssvæðinu 4
prestaköll, sem þjónað er af ná-
grannaprestum, en auk þess í
tveimur settir prestar.
Einn prestur sagði af sér em-
bætti sl. vor, sr. Jón Ólafsson
prófastur í Holti í Önundarfirði.
Prófastur I hans stað er settur
sr. Jóhannes Ikáimasonar á Stað í
Súgandafirði.
Einn prestur hefur verið sett-
ur frá síðasta aðalfundi í ögur-
þingaprestakalli, sr. Bernharður
Guðmundsson, sem dvelst nú
vestanhafs við nám.
Að skýrslu formanns lokinni
var tekið fyrir aðalmál fundar-
ins: Kirkja vors guðs er gamalt
hús, en framsöguræðu í því máli
flutti sr. Bjarni Jónsson vígslu-
biskup, snjalla og ýtarlega flétt-
aða frásögn um eigin lífsreynslu
i starfi. Hófust síðan fjörugar um
ræður um málið.
Næsta mál á dagskrá var flutt
af formanni, nefndi hann það
Framtíð íslenzku kirkjunnar. Var
það mál rætt all-ýtarlega og síð-
an bornar fram tvær tillögur af
sr. Þorbergi Kristjánssyni í Bol-
ungarvík, og samþykktai af fund
armönnum. Eru þær svohljóð-
andi:
1) Aðalfundur Prestafélags
Vestfjarða haldinn á ísafirði
9.—10. ágúst 1963, fagnar þeirri
ákvörðun ríkisstjórnarinnar og
Alþingis að afhenda þjóðkirkju
íslands Skálholtsstað tii eignar
og umráða ásamt árlegri fjárveit
ingu, og væntir þess, að í fram-
haldi af því verði kirkjunn'i veitt
aukið sjálfstæði og sjálfsforræði
eigin mála.
2) Aðalfundur Prestafélags
km utan við Saigon — en kven-
stúdentum sleppt.
AP — fregnir frá Saigon
herma, að Búddatrúarmönnum
hafi verið safnað saman í hópa
um 8—10 km utan við borg-
ina og dveljist þeir þar í tjöld-
um og hermannaskálum.
GaddaVírsgirðingar hafa verið
strengdar utan dvalarstaði fang
anna og fréttamönnum jafnan
meinað að koma þar nærri. Með
sjónaukum hafa þeir reynt að
fylgjast með því, sem þar fer
fram, en lítið orðið ágengt, að-
eins séð gulklædda munka a
bæn og vel vopnaða herverðina
sem gæta fanganna.
Lenti úti í skurði
Á NÍUNDA tímanum á miðviku-
dagskvöld var WIl á suðurleið 1
ölfusinu. Skammt fyrir vestan
nýbýlaveginn fór hann fram úr
öðrum bíl, en lenti í lausamöl
úti á kanti. Bílstjórinn, sem var
einn í bílnum, mun þá hafa gef-
ið rösklega inn, til þess að ná
bílnum betur inn á veginn, en
lenti á hliðinni úti í skurði. Bíl-
stjórann sakaði . ekki, en yfir-
bygging bílsins skemmdist tals-
vert.
París, ágúst — NTB
Reuter.
• Að undanförnu hefur
franska lögreglan komizt á
snoðir um tvö samsæri um að
ráða deGáulle, forseta, af dög-
um. Hefur lögreglan því gert
enn víðtækari ráðstafanir en
áður, til þess að ver-vda líf
forsetans.
Vestfjarða haldinn á ísafirði 9.—
10. ágúst 1963, lítur svo á, að
störf biskups séu svo umfangs-
mikil orðin, að ofviða sé einum
maniú, og telur því nauðsynlegt
að endurreistir verði hinir fornu
biskupsstólar í Skálholti og á
Hólum, þannig að biskupar verði
þrír, og verði Reykjavíkurbiskup
höfuðbiskup kirkjunnar.
Þá var rætt um útgáfu tímarits
ins Lindarinnar, en hún kom út
á sl. ári. Er félagið nú í nokk-
urri skuld vegna útgáfunnar og
því samþykkt að fresta útgáfu-
starfsemi um sinn. Lindin fæst
nú til kaups, og er þó 1. heftið
á þrotum. Komið hafa út 10 ár-
gangar síðan hún hóf göngu sína
árið 1929, en Prestafélag Vest-
fjarða var stofnáð 1928 og er því
35 ára á þessu ári.
Fundarmenm tóku þátt í há-
tíðahöldunum í tilefni af 100
ára afmæli ísafjarðarkjrkju 11.
ágúst s.l.
í stjórn félagsins voru kosnir
Sr. Sigurður Kristjánsson, ísa-
firðL formaður, sr. Jóhannes
Pálmason, Stað, ritari og sr. Tóm
as Guðmundsson, PatreksfirðL
gjaldkeri.
HT.
Ársþing Lands-
sambands bland-
aðra kóra
NÝLEGA var haldið í Reykjavík
23. ársþing Landssambands
blandaðra kóra. Mættir voru 18
fulltrúar frá 7 kórum auk for-
manna og söngstjóra.
í sambandinu eru nú 8 kórar,
sem hafa að telja nokkuð á
fjórða hundrað kórfélaga.
Auk venjulegra þingstarfa
vor rædd ýmis mál er Samband-
ið hefur á stefnuskrá sinni.
Ákveðið var meðal annars að
hraða fyrirhugaðri útgáfu á fs-
lenzkum þjóðlögum, ennfremur
þjóðsnögvum raddsettum fyrir
blandaða kóra.
Samband blandaðra kóra á 25
ára afmæli á þessu ári.
Fráfarandi formaður Gísli
Guðmundsson baðst eindregið
undan endurkjöri. Stjórnina
skipa nú: Halldór Guðmundsson
formaður, Stefán Þ. Jónsson rit-
ari, Rúnar Einarsson gjaldkeri.
Meðstjórnendur söngstjórarnir
dr. Róbert Abraham Ottósson og
Jón Ásgeirsson.
A-Þýzkir |
stúdentar y
flýja
sæluna |
Kiel, 29. ágúst: — NTB-DPA y
• Þrem austur-þýzkum stúd J
entum tókst í dag að flýja í 1
litlum vélbát frá A-Þýzka- V
landi til V-Þýzkalands. Upp U
komst um flótta þeirra, og j
voru þeir eltir af vopnuðum 1
vörðum í hraðbátum — en f
tókst þó að komast út fyrir f,
landhelgina og taka land í 1
Kiel. Fyrir nokkrum dögum U
höfðu f jórir aðrir a-þýzkir fl
stúdentar flúið á bát frá J
Eystrasalti til Danmerkur. — 1
Komu þeir til Vestur-Þýzka- a
lands í dag og ætla að setjast U
þar að. J
í nótt tókst tveim austur- 1
þýzkum verkamönnum og I
konu annars þeirra að komast v
yfir jarðsprengjubelti og ú
gaddavírsgirðingu í námunda I
við Hof í Bayem — og enn 1
einn stúdentinn, sem verið ■
hafði í orlofi í Ungverjalandi, u
er sagður hafa flúið yfir til J
Austurríkis. 1
Sl. þriðjudag komu tveir 1
austur-þýzkir landamæraverð ú
I ir, einkennisklæddir og al- ú
vopnaðir til Eschwege í Vest- 1
ur-Þýzkalandi. Höfðu þeir flú- 1
ið er þeir voru saman á eftir- ■
litsferð. 2
Loks er vitað um tvo unga ð
Austur-Þjóðverja, sem mis- 1
heppnaðist flótti í morgun. — 1
Höfðu þeir falið sig í lestinni |
frá Berlín til Kölnar, en fund- é
ust rétt áður en lestin fór inn I
í Vestur-Þýzkaland. f
Bær hertekinn
Elisabethvlle, 29 ágúst
NTB-AP.
# HERMENN Sameinuðu
þjóðanna og miðstjórnarinnar
í Leopoldville í Kongó her-
tóku í dag bæinn Mitwaba
sem er um 330 km norður af
Elisabethville í því skyni að
hindra, að fyrrverandi her-
menn Katangastjórnar komi
sér þar upp bækistöð er síð-
ar verði notuð gegn Leopold-
ville-stjórninnni.
Hertaka bæjarins fór afar
friðsamlega fram, íbúar veittu
enga mótspyrnu og enginn
var tekinn höndum, að því er
Abab Teferi, hershöfðingi, yfir
maður herliðs S.Þ. á þessu
svæði upplýsir.
*****
Ræstingarkona
Wennerströms
er nú orðin „hetja málsins66
Stokkhólmi, 29. ágúst — NTB
AÐALSÖGUHETJAN í Wenn
erströms-málinu sænska virð-
ist um þessar mundir vera
kona nokkur að nafni Carin
Rosen. Hún starfaði fyrir of-
urstann sem ræstingarkona og
anum“ og ýmiss önnur skjöl
á teikniborði ofurstans. Auk
þess þóttu henni grunsamleg-
ar hinar tíðu heimsóknir
Rússa nokkurs til Wenner-
ströms. „Svo kom hann dag
nokkurn heim með undarlegt
í
hefur nú selt sænska vikublað útvarpstæki. Þar voru engin
stöðvarnofn, aðeins tolur og
hlustunartæki“. segir ræst-
ingarkonan. Hún kveðst marg
sinnis hafa hugsað sér að
inu „Idun“ sögu sína. — Þar
segir hún m.a. frá því hvernig
hún fyrst tók að gruna Wenn-
erström um njósnastarfsemi ^ngja “fTnjóSMWgregTuná
og hvernig hun hefur fra 16. ^ „öryggislögregluna“ en
maí sl. starfað fyrir sænsku ai,jrej fundið símanúmer henn
leynilögregluna við að safna ar
sönnunargöngum gegn Wenn- j>ag Var ekki fyrr en lög-
erström. reglan sjálf tók til við ýtar-
í vikublaðinu segir hún frá legri rannsókn málsins að
þvL hvernig grunur hennar hún hafði samband við ræst-
varð æ betur staðfestur, þegar ii>£ .konuna og fékk hana til
hún fór að finna filmur, að vínna íyrir sig.
teikningar af þotunni „Drek-