Morgunblaðið - 30.08.1963, Blaðsíða 22
22
MORCU N BLAÐIÐ
r
Fostudagur 30. ágúst 1963
Blaðalið úr öllum
liðum 1. deildar
— á að mæta 9.landsliði“ á
sunnudag
f GÆRKVÖLDI völdu fréttamenn blaða og útvarps lið það er
næta á liði landsliðsnefndar á sunnudaginn — en sá leikur er
einskonar „generalprufa" fyrir landsleikinn við Englendinga 7.
sept. á Laugardalsvellinum. Skal þó strax tekið fram að lands-
liðsnefnd er fyrir þann leik bundin af 20 mönnum sem hún hef-
ur gefið upp sem væntanlega leikmenn í leiknum.
Lið fréttamanna er þannig skipað:
Steingr. Björnsson Hermann Gunnnarsson Örn Steinsen
Akureyri Val KR
Skúli Hákonarson Gunnar Guðmannsson
Akranesi KR
' Skúli Ágústsson Högni Gunnlaugsson Hrannar Haraldss.
Akureyri Keflavík Fram
Jón Leósson Hreiðar Ársælsson
Akranesi KR
Heimir Guðjónsson
KR
Sameiginlegir varamenn fyrir bæði lið eru Geir KristJáns-
son, Fram, Þorsteinn Friðþjófsson, Val, Magnús Torfason, Kefla-
vík, Baldur Scheving, Fram, og Steingrímur Davíðsson, Val.
Úrslit í norrænu
unglingakeppninni
Hér fara á eftir úrslitin í
keppni ísL unglinga á Laugar-
dalsvellinum en keppnin var
liður í norrænni keppni jafnaldra
þeirra.
Úrslit keppninnar urðu ann
ars:
Kringlukast sveina:
Erlendur Valdimarsson, ÍR. 51,46
Kristján Öskarsson, ÍR, 43,90
Arnar Guðmundsson, KR, 39,46
fi^úluvarp sveina:
Erlendur Valdimarssön, IR, 17,24m.
(ísl. sveinamet).
Sigurður Hjörleifsson, HSH, 15,55
Arnttr Guðmundsson, KR, 14,90
Hástökk sveina:
Sigurður Hjörleifsson, HSH, 1,65
Erlendur Valdimarsson, IR, 1,65
Haukur Ingibergsson, HSÞ 1,65
Langstökk sveina:
Haukur Ingibergsson, HSÞ. 6,39
Ragnar Guðmundsson, A, 6,38
Sigurður Hjörleifsson, HSH, 5,96
Jón Þorgeirsson, ÍR, 5,74
100 m. hlaup sveina:
Haukur Ingibergsson, HSÞ, 11,7
Ragnar Guðmundsson, A, 11,7
Sigurjón Sigurðson, ÍA, 11,8
Sigurður Hjörleifsson, HSH. 12,0
400 m. hlaup sveina:
Haukur Ingibergsson, HSÞ, 55,6
Framh. á bls. 23.
Kef Ivíkingar fengu
lof i Danmörku
KEFLVÍKINGAR hafa fengið
mikið lof í dönskum blöðum eftir
leikina sem þeir léku í Dan-
mörku. Er þeim hrósað sem bar-
áttumönnum sem fáa eigi sína
líka. Á baráttu hafi þeir unnið
lið sem stóðu þeim knattspyrnu-
lega séð framar að tækni.
Á Móti Hjörring
Fyrsta leik sinn léku Keflvík-
ingar við Hjörring og unnu með
2—1. Öll mörkin voru skoruð í
síðari hálfleik. Leikurinn var
nokkuð tvískiptur að því að
Danir áttu fyrri háifleik, en Kefl
víkingar þann síðari. Dönum
tókst þó ekki að skora í fyrri
hálfleiknum.
Hannes
stóð sig
vel
HANNES Sigurðsson gat sér
góðan orðstír sem dómari í
knattspyrnulandsleik Svía og
Finna á dögunum. Hér höfum
við fengið tvær myndir frá
leiknum — eða nánar sagt
starfi Hannesar.
Það er mikilsvert fyrir ísl.
dómara að fá að dæma leiki
erlendra þjóða. Án efa hefðu
þeir oftar tækifæri til þess ef
kostnaður væri ekki svo mik-
ill sem raun er við ferðir út
og heim. Þess vegna mega ísl.
knattspyrnudómarar vera
þakklátir Norðmönnum, sem
riðu á vaðið, og Svíum fyrir
að hafa fengið isl. dómara á
sína landsleiki.
Einnig er það mikilsvert að
þeir Haukur Óskarsson og
Hannes Þ. Sigurðsson reynd-
ust svo vel sem raun varð á
í fyrstu leikjum sínum ytra.
Má hiklaust ætla að ferðir
dómara í þvílíkum erindum
verði árlega eftir þetta. Það
er viðurkenning fyrir isl.
knattspymu einnig.
Myndirnar hér að ofan eru
af Hannesi í leik Svía og
Finna. Sú efri er af honum
í leik. Hin neðri með línu-
vörðunum sem báðir eru
norskir og hafa dæmt hér
landsleiki Gulliksen t.v. og
Arvid Nielsen.
í þeim siðari skoruðu Keflvík-
ingar tvívegis um miðbik háíf-
leiksins en Danir bættu stöðu
sína rétt fyrir leikslok. Sóttu
Danir mjög er á leið en Keflvík-
ingar brugðust ekki í vörninni.
Áhorfendur sem voru allmargir
voru á einu máli um að sam-
gleðjast Kefivíkingum með sig-
urinn.
Hólmbert Friðjónssyni er hrós
að mest fyrir þennan leik. Hann
er sagður hafa verið sívinnandi
og „heili“ liðsins.
if Síðari leikurinn
1 síðari leiknum léku Keflvík-
ingar við nágranna Hjörring*
Brönderslev og unnu ö mörk
gegn 3. í hálfleik stóð 3—0 fyrír
Keflavik. Danir skoruðu siðan
3—1 og 3—2. Kefl^jkjngar 4—2,
Danir 4—3 og Keflvikingar 5—3.
Jón Jóhannsson miðherji skor-
aði 4 mörk í þessum leik og
Magnús Torfason framvörður
það fimmta sem Danir kalla
„draumamark". Blað eitt lýsir
verðskulduðum sigri Keflvik-
inga, segir þó liðin hafa verið
jöfn að styrkleika en Danir hafi
leikið verr en venjulega.
Við þessa dóma Keflvík-
ingar vel una.
' Hérna er knattspyrnukapp
inn heimsfrægi di Stefano
*em rænt var og hafður í
háldi í 56 stundir. Hann var
áfar taugaspenntur þegar hon
Um var sleppt og vildi ólm-
ur komast heun. £r sagt að
hann hafi orðið lífhræddur
mjög í „fangelsinu“.
Di Stefano er t.h. á mynd-
inni. Hinn er sá sem gætti
hans aðallega og stóð fyrir
ráninu. Sá heitir Maxim Cana
les — og hrósar ser mjög af
ráninu i blöðum byltingar-
manna þar syðra.
Di Stefano hafði óskað þess
að hverfa heim sem skjótast.
En hann jafnaði sig fljótt er
úr prísundinni kom og í gær
— miðvikudag — lék hann
með Real Madrid (24 timum
eftir að nann varð frjálsj
gegn Sao Paulo. Leikurinn
varð æsandi mjög og lauk
með jafntefli, hvorugu liðinu
tókst að skora.