Morgunblaðið - 30.08.1963, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ
r
Fostudagur 30. ágúst 1963
tjtgefandi: Hf. Arvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
- Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur
Matthías Johannessen,
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Aö&.lstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Slmi 22480.
Askriftargjald kr. 65.00 á mánuði innaniands.
1 lausasölu kr. 4.00 eintakið.
SUNDR UNGIN í
KOMMÚNISTA -
FLOKKNUM
P’ins og Morgunblaðið hefur <
^ áður skýrt frá, hefur
sundrung og upplausn farið
vaxandi í kommúnistaflokkn-
um síðustu árin og er nú að
ná hámarki. Blaðið taldi rétt
að gera lesendum sínum grein
fyrir því, hvernig þessari bar-
áttu væri háttað og birtir
þess vegna greinar um þessi
átök.
í greinum Morgunblaðsins
er það rakið, hvaða sjónarmið
hver hinna einstöku flokks-
leiðtoga aðhyllist og rækilega
gerð grein fyrir hinni persónu
legu valdastreitu, sem nú á
sér stað í flokknum.
Enn er ósýnt, hvernig þess-
ari baráttu muni lykta, en svo
mikið er að minnsta kosti
hægt að fullyrða, að hún eigi
enn eftir að aukast og mörg
illvíg orustan verði háð áður
en yfir lýkur.
Þeir, sem vel vilja fylgjast
með íslenzkum stjórnmálum,
ættu að kynna sér þessar
greinar. En raunar má líka
segja að átökin í kommúnista-
flokknum hér á landi endur-
spegli að nokkru leyti þá inn-
byrðis baráttu, sem hvar-
vetna á sér stað í kommún-
istaflokkum, vegna djúpstæðs
skoðanamunar og persónu-
legafr valdabaráttu.
MILWOOD-MÁLIÐ
l\rú þegar togaranum Mil-
wood hefur verið sleppt
úr haldi og Milwood-málið
svokallaða er að komast á
lokastig, er rétt að rifja upp
gang þess, enda eru fá mál,
sem jafnmikið fjaðrafok hef-
ur orðið út af.
íslenzka landhelgisgæzlan
tók þennan brezka togara,
eins og mönnum er í fersku
minni, án þess að þurfa að
skjóta á hann föstum skotum.
Hins vegar tókst skipstjóran-
um Smith að komast undan
og hefur til þessa neitað að
hlíta íslenzkum lögum.
Mál þetta var þegar í stað
gert stórpólitískt og hugðust
stjórnarandstæðingar í komm
únistaflokknum og Framsókn
arflokknum nota það sér til
framdráttar í þingkosningun-
um í júní. Þeir ásökuðu yfir-
stjóm landhelgisgæzlunnar
fyrir linkind, sögðu að skjóta
hefði átt á skipið og mál þetta
mundi verða til þess að veiði-
þjófar hættu að óttast ís-
lenzku strandgæzluskipin.
Aðrir bentu á það, að fram-
kvæmd landhelgisgæzlunnar
í allri fiskveiðibaráttu okk-
ar hefði verið með ágætum,
og það væri einmitt að þakka
stillingu samfara fyllstu
festu, sem sigrar okkar hefðu
unnizt. Ef af okkar hálfu
hefði verið gripið til aðgerða,
sem haft hefðu í för með sér
blóðsúthellingar, hefði mál-
stað okkar verið stofnað í
hættu, og sú samúð, sem við
nytum, getað glatazt.
Jafnframt var bent á þá
staðreynd, að aðgerðir Smith
skipstjóra hefðu bakað útgerð
hans stórfellt tjón, margfalt
meira en venjulegur dómur
fyrir landheligsbrot. Af því
leiddi, gagnstætt fullyrðing-
um stjórnarandstæðinga, að
erlendir útgerðarmenn
mundu leggja á það ríkari á-
herzlu, að skipstjórnarmenn
þeirra hlýðnuðust íslenzku
landhelgisgæzlunni í fram-
tíðinnL
Um þetta var deilt vikum
og mánuðum saman. Síðan
hafa þessar deilur hjaðnað og
stjórnarandstæðinga virðist
ekki langa sérstaklega mikið
til þess að sjónarmið þeirra
séu rifjuð upp, enda er það
mála sannast, að í dag gera
menn sér grein fyrir því, að
rétt var að farið, og þeir
munu fáir, sem enn fengjust
til að halda því fram, að
hætta hefði átt á blóðsúthell-
ingar vegna framkomu Smith
skipstjóra.
ÆSINGASKRIF
ll/filwoodmálið er eitt dæm-
■‘■'■^ anna um þau gengdar-
lausu æsingaskrif, sem ein-
kennt hafa málgögn stjórnar-
andstæðinga síðan Viðreisn-
arstjórnin tók við völdum. En
dæmin um þessi skrif eru
miklu fleiri.
Þannig er ekki úr vegi að
minna á stóryrðin í sambandi
við lausn landheligsdeilunn-
ar, móðuharðindatalið út af
endurreisn íslenzks efnahags,
og nú síðast óðagotið út af
því, að samningar hafa verið
teknir upp við Atlantshafs-
bandalagið um byggingu
nýrra olíugeyma í Hvalfirði.
í ollum þessum málum er
það sameiginlegt fyrir mál-
flutning kommúnista og
Framsóknarmanna, að forð-
azt hefur verið að beita rök-
um, en þeim mun stóryrtari
hefur stjórnarandstaðan ver-
ið. Og athyglisvert hefur það
einnig verið, að alltaf hafa
Vitar, sem fá Ijós
sitt frá kjarnorku
— IMýjung, sem valda kann straumhvörfum
LOKIÐ er nú í Bandaríkjunum
smíði kjarnorkukunúins rafals,
sem séð getur vita fyrir nægu
rafmagni í 10 ár, án þess, að
eldsneyti sé endurnýjað'. Tækið
er smíðað í verksmiðjum í
Quehanna í Pensylvaniu. Starfs-
menn bandarísku strandgæzlunn
ar munu velja fyrsta rafalnum
stað innan tíðar.
í fréttum af smíði tækisins
segir, að brátt megi gera ráð
fyrir, að unnt verði að flytja á
brott vitaverði, sem nauðsynleg-
ir hafa verið, þar sem vélknúnar
rafstöðvar hafa séð vitum fyrir
rafmagni.
Það er undirdeild kjarnorku-
málanefndarinnar bandarísku,
sem látið hefur gera tæki þetta.
Sömu aðilar hafa mjög einbeitt
sér að því að undanförnu að
smíða létt tæki, kjarnorkuknúin,
til rafmagnsframleiðslu, tæki
hentug í geimför.
SNAP 7—B nefnist rafallinn
nýi. og getur framleitt 60 vött.
Sérstök málmblanda (Hastelloy
C) er notuð til að varna geislun,
en blandan er nær ónæm fyrir
Hér sést þverskurður af tæki
því, sem vikið er að í grein-
inni. Hiti er hagnýttur til raf-
magnsframleiðslunnar.
tæringu, og er einangrunin talin
munu endast í allt að 500 ár.
Þá mun geislavirkra áhrifa
löngu hætt að gæta inni í hylk-
inu.
Það er hiti, sem hagnýttur er
til rafmagnsframleiðslunnar.
Kjarni tækisins, þ. e. hylkiS
með geislavirku efnunum, hefur
þegar verið reyndur á Canaveral
höfða og víðar. Hann hefur ver-
ið hitaður í allt að 2.800 gráður
(Celsius) og þeitt með sprengi-
efni í múrveggi. Þá hefur nokkr
um kjarnahylkjum verið skotið
á loft með eldflaugum, og hafa
þau öll komið ósködduð til
baka, þrátt fyrir gífurlegan hita,
er þeir hafa fallið inn í andrúma
loftið, á leið til jarðar.
Það er Martin Co. í Balti-
more, sem stendur að smíði raf-
alsins, en það félag hefur fengið
stórt landsvæði til umráða i
Pensylvania til smíði kjarn-
orkuknúinna tækja. Þykir ekkl
ósennilegt, að hér sé um að
ræða nýjung, sem eigi eftir að
valda straumhvörfum í vita-
vörzlu, enda hefur sýnt sig, að
hylkin eru með öllu hættulaus.
Hefur það bezt komið fram við
prófanir þær, sem farið hafa
fram á Canaveralhöfða.
Fréttabréf úr Holtum:
Heyin með minna móti í ái — Karíöflu-
♦
uppskeran undir meðallagi — Búfé drepið
ot, limlest á vegum úti — Merkur
bóndi niðræður
MYKJUNESI, 18. ágúst — Hér
hefur verið öndvegstíð að undan
förnu og heyskapur gengið á-
gætlega. — Annars hefur
heyskapurinn gengið vel í
sumar frá því að sláttur hófst,
en það var almennt um mánaða-
júní — júlí. Flestir hafa
nú lokið fyrri slætti og verður
að telja að heyin verði með
minna móti að vöxtum, en vel
verkuð og taðan ekkert úr sér
sprottin. Háarspretta verður víð-
ast afar léleg og eins fyrir það
þótt borið væri á á milli slótta.
Engja heyskap er óvíst um að
ræða hér nú orðið, því þótt út-
jörð sé víða sæmilega sprottin
er ekki um annað að ræða en
kargaþýf og mannafli ekki til að
stunda orfaslátt svo neinu nemi.
Útlitið er því þannig að gera
verður ráð fyrir að margir verði
að skera búskapinn í haust,- því
um heyfyrningar er nú ekki að
ræða, þar sem hey gáfust svo að
segja öll upp í vor.
Framsóknarmenn gengið feti
framar en kommúnistar í ó-
svífnum áróðri.
Pólitískir tækifærissinnar
nota öll vopn í baráttunni, og
vera má að þeir geti um skeið
hagnazt á óábyrgum mál-
flutningi, en þegar til lengd-
ar lætur munu þeir finna, að
slík bardagaaðferð er ekki
sigurstrangleg. Og það er ein-
mitt þetta, sem fjöldi Fram-
sóknarmanna er nú að gera
sér grein fyrir. Þess vegna
er líka lítil ánægja með for-
ystu flokksins og skrif flokks-
blaðsins meðal Framsóknar-
manna.
Sömu sögu er að segja með
uppskeru í görðum og á túnun-
um, að hún virðist ætla að verða
í lakasta lagi, enda þótt nokkrar
góðar vikur í viðbót geti ráðið
þar miklu, má þó fullyrða að
kartöfluuppskera verður undir
meðallagi, því sumarið hefur ver
ið svo kalt.
Nokkur brögð hafa verið að
því í sumar og reyndar undan-
farin sumur ,að sauðfé hefur
fundizt dautt eða þa limlest, en
lifandi, við vegina hér um slóð-
ir eftir bíla, án þess að nokkur
hafi gert viðvart, enda skrokk-
arnir stundum fjarlægðir og
fundizt af tilviljun síðar meir.
Verður slík framkoma viðkom-
Eyjafirði, 26. ágúst.
ÁRFERÐI hefur verið frem-
ur hagstætt til landbúnaðar hér
í Eyjafirði í sumar. Það voraði
vel, og var hvergi kal í tún-
um, enda var grasvöxtur alls
staðar mikill og jafn. Þó spruttu
illa tún, þar sem jarðvegur er
þurr og harður eða mjög grunn-
ur, en það er óvíða hér um
slóðir. Nokkuð spratt þó seint,
og gæti það hafa stafað af því,
hve frost var mikið í jörðu í
vor, eftir þennan mjög svo snjó-
létta vetur.
Heyskapur byrjaði því ekki af
fullum krafti, fyrr en um mán-
aðamótin júní og júlí, en pá
voru þurrkar ágætir hvern dag
síðustu viku júní og fyrstu viku
júlí. Allmikið náðist því af heyj-
andi ökumanna að teljast mjög
vítaverð og ekki beinlínis karl-
mannlegt að víkjast þannig und-
an skyldum sínum. En umferðin
er orðin gífurleg og sumir aka
svona vægast sagt ekki sérlega
gætilega.
í dag er níutíu ára Jón Þor-
steinsson, fyrrum bóndi í Holts-
múla í Landsveit. Hann er fædd-
ur í Holtsmúla og hefur alið þar
allan sinn aldur. Bjó hann þar
um áratugi rausnarbúi, ásamt
Þorsteini bróður sínum, lengst af.
Kona Jóns var Guðrún Jakobs-
dóttir, er lézt háöldruð fyrir árL
Þau hjón áttu þrjú börn
og dvelur Jón nú hjá dóttur sinni
og tengdasyni í Holtsmúla. Þrátt
fyrir háan aldur er Jón stál-
hress bæði andlega og líkamlega.
Maður hispurslaus og einorður,
vinfastur og traustur maður og
heilsteyptur. Svo hraustur er
Jón, að þessa dagana dvelst hann
inn við Veiðivötn í hópi frænda
og vina.
Og víst er það að fjölmargar
hamingjuóskir munu afmælis-
barninu berast þessa dagana. —
M.G.
um þennan Jiálfa mánuð, eink-
um hjá þeim, sem gátu byrjað
fyrir mánaðamót. Viku af júlí
gekk svo í norðan kulda og ó-
þurrkatíð í hálfan mánuð, og
snjóaði þá jafnvel niður í.þyggð.
Þetta kuldakast olli því, að ný-
slegnu túnin hvítnuðu upp og
náðu sér ekki með sprettu, og
er því háarspretta yfirleitt mjög
léleg. Einnig kippti þetta úr
kartöfluvexti, og dæmi voru til,
að sæi á kartöflugrasi. Má því
verða hagstæð tíð fyrir kart-
öflusprettu fram um miðjan
september, ef uppskera á að
verða sæmileg. Síðan í júlílok
hefur svo verið afburða hey-
skapartíð, og er heyskap víða
að verða lokið. Nýting heyja er
mjög góð og engin tugga hrak-
in. — V.G.
Hagstætt árferði
I Eyjafirði