Morgunblaðið - 11.10.1963, Page 10
MORCUNBLADIÐ
\
10
Fostudagur 11. okt. 1963
FRÁ því hefur verið
skýrt í fréttum, hve illa
fellbylurinn „Flóra“ hefur
leikið eyjar í Karahiska
hafinu.
Tjón hefur orðið hvað
mest á ræktuðu landi á
Kúbu, en á Ifaiti hafa
mannskaðar orðið mestir.
Þar er talið, að um 4000
manns hafi látið lífið, 100.
000 misst heimili sín, auk
þess, sem % hlutar rækt-
aðs lands munu enga upp-
skeru gefa á þessu hausti.
AP-fréttastofan hefur
sent Mbl. þær fréttamynd-
ir frá Haiti, sem hér birt-
ast á síðunnL:
Innfæddir brosa, þótt náttúran hafi Ieikið þá grátt. Haitisk
móðir og barn hennar sitja brosandi á rústum heimilis síns
nálægt Miragoane á norðurströnd Tiburon skaga, eftir að hvirf-
ilbylurinn Flóra lagði héraðið í eyði 4. október. Ljósmyndarinn
lenti Iítilli flugvél á malarbraut í nágrenninu, til þess að ná Húsarústirnar í bænum Bainet á Haiti bera vitni um það, hve geysilegur fellibylurinn var. l'm
þessari mynd. 25 létu lífið í Bainet og mörg þúsund eru heim ilislaus.
Vinhra'Binn á Tiburon skaganum komst upp í 140 mílur, er Flóra geisaði. Margir innfæddra Þeir, sem verið hafa svo lieppnir að sleppa lifandi, veifa flug-
búa í kofum, sem eyðilögðust gersamlega i hvir filbylnum. vélinni, er hún flýgur yfir rústirnar.
10,8 km. af
vegi komni
1 FYRRADAG var opnaður
til umferðar 3,5 km langur kafli
af hinum nýja steypta vegi til
Keflavíkur frá Hvassahrauni að
Kúagerði. Er þá búið að taka í
notkun allan þann kafla, sem
Bteyptur var í sumar eða 10,8
km.
Áður en vegurinn var opnaður
fyrir umferð skoðaði Ingólfur
Jónsson samgöngumálaráðherra,
Penfield sendiherra Bandaríkj-
ftnna og Brynjólfur Ingólfsson,
ráðuneytisstjóri framkvæmdir
þær í Kefiavíkurvegi, sem unnar
Keflavíkur-
r í notkun
hafa verið í sumar undir leið-
sögn Sigurðar Jóhannssonar
vegamálastjóra og Snæbjarnar
Jónassonar deildarverkfræðings,
sem haft hefur á hendi yfirum-
sjón með framkvæmdum þess-
um.
Hinn nýi Keflavíkurvegur nær
frá Engidal norðan við Hafnar-
fjörð að bæjarmörkum við Kefla
vík og verður 37,5 km að lengd.
Er nú lokið Við að steypa slit
lag á 14,8 km af veginum eða um
40%. Enn fremur er að mestu
lokið undirbyggingu vegarins um
Vogastapa að Ytri-Njarðvík
Helgo
Elíshergsdóttir
Kveðja frá
vinkonum
F. 11. okt. 1933. D. 24. febr. 1963
KVEÐJA FRÁ VINKONUM
Er æskan leggur á ótroðnar
brautir,
er enginn kvíði í hjarta.
Himinninn blár og brekkurnar
grænar
blómum fegurstum skarta.
Við skemmtum okkur og skröf-
uðum saman,
en skammt er æskunnar gengi.
Minningar frá þessum indælu
árum
eiga viðkvæma strengi.
Við reistum heimili ein og ein
og eignuðumst börn og maka.
Þó ástæður breyttust og önnum
fjölgi,
er unun að horfa til baka.
Gott var að hittast og gleðjast
saman
og gleyma þreytu og striti.
Við ræddum um börnin, gjafirn-
ar guðs,
sem gefa dögunum liti.
Þau gleymast aldrei þín björtu
bros,
þau bros náðu allra hylli.
Þeir töfrar geymast, þó tíminn
líði
og tjald hafi fallið á milli.
Og dóttirin unga. er fylgd þína
fékk
til f jarlægri betri heima,
systkini og faðir sífellt hana
í sælli minningu geyma.
Fjötruð er tungan, fátt má segja
í fábrotnum kvæðalínum.
Við biðjum, að vaki englarnir
yfir
ástvinahópnum þínum.
Þ. S.
Shannon, írlandi, 7. okt.
Flugumferðastjórnin á Shann
on-flugvelli hefur sent írska
yfirvöldunum kæru vegna
flugs rússneskra herflugvéla
á leið til Kúbu þvert yfir flug
leiðir farþegavéla á leið milli
Evrópu og Bandaríkjanna. Á
flugleiðum þessum fer um-
ferðin allt upp í eina vél á
mínútu, og fara rússneska
vélarnar þar yfir án þess að
tilkynna flugið. ,