Morgunblaðið - 25.10.1963, Side 3
Fostudágur 25. okt. 1963
MORCUNBLAÐIÐ
3
Krossmn á myndinni sýnir þar sem Júní strandaði út af Lambhúsaílögu. Oarðakirkja á Álftanesi er fremst á mynd-
inni. — Ljósm.: Gísli Gestsson.
Afþakkaði dráttarvírana
— komst út af eigin rammleik
sendi á rettvang Björgunar-
sveit Ingólfs, sem var á staðn-
um unz Júní náðist út, svo og
björgunarbátinn Gísla Jóhn-
sen. Hann sneri þó aftur Ul
Reykjavíkur um nóttina, ear
Framh. á bls. 22
Togarinn Júní stiandaði við Lambhúsa-
flögu — 1V2 sjómílu frá Hafnarfirði
TOGARINN Júní, GK-345,
eign Bæjarútgerðar Hafnar-
fjarðar, strandaði á skeri við
Lambhúsaflögu út af Garða-
hverfi um kl. 12,10 í fyrrinótt,
er hann var að leggja af stað í
söluferð tilx Grimsby. Júní
tókst að komast á flot aftur
um kl. 7,30 í gærmorgun af
eigin rammleiks Athugun
leiddi í ljós, að skemmdir
voru nær engar og sigldi Júni
upp úr hádegi til Englands.
Júní lagði frá bryggju í
Hafnarfirði um kl. 12,00 í ó-
veðrinu i fyrrinótt undir
stjórn Hauks Hallvarðssonar,
stýrimanns, en skipstjórinn
Halldór Halldórsson, var í
fríi. Nokkru eftir að komið
Þökkuðu fyrir að
hitta í hátinn
í sjóinn strax og við vorum
komnir út fyrir Akurey.
— Það var mjög livasst og
báran kröpp og var keyrt í
hana. Strákunum fannst bát-
urinn Iáta illa, þeir hentust
upp og voru eitthvað að tala
um, að þeir mættu þakka
fyrir að hitta á bátinn þegar
þeir kæmu niður aftur. Ann-
ars fer Gísli Johnsen vel í
sjó og strákarnir eru allir
eitthvað vanir til sjós.
— Sendirinn á talstöðinni
var bilaður, svo við gátura
ekki kallað út. Þegar við vor-
um komnir út að Gróttu
heyrði ég í talstöðinni á sam
tal skipstjórans á Júní. Hafn-
aði hann aðstoð skipa, sem
voru hjá togaranum, kvað
ekki hættu vera á ferðum og
reynt yrði að ná Júní út af
eigin vélarafli um morguninn.
— Eftir að Ijóst var, að
okkar yrði ekki þörf, var
ákvörðun tekin um að snúa
aftur til hafnar. Það var ó-
þarfi að berjast gegn báru og
vindi fyrst ekki voru not fyr
ir okkur. Við vorum um
þetta leyti út af Gróttu. Veðr
ið var einna verst þá, lík-
lega um 10 vindstig.
— Við komum inn um kl.
4.30 um nóttina. Þá var veðr-
ið heldur tekið að lægja.
l .!W.M.,l,W! J>.|. .1.
var út fyrir hafnarmynnið
var sett á hálfa ferð.
Þegar siglt hafði veri, í ca.
10 mínútur (1,5 sjómílu) tók
Júní niðri. Reynt var að ná
togaranum út með því að
setja á fulla ferð aftur á bak,
en allt kom fyrir ekki. Júní
var strandaður á skeri undan
Lambhúsaflögu út af Garða-
hverfinu. Valhúsabauja var
Ijóslaus og hefur verið svo
nokkurn tíma. Hálffallið var
út á þessum tíma.
Haft var samband við út-
gerð togarans og skipstjórann.
Bæjarútgerðarbáturinn Örn
Arnarson kom á staðinn til að
veita aðstoð, svo og Stapa-
fell, sem var í Hafnarfjarðar-
höfn, en Júní er tryggður hjá
Samvinnutryggingum. Einnig
kom báturinn Leó á strand-
staðinn og Þorsteinn þorska
bítur og María Júlía var í
grenmlitmi ef með hefði
þurft.
Slysavarnafélag í s 1 a n d s
Baldur Jónsson.
Bförgunarsveifin var
reiðubúin í fjörunni
Lárus Þorsteinsson
BJÖRGUNARBÁTURINN
Gísli Johnsen var kallaður út
í fyrrinótt, ef svo skyldi fara
að togarinn Júni þyrfti að-
stoðar við. Skipstjóri á bátn-
um er Lárus Þorsteinsson og
sagði hann Morgunblaðinu
svo frá í gær:
— Ég var kallaður út
nokkru fyrir kl. eití um nótt-
ina og hafði ég þegar sam-
band við strákana á bátn-
um og tilkynnti þeim, að við
myndum fara út. Henry Hálf-
dánarson, framkvæmdarstjóri
Slysavarnafélagsins, hafði
reyndar haft samband við
nokkra þeirra.
— Nokkru fyrir klukkan 2
sigldum við út úr höfninni.
Hið versta veður var og illt
BJÖRGUNARSVEIT Ingólfs I
Reykjavík fór suður á Álfta-
nes á strandstaðinn. Formað-
ur hennar er Baldur Jónsson,
vallarstjóri, og sagði hann um
ferð þeirra félaga:
— Boð var gert fyrir björg-
unarsveitina um kl. 12.30 um
nóttina. Hafði ég strax sam-
band við strákana og vorum
við tilbúnir að halda af stað
um kl. eitt. Við tókum með
okkur allan venjulegan björg-
unarútbúnað, t.d. fluglínu-
tæki.
— Ferð okkar á strandstað-
inn var fyrst og fremst örygg-
isráðstöfun. Mikið rok var, en
sjólitið virtist vera, þar sem
Júní lá með fullum ljósum um
500—G00 metra frá landi. Það
var óhugnanlegt að sjá skipið
svona uppi í fjöru.
t! ...— .. síii—"
Togarinn Júni, GK 345.
— Björgunarsveitin kom sér
fyrir í fjörunni og hafði allt
tilbúið ef með þyrfti. Við Iét-
um loftskeytastöðina strax
vita að við værum á staðnum
og siðar um nóttina töluðum
við við loftskeytamanninn á
Júní. Hann sagði, að allt væri
í bezta lagi um borð, en þó
væri gott að vita af okkur í
fjörunni.
— Aðstæður til björgunar
voru afbragðsgóðar, ef til
hefði komið. Miðað við flesta
björgunarleiðangra sveitarinn
ar var þetta lúxusferð.
— Um klukkan 3.30—4 nm
nóttina fjaraði út og þá hall-
aði togarinn nokkuð, en hann
rétti sig við aftur þegar tók að
falla að. Júní komst svo út um
kl. 7.30 um morguninn af eig-
iú vélarafli. Það var vel af
sér vikið, ekki sízt þegar haft
er í huga, að háflæði var ekki
fyrr en um kl. 9.30 til 10 um
morguninn.
— í nánd úti á firðinum
voru nokkur skip tilbúin að
veita aðstoð ef þurft hefði.
Það voru Hafnarfjarðarbátur-
inn Örn Arnarson, Stapafell,
Þorsteinn þorskabítur, Leó og
María Júlía var þarna skammt
undan.
— En sem sagt, Júní komst
á flot og sigldi inn til Hafnar-
fjarðar og björgunarsveitin
hélt aftur til Reykjavikur.
- ----- - -
STAKSTEIMR
Ruddaleg rússnesk árás
á íslendinga
Alþýðublaðið birtir í gær frétt
um það, að snemma á þessi ári
hafi komið út í Moskvu bók um
ísland og íslenzka utanrikisþjón-
ustu. Kemst blaðið þar m.a.
þannig að orði, að í bók þessari
séu „harla einkennilegar lýsing-
ar á þjóðinni og ruddalegar árás-
ir á þá stefnu, sem mikill meiri-
hluti íslendinga hefur stutt und-
anfarin ár. Er sérstaklega ráðizt
að núverandi ríkisstjórn og ein-
stakir ráðherrar hennar svívirt-
ir. Hinsvegar er talað vel um
Sósialistaflokkinn (ekki Alþýðu-
bandalagið), MÍR og aðrar slík-
ar stofnanir, og samvinnuhreyf-
ingunni hælt fyrir baráttu henn-
ar gegn einkaauðmagni í land-
inu!
Bók þessi er 104 síður, gefin
út af sovézka skólanum fyrir al-
þjóðleg málefni, en þar ern
þjálfaðir menn fyrir utanríkis-
þjónustu Rússa“.
Alþýðublaðið birtir síðan
nokkra kafla upp úr bók þessari
en í henni er mx komizt að
orði á þessa leið:
Torfbæir, braggar
og atvinnuleysi
„Ennþá býr fjöldi íslenzkra
fjölskyldna í rökum kjöllurum,
torfbæjum, í hermannabröggum
og flugvélaskýlum." Sagt er að
lífskjörin hafi versnað og haldi
áfram að versna undir viðreisn-
arstjórn.
„Þannig hættu margir íslenzk-
ir kennarar að starfa í skólun-
um og verkfræðingar fluttust úr
landi árið 1961, þar sem þeir gátu
ekki aflað sér og sínum jafnvel
hógværasta viðurværis í landi.“
Sagt er frá að atvinnuleysi hafi
skotið upp kollinum, sem ekki
hefði verið í allmörg ár!
Þá segir að langsamlega van-
hugsaðasta verk stjórnar Ólafs
Thors hafi verið að semja við
ráðamenn Bandaríkjanna um að
leyfa þeim að endurbæta her-
stöð sína í Keflavík, en hættu-
Iegasta atriðið fyrir ísland í þess-
um samningi er sagt vera ætlun
Pentagons (bandarísku herstjórn
arinnar) „að byggja upp herstöð
í Hvalfirði fyrir kafbáta, útbúna
kjarnorkuvopnum."
Þjóðverjar teygja sig
til íslands
Alþýðublaðið heldur áfram
frásögn sinni af þessari rúss-
nesku árás á íslendinga og kemst
þá að orði á þessa leið:
„Þá er í bókinni furðusaga um
það, hvernig Vestur-Þjóðverjar
séu að seilast til valda á islandi."
Sagt er að „árás Bonn“ sé í
tvennu lagi, hernaðar og póli-
tísk og efnahagsleg. Er fullyrt að
hefndarsinnar í Bonn geri sér
mjög góðar vonir um árangur
þessarar sóknar á hendur islend-
ingum!
Fullyrt er í bókinni að Vest-
ur-Þjóðverjar hafi um langt skeið
sótzt eftir leyfi hjá íslenzku
stjórninni til þess að byggja upp
herstöðvar og æfingastöðvar á
íslandi til að reyna þar eldflaug-
ar fyrir her sinn.
i niðurlagi bókarinnar er svo
samkvæmt frásögn Alþýðu-
blaðsins, sagt að hin „ævintýra-
lega utanríkisstefna íslenzka
íhaldsins, sem studd er af hægri
sinnuðum jafnaðarmönnum, sem
svikið hafa stefnumál sósíalism-
ans, sé meir og meir að renna
saman við markmið utanríkis-
stefnu Bandarikjanna og NATO.“
Þetta er sá „fróðleikur“ sem
rússneski kommúnistaflokkurinn
vill koma á framfæri við almenn-
ing í Rússlandi um islenzku
þjóðina!