Morgunblaðið - 25.10.1963, Qupperneq 22
22
Mf>RGUHBLAÐID
FSstudagur 25. okt. 1963
Sölumaður
fer austur um land til Akureyrar eftir næstu helgi.
Vill hæta við sig vörusýnishornum. — Upplýsingar
í síma 15945.
Skrifstofustúlka
óskast sem fyrst. Verzlunar- eða Samvinnuskóla-
menntun æskileg. — UppL í síma 33614.
Stúlka óskast
iil afgreiðslustarfa í matvöruverzlun
nú þegar. — Upplýsingar í síma 19453.
Til sölu
Tilboð óskast í eftirtaldar sérleýfis og hópferða-
bireiðir.
Mercedes Benz 33 farþ. árg. 1957
Scania Vabis 36 farþ. árg. 1955
Volvo 37 farþ. árg. 1955
NORÐURLEIÐ H.F.
— Afþakkaði
Framh. af bls. 3
ljóst var, að Júní þyrftj hans
aðstoðar ekki með.
Á stað þeim, sem Júní
strandaði á, var fremur kyrrt
í sjó, en hefði hann strandað
utar á nesinu hefði líklega
verr farið, því mikið brim var
þar. Um borð voru konur
fimm skipverja, þar á meðal
Hauks Hallvarðssonar. Ætluðu
konurnar með mönnum sínum
í siglinguna.
Júní var ekki í hættu um
nóttina, þrátt fyrir mikið rok,
og þótti engin ástæða til að
flytja konurnar eða skipverja
í land. Halldór skipstjóri var
í talsambandi við Hauk og gaf
honum ýmsar ráðleggingar til
að ná togaranum út. Haukur
harðneitaði tilboðum frá Stapa
felli og Þorsteini þorskabít um
að setja vir í skipið til að
draga það út, enda yrði slíkt
talin björgun að meira eða
minna leyti, sem greiða þyrfti
björgunarlaun fyrir. Þegar
líða tók að morgni tókst Hall-
dóri skipstjóra að komast um
borð í Júní.
Um borð var allt með kyrr-
um kjörum og tóku menn ó-
happinu af stakri ró, ekki sízt
konumar. Var þess beðið, að
aftur tæki að flæða að. Þá
átti að reyna að beita saflvél-
unum.til að ná honum út. Þeg-
ar mesta útfall var hallaðist
Júní nokkuð, mest 20 gráður,
en hann rétti sig við aftur
strax og tók að falla að.
Vatni og olíu var dælt úr
öftustu tönkunum til að létta
skipið. Á áttunda tímanum
um morguninn náðist Júní á
flot aftur. Fór hann til
Hafnarfjarðar og síðar til
Reykjavíkur, þar sem athug-
un fór fram á togaranum hjá
Slippnum. Kom í ljós, að
skemmdir eru veigalitlar,
dældir á kili og skrúfublað
lítilsháttar bogið.
Júni fór aftur úr slippnum
upp úr hádegi og hélt þegar
af stað með 120 tonn af fiski
til sölu á markaði í Grimsby.
Júní var smíðaður í Englandi
árið 1950.
JAPANIR LÁNA INDVERJUM
Tokíó, 24. okt. — AP: —
Stjórn Japans tilkynnti í dag, að
hún hefði ákveðið að veita Ind-
verjum 65 milljón dollara lán til
þriðju fimm ára framkvæmda-
áætlunar Indlands-stjórnar.
Ullar kjólar
verð kr. 985—
— Mikið újval —
MARKAÐURINN
Laugavegi 89.
\
,Ti! sölu
togútbúnaður, hlerar, rúllur og gálgar.
UPPLÝSINGAR í SÍMA 51297.
Herbergisþernur — Kaupmannahöfn
2 duglegar stúlkur vanar heimilis- og hótelstörfum
óskast á 1. ílokks hótel í Kaupmannahöfn. Góð laun,
fæði og húsnæði. Skriflegar umsóknir með meðmælum
ef til eru, sendist til
Park Hotel, Jamérs Plads 3
Kpbenhavn.
Dieselvélaeigendur
Höfum opnað nýtt verkstæði fyrir viðgerðir og
stillingar á olíukerfum dieselvéla. Einnig önnumst
\ið viðgerðir á dieselvélum. Aðaláherzla lögð á
góða og vandaða vinnu. Nafn verkstæðisins er
BOGI H.F. Súðarvogi 38 Rvík sími 36057.
Sigurður og Kristján Finnbogasynir.
SÓLARGEISLI HÚSMÓÐURINNAR
i'
Uppselt á „Dýrin44
FYRSTA sýning á þessu leikári
var sl. sunnudag á barnaleikn-
um Dýrin í Hálsaskógi. Uppselt
var á sýninguna og seldust allir
miðar á skömmum tíma. Fram-
vegis verður leikurinn sýndur
kl. 3 á sunnudögum. „Dýrin“
verða sýnd um næstu jól bæði I
Osló og Kaupmannahöfn, en 1
báðum þessum borgum var leik
urinn sýndur á sL leikári. Það
virðist svo að börn geti séð leik
inn aftur og aftur og er auðsætt
að yngsta kynslóðin kann vel að
meta þetta skemmtilega leikrit.
— Keflavíkurflug-
völlur
Framh. af bls. 10
fækkunar starfsfólks, til þess að
tryggja þeim forgangsrétt á stöð-
um er kunna að losna, svo fram-
arlega sem þeir eru hæfir til
slíkra starfa.
4. Tilkynningar. Jafnskjótt
og endanleg ákvörðun hefir ver-
ið tekin varðandi framangreind-
ar uppsagnir einstakra starfs-
manna, mun skrifstofa starfs-
mannahalds gefa út akriflegar
tilkynningar þess efnis, en for-
stöðumenn deilda afhenda þser
viðkomandi starfsmönnum.
S. E. ELLISON.