Morgunblaðið - 12.11.1963, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 12.11.1963, Blaðsíða 8
8 ✓ MORGU N B LAÐIÐ Þriðjudagur 12. nóv. 1963 Varnir gegn Kötluhlaupum T V E I R þingmenn Suðurlands, þeir Ragnar Jónsson (S) og Sig- urður Ó. Ólafsson (S) hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar um varnir byggðanna í Álftaveri og Vík í Mýrdal gegn hugsan- legu tjóni af völdum Kötlu- hlaups. Tillagan hljóðar þannig: Alþingi ályktar að heimila rikisstjórninni að láta undirbúa og hefja þegar á næsta ári nauð- synlegar aðgerðir til varnar mannvirkjum og gróðurlöndum í Álftaveri og Vík í Mýrdal með tilliti til hugsanlegs Kötluhlaups, á grundvelli þeirra athugana, sem þegar hafa verið framkvæmdar og fyrir liggja. í greinargerð með tillögunni segir m.a.: Katla hefur gosið 16 sinnum Félagslíf Ferðafélag íslands heldur kvöldvöku í Sigtúni miðvikudaginn 13. nóvember. Húsið opnað kl. 20. Fundarefni: 1. Hallgrímur Jónsson, kenn- ari, sýnir og skýrir litskugga myndir frá leiðum ferða- félagsins um byggðir oig ör- æfi. 2. Myndagetraun, verðlaun veitt. 3. Dans til kl. 24. Aðgöngumiðar seldir í bóka verzlunum Sigfúsar Eymunds- sonar og ísafoldar. Verð kr. 40,00. Sundmót Ármanns verður haldið í Sundhöll Reykjavíkur dagana 25. Og26. nóvember. Keppnisgreinar eru þessar: Fyrri dagur: 100 m skriðsund karla (bikarsund). 200 m fjórsund karla 200 m skriðsund kvenna 200 m bringusund kvenna 400 m skriðsund ungliniga 100 m bringusund unglinga 50 m skriðsund sveina 100 m skriðsund telpna 50 m baksund tclpna 4x50 m fjórsund karla 4x50 m bringusund kvenna 200 m bringusund karla (bikarsund) 100 m flugsund karla 100 m baksund karla 100 m skriðsund kvenna 200 m fjórsund kvenna 100 m skriðsund drengja 50 m skriðsund drengja (bikarsund) 50 m bringusund sveina 100 m bringusund telpna 3x100 m þrísund karla 4x50 m fjórsund kvenna Emnfremur er keppt um af- reksbikar S. S. í. Þátttökutil- kynningar skulu berast eigi síðar en mánudaginn 18. nóv. til Siggeirs Siggeirssonar, Grettisgötu 92. — Sími 10565. eftir landnámstíð. Fyrsta gosið, sem vitað er um, varð árið 894, en hið síðasta haustið 1918, svo sem kunnugt er. Oftast hefur Katla gosið tvisv- ar á öld, og hefur ætíð fylgt gos- unum mikið öskufall og jökul- hlaup. í Vestur-Skaftafellssýslu hafa Kötlugosin lagt fjölda jarða í eyði, grafið grónar lendur undir jökulaur og sandi, eitrað gróður og grandað búfé bænda. Eftir því sem Katla hefur hag- að sér um aldaraðir, má fara að búast við gosi hvenær sem er úr þessu. Hvert gos boðar mikla vá. Ávallt hafa Kötlugosin valdið miklu tjóni, en þó misjafnlega miklu. Þótt ekki sé hægt að spá um það, hvernig næsta gos muni haga sér, ef það brýzt út, er þó öruggt, að því fylgir jökulhlaup, sem ryðjast mun fram Mýrdals- sand til sjávar. Álftaverið yrði að öllum líkindum umflotið og veg- urinn yfir Mýrdalssand ófær yf- irferðar um lengri eða skemmri tíma. Fyrir nokkrum árum var gerð- ur flugvöllur í Álftaveri, m.a. með tilliti til þessa. Gæti svo far- ið, að einu samgöngumöguleikar Álftveringa yrðu um þennan flugvöll um tíma. Það er því mikils um vert, að hann verði Alþingi í gær STUTTUR fundur var í Neðri deild í gær og voru tvö mál tek- in fyrir. Gunnar Thoroddsen, fjármálaráðherra, gerði grein fyrir frv. um bráðabirgðabreyt- ing og framlenging nokkurra laga sem Efri deild hafði af- greitt ágreiningslaust. Kvaðst ráðherrann vona að frv. fengi sömu meðferð í Neðri deild. Var samþykt að vísa frv. til 2. um- ræðu og fjárhagsnefndar. Jónas G. Rafnar (S) fylgdi úr hlaði frv. um breyting á lögum um aðstoð ríkis- ins við kaup- staði og kaup- tún sem sam- þykkt voru á síðasta þingi. Tilgang laganna kvað J. G. R. vera að auð- velda sveitar- félögum að eign ast lönd sem þau þurfa að hag- nýta á einn eða annan hátt. í lög- um þessum væri heimild fyrir fjármálaráðuneytið að fella nið- ur þinglesturs- og stimpilgjöld af tilteknum lánsskjölum en ekki næði þessi heimild til afsals- bréfa. Þó næmu stimpil- og þing- lestursgjöld af þeim oft háum upphæðum. Þess vegna legði hann til í þessu frv. að undan- þáguheimildin nái einnig til af- salsbréfa enda í samræmi við fyrrgreindan tilgang laganna. Var að lokinni ræðu framsögu- manns samþykkt að vísa frv. til 2. umræðu og heilbrigðis- og félagsmálanefndar. gerður svo öruggur gegn jökul- hlaupi sem unnt .er. Varnargarðar Að beiðni samgöngumálaráð- herra hefur verkfræðingur frá vegamálaskrifstofunni gert þarna nokkrar athuganir. Þær athugan- ir benda til þess, að þarna megi með tiltölulega litlum kostnaði reisa þær varnir, sem að gagni megi verða. Er þar um að ræða varnargarða á tveim stöðum. Enn fremur virðist mega auka allveru lega á öryggi Álftaversins með nýjum varnargarði við ána Skálm. Meginhluti Víkurkauptúns í Mýrdal stendur, eins og kunnugt er, á lágri sléttu austan við Reynisfjall. Öll nýbyggðin, sem risið hefur upp hin síðustu ár, er að heita má á þessari sléttu, að- eins fáa metra ofan við sjávar- mál. Er þetta eðlileg afleiðing þess, að landið hefur færzt mjög fram eftir síðasta Kötlugos, sand- fokinu af fjörunni hefur að mestu verið bægt frá og gróður- landið aukizt að mun. En séu heimildir um Kötlugos athugaðar, sést, að jökulhlaupin hafa mjög oft komizt alla leið vestur að Reynisfjalli og fært í kaf land það, sem kauptúnið í Vík stendur nú á. Þarf ekki að lýsa því, hver voði það væri, ef þetta ætti eftir að endurtaka sig. Þótt naumast sé gert ráð fyrir, að jökulhlaup komi svo skyndilega, að mannslífum ætti beinlínis að vera hætt í þorpinu, geta mikil verðmæti verið í veði. Er því ó- hjákvæmilegt að gera allar þær ráðstafanir til varúðar, sem til- tækilegar þykja. Að tilhlutan samgöngumálaráð herra gerði verkfræðingur frá vegamálaskrifstofunni, sá hinn sami, sem gerði tillögur um varn- ir Álftaversins, athuganir á því síðastliðið sumar, hvað gera mætti til öryggis, ef hugsanlegt Kötluhlaup leitaði vestur með Víkurhömrum í átt til Vikurkaup túns. Leiddi þetta í Ijós, að 320 metra garður, sem ýtt yrði upp í skarði því, sem þjóðleiðin ligg- ur um milli Höfðabrekkuháls og svokallaðs Höfðabrekkujökuls, mundi veita mjög mikla vörn. Stuttur garður við Víkurklett, sem er skammt austan við kaup- túnið, mundi og auka á vörnina, ef hann yrði byggður jafnframt En um fyrrnefnt skarð hafa flóð- in oftast farið á undanförnum öld um. Þó varð það ekki í gosinu 1918, en munaði mjög litlu að sögn kunnugra manna. Okkur flutningsmönnum þings- ályktunartillögu þessarar hefur skilizt, að þegar farið var að byggja að ráði niðri á sléttunni í Vík, hafi þáverandi skipulags- stjóri lagt til, að sem fyrst yrði hafizt handa um varnir gegn Kötluhlaupum. Af framkvæmd- um hefur ekki orðið til þessa. Er hér um stórmál að ræða, og getur heill og hamingja fjölda fólks oltið á því, hvernig framkvæmd þess verður. Blað- burðar- börn óskast r í þessi blaðahverfi vantar Morgunblaðið nú þegar unglinga, röska krakka eða eldra fólk til að bera blaðið til kaupenda þess. Lanibastaðahverfi á Seltjarnarnesi Gjörið svo vel að tala við afgreiðslu blaðsins eða skrifstofu. Sími 2 2 4 8 0 Jakov Flíer Píonóhljómleikar Jokovs Fliers NK. SUNNUDAGSKVÖLD kl. 21 heldur Jakov Flíer, píanóleikari frá So>vétríkjunum, hljómleika í Háskólabíói. Eru þeir á vegum Menningartengs'la íslands og Ráð stjórnarríkjanna (MÍR). Jakoiv Flíer er einn þekktasti píanóleikari í Sovétrík j unum. Hann er fæddur árið 1912, lauk námi við Tónlistarháskólann 1 Mosikvu 1933 og 1938 varð hann prófessor við sama skóla. Flíer hefur haldið hljóanleika víða um lönd. Vegabætur á Fjalla- baksleiö hinni nyrðri EFTIRFARANDI þingsályktun- artillögu hafa þeir Ragnar Jóns- son (S) og Sigurður Óli Ólafs- son (S) lagt fram í Sameinuðu þingi. „Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að láta á næsta ári undirbúa og hefja fram- kvæmdir til vegabóta og brúar- gerða á Fjallabaksleið hinni nyrðri“. Með tillögunni fylgir svohljóð- andi greinargerð: Fjallabaksleið hin nyrðri hef- ur af mörgum verið talin ein fegursta öræfaleið á íslandi. Er hún, sem kunnugt er, farin af miklum fjölda skemmtiferða- fólks á ári hverju. Straumur innlendra og erlendra ferða- manna til hinna fögru staða, sem að Fjallabaksleið liggja, vex stöðugt. Þarna hefur vegur ver- ið ruddur, og er hann lagfærð- ur lítillega ár hvert. Er leiðin því nokkurn veginn greiðfær um sumartímann öllum bifreiðum með tvöföldu drifi. En vegurinn að Fjallabaksleið þarf að verða meira en skemmti ferðaleið. Þarna var um aldir aðalsamgönguleiðin milli Rang- árvallasýslu og austurhluta Vest- ur-Skaftárfellssýslu, og þannig var það allt fram á fyrstu ára- tugi þessarar aldar. Breyttist þetta fyrst, er vatnsföll sunnan fjalla voru brúuð og vegir lagð- ir þar. Með tillögu þessari er til þess ætlazt að þær umbætur verði gerðar á umræddri leið, að hún verði vel nothæf fyrir þyngri flutningatæki í neyðartilfellum, ef vegurinn vestur yfir Mýrdals- sand skyldi lokast um tíma vegna náttúruhamfara. En það hefur oft gerzt. Eins og búskap er nú háttað víðast hvar á landi hér, er öll afkoma fólksins háð því, að sam- göngur geti verið greiðar. Koml truflanir þar á, veldur það mikl- um óþægindum og jafnvel stór- tjóni. Verði Fjallabaksleiðin lagfærð þannig, að hún þoli þungaflutn- inga um takmarkaðan tíma, get- ur hún án efa forðað frá vand- ræðum. Er því mikils um vert fyrir það fólk í Vestur-Skafta- fellssýslu, sem á heima fyrir aust an Mýrdalssand, að fljótlega verði hafizt handa um fram- kvæmdir á umræddri leið, m.a. með því að byggja brýr á Jökul- kvísl nálægt Landmannalaugum og Ófæru á SkaftártunguafréttL En báðar eru þessar brýr litl— ar. Söinun til Kúbn, Trinidnt og Tobngo RAUÐA KROSSI ÍSLANDS hafa borizt tilmæli frá Alþjóða Rauða Krossinum í Genf um að- stoð við íbúa Kúbu, Trinidad og Tobago vegna eyðilegginga af völdum fellibylsins Flóru. Mikil eymd ríkir á vissum stöðum nefndra eyja, og eru menn vinsamlegast beðnir að leggja eitthvað af mörkum til þessa bágstadda fólks. Rauði Kross íslands Thorvalds stræti 6 og dagblöð borgarinnar taka við framlögum í þessu skyni næstu tvær vikur. (Frá stjórn Rauða Kross íslands).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.