Morgunblaðið - 12.11.1963, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 12.11.1963, Blaðsíða 17
Þriðjudagur 12. nóv. 1963 MORGUNBLAOIO 17 Framtíð íslenzkrar skógræktar — eftir Hákon Bjarnason, skógræktarstjora MÉIR er bæði ljúft og skylt að skrifa um skógrækt á íslandi og framtíð hennar, nú þegar Morg- unblaðið á hálfrar aldar afmæii. Blaðið hefur ávalt stutt skóg- ræktarmálin af skilningi og heil um hug. Og það hefur gert meira. Morgunblaðið hefur gert málstað skógræktarinnar að sín- um, og í því samibandi^ minnizt ég hins langa og góða samstarfs okkar Valtýs Stefánssonar um nærri þrjátíu ára skeið. Framtíð skal á fortíð byggja. Framtíð alls verður að byggj- ast á því, sem á undan er farið, og af reynslu og þekkingu manna ó hverjum tíma. Þótt menn hafi gróðursett tré á íslandi í 200 ár eða lengur, er skógplöntun að- eins ári eldri en öldin, sem nú er að líða. Fyrsta sporið í þá átt er ekki stigið fyrr en 1899 undir stiórn Carls Ryders skip- stjóra og leiðsögn Einars Helga- sonar garðyrkjumanns. Þá er fyrst gróðursett í svæði það, sem nú er alment kallað furulundur- inn á Þingvöllum. Víst væri ákjósanlegt að við hefðum lengi reynslu að baki í skógræktinni, en þessu verður ekki um þokað. En íslendingar eru nú margs vísari en áður um náttúru landsins, og af reynsl- unni og þekkingunni getum við ráðið töluvert um það, ihver framtíð skógræktar verði á íslandi. — Við vit- um hvaða trjátegundir megi rækta og getum farið mjög nærri um, hvaða arð megi af þeim hafa. Hins vegar er erfið- ara að segja fyrir um, hve ört skógrækt muni miða, því að það veltur fyrst og fremst á framsýni þjóðarleiðtoganna og skilningi almennings. En þetta hvort tveggja vex með hverju ári sem líður. Nýjar rannsóknir. Hér skal fyrst vikið að því, sem við höfum orðið vísari um náttúru íslands á síðari árum. Síðan verður skýrt ofurlítið frá reynslu þeirri, sem fengizt hef- ur í skógrækt, og að lokum get- ur svo lesandinn dæmt sjálfur um þörf og nauðsyn skógræktar í okkar hrjóstruga landi. Af frjórannsóknum, sem Þor- leifur Einarsson jarðfræðingur hefur unnið að um nokkur ár, er nú orðið ljóst, að ísland var viði vaxið milli fjalls og fjöru þegar það var numið. Ari fróði Þorgilsson hefur því farið með rétt mál í íslendingabók og Landnámu. Ennfremur vitum við, að hér hafa ekki vaxið aðrir skógar en birki eftir lok ísaldanna, því að 611 önnur tré urðu úti í fimbul- vetrum jökultímans. Fjarlægð íslands frá öðrum löndum olli því, að hingað gátu ekki borizt tré af slálfsdáðum, þótt veðrátta batnaði mjög við ísaldarlok. Gróðurfátækt landsins eða teg- undafæð íslenzku flórunnar er af sama toga spunnin, svo sem Steindór Steindórsson menta- skólakennari hefur sýnt og sann að með 25 ára rannsóknum. Nú er það einnig orðið ljóst • f rannsóknum Þorleifs Einars- sonar og dr. Sigurðar Þórarins- sonar, að uppblástur jarðvegs og eyðing hans hefst ekki fyrr en menn koma til landsins og setj- «st að. Og af því leiðir, að bú- seta manna í landinu er hin upp- haflega orsök til hinna stórkost- legu gróðurskemmda og jarð- vegseyðingar, sem hér hefur átt sér stað. Við samanburð á flóru eða gróð urfari íslands við önnur norð læg lönd, þar sem veðrátta og gróðurskilyrði eru svipuð og hér, hefur komið í Ijós að ísland er allra landa fátækast að tegund- um plantna, svo og að öll önnur sambærileg lönd eru vaxin stór- vöxnum barrskógum. Af ræktun ýmissa trjátegunda um allt að 60 ára skeið, vitum við nú meir en áður um gróður- skilyrði landsins á ýmsum stöð- um. Reynslan talar sínu máli. Austur á Hallormsstað standa 5 blágrenitré í þyrpingu. Þau voru flutt hingað til lands í maí- mánuði 1905 í lítilli tágakörfu og voru reidd á klyfjahesti frá Seyðisfirði yfir Fjarðarheiði og upp á Hallormsstað. Þessi tré hafa nú staðið í 58 ár í íslenzkri jörð. Upphaflega voru þau fleiri á þessum sama stað, en þegar þau komust á legg litu ýmsir þau ágirndarauga, svo að flest- um var komið í fóstur á aðra staði, þar sem sum dóu, en önn- ur lentu á hrakhólum. Tré þessi voru alin upp á Jótlandi og vax- in upp af fræi, sem fengið hafði verið alihátt til fjalla í Kletta' fjöllum Bandaríkjanna, einhvern tíma um aldamótin. Þessi tré éru nú öll milli 10 og 12 metrar á hæð, og hið gildasta þeirra er nærri 40 cm í þvermál í 1,3 m hæð frá jörðu. Þrívegis hafa trén borið þroskað fræ, og eru nú elztu afkvæmi þeirra orðin 11 ára og um meter á hæð. Hefðu menn haft tök á því árið 1905 að setja niður 5000 tré af þessum stofni á hektara lands í Hallormsstaðaskógi, væri þess að vænta að nú stæðu 500 eftir af líkri stærð og hæð og þessi 5 eru nú. En söluverðmæti við- arins, sem fengizt við að fella öll trén og saga þau niður, mundi vera um hálf milljón króna. Þetta er ótrúlegt en engu að síður satt. Annað dæmi sýnir þetta enn betur. Árið 1938 var síbirísku lerki plantað í nærri einn ha lands í Hallormsstaðaskógi. Vor- ið 1962 var síðasta mæling gerð á skóginum, en áður hafði lerk- ið verið mælt þrívegis frá 1952. Hér liggja því óvefengjanlegar mælingar fyrir og eru miðaðar við einn hektara lands. Aldur skógarins frá gróður- setningu var 24 ár. Meðalhæð allra triánna var 8,9 metrar. — Meðalþvermál stofna í 1,3 m hæð frá jörðu var 12,9 cm. Við- arvöxturinn alls nam 152,5 tem ingsmetrum á ha, en meðalvöxt- ur hvers árs er samkvæmt því 6,4 teningsmetrar á hektara lands. Af þessu viðarmagni er þegar búið að fella 60,5 tenings- metra. Mest af því hefur verið notað í girðingarstaura, og verð mæti þeirra var svo mikið, að þessi teigur hefur gefið af sér kr. 3.000,00 í árlegan arð auk stofnkostnaðarins. Nú standa eft ir 92 teningsmetrar viðar, sem aukast að verðmæti með hverju ári sem líður. Trén hækka um 30—40 cm á ári og gildna um hálfan centimeter. Viðarvöxtur inn er svo hraður þessi árin, að hann nemur um 13 teningsmetr- um á hektara. Einn teningsmet- er af óunnum viði er lágt tal- inn kr. 1.000,00 að verðmæti. Þess má geta að árið 1958 fékkst ofurlítið af fræi af þess- um lerkitrjám, og í fyrra voru gróðursettar milli 800 og 900 plöntur, sem eru afkvæmi þessa fyrsta lerkiskógar á Islandi. Margir möguleikar. Þessi tvö dæmi hafa aðeins verið nefnd til þess að sýna að það er arðs von af því að rækta skóg á íslandi ekki síður en í öðrum norðlægum löndum. En þar sem trén eru langlíf og lengi að vaxa, er varla von að skamm- sýnir menn komi auga á þetta. Við þurfum ekki að binda okkur við þær tvær trjátegund- ir eingöngu, sem nú hafa venð nefndar, því að hér er völ á mörgum öðrum, sem eru ekki síður nytsamar en þessar tvær. Rauðgreni frá Skandinavíu var flutt að Hallormsstað árið 1908, en því var lítill sómi sýnd- ur og mest af því varð sauðfénu að bráð. En lítil greniþyrping á afviknum stað týndizt bæði mönnum og skepnum fram til ársins 1936. Birkikjarrið hafði náð að vaxa yfir plönturnar og haldið þeim niðri. Þegar því var rutt burt árið 1936 var hæsta greniplantan ekki nema um meter á hæð en margar enn niðri í grasi. Upp frá þessu fóru trén að vaxa ört, og nú eru þau hæstu að komast að og yfir 10 metra hæð en þvermálið er um 25 cm. Þessi tré hafa nokkrum sinnum borið köngla, en hvort þeir hafi borið þroskað fræ hefur ekki verið unnt að reyna, Á Hallormsstað hafa og nokkr ar aðrar trjátegundir gefið ágæta raun svo sem lindifura og skóg arfura, ennfremur fjallaþinur og Feröaiuenu við lerkitré, sem pla ntaö var 1922. — Ljósiu. Þ. Jós. Hákon Bjarnason broddfura. Að þeirri trjátegund verður vikið síðar. Fyrstu sporin. Þetta, sem nú hefur verið nefnt, er allt frá fyrstu árum skógræktarinnar á íslandi, nema síbiriska lerkið frá 1938. Og allt er þetta á Hallormsstað, en til þess liggja gildar ástæður, sem síðar verður að vikið. Eins og áður getur hófust hin- ar fyrstu skógræktartilraunir hér árið 1899 fyrir forgöngu dansks skipstjóra, Carls Ryders að nafni. Hann fékk prófessor í skógrækt í lið með sér, C. V. Prytz, og réðu þeir til sín ung- an skógfræðing, C. E. FLensborg, til þess að annast allar fram- kvæmdir. Þeir þremenningarnir unnu óslitið að þessum málum fram á árið 1907, er landsstjórn- in tók þessi mál í sínar hendur, setti skógræktarlög, skipaði A. F. Kofoed Hansen skógræktar- stjóra og 4 skógarverði. Á þessu tímabili voru settar upp 3 litlar girðingar á bersvæði til þess að reyna ýmsar trjáteg- undir, fyrst á Þingvöllum, en síðar á Grund í Eyjafirði og við Rauðavatn í Mosfellssveit. Þá voru og 2 girðingar settar upp í skóglendi, önnur í Vaglaskógi, en hin í Hallormsstaðaskógi. — Yfirleitt voru sömu trjáteg- undirnar reyndar á öllum þess- um stöðum, en svo hefur nú skipast til, að einn reiturinn er horfinn fyrir löngu og sér nú hvergi tangur eða tetur af hon- um. Var það reiturinn í Vagla- skógi, og er varla öðru til að dreifa en vanrækslu þeirra, sem gæta áttu. Við Rauðavatn hefur gengið á ýmsu, og þar lifir að- eins fjallafuran. Á Þingvöllum er bæði fjallafura og lindifura og eins við Grund, en þar er líka vottur nokkurra annarra tegunda, sem aldrei hafa náð góðum þroska. Á Hallormsstað hefur allt hafzt betur við, enda hefur skjólið í skóginum haft útslitaþýðingu fyrir margt á fyrstu árunum. Þar hefur og ver- ið betri gæzla alla tíð en annars- staðar. Flestar voru triátegund- irnar komnar frá sumarhlýrri stöðum en ísland er, því að þá var ekki annars kostur. Um upp- runa þeirra vitum við sama og ekki neitt, og er það mikill skaði. Þó eru til nokkrar upp- lýsingar um broddfuruna og lindifuruna og mjög sterkar ’.ík- ur eru fyrir því, hvaðan blá- grenin muni að vera. V Breytt um stefnu. Þegar landsstjórnin hafði tek- ið skógræktarmálin í sínar hend- ur var haldið áfram sömu stefau í nokkur ár. Gerðar voru til- raunir með hin sömu tré og áður og fræ fengið frá sömu stöðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.