Morgunblaðið - 12.11.1963, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 12.11.1963, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐID Þriðjudagur 12. nóv. 1963 fUírir0íMtM&frÍ!r Útgefandi: Hf. Arvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. m Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur Matthías Johannessen, Eyjólfur Konráð Jónsson. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Otbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson. Ritstjórn: Aðs-Istræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstraeti 6. Sími 22480. Áskriftargjald kr. 80.00 á mánuði innanlands. 1 lausasölu kr. 4.00 eintakib. BARATTAN FYRIR A TVINNUÖR YGGI Björgun mann- anna11í Lengede 15 cm 'borhola* um hana var sendur simi og matur* 5 cm borholan, ^ sem fyrstu bir-gðirnar" voru sendar um* 35 fyrstu metrana mátti bora með venjulegum hraða. en er neðar dró varð að bora hægar vegna þess hve jarðvegurinn er laus í sér og hætta á grjóthruni* Einnig var hætta á að grjöt hryndi ár lofti holunnar og því var borað t±l hliðar við hana* Síðan fóru björgunar- menn niður og grófu göng til hinna 11 TTm Þpssi • göng var hinúm 11 ojar gað Os ro B (D c+ 4 W 4 Það, sem^hrunið- var ór lofti'námunnar• Allt frá því að Viðreisnar- stjórnin tók við völdum hefur starf hennar og stefna fyrst og fremst miðað að því að auka framleiðsluna og tryggja atvinnuöryggi í land- inu. Stöðvun verðbólgunnar og jafnvægi í efnahagsmálum er frumskilyrði þess að þetta takist. Frumvarp ríkisstjórn- ‘ arinnar um stöðvun víxl- hækkana verðlags og kaup- gjalds stefndi að því að hindra áframhaldandi dýrtíðar- skrúfu, sem ævinlega bitnar harðast á þeim lægst launuðu í þjóðfélaginu. Nú hefur það gerzt, að for- ystumenn launþegasamtak- anna hafa sjálfir boðizt til að aflýsa boðuðum vinnustöðv- unum. Þeir hafa jafnframt heitið því að ekki skuli stofn- að til nýrra verkfalla a.m.k. til 10. desember. Þegar þetta tilboð lá fyrir af hálfu verka- lýðssamtakanna, hafði ríkis- stjórnin í raun og veru náð þeim tilgangi frumvarpsins, að kapphlaupið milli kaup- gjalds og verðlags væri stöðv- að næstu vikur, en á þeim tíma hyggst ríkisstjórnin hafa tilbúnar tillögur sínar, sem miða að því að tryggja hinum lægst launuðu raunverulegar kjarabætur og koma í veg fyr ir áframhaldandi verðbólgu. Óhætt er að fullyrða að al- þjóð hafi fagnað þessu. Yfir- gnæfandi meiri hluti þjóðar- innar gerði sér Ijóst að kapp- hlaupið milli kaupgjalds og verðlags varð að hætta. Þrátt fyrir mótmæli launþegasam- takanna gegn stöðvunarfrum- varpinu, duldist fáum að það var sjálfsagt og eðlilegt. _ Hvorki launþegar né aðrir gátu grætt á því að víxl- hækkanir kaupgjalds og verð- lags héldu áfram. Með því var aðeins verið að höggva ný skörð í íslenzka krónu. ★ Það er mjög óhyggilegt at- ferli þegar blöð kommúnista og framsóknarmanna leggja höfuðáherzlu á það í gær, að ríkisstjórnin hafi „heykzt“ á stöðvunarfrumvarpinu. Sann- leikurinn í málinu er auðvitað sá að ríkisstjórnin hefur allt- - af viljað vinna að stöðvun verðbólgunnar í friðsamlegu samstarfi við samtök laun- þega og framleiðenda. Þegar leiðtogar verkalýðssamtak- anna höfðu boðizt til þess að aflýaa verkföllunum og tryggja vinnufrið þann tíma sem ríkisstjórnin hyggzt nota til þess að undirbúa tillögur sínar, hlaut hún að sjálfsögðu að taka tilboði þeirra. Annars má Viðreisnar- stjórnin að sjálfsögðu vel við una að Framsóknarmenn og kommúnistar eigni henni einni allan heiður af því að tekizt hefur að tryggja vinnu- frið og koma í veg fyrir átök, sem alltaf hljóta að hafa ó- heillavænlegar afleiðingar. Ríkisstjórnin mun halda áfram að framkvæma skýrt markaða stefnu sína. Vinnu- friður, atvinnuöryggi, aukn- ing framleiðslunnar og jafn- vægi í íslenzkum efnahags- málum eru kjarni viðreisnar- stefnunnar. SAMEINAST ÍSLENZKU FLUGFÉLÖGIN? Fhugfélag íslands hefur nú 1 ákveðið að segja sig úr IATA, alþjóðafélagi flugfé- laga. Mun Flugfélagið hafa tekið þessa ákvörðun til þess að bæta samkeppnisaðstöðu sína við Loftleiðir á flugleið- inni frá íslandi til meginlands Evrópu. En undanfarin ár hefur sú stefna verið ráðandi að fargjöld íslenzku flugfé- laganna til og frá Evrópu skyldu vera þau sömu og á- kveðin eru innan IATA. Nú hafa Loftleiðir hins vegar lækkað fargjöld sín á þessari leið verulega, og telur því Flugfélag íslands að það geti ekki gert hvort tveggja í senn, að standa við skuldbinding- ar sínar í IATA, og halda jafn framt samkeppnisaðstöðu sinni á fyrrgreindri flugleið. í þessu sambandi verður að minnast þess, að íslenzku flugfélögin eiga nú bæði í harðri samkeppni við hin stóru erlendu flugfélög. SAS hefur eins og kunnugt er tek- ið upp flugferðir með skrúfu- vélum yfir Atlantshaf til Bandaríkjanna með mjög lækkuðum fargjöldum. Er þessum ferðum beinlínis beint gegn Loftleiðum, sem njóta mikilla vinsælda fyrir hinar ódýru ferðir sínar. Fyr- ir skömmu hefur svo Pan American hafið áætlunarferð ir með þotum frá New York um ísland til Bretlands. Hafa þær ferðir að sjálfsögðu í för með sér aukna samkeppni við bæði íslenzku flugfélögin. Undanfarin ár hafa oft ver- ið uppi tillögur um að ís- lenzku flugfélögunum bæri að sameinast, fyrst og fremst í þeim tilgangi að styrkja að- stöðu sína í samkeppninni út MIKILL fögnuður ríkti í Lengede í Vestur-Þýzka- landi s.I. fimmtudag, en þá tókst að bjarga 11 mönn- um, sem verið höfðu lokað ir niðri í járnnámu, 62 metra undir yfirborði jarð ar, í 14 sólarhringa. 24. október s.l. brast stífla við námuna og 600 rúmmetrar vatns flæddu niður í námu- göngin. 50 menn voru að störfum í námunni þegar slysið varð. 7 þeirra tókst að bjarga þegar í stað og strax eftir slysið tóku björgunar- menn að bora niður í námu- göngin til þess að reyna að fá vitneskju um hvort menn væru á lífi í námunni. Brátt náðist samband við þrjá menn, sem voru innilokaðir á lítilli klettasyllu og var þegar hafizt handa um að bjarga þeim, en björguninni var ekki lokið fyrr en föstu- daginn 1. nóvember. Meðan á björgun mannanna þriggja stóð, var haldið áfram að bora smá holur niður að námu göngunum í von um að fleiri væru á lífi, en þessar tilraun- ir báru ekki árangur fyrr en laugardaginn 2. nóvember. Þá heyrðist til manna niðri í námunni, og er nánari fregn- ir bárust, kom í ljós, að þar voru 11 menn á lífi. Hafði þeim tekizt að komast inn i litla sprungu, sem myndaðist ofan á gömlum námugöng- um, -er féllu saman daginn áður en slysið varð. Menn- irnir höfðu verið innilokaðir í 9 sólarhringa í holunni, sem er fimm metrar á lengd. tveir metrar á breidd og þrír metr ar á hæð. Hitinn í holunni var milli 11 og 12 gráður. Áður en sími var sendur nið- ur til mannanna 11, töluðu þeir við aðstandcndur sína í gegnum 5 cm. holuna. á við. Upp á síðkastið hafa sameiningarraddirnar orðið ákveðnari og nauðsynin á sameiningu félaganna talin brýnni en áður. Á það skal ekki lagður neinn endanleg- ur dómur hér. En auðsætt er að síharðnandi samkeppni hinna stóru erlendu flugfé- laga við okkar íslenzku flug- félög hefur breytt nokkuð við horfunum í þessum málum. Mennirnir voru matarlausir allan tímann, en höfðu nóg súrefni og dálítið vatn. Talið er, að það hafi fyrst og fremst bjargað þeim, að loftið í hol- unni var rakt, því að auð- veldara er að lifa matarlaus í röku lofti en þurru. Talsvert grjót hrundi úr lofti holunnar ofan á menn- ina og tveir þeirra meiddust nokkuð af þeim sökum. Þegar frétzt hafði af mönn- unum var boruð til þeirra hola, um 5 cm í þvermál, niður um hana rennt röri og um það síðan léttri fæðu, lyfjum o.fl. í smáum pökk- um. Síðan var hafizt handa um að bora stærri holu, um GÆTIÐ VARÚÐAR ITvert banaslysið á fætur öðru verður á vegunum í nágrenni höfuðborgarinnar. Bifreiðir aka á hús og stór- meiðslum og áverkum fjölgar. Fram undan er versnandi færð á vegunum eins og jafn- an er á vetrum. Það er því 15 cm í þvermál, og um hana var m.a. sendur símastreng- ur og járnrör og vír, sem mennirnir notuðu til þess að styrkja loft holunnar og veggi til varnar grjóthruni. Læknar og tæknifræðingar höfðu nær stöðugt samband við menn- ina, en á morgnana og kvöld in fengu nánustu ættingjar þeirra að tala við þá. Sá elzti þeirra, sem í hol- unni voru, er Fritz Bar 53 ára, en sá yngsti Adolf Herbst 20 ára, rafvirki frá Hannov- er. Þetta var í fyrsta skipti, sem Herbst fór ofan í námu. Þegar fréttist að hann var á lífi, kom unnusta hans og Framh. á bls. 31 vissulega ástæða til þess, að hvetja stjórnendur ökutækja og vegfarendur til aukinnar varúðar. Þúsundir barna fara nú einnig á hverjum degi til og frá heimili sínu og skóla. Það verður ekki nógsamlega brýnt fyrir foreldrum barn- anna að innræta þeim varúð og ábyrgðartilfinningu í um- ferðinnL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.