Morgunblaðið - 14.11.1963, Qupperneq 6
6
MORGUN BLAÐIÐ
Fimmtudagur 14. nov. 1963
Varnargar&ar fyrir Vík
í Mýrdal og Álftaverið
RAGNAR JÓNSSON (S) fylgdi
úr hlaði með jómfrúrræðu til-
lögu til þingsályktunar um
vamir hyggða í Álftaveri og Vík
í Mýrdal gegn hugsanlegu
tjóni af völdum Kötluhlaups, en
hana flytur hann ásamt Sigurði
Ó. Ólafssyni.
Rakti R. J. í upphafi ræðu
sinnar það tjón sem Katla hefði
valdið allt frá landnámstíð.
Fyrsta gosið sem vitað væri um
hefði orðið árið 894 en síðan
hefði Katla gosið 15 sinnum, nú
síðast árið 1918.
Til væru góðar
heimildír um
Kötlugosin frá
upphafi íslands-
byggðar, skráð-
ar af Markúsi
Loftssyni, bónda
í Hjörleifshöfða.
Markús hefði
gefið út bók ár-
ið 1880, sem hann nefndi Rit
um jarðelda á íslandi. Væri þax
mikinn fróðleik að finna um
hvernig jökulhlaupin, sem jafn-
an fylgja Kötlugosunum og
venjulega hafa átt sér stað
tvisvar á öld, smáeyddu lend-
inu og skópu þá eyðimörk, sem
í dag nefnist Mýrdalssandur.
Nefndi R. J. tvö dæmi úr fyrr-
nefndri bók Markúsar Loftsson-
ar sem sýndu á áþreifanlegan
hátt hvernig Katla hefði á liðn-
um öldum leikið Álftaverið og
nærliggjandi héruð.
Nú væru 11 byggðar jarðir
í Álftaveri búskapur góður og
afkoma fólksins sízt verri en
annars staðar. Það væri því full
ástæða til að tryggja framtíð
þessarar sveitar með ýmsum
ráðstöfunum.Að öllum líkindum
yrði Álftaverið umflotið ef
Kötluhlaup ætti sér stað. í Álfta
veri hefði fyrir nokkrum árum
verið gerður flugvöllur og kvað
Sjö mál í Sam. þingi
SJÖ mál voru tekin tii meðferð-
ar á fundi í Sameinuðu þingi í
gær, ein fyrirspurn og sex þings-
ályktunartillögur. Fyrirspurnin
var frá Eysteini Jónssyni og
varð Ingólfur Jónsson landbún-
aðarráðherra fyrir svörum. —
Þingsályktunartillögurnar voru
um varnir gegn tjóni af völdum
Kötluhlaups, samgöngubætur á
Fjallabaksleið hinni nyrðri og
hafði Ragnar Jónsson, 11. lands-
kjörinn framsögu fyrir þeim
báðum. Var fyrri framsagan
jafnframt jómfrúrræða þing-
mannsins. Einnig voru ræddar
þingsályktunartillögur um Bú-
fjártryggingar, framsögumaður
Ásgeir Bjarnason, um trygg-
ingasjóð fyrir landbúnaðinn,
framsögumaður Björn Jónsson,
um Vesturlandsveg, framsögu-
maður Jón Skaftason og um nýja
þjóðhagsáætlun fyrir árin 1964—
68, framsögumaður Helgi Bergs.
Eysteinn Jónsson (F) bar
fram fyrirspurn um hvað liði
framkvæmd eftirfarandi þings-
ályktunar:
„Alþingi ályktar að fela rikis-
stjórninni að láta svo fljótt sem
verða má, mæla, vegna fram-
ræslu, allt ræktanlegt votlendi
á Fljótsdalshéraði og gera áætl-
un um, hvað kosta muni að
þurrka þetta land.“
Ingólfur Jónsson, landbúnaðar-
ráðherra, varð fyrir svörum og
kvaðst hafa skrifað landnámsstj.
og Búnaðarfélagi íslands og ósk-
að upplýsinga hjá þeim og á-
bendingar um á hvern hátt lík-
legast væri að framkvæma þessa
tillögu, ekki aðeins á Fljótsdals-
héraði, heldur og víðar. Framan-
greindar stofnanir hefðu tekið
þetta mál til yfirvegunar og nið-
urstöður þessara stofnana væru
að uppmæling á þeim grund-
velli ,sem þingsályktunin gerir
ráð fyrir, væri svo umfangsmjk-
il að hvorki Búnaðarfélag ís
lands né Landnám ríkisins hafi,
að óbreyttum aðstæðum, mann-
afla eða fjárráð til að fram-
kvæma þetta verkefni eins og
þingsálytkunin legði til. Hins
vegar töldu þessar stofnanir að
ná megi sama marki með t. d.
staðbundnum rannsóknum á
hverri jörð og að héraðsráðu-
nautar héraðsins framkvæmdu
þetta verk. Búnaðarfélagið og
Landnám ríkisins hefði einnig
lagt til að slíkar athuganir fari
fram í öðrum héruðum, jafnvel
þótt ekki komi fram sérstakar
óskir um það. Að lokum kvaðst
ráðherrann ætla að ræða frekar
við þessar stofnanir og aðrar
stofnanir landbúnaðarins um það
á hvern hátt hentugast væri að
framkvæma þessar tillögur.
Eysteinn Jónsson þakkaði
landbúnaðarráðherra fyrir svör-
in og bar fram þá ósk að ráð-
herrann ræddi þessi mál við
þingmenn Austfjarða áður en
frekari ákvarðanir yrðu teknar.
ræðumaður svo geta farið að
einu samgöngumöguleikar Álft-
veringa yrðu um þennan flug-
völl um tíma. Það væri því nauð
synlegt að flugvöllurinn væri
gerður eins öruggur gegn jökul-
hlaupi sem unnt væri. Verk-
fræðingar á vegum vegamála-
skrifstofunnar hefði gert þarna
nokkrar athuganir. Þær athug-
anir benda til þess sagði R. J.
að með tiltölulega litlum kostn-
aði væri mögulegt að reisa
varnargarða á tveim stöðum.
Ennfremur mundi það auka all-
verulega á öryggi Álftaversins
með nýjum varnargarði við ána
Skálm.
Vék þingmaðurinn þvi næst
að vörnum fyrir Víkurkauptún
í Mýrdal en þær kvað hann
ekki síður nauðsynlegar, þar eð
hættan í Vik af Kötluhlaupi
væri sízt minni en í Álftaveri.
í mörgum Kötlugosum, hefði
flóðið komið vestur með Höfða-
brekkuhálsi út með Víkurhömr-
um og alla leið vestur að Reynis
fjalli og flætt yfir sandsléttuna,
sem þorpið hefði að mestu
byggzt á. Slíkt hefði komið fyrir
árin 1755, 1823, 1860 og litlu
hefði munað árið 1918. Öll ný-
byggðin, sem risið hefði upp
hin síðustu ár, væri að heita á
þessari framangreindri sléttu.
Þar væru auk íbúðarhúsa, öll
verzlunarhús staðarins vöru-
geymslur, verkstæði og tvö
frystihús sem mestan hluta árs-
ins væru full af kjötvörum, er
væru margra milljóna króna
virði. Til að koma við vörnum
gegn Kötluhlaupi kvað ræðu-
maður það nauðsynlegt að gerð-
ur yrði varnargarður milli
Höfðabrekkuháls og svokallaðs
Höfðabrekkuj ökuls.
Að lokum kvað þingmaðurinn
hér um vandamál að ræða, sem
flutningsmenn þessara þings-
ályktunartillögu teldu nauðsyn-
legt að taka til athugunar án
tafar.
Var samþykkt að lokinni ræðu
framsögumanns að vísa tillög-
unni til fjárveitinganefndar og
umræðu frestað.
Jólaþyrnar í Hafnarfirði
ÆFINGAR hafa nú staðið
yfir í langan tíma hjá Leik-
félagi Hafnarfjarðar en þetta
leikfélag hefur um árabil ver-
iff eitt öflugast og dugmesta
leikfélag utan Reykjavíkur.
í næstu viku mun félagiff frum
sýna leikritiff Jólaþyrna, eftir
enska skáldiff Wynyard Brow-
ne, í þýffingu Þorsteins Ö.
Stephensen leikara. Leikstjóri
er Klemenz Jónsson. Affal-
hlutverkin eru leikin af Gesti
Pálssyni, Emilíu Jónasdóttur,
Auróru Halldórsdóttur Jó-
hönnu Norfffjörff, Auffi Guff-
mundsdóttur og fl.
Gestur Pálsson hefur lítiff
leikið á leiksviði hin síðari
ár og munu margir hafa gam-
an af aff sjá þennan vinsæla
og á.gæta leikara aftur á leik-
sviði í affalhlutverki. Leikritið
„Jólaþyrnar” fjallar um enska
prestsfjöldskyldu og leikur-
inn gerist um jól á aðfanga-
dag og jóladag.
Myndin er af Jóhönnu Norff-
fjörff, Gesti Pálssyni og Sig-
urði Kristinssyni.
Gunnar G. Schram
formaður Stúd-
entafélags Reykja
víkur
AÐALFUNDUR Stúdentafélags
Reykjavíkur var haldinn laugar-
daginn 2. nóvemiber s.l. í Háskól
anum.
Fráfarandi formaður, Einar
Benediktsson, bagfræðingur,
flutti yfirlit urn störf stjórnar-
innar á síðasta ári, en það var
mjög fjölbreytt. Voru haldnar
kvöldvökur og umræðuifundir og
unnið að ýmsum hagsmunamál-
um félagsins.
Formaður félagsins var kjör-
inn dr. Gunnar G. Söhnam, rit-
stjóri, en auk hans skipa hina
nýju stjórn félagsins Axel Ein-
Dr. Gunnar G. Schram
arsson hd'l., varaformaður, Ólaf
ur W. Stefánsson lögfr. gjald-
keri, Jón Ólafsson lögfr. ritari
Framhald á bls. 23.
Ótti barna við hunda
Móðir skrifar:
„Kæri Velvakandi!
Það var víst orðið útrætt
um hundinn, þ.e.a.s. hundahald
í borginni, en samt vona ég að
þessar línur fái inni. Ég ræði
ekki um sóðaskapinn, sem af
hundum getur stafað, heldur
önnur óþægindi, jafnvel hættu,
þótt óbeint sé. Ég á fimm ára
gamlan dreng, sem er yfir sig
hræddur við hunda. Við erum
nýlega flutt í annað hverfi en
við áttum heima í. í næsta húsi
er hundur, sem gengur oftast
laus. Drengurinn minn þorir
ekki að leika sér úti, ef hann sér
hundinn, og ég get ekki sent
hann út í búðir þótt mér liggi á,
því sjáf á ég ekki gott með að
komast út frá tveimur litlum
börnum.
^ Hljóp fyrir bíl
Annað dæmi get ég nefnt.
Ég átti áður heima inni í Vog-
um og var eitt sinn að koma frá
því að fara með börnin í ljós.
Þá var þessi drengur fjögurra
ára. Við gengum eftir -Langholts
vegi, sem er mikil umferðar-
gata. Þegar við komum á móts
við raðhús, sem eru við veginn,
veit ég ekki fyrr til en drengur-
inn slítur sig lausan og æðir í
í blindni út á götuna. Litlu mun
aði að hann lenti þar undir bíl,
snarræði bílstjórans eitt bjarg-
aði í það skiptið. Ástæðan til
þessara snöggu viðbragða
drengsins var hundur bundinn í
tjóðurband við eitt húsið. Lái
mér svo hver sem vill að ég sé
á móti hundahaldi hér í borg-
Slæm gangstétt á mesta
umferðarhorni íslands
„Gamli Velvakandi!
Að vera stuttorður en
gagnorður er aðalatriðið, sagði
góður Hafnfirðingur við mig
um daginn, og mér fannst endi-
lega að ég hefði ekki heyrt
þetta lengi og vera orð
í tíma talað, þegar þingmenn
verða gripnir slíku málæði að
þeim nægir knapplega 4 klst. til
einnar ræðu.
Ég skal vera stuttorður og
gagnorður. — Ég vildi biðja þa,
sem húsum ráða í borgarskrif-
stofunum í því gamla góða húsi
Reykjavíkurapóteki, að skoða
ástand gangstéttarinnar á þessu
mesta umferðarhorni íslands.
— Ef þeir ekki vita hvernig því
er háttað, þá er þess að geta,
að borgaryfirvöldin mundu
auðveldlega geta skapað sér
skaðabótaskyldu gagnvart þeim
vegfarendum sem yrðu fyrir
meiðslum vegna þess hve gang-
stéttin er með öllu óforsvaran-
leg og illa viðhaldið.
W\ X W rtr=x 1
ÞURRHLÖÐUR
ERL ENDINGARBEZXAR
BRÆÐURNIR ORMSSON hf.
Vesturgötu 3.
Simi 11467.