Morgunblaðið - 14.11.1963, Page 8
8
MORCUN BLAÐIÐ
Fimmtudagur 14. nóv. 1963
Haukur Eyjólfsson
HAUSTIÐ 1931 bættust í 2.
bekk Verzlunarskóla Islands
nokkrir nýir íiemendur, einkum
utan af landi. Meðal þeirra var
óvenjulega geðþekkur ungling-
ur frá Seyðisfirði. Bjartur yfir-
litum, fríður sýnum og knálegur.
Við nánari kynni kom raunar
í ljós, að Haukur Eyjólfsson
var þeim kostum búinn, sem
gerðu hann, svo að segja þeg-
ar frá upphafi, einn af máttar-
stólpum alls félagslífs í skólan-
um. Hæfileikar hans og áhugi
voru óvenjulega fjölþættir. Hann
var jafn liðtækur í ræðulist
Málfundafélagsins, í úrvalsflokki
íþróttamanna, karlakór, leik-
flokki, ritstjórn eða skemmti-
nefnd. Hann var alls staðar með
af lífi og sál og allstaðar í
fylkingarbrjósti. Ekki er svo að
skilja, að hann hafi tranað sér
fram. Til þess var hann að eðlis-
fari of hæverskur og sjálfgagn-
rýninn. Það kom bara einhvern-
veginn af sjálfu sér, að hann
veldist í hinar margvíslegustu
trúnaðarstöður, fleiri og fjöl-
breyttari en nokkur annar í
skólanum á þeim tíma. Fram-
koma hans var einlæg og eðlileg
við hvern mann, svo að hann
varð vinmargur og vinsæll.
Hann var meðal beztu náms-
manna bekkjarins.
Að loknu námi fór Haukur
fljótlega aftur heim til Seyðis-
fjarðar og vann þar við verzl-
unarstörf og fleira í nokkur ár.
Á þeim árum var hin fyrri gull-
öld Seyðisfjarðar löngu um garð
gengin og raunar hart í ári víð-
ast hvar á landinu. Ungum, á-
hugasömum manni sem Hauki,
var því eðlilegt að freista gæf-
unnar í höfuðborginni, þar sem
meira var umleikis, þótt sam-
keppni um hvert lífvænlegt starf
væri mikil. Þó fór svo, að á
fáum árum auðnaðist honum,
sem kom í bæinn með tvær
hendur tómar, að komast í nokk-
ur efni á þeirra tíma mælikvarða
Jafnframt öðlaðist hann mikla
þjálfun og reynslu á viðskipta-
sviðinu, fyrst sem starfsmaður
annara og síðar við rekstur eig-
in verzlunarfyrirtækis.
Þegar Hitaveita Reykjavíkur
var að komast á laggirnar, sem
sjálfstætt fyrirtæki, þótti for-
ráðamönnum hennar miklu
skipta að fá í sína þjónustu hæf-
an mann til að veita forstöðu
skrifstofu fyrirtækisins og ann-
ast hina mjög ört vaxandi við-
skiptahlið þess.
Nú var svo komið högum þjóð
arinnar að í stað þess að áður
hafði verið slegizt um hverja
stöðu, voru nú mörg boð í hvern
hæfan starfsmann. Um þetta
leyti stóð svo á fyrir Hauki, að
hann seldi eignarhluta sinn í
fyrirtæki því, er hann hafði um
skeið rekið með öðrum. Var
honum nú boðin staðan hjá
Hitaveitunni. Þar starfaði hann
svo fyrst sem fulltrúi og síðan
sem skrifstofustjóri, þangað til
hann var skipaður skrifstofu-
stjóri Innkaupastofnunar Reykja
víkurborgar, þegar hún var end
urskipulögð á árinu 1959 og
gegndi þeirri stöðu, þar til nú
fyrir skemmstu. Hinn 1. nóv-
ember s.l. urðu enn þáttaskil í
starfsferli Hauks, er hann tókst
á hendur starf í lögfræðifyrir-
tæki Eyjólfs Konráðs Jónsson-
ar og Jóns Magnússonar, en ör-
lögin höguðu því svo, að hann
hafði aðeins gegnt því í rétta viku
er hann svo skyndilega féll frá.
Hér hefur verið brugðið upp
ófullkominni mynd af náms- og
starfsferli Hauks Eyjólfssonar.
En ekki væri síður ástæða til að
geta að nokkru hinna mörgu
áhugamála hans á sviði félags-
mála. Eins og áður er að vikið
kom þessi áhugi hans þegar í
Ijós á skólaárunum og fylgdi hon
um alla ævina. Hann var góð-
ur og fjölhæfur íþróttamaður,
sem frekar sóttist eftir ánægju
og þroskandi áhrifum leiksins
og góðs félagsskapar, en metum
og frægð. Þetta viðhorf varð
einnig táknrænt fyrir aðra félags
málastarfsemi Hauks. Það er al-
kunna, að í flestum félögum
lendir það á tiltölulega fámenn-
um hópi manna að vinna að
málum félagsheildarinnar. Hauk
var ávallt að finna í hóp
þessara fáu fórnfúsu manna.
Hann gegndi mörgum trúnaðar-
og ábyrgðarstörfum fyrir íþrótta
samtökin, og mun sú saga vafa-
laust verða sögð af mér kunn-
ugri mönnum. Hann átti lengi
sæti í fulltrúaráði og stjórn
Starfsmannafélags Reykjavíkur-
borgar og var um skeið formað-
ur Austfirðingafélagsins, svo
nokkuð sé nefnt.
Samferðamenn Hauks á lífs-
leiðinni munu ávalt minnast
hans með hlýjum hug og þakk-
læti fyrir samfylgdina. Skóla-
systkin, félagar og vinir sakna
hans sárt, en sameinast um að
votta konu hans, sonum, tengda-
dóttur, barnabörnum og systkin-
um, samúð í harmi þeirra.
Hjálmar Blöndal
F. 16. marz 1915. D. 7. nóv. 1963.
„Gott er gjafa
Guðs að minnast“.
HANN var fæddur og alinn upp
á Seyðisfirði og bar um svipmót
og persónu mörg hin beztu ein-
kenni ætta sinna og æskustöðva.
Foreldrar hans voru hin kunnu
merkishjón, Eyjólfur Jónsson,
bankastjóri og ljósmyndari, og
Sigríður Jensdóttir.
Hann var elztur fimm barna
þeirra hjóna og eru systkin hans
öll búsett hér í borg.
í vöggugjöf hlaut Haukur hið
bezta atgervi til líkama og sálar,
og var alla tíð augasteinn og ljúf-
lingur foreldra sinna og systkina.
Ungur gekk hann í Verzlunar-
skóla íslands og lauk þaðan á-
gætu burtfararprófi vorið 1933.
— Næstu árin starfaði hann í átt-
högum sínum, en fluttist síðan til
Reykjavíkur og vann hér að
verzlunar- og skrifstofustörfum
til æviloka. — Var m. a. um langt
skeið fulltrúi í skrifstofu Hita-
veitu Reykjavíkur.
En það voru ekki aðeins tölur
og tungumál, sem léku honum í
huga og höndum, heldur var
hann listfengur og smekkvís, og
hagur á hvað sem hann tók hönd-
um til.
í æsku lagði Haukur stund á
íþróttir — einkum knattspyrnu
— og eftir að hingað kom starf-
aði hann mikið fyrir knattspyrnu
félagið Víking og átti löngum
sæti í stjórn þess. — Annars var
Haukur sérstakur félagsdrengur,
hjálpfús og ósérhlífinn. Sparaði
hann hvorki fé né tíma í þágu
þeirra málefna, er hann beitti
sér fyrir.
Haukur kvæntist 7. des. 1946,
Ragnhildi Guðmundsdóttur frá
Djúpavogi. Eignuðust þau tvo
efnilega sonu, Eyjólf og Guð-
mund, sem enn eru lítt af barns-
aldri komnir, en áður en Haukur
kvæntist eignaðist hann son,
Atla, sem eins og faðir hans, tók
verzlunarskólapróf og starfar að
endurskoðun — dugnaðar- og
dáðamaður.
Er frú Ragnhildur mikil ágætis
húsmóðir, sem studdi mann sinn
af trúfestu og drengskap er heilsu
hans fór hnignandi hin síðari ár.
Eiga frændur þeirra og vinir,
eldri og yngri, margra góðra
stunda að minnast á hinu hlýja
og smekklega heimili þeirra að
Miðtúni 58.
Og margir munu þeir verða, er
sakna vinar í stað, þar sem
Haukur Eyjólfsson er horfinn, en
óblandin samúð og indælar minn
ingar munu verma hugi ástvin-
anna, sem eftir standa.
Heimilisvinur.
F. 15.3 1915. D. 7.11. 1963
í DAG er til moldar borinn
Haukur Eyjólfsson, einn aí virk-
ustu og traustustu forystumönn-
um Knattspyrnufélagsins Vík-
ings. Haukur hefir í yfir 20 ár
samfellt starfað fyrir félagið af
einstakri ósérplægni og áhuga.
Hann hefir setið í stjórnum fé-
lagsins mikinn hluta þessa tíma-
bils, verið formaður þess í 3 ár,
formaður fulltrúaráðs félagsins
lengur en nokkur annar og var
aðalgjaldkeri félagsins síðustu 3
árin, allt til dauðadags. Auk
þess hefir Haukur gegnt fjöl-
mörgum trúnaðarstörfum fyrir
félagið og íþróttasamtökin í heild
sem hann rækti öll af sömu
kostgæfni, enda hafði hann hlot-
ið heiðursmerki Víkings úr gulli
fyrir störf sín.
Þegar vér félagar Hauks l
Viking kveðjum hann nú hinzta
sinni, sendum vér honum vorar
innilegustu þakkir fyrir fram-
lag hans til félagsins. Við fjór-
ir, sem sitjum eftir í aðalstjórn
félagsins, hörmum hið sviplega
fráfall hans og þökkum honum
samveruna.
Vér sendum ekkju þessa góða
félaga og fjölskyldu hans hjart-
anlegar samúðarkveðjur.
Ólafur Jónsson
DOMUR
Hafið þið kynnt ykkur hina víðfrægu
jerseykjóla frá:
^yQíunclc
co
Kjólana, sem þekktir eru að gæðum um
heim allan. — Margar gerðir. — Margir
litir. — Allar stærðir.
Einkaumboð á íslandi.
Tízkuverzlunin Guðrún
Kauðarárstíg 1.
/
Guðrúnarbúð
á Klapparstígnum
hefur svo oft áður haft á boðstólum alveg
sérstaklega fallegar regn- og ullarkápur,
en þar er nú meira úrval á boðstólum af
vetrar- og regnkápum en nokkru sinni
fyrr, sérstaklega viljum við vekja athygli
yðar á nýju sendingunni af svissnezkum
regnkápum með kuldafóðri.
Klapparstíg 27.