Morgunblaðið - 14.11.1963, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur !4. nóv. 1963
Nóbelsverðlaun
í eðlis- og efnafræði
í SÍÐASTLIÐINNI viku var
úthlutað Nóbelsverðlaunum í
eðlis- og efnafræði. Eðlisfræði
verðlaununum var skipt milli
þriggja vísindamanna. Heim-
ing þeirra hlaut Eugen P.
Wigner, prófessor í Princeton
í Bandaríkjunum, en hinum
helmingnum var skipt milli
Mariu Göppert-Mayers, pró-
fessors við Kaliforníuháskóla,
og Hans D. Jensens, prófess-
ors við háskólann í Heidel-
berg. Wigner hlaut verðlaunin
fyrir rannsóknir á byggingu
frumeindanna, en Maria Göpp
ert-Mayer og Hans D. Jensen
fyrir rannsóknir á frumeinda-
kjarnanum.
Nóbelsverðlaununum í efna
fræði var skipt milli Karls
Ziegler, prófessors við Max
Planck-stofnunina í Ruhr og
Giulio Natta, prófessors við
tækniháskólann í Mílanó.
Þeir hafa m.a. fundið nýjar
aðferðir til plastframleiðslu.
Eugen P. Wigner
er 61 árs, fæddur í Ung-
verjalandi. Hann hlaut mennt
un .sína í Búdapest og Berlín,
og 1928 var hann skipaSur
dósent við tækniháskóla
Berlínar. 1930 fluttist Wigner
til Bandaríkjanna og hefur
síðan verið prófessor í eðlis-
fræði við Princeton-háskóla.
Árið 1958 hlaut Wigner
Fermi-verðlaunin og tveimur
árum síðar atómfriðarverð-
launin ásamt þremur öðrum.
Það var 1957, sem tveir kín-
verskir vísindamenn sýndu
fram á, að frumeindakjarn-
inn er ekki samloka, eins og
áður var talið. Það er að segja,
hvor helmingur kjarnans send
ir frá sér geisla á mismunandi
hátt. Kínverjarnir Yang og
Lee hlutu Nóbelsverðlaun fyr-
ir þessa uppgötvun sína.
Giulio Natta
Eugen P. Wigner
Nú hefur Wigner sannað, að
þessar rannsóknir opna leið-
.IWBMi
ina til skilnings á eðli frum-
agnanna og hefur sýnt það
með einföldum tilraunum. í
allt hafa fundizt 34 frumagnir,
en þær splundrast á broti úr
sekúndu, ef skotið er á þær
með öðrum ögnum á miklum
hraða.
Maria Göppert-Mayer
er önnur konan, sem
hlýtur Nóbelsverðlaun í eðlis-
fræði. Marie Curie hlaut þessi
verðlaun 1903 ásamt manni
sínum og efnafræðiverðlaun
hlaut hún 1911. Dóttir Marie
Curie, Marie Joliot-Curie,
hlaut efnafræðiverðlaunin
1935 ósamt manni sínum.
Maria Göppert-Mayer er 57
ára, fædd í Kattowits. Hún
stundaði nám í Þýzkalandi, en
á árum síðari heimsstyrjaldar-
innar kom hún til háskólans í
Columbia í Bandaríkjunum og
starfaði þar til 1960, er hún
var ráðin til Kaliforníuhá-
skóla.
Hans D. Jensen
er fæddur í Hamborg
1907. 1935 varð hann dósent
við háskólann í fæðingaborg
sinni. Hann fluttist til Hann-
Hans D. Jensen hafa bæði sett
fram nýjar kenningar um lög-
un frumeindakjarnans. Fyrr
töldu menn, að hann væri í
laginu eins og dropi, en nú er
talið fullvíst, að hann líkist
skál.
Margir eðlisfræðingar höfðu
lengi vitað, að þannig var í
pottinn búið, en kenningarnar
sem settar voru fram reynd-
ust rangar, þar til Nóbelsverð-
launahafarnir tveir, sýndu á
opinberum vettvangi líkön,
sem þeir höfðu gert af frum-
eindakjarnanum. Ekki höfðu
Maria Göppert-Mayer og Hans
D. Jensen samstarf um rann-
sóknir sínar, en 1955 gáfu þau
sameiginlega út bók þar að
lútandi.
Karl Ziegler,
prófessor við Max Planck
stofnunina, er fæddur í Hess-
ÍSIÍilÍS
Karl Ziegler
over 1941, og þar bjó hann og
starfaði þar til hann varð pró-
fessor við háskólann í Heidel-
berg 1949.
Maria Göppert-Mayer og
Maria Göppert-Mayer
en. Hann er 65 ára og hefur
gegnt prófessorsembættum við
háskólana í Marburg og
Heidelberg. Árið 1955 fann
Ziegler nýja aðferð til þess að
breyta lofttegundinni ethylen
í polyethylen, en það efni er
mest notað við plastfram-
leiðslu. Áður en Ziegler fann
upp hina nýju aðferð sína, fór
' Hans D. Jensen
þessi breyting fram við loft-
þrýsting, sem er 1000—2000
hærri en í andrúmsloftinu. —
Með aðferð Zieglers fer hún
fram við lágan loftþrýsting og
það gefur efninu nýja eigin-
leika.
Vegna uppgötvunar Zieglers
hefur orðið kleift að framleiða
gúmmílíki, sem hefur nær
alla eiginleika gúmmís.
Giulio Natta
er 60 ára, fæddur á Ítalíu
og hefur gegnt prófessorsemb-
ættum í Pavia, Turin og Róm,
en nú er hann yfirmaður iðn-
aðarefnafræðideildar tæknihá
skólans í Mílanó.
Rannsóknir Natta eru á
sama sviði og rannsóknir
Zieglers og hann hefur fundið
aðferð, sem gerir kleift að
hafa áhrif á byggingu líf-
rænna sameinda. Hann hefur
getið sér mestrar frægðar fyr-
ir að finna upp plastefnið
polypropylen.
Rannsóknir tveggja síðast-
nefndra vísindamanna, hafa
ekki aðeins haft mikla þýð-
ingu fyrir plastiðnaðinn. Þæi
hafa einnig komið að gagni í
sambandi við framleiðslu
þvottaefna og eldsneytis. Þeir
hafa enga samvinnu haft og
hittast í fyrsta sinn á Nóbels-
hátíðinni í Stokkhólmi 10. des-
ember.
N
-j
Nýr hdtur til Breiðdolsvíkur
Kirkjukórasamband Reykjavikur
BREIÐDADSVÍK, 12. nóv. — Kl.
tæplega 9 í morgun sigldi hið
nýja stálskip Hraðfrystihús
Breiðdælinga h.f., Sigurður Jóns
son SU 150, fánum skrýddur að
bryggju í heimahöfn, Breiðdals-
vík, eftir 54 tíma siglingu frá
Haugasundi. Frá Færeyjum
Frít Guðrún
Hannesdóttir
látin
í FYRRAKVÖLD lézt í Borgar-
sjúkrahúsinu frú Guðrún Hann-
esdóttir kona Páls Zóphonias-
sonar fyrrum alþingismanns og
búnaðarmálastjóra.
Frú Guðrún var fædd 11. maí
1881 í Deildartungu, dóttir Hann-
esar Magnússonar bónda og
hreppstjóra þar. Hún giftist Páli
Zóphoniassyni 4. maí 1912 og
eignuðust þau hjón 6 börn, sem
öll eru á lífi. Þau hjón bjuggu
fyrst á Hvanneyri, þar sem Páll
var kennari, en síðar að Hólum
í Hjaltadal frá 1920—28, er Páll
var skólastjóri þar. Frá 1928
hafa þau búið hér í Reykjavík.
Frú Guðrún tók mikinn þátt
í ýmisskonar félagsstarfsemi,
vann t.d. mikið í Guðspekifélag-
inu, ungmennahreyfingunni o.fl.
Frú Guðrún Hannesdóttir var
mikilvirk sæmdarkona og átti
fjölda vina og aðdáenda.
Útför Guðrúnar verður gerð
frá Dómkirkjunni n.k. þriðju-
dag.
fengu þeir 7-8 vindstig og brælu
og telja skipverjar skipið hið
bezta sjóskip. Báturinn er smíð-
aður í Aavalgsnes við Hauga-
sund, byggður eftir ströngustu
kröfum norska Veritas og búinn
öllum fullkomnustu fiskileitar-
og siglingatæikjum með kældri'
lest og frystigeymslu fyrir línu-
stampa. Stærð bátsins er 193
tonn brúttó, búinn 600 ha Lister-
Blaskstone dieselvél og 62 ha.
lítilli hjálparvél. íbúðir skip-
verja 1-3 manna klefar, alls fyrir
13 menn. Áhöfn í heknsiglingu
var 7 manns. Skipstjóri er Svan-
ur Sigurðsson, Breiðdalsvík og
1. vélstjóri Garðar Þorgrímisson,
Breiðdalsvík.
Fjöldi fólks fagnaði skipi og
skipshöfn, bæði börn og fullorðn
ir, þrátt fyrir norð-austan kuilda
og snjókomu. Báturinn fer á
næstu dögum á línuveiðar.
— P.G
Tekinn fyrir
leynivínsölu á
dansleik
BORGARNESI, 12. nóv. — Fyrir
nokkru var leynivínsali tekinn
á dansleik í Borgarnesi af héraðs
lögreglunni. Maðurinn hefur ját-
að sekt sína.
Það liggur þegar fyrir, að hann
hefur selt a.m.k. 5 flöskur af
áfengi, þar af 4 til unglinga.
Málið er til frekari rannsókn-
ar.
KIRKJUKÓRASAMBAND Rvík-
ur hefir ráðið til sín söngkenn-
ara, frk. Bente Ruager. Er hún
dönsk og hefir um nokkurt ára-
bil þjálfað kóra í Danmörku. —
Hún er ráðin til kirkjukórasam-
bandsins í Reykjavík í 5 mánuði
og mun þjálfa hina 10 kóra sam-
bandsins. Auk þessara kóra
kennir frk. Ruager við filhar-
moníukórinn, kennir guðfræðing-
um við Háskólann og nemendum
í Hagaskóla.
Kirkjukórasambad Reykjavík-
ur er á þessu ári 15 ára og í
því sambandi hefir það afmælis-
fagnað fimmtudaginn 14. nóv. í
Sigtúni (Sjálfstæðishúsinu). —
Efnisskrá afmælisfagnaðarins
verður sem hér segir. Ræðu flyt-
ur dr. Páll ísólfsson tónskáld.
Inga María Eyjólfsdóttir syngur
einsöng, en hún er memandi
Maríu Markan, sem annast und-
irleik fyrir hana. Þá syngja þeir
Friðrik Eyfjörð og sr. Hjalti
Guðmundsson gluntana við und-
irleik dr. Páls ísólfssonar. Enn-
fremur syngur frk. Benta Ruager
einsöng með aðstoð dr. Róberts
A. Ottóssonar söngmálastjóra. Þá
syngja kirkjukórarnir saman
nokkur lög. Að lokum verður
dansað.
Ljósm. Mbl. tók þessa mynd i
Austurbæjarskólanum í gær þar
sem frk. Bente Ruager (í miðju)
var að þjálfa konur úr einum
kirkjukóranna í Reykjavík.