Morgunblaðið - 22.11.1963, Page 17
Föstudagur 22! t«(v. 1963
MORGUNBLAÐIÐ
17
Berglfót Helgadóttir
Minming
Sem fagurt lag við fallegt kvæði
var fagur látlaus hugur þinn.
Mér fannst þú bezt þín njóta í
næði
þar næðing lagði sjaldnast inn.
l»ar ein þú taldir tár og blóm
í tryggðar þinnar helgidóm.
Það var eitthvað á I ssa leið,
®em bærðist mér í muna, þegar
fregnin barst um, að Bergljót
væri dáin.
Hún virtist enn svo ung og
eiga svo margt eftir ógert í kær-
leiksþjónustu sinni við heimili
íitt og ástvini'sína alla, ekki sízt
sonabörnin öll. En fyrir þau lifði
hún í ástúðlegri umönnun hin
síðari ár, eftir að drengirnir
hennar voru ekki lengur börn.
Hún elskaði börn og blóm,
yfirleitt allt, sem brosir, grær
og skín. Hún var ein af þess-
um hljóðlátu vorsálum á vegi
samferðafólksins. Svipurinn bjart
ur og hreinn, ennið hvelft og
hátt, augun hlý, brosið milt.
Hún var fyrst og fremst hús-
freyja, sem með hóglátum orð-
um og háttvísri framkomu veitti
heimilisfólki sínu þann þokka
©g frið, sem stöðugt verður fá-
gætari mitt í auðsæld og vel-
megun þjóðarinnar.
Umhverfis hana var alltaf ljúf
leg gróandi. Þar var garðurinn
kringum húsið bezti mælikvarð-
inn fyrir augum vegfarandans
©g samferðafólksins. Ilmur blóm
snna barst að vitum allra sem
nálguðust, og samræmisbundin
litasamsetning blómanna bar
vott um næmt fegurðarskyn
þeirra, sem þar bjuggu og störf-
uðu. Hún Bergljót umgekkst
blóm og jurtir eins og manneskj-
ur af nærfærni og skilningi. Hún
þekkti nafn hverrar plöntu og
vissi hvað henni hæfði bezt til
vaxtar og hagsældar, og svo var
það veitt með hóglæti og ör-
læti.
HERRA- OG DRENGJA-
VESXI I MIKLU ÚRVALI
VETRARFRAKKAR —
PEVSUR — SKYRTUR
HERRAFÚT
Ilafnarstræti 3.
Sími 22453.
Hún gætti hins sama í uppeldi
sona sinna. Og þar varði hún
illgresi öllu vaxtar eins og í
garðinum, ekki með fyrirgangi
og ys, heldur af vökulli umönn-
un. Bindindisgát var henni
heilög hugsjón í uppeldinu, þótt
hún starfaði ekki að þeim mál-
um út á við. Og árangur var al-
gjör reglusemi og hreinn hugsun-
arháttur allra sonanna. Hrein-
leiki hjartans og varðveizla hans
er dýrmætasti auður ungra
manna í okkar borg, það var
henni heilög vissa og sannfær-
ing.
Þannig skóp Bergljót Helga-
dóttir húsfreyja í Bakaríinu við
Langholtsveg gæfu sxna og ást-
vina sinni með vökulli ástúð. Og
Þaðan bar vissulega birtu yfir
hverfið allt, þennan nýja mynd-
arlega hluta hinnar ungu borg-
ar. Það var líkt og angan frá
garði þessarar fjölskjtldu, án
hávaða og fyrirgangs.
Hún og fjölskyldan öll, fyrst
faðir hennar og móðir, svo hún
og Þorsteinn maður hennar og
synir þeirra höfðu átt heima í
Vesturbænum um áratugi, áður
en þau flúttu inn í Voga.
Bergljót Helgadóttir var fædd
17. júli 1906 og þá bjuggu for-
eldrar hennar í Litla-Skipholti
við Grandaveg, en þau voru
Kristbjörg Einarsdóttir og Helgi
Jónsson, en hann dó, þegar Berg-
ljót var aðeins 6 ára að aldri.
En svo dvaldi hún áfram á
sama stað með móður sinni, en
systir hennar önnur er í Dan-
mörku hin í Vancouver, en
bróðir austur í Biskupstungum
búsettur, og fósturbróðir á hún
hér í Reykjavík.
Bergljót giftist 23. júní 1928
Þorsteini Ingvarssyni, bakara
ættuðum héðan úr borginni.
Hann er í beztu röð í iðn sinni
og vel metinn söngmaður meðal
félaga sinna og vina, en þau
hjón eru þremenningar að frænd
semi. Ekki mun það sízt hafa
verið söngur og hljómlist, sem
bærði hjörtu þeirra saman til
gæfu og gleði. Og mun ekki of-
mælt að allt hafi blessazt þeim
vel bæði í störfum og sambúð.
Þau Bergljót og Þorsteinn eiga
fjóra sonu, alla mjög gegna og
góða þegna sinnar borgar, eru
þeir að öllu leyti góðir fulltrúar
æskunnar í Reykjavík á 20. öld
eins og flestir foreldrar mundu
kjósa sér.
Uppeldi þeirra var móðurinni
heilagt hlutverk, og menntun
þeim til handa mikils metin á
allan hátt, sem hæfileikar þeirra
beindust að og bezt varð á kos-
ið.
Tengdadætur og barnabörn
voru henni einnig sem eigin
börn með takmarkið hátt til
þroska þeim öllum.
Við öll, sem þekkjum Berg-
ljótu Helgadóttur, kveðjum hana
með trega, og biíjjum ástvinum
hennar allrar blessunar um alla
framtíð.
Ilmur horfinn innir fyrst
urta — hvers byggðin hefur
misst.
A.
Helgo Jónn
Jónsdóttir
til heimilis Akurgerði 17,
Akranesi.
80 ára 5/11.
Áttatíu árin þér í hag
efli og gleðji framtíðina þína.
Helga mín til heilla þér í dag
ég hlýja sendi vinarkveðju mína.
Þú fæddist þegar vetur gekk í
garð
en geymdir þó í hjarta þínu vorið.
En tryggð við lífið traustan gaf
þér arð
trúarmáttinn, starfsgleðina og
þorið.
Dagsverkið er stórt er senn má
sjá
og samtíðarfólk þitt mun ætíð
róma.
Vinnuhönd þín ekki á liði lá
að leysa öll þín störf með prýði
og sóma.
Frá mér til þín einlæg óskin fer,
að ánægjuna sífellt megir finna,
og njótir ávallt hamingjunnar hér
í hlýju skjóli ástvinanna þinna.
Lifðu heil við hamingjunnar völd
og himnafaðir stýri velferð þinni.
Ég veit að þínir vinirnir í kvöld
verða hér og gleðja þig í sinni.
Angantýr Jónsson.
Somkomur
Kristileg samkoma
verður haldin í kvöld föstu-
dag kl. 8.30 í Sjálfstæðishús-
inu, Hafnarfirði. Allir vel-
bomnir. M. Nesbitt og N.
Johnson tala.
Renault Dauphine ‘63
sem er ákeyrður. er til sölu
og sýnis í Vökuporti. Tilboð
sendist Vátryggingarfélaginu,
Borgartúni 1 fyrir 28. þ. m.
.TrnYfiYfn'iTririrfc
'TicuLsxhe'
Sfbunnm /t/ivn
íi-cschs i Jm/L
MHSTMVERK
tónlistar
H1 jómplötuvinir!
Nú alveg á næstunni
eigið þér von á girnilegu
tilboði. — Fylgist með
auglýsingum okkar.
HVERFITÚKAR
Hverfisgötu 50.
Sími 22940.
ÍAWWWCW
VQNDUÐ II
FALLEG I
ODYR U
Oiqurpörjörissoti & co
1 Mafiiaistnrti 4
Ný sending
af kjólaefnum tekin upp í morgun.
Hringver
FÓÐRAÐIR
SKINNHANZKAR
þurrkið of
Johnson's PRIDE er húsgagnagljáínnþ
sem aðeins þarf að bera ó og síðafl
þurrka afl
Engin fyrirhöfn -ekkert erfiði- og þéf
fóið ótrúlega góðan og varanlegan
Reynið einu sinni-og þér notið alltaf pr/de
b.n'5 ó
HEILOSÖLUBIRGÐIR: MALARINN HF - EGGERT KntSTJANSSONaCO 1»