Morgunblaðið - 24.12.1963, Blaðsíða 2
s
MORCUNBLAÐIÐ
ÞrWJudagur 24. des. 1963
Óttazt um afdrif
skemmtiferðaskip
Gríska skipið „Laconia" í björtu báli á At-
lantshaíi í gær; skip björguðu 750 manns
London, 23. des. - AP.
GRÍSKA farþegaskipið „La-
conia“, á leið til Madeira,
með 1036 manns innanborðs,
var alelda í morgun á Atlants
hafi. Mun eldurinn hafa
kviknað við sprengingu.
Þegar í upphafi var ljóst,
að búast mætti við miklu
manntjóni, ef ekki yrði kom-
ið skjótt til hjálpar. Er síð-
ast fréttist, um kl. 4 eftir ísl.
tíma í dag, voru a.m.k. 4 skip
komin á slysstaðinn. Leitar-
ffugvélar sveimuðu yfir, m.a.
bandarískar herflugvélar frá
Azoreyjum.
Þá hfði tekizt að bjarga
um 750 manns. Óvíst var enn
um afdrif 286 manna. Her-
flugvélar sögðust þó hafa séð
um 100 lík, en AP-fréttamað-
ur, sem var í flugvél yfir
slysstaðnum um svipað leyti,
sagðist ekki hafa getað
fengið neina staðfestingu á
þessari frétt.
• Alls voru um 650 farþegar
með skipinu „Laconia“, en
áhöfn þess rúmlega 380 manns.
Björgunarstarf mun hafa verið
mjög erfitt, þótt gott væri í sjó,
er eldurinn gaus upp. Skipið
varð fljótlega nær alelda, og
fjöldi óttasleginna farþega vörp-
uðu sér fyrir borð í þeirri von,
að þeir kæmust í báta. Munu
margir hafa drukknað við þær
tilraunir.
• Síðdegis 1 gær logaði skipið
allt, og var þá mikill halii
kominn á það.
• Mbl. ræddi við AP-fréttastof
una í London í síma,
skömmu áður en blaðið fór í
prentun. Ekki hafði fréttastof-
unni þá tekizt að ná neinum
myndum af skipinu, né heldur
hafði henni tekizt að fá stað-
festa tölu þeirra, sem saknað
er, eða sagðir látnir.
— Minnisblað
firði kl. 8.30, en siðan er fylgt
reglulegri ferðaáætlun).
250, er
brennur
• Ljóst er hins vegar, að hér
er um mjög óhugnanlegt
slys að ræða, en farþegarnir
voru allir í skemmtiferð um
jólin. Munu um 630 þeirra vera
af brezku bergi brotnir, og hef-
ur mikill uggur ríkt með aðstand
endum þeirra í Bretlandi, enda
alls ókunnugt um, hverjir hafa
bjargazt, og hverjir ekki.
J»etta hús, Austurstræti 6, þar sem Síld og fiskur er til húsa,
á nú að víkja fyrir nýju verzlunar og skrifstofuhúsnæðL.
Það verður rifið eftir áramót, en verzlunin verður sameinuð
húðinn á Bergstaðastig.
Gamla húsið Aust-
urstræti 6 rifið
Nýtt hús byggt fyrir Gevafoto,
Rimu o. fl.
NÚ um áramótin þarf verzlun-
in Síld og fiskur í Austurstræti
að rýma húsnæðið og verður
verzlunin sameinuð verzluninni
við Bergstaðastíg. Strax eftir
áramót á að rífa gamla húsið við ■
Austurstræti 6 og hef ja byggingu
nýs verzlunar og skrifstofuhús-
næðis þar.
Mbl. átti tal við Svein Björns-
son, sem er eigandi hússins. —
Hann sagði að hugmyndin væri
að reyna að koma þarna upp 5
hæða húsi, að flatarmáli senni-
lega um 200 ferm. Á fyrstu hæð
óg götuhæð yrðu væntanlega
verzlanir og skrifstofur á hæð-
unum fyrir ofan. Arkitekt er
Gísli Halldórsson.
Verzlunarhúsnæðið er ætlað
tveimur verzlunum, ljósmynda-
búðinni Gevafoto, sem Sveinn
rekur, en hún hefur frá upphafi
búið við of þröngt húsnæði. Og
auk þess er Arnbjörn Óskarsson
að byggja þar upp fyrir verzlun-
ina Rímu og er hann meðeig-
andi Sveins.
Ætlunin er að byrja strax að
grafa grunninn, þegar húsið hef-
ur verið rifið og halda áfram
með byggingarframkvæmdir.
Framh. af bls. 20
Blesugróf, Rafstöð, Selás, Smá-
lönd
kl. 18.30 og 22.30.
Jóladagur:
Ekið frá kl. 14 til 24.
Annar jóladagur:
Ekið frá kl. 9 til 24.
Gamlaársdagur:
Ekið tU kl 17.30.
Nýjá.rsdagur:
Ekið frá kil. 14 til 24.
LÆKJARBOTNAR:
Aðfangadagur:
Síðasta ferð kl. 16.30.
Jóladagur:
Ekið kl. 14.00, 15.15, 17.15,
19.15, 21,15, 23.15,
Annar jóladagur:
Ekið kl. 09,00. 10.15, 13.15,
15.15, 17.15, 19.15 21.15, 23,15.
Gamlársdagur:
Síðasta ferð kl. 16.30.
Nýjársdagur:
Ekið kl. 14.00, 15.15, 17.15,
19.15, 21.15, 23.15.
TIL ATHUGUNAR:
Akstur á jóladag og nýjársdag
hefst kl. 11.00 f. h. og annan
jóladag kl. 07.00 f. h. á þeim
leiðum, sem undanfarið hefur
verið ekið á frá kl. 7 — 9 á
sunnudagsmorgnum.
Upplýsingar eru veittar í
síma. 12700.
Strætisvagnar Kópavogs.
Á aðfangadag er ekið eins og
vant er til kl. 17, en síðan er
eiin ferð á hverjum heilum tíma
fram til kl. 22. Það eru hring-
ferðir um bæinn.
Á jóladag er ekið eins og venju
lega milli kl. 14 og 24.
Á annan dag jóla er ekið eins
Og vant er milli kl. 10 og 24.
Á gamlaársdag er ekið eins og
venjulega fram til fcL 17, en
emgin ferð er eftir þann tíma.
Á nýjársdag er ekið frá kL 14
tU 24.
Reykjavík — Hafnarf jörður.
Aðfangadagur og gamlaárs-
dagur: Síðasta ferð úr Reykja-
vik kl. 17 og síðasta ferð úr
Haifnarfirði kl. 17.15.
Jóladagur og nýjársdagur: —
Ekið frá kl. 14 til kl. 0.30.
Annar jóladagur: Ekið eins og
á sunnudögum (farin aiukaferð
úx Reykjavík kL 8 og Hafnar-
Reykjavík — Keflavík.
Á aðfangadag og gamlaársdag
er ekið suður eftir frá Steindóri
kl. 6, 9.30 og 11, og frá BSÍ kl.
13.15 og 16. Inn eftir er ekið kl.
8, 9.15, 11, 13.15 og 16.
Á jóladag er ekkert ekið.
Á n. í jólum er ekið eins og
á sunnudögum (ferðin úr Reykja
vík kl. 6 og úr Keflavík kl. 8
fellur niður).
Á nýjársdag hefjast ferðir kl.
11 frá báðum stöðunum, en síðan
er ekið eins og venjulega.
Reykjavík — Grindavik.
Á aðfangadag og gamlaársdag
er farið kl. 9 frá Grindavík og
kl. 15 frá Reykjavík (BSÍ).
Á jóladag er ekkert ekið.
Á n. í jólum og á nýjársdag
er farið kl. 16.30 frá Grindavík
og kl. 19 frá Reykjavík.
Reykjavík — Borgar-
nes — Akranes.
Ferðir M/S Akraborgar verða
sem hér segir um hátíðarnar:
Aðfangadagur: Kl. 13 frá
Reykjavík, kl. 14.30 frá Akra-
nesi.
Jóladagur: Engin ferð.
II. í jólum: Kl. 10 frá Reykja-
vík, kl. 14 frá Borgaroesi og kl.
15.45 frá Akranesi.
Síðan er fylgt venjulegri áætl-
un 27.—30. des.
Gamlaársdagur: Kl. 13 frá
Reykjavík, kl. 14.30 frá Akra-
nesi.
Nýjársdagur: Engin ferð.
2. janúar: Kl. 9 frá Reykja-
vík, kl. 10.15 frá Akranesi, kl.
16 frá Reykjavík, kl. 18 frá
Akranesi.
Bílar Þórðar Þ. Þórðarsonar:
Á aðfangadag kl. 8 frá Akranesi
og kl. 13 frá Reykjavík. Engin
ferð á jóladag. — Að öðru leyti
eru veittar upplýsingar í síma
1 17 20.
Innanlandsflug.
Flugfélag íslands:
Aðfangadagur og gamlaárs-
dagur: Kl. 9 til Sauðárkróks,
Akureyrar og Egilsstaða. Kl.
9.30 til Vestmannaeyja. Kl. 12
til ísafjarðar.
Jóladagur og nýjársdagur: —
Engin ferð.
Annar dagur jóla: Kl. 9 til
Akureyrar og Egilsstaða. KL
9.30 til Vestmannaeyja.
Á öðrum dögum er farið eftir
venjulegri áætlun.
Björn Pálsson: Upplýsingar í
síma 2 16 11 eða 3 69 4L
Rjúpnaskytta hrasaði og
skotið hljóp úr byssunni
Högl og grjófhríð dundu á manninum
AKUREYRI, 33. des. — Hjalti
Þorsteinsson, málari, Hafnar-
stræti 29, varð fyrir skoti úr tví-
hleyptri haglabyssu er hann var
á rjúpnaveiðum sl. fimmtudag.
Högl og grjóthríð dundi á Hjalta
og særðu hann mörgum sárum,
en engum djúpum. Hann er nú
við beztu heilsu og fer allra
sinna ferða.
Hjalti fór ásamt Páli Rist, lög-
reglumanni, til rjúpna í Stórhóls
fjall í Eyjafirði á fimmtudaginn
var. Lítið sáu þeir af rjúpum og
um hádegisbilið skildu leiðir
þeirra og gekk Hjalti þá niður
eftir fjallinu. Hálka var mikil
og föl á jörð. Allt í einu skrik-
aði Hjalta fótur og missti hann
þá byssuna niður í lækjarskorn-
ing. Við fallið hrökk öryggið af
byssunni, bæði skotin hlupu úr
og lentu í urðinni, tættu upp
grjót og dundi hvort tveggja,
högl og grjótflísar, yfir Hjalta,
sem særðist mörgum sárum, sem
þó voru öll grunn. Flest voru
sárin á andliti, hægri handlegg,
öxl, brjósti og kálfa. Nokkuð
blæddi fyrst í stað og var peysa
sem Hjalti var í blóðug nokkuð,
en stakkur sem hann bar yzt
fata hins vegar ekki, en mjög
götóttur. Gleraugu hans voru
heil, þótt sár væru allt í kring.
Eftir óhappið sótti Hjalti byssu
sína, sem lá um 5 m. frá hon-
um og fór að hafa sig til bæja
og hóaði um leið til Páls, sem
hraðaði sér honum til hjálpar,
Áttu þeir um klukkutímagang til
bílsins og ók Páll nú sem mest
hann mátti til sjúkrahússins á
Akureyri. Þangað komu þeir fé-
lagar laust fyrir klukkan tvö.
Guðmundur Karl Pétursson yfir
læknir gerði að sárum Hjalta og
tíndi úr honum gljótið og högl-
Vlnnuveitendur, Akureyri
telja sig óbundna af
auglýstum kauptöxtum
I vora óbundna af þeim kauptöxt-
|um og öðrum kjörum som áður
hafa gilt og því sé frjálst að
semja um kaup og kjör í hverju
AKUREYRI, 23. des. — í dag
sendi Vinnuveitendafélag Akur-
eyrar Verkalýðsfélaginu Einingu
og Bílstjórafélagi Akureyrar
svohijóðandi bréf:
Vér viljum hér með mótmæla
iþeim vinnubrögðum yðar í kaup
gjaldsmálum, sem þér viðhafið
nú, að auglýsa kauptaxta þegar
samningar íhafa ekki náðst í
kjaramálusn.
1 Vér teljum alila félagsmenn
Þrír menn skotnir
! eindöku tilfellL
I Akureyri, 23. des. 1963.
Virðingarfyllst,
1 Vinnuveitendafélag Akureyrar
j KEA mun einnig hafa sent
j verkalýðsfélögunum bréf í daig,
I sem hljóðar svipað og bréf
Vinnuveitendasambandsins.
— SvJ,
Ottawa 23. des. — AP
ÞRÍR MENN voru skotnir til
bana og tveir særðir er tveir
vopnaðir menn réðust inn í litla,
kaþólska kirkju er messu var að
Ijúka þar í gær. Mennirnir tveir
höfðu rá.ðízt inn í kirkjuna í því
augnamiði að ræna hana.
Atburðurinn varð í þann mund
að hádegismessu var að ljúka.
Annsu: prestanna stóð þá úti við
dyr, en hinn bað í kór.
' Skyndilega gekk maður inn
kirkjuganginn og skipaði nokkr-
um sóknarbarnanna að ganga út
með sér. Fjórir karlmenn hlýddu
skipuninni og gengu út. Er hinn
fyrsti var kominn út í anddyri
kvað við skot. Maður sá, sem
fyrstur fór, Mercier að nafni,
beið þar bana. Ræningjarnir
skutu annan mann til bana í and
dyrinu og særðu hina tvo. Ann-
ar ræningjanna, Roger Binette,
21 árs gamall, framdi síðan sjálfs
morð; skaut skammibyssukúlu í
gegnurn höfuðið á sér.
Lögreglan handtók félaga Bin
ette á staðnum. Hann er aðeins
17 ára gamall, og situr nú í fang-
elsi. Þykir atburður bessi allur
hinn válegcLstL
Jólutrés-
shemmtun í
Hainorfirði
SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN
HAFNARFIRÐI
halda að venj u jólatrésskemmtiui
fyrir börn félagsmanna og verð-
ur skemmtunin að þessu sinni
sunnudaginn 29. des í Góðtempl-
araíhúsinu. Fyrir yngri börn kL
2.30 og fyrir eldri bl. 8.30.
Aðgöngumiðar verða seldir I
Góðtemplarahúsinu sama dag frá
kl. L v