Morgunblaðið - 24.12.1963, Blaðsíða 10
10
MOKGUNBLAÐID
Þriðjudagur 24. des. 1963
Útgefandi: Hf. Arvakur, Reykjavík.
Framkvaemdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur
Matthías Johannessen,
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Arm Garðar Kristinsson.
Útbreiðsiustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Að\lstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Áskrifturgjald kr. 80.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 4.00 eintakió.
Ljós í myrkri
ENN einu sinni rennur kristin jólahátíð upp eins
og ljós í hinu norræna skammdegi. Á þúsundum
heimila um allt ísland, í sveit og borg, eru jólaljós
kveikt, Hrein og fölskvalaus gleði og fögnuður skín
úr augum barnanna, sem beðið hafa hinnar miklu
hátíðar full óþreyju og eftirvæntingar. Gjafir eru
gefnar og á hverju byggðu bóh er efnt til mann-
fagnaðar og hátíðahalds eftir efnum og ástæðum.
Friðarboðskapur jólanna fyllir hugi fólksins og
frá kirkium þess hljómar þakkargjörð og lofsöngur
í minningu þess atburðar sem gerðist í Betlehem
fyrir 1963 árum. Frá þeim atburði fæðingu frelsar-
ans, staíar birtu og yl um gervallan hinn kristna
heim.
:+]
Hér í okkar litla landi hafa átök og deilur risið
hátt undanfarna mánuði. Sættir tókust sem betur
fór fyrir hátíðarnar, og þrátt fyrir allt verður sú
staðreynd ekki sniðgengin, að íslendingar búa í dag
við almennari velmegun og velsæld en nokkru sinni
fyrr. Því er vissulega rík ástæða til þess að fagna.
Fátæktin og skorturinn eru á undanhaldi á íslandi.
Margt stendur hér að sjálfsögðu til bóta og baráttan
fyrir bættum lífskjörum heldur stöðugt áfram.
Manneskjan er aldrei ánægð með það, sem hún
hefur. Hún stefnir stöðugt að hærra marki, meiri
efnalegri velsæld og bættri aðstöðu í lífsbaráttunni.
? En hún má ekki láta við það eitt sitja. Maðurinn
verður jafnframt að stefna að auknum þroska, meiri
skilningí á lífinu og viðfangsefnum þess. Gagn-
kvæm samúð og góðvild einstaklinganna í garð hver
annarra hlýtur jafnan að vera frumskilyrði þess að
þeir geti byggt upp réttlátt og rúmgott þjóðfélag,
þar sem ríkir friður og virðing fyrir mannhelgi og
réttlæti.
H
Grunntónn kristinnar trúar er kærleikurinn til
nágrannans. Elskið hver aðra, hjálpið hver öðrum.
Það er boðskapur, sem á öllum öldum mun hljóma
úr sölum kristinnar kirkju. Án þess boðskapar getur
mannkynið ckki verið, hversu mikil sem efnahags-
3eg velsæld pess kann að verða. Friðarboðskapur
jólanna hlýtur jafnan að vekja kristna menn til um-
hugsunar um þennan boðskap. Og þess ríkari sem
hann verður okkur í huga, þeim mun auðveldara
mun reynast að leysa hvern þann vanda, er þessari
litlu þjóð ber að höndum.
m
Við íslendingar höfum margt að þakka á þessum
tímamótum. Við höfum á örskömmum tíma brotizt
úr sárri tatækt og ófrelsi til almennrar velmegunar
og þjóðfrelsis. íslenzku þjóðinni líður vel. Hún er
hraustari en nokkru sinn fyrr og hún á glæsilegri
og þróttmeiri æsku en nokkurn tíma áður. Breyttir
þjóðlífshættir hafa að sjálfsögðu skapað ýms ný
vandamál. En þjóðin gerir sér það ljóst og veit að
henni ber að leysa þau, og þau munu verða leyst.
En hver tími kemur með nýjan vanda og ný við-
fangsefni. Aðeins eitt er óbreytanlegt, friðar- og kær
leiksboðskapur jólanna. Hann rís bjartur og fagur
Jólakort
í VOR málaði Jacqueline
Kennedy tvær vatnslitamynd-
ir, sem prentaðar voru á jóla-
kort. Kortin átti að selja til
ágóða fyrir menningartnið-
stöð, sem Kennedy-fjölskyld-
an hyggst reisa við Potomac-
fljót í Washington.
Kort frú Kennedy vöktu
mjög mikla athygli og for-
lagið, sem gaf þau út, segir að
þau hafi selzt í fjórum sinn-
um stærra upplagi, en vin-
sælustu kort eru vön að gera.
„Vitringamir“,
máluðaffrú Kennedy
Annað kortið her nafnið
„Fagnaðarerindið“. Á því er
mynd af engli í hvítum kyrUi,
sem blæs í gylltan lúður. —
Bakgrunnurinn er grá-hvítur.
Hitt kortið nefnist „Vitring-
arnir“. Sýnir það vitringana
frá Austurlöndum. Bakgrunn
urinn er rauður með gylltum
stjörnum.
Kortin eru seld í pökkum
og eru 25 stykki í hverjum.
Nefndinni, sem hefur umsjón
með f jármunum er berast til
styrktar hinni væntanlegu
menningarmiðstöð, hafa þeg-
ar borizt um 120 milljónir ísl.
kr., sem ágóði af kortasölunni.
„Fagnaðarerindið“.
Gunnar Eyjólfsson og Þórunn Elfa Magnúsdóttir fara með
aðalhlutverkin í jólaleikriti Þjóðleikhússins.
úr myrkri skammdegisins við yzta haf, og varpar yl
og birtu inn í sálir mannanna og heimili fólksins.
Hann heldur áfram að kenna mönnunum að elska
hver aðra og að hjálpa hver öðrum. Án þess boð-
skapar getum við ekki lifað. í skjóli hans verðum
við að heyja hina eilífu baráttu fyrir réttlæti og
iriði á jörðu.
Morgunblaðið óskar öllum lesendum sínum, sjó-
mönnum á bafi úti, flugmönnum á langferðaleið-
um, allri hinni íslenzku þjóð gleðilegra jóla.
Hamlet jólaleik-
rit Þjóðleikhúss
ins
Á ANNAN dag jóla verður frum-
sýning á Hamlet eftir Shake-
speare í Þjóðleikhúsinu. Leik-
stjóri er Benedikt Árnason, en
með titilhlutverkið fer Gunnar
Eyjólfsson. auk hans eru Herdía
Þorvaldsdóttir, Geirþrúður drottn
ing; Róbert Arnfinnsson, Kládíus
kóngur; Lárus Pálsson, Pólóníus;
Þórunn Magnea Magnúsdóttir,
Óphelía, og Róbert Arnfinnsson,
sem leikur Hóras. Leiktjöldin
gerði Disley Jones.
Hinn 26. apríl á næsta ári eru
400 ár liðin frá fæðingu Williams
Shakespeares í Stratford-on-
Avon og þótti því forráðamönn-
um Þjóðleikhússins tilhlýðilegt
að sýna frægasta verk hans,
Hamlet Danaprins. Áður hafa
þrjú af leikritum Shakespeares
verið sýnd í Þjóðleikhúsinu, Sem
yður þóknast, Júlíus Caesar og
J ónsmessunæturdraumur. Leik-
félag Reykjavíkur mun í tilefni
afmælisins taka til sýningar
Rómeó og Júlíu.
Jólatré reist í
Ólafsvík
Ólafsvík, 21. desember.
JÓLATRÉ var reist hér í bæ sL
fimmtudag á gatnamótum aðal-
umferðargatnanna. — Oddvitinn
kveikti á trénu að viðstaddri
hreppsnefnd. Setur tréð svip á
bæjarbraginn.' í fyrra var ekkert
tré sett upp. — H. K.
Togarar helzt út
af Vestf jörðum
LÍTIÐ hefur verið um togara
á íslandsmiðum að undanförnu.
Togarar hafa helzt verið út af
Vestfjörðum. Þar hafa bæði
íslenakir og brezkir togarar ver-
ið að veiða siíðustu daga.