Morgunblaðið - 16.01.1964, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 16.01.1964, Blaðsíða 12
12 MORCUK B LAÐID FiiJnmtudagur 16. jan. 1964 UM BÆKUR Þcrsteinn Thorarenscn. De Gaulle, ævisaga, 304 bls. Setberg s. f. Reykjavík 1963. ÆVISAGA de Gaulles er góð bók. Kostir hennar eru margir. Hún er ýtarleg ævisaga. Hún er sagnfræðirit og greinir að nokkru leyti frá hrikalegustu atburðum þessarar aldar. Og hún er srvo skem.mtileg að lesandinn leggur á sig vöku fremur en láta staðar numið í miðjum kafla. Höfundurinn er, að sögn, dug- legur blaðamaður. Hann hefur skrifað mikið um erlenda við- burði á síðustu árum. En með bók sinni um de Gaulle kemur hann á óvart. Það eru einkonni blaðamanna- bóka, að þær eru fjörlegar, lífg- andi. fin oft og tíðum eru þær sundurlausar, eins og blöðin sjálf, og miðast við þá stund, þegar þær koma fyrir sjónir al- mennings. Þær skortir dýpt, hnit miðun og varanleik. Bók Þorsteins Thorarensens hefur kosti slíkra bóka, en er laus við galla þeirra. Undirbygg- ing hennar er svo fastmótuð og skipuleg, að manni verður hugs- að til skriðdrekahersveitar hins aldna hershöfðingja, sem hann tefldi svo snilldarlega fram í heimsstyrjöldinni síðari. Ævisaga de Gaulles er að sjálf- sögðu samtvinnuð sögu Frakk- lands og heimssögunni síðustu áratugi. Höfundurinn hefur því orðið að hafa hliðsjón af þeim fræðum við samningu bókarinn- ar. Hins vegar hefur hann var- azt alla útúrdúra. Söguhetjan stendur ávallt á miðju sviðinu. Og það er ekki lýst lengra út frá henni en þörf krefur. Frásögnin er látlaus, en lipur, orða- og setningaskipun eðlileg, og hvergi örlar á þvi, að höf- undurinn reyni að sýnast meiri on hann er. Hann fylgir þeirri gömlu venju að gefa þeim orðum íslenzkt svipmót, sem hann veit, að koma munu ókunnuglega fyrir sjónir lesenda, ef þau eru prent- uð með framandi stafsetningu. Til dæmis notar hann orðið bokki fyrir boohe, en það orð hafa Frakkar í niðrandi merkingu um Þjóðverja. Alkunnug heiti lætur hann hins vegar halda sinni réttu mynd. Ævisaga de Gaulles er saga hermanns og stjórnmálamanns. Hertækni er okkur íslendingum svo fjarlæg, að nærri lætur, að hún sé okkur óskiljanleg. Yfir- fcorðslegar útlistanir mundu ekki bæta úr slíkri fáfræði. í bókinni er sagt frá heimsstyrjöldunum t»áðum. Þær frásagnir eru hvorki orðmargar né langdregnai. Engu síður eru þær svo Ijósar og nær- færnar, að lesandinn sér allt fyrir sér, eins og hann taki þátt í því sjálfur. Síðari hluti tókarinnar segir frá stjómmálamanninum de Gaulle. Stjórnmál eru okkur auðskildari en hertækni. Og stjórnmálasaga Frakklands er merkileg og lærdómsrík. Þar skiptist á skin og skuggar, glæsi- leiki og niðurlæging. Aðstæðurn- ar geta ekki aðeins lyft einstak- lingnum yfir fjöldann, þær geta einnig seyrt hann niður, gert hann að líilmenni. Og það varð óneitanlega hlutskipti margs manns á dögum þriðja og fjórða lýðveldisins. Flatneskjulegra og aumara stjórnarfar hefur naum- ast þekkzt á þessari öld. Að vísu átti það að heita lýðræði, og hefði þó verið sönnu nær að kalla það skopstælingu af lýð- ræði. Það byggðist á hrossakaup- um og baktjaldamakki. Fals og undirferli voru nauðsynlegir eig- inleikar fyrir hvern þann, sem vildi komast til frama á þeim vettvangi. Menn urðu að ávinna sér þá eiginleika, ef þeir voru ekki búnir þeim fyrir, þegar þeir hófu feril sinn sem stjórn- málamenn. Að öðrum kosti voru þeim öll sund lokuð. Þinghaldið var ein endalaus, aumkunarleg mælgi, og stjórnir gátu fallið, hvenær sem var. Má nærri geta, hve sterkt það ríkisvald hefur verið, sem háð var þvílíkri sam- kundu, sem franska þingið var Það var meðal annars í verka- hring þingsins að kjósa forseta lýðveldisins. Og það lýsti við- horfum hinna lýðræðislegu þing- fulltrúa betur en margt annað, að þeim var jafnan umhugað að kjósa í þá virðingarstöðu ein- hverja gungu, sem þeir töldu sig geta haft í vasanum. Ekki gengu þær kosningar þó betur en svo, að síðasti forseti fjórða lýðveldis ins, René Coty, náði ekki kosn- ingu fyrr en eftir sautján at- kvæðagreiðslur. Þannig var fransika lýðveldið — hver höndin upp á móti ann- arri. Sérhver reyndi að troða skóinn ofan af öðrum. Ríkis- báknið skjögraði áfram á brauð- fótum. Við lok seinni heirrvsstyrjaldar- innar var de Gaulle mest virtur allra Frakka. Ef til vill væri nær að segja, að hann hafi verið eini Frakkinn, sem nokkurs var virt- ur. Margir höfðu augastað á hon- um sem álitlegum stjórnmála- foringja. Og vissulega átti hann kost á slíkum frama í þeim mæli, sem lýðveldið hafði að bjóða. En hann var of stór til að beygja sig undir ok þess vesæla stjórnar- forms. Hann var hreinni en svo, að hann gæti atað sig í þeim sora, sem gegnsýrði franska póli- tík. Hann gaf ekki kost á að gerast trúður í þeim skollaleik. Hann vissi, að það gat engum orðið að gagni, hvorki sjálfum honum né frönsku þjóðinni. „Ein- hvern tíma,“ sagði hann, „mun Frakkland aftuT hafa þörf fyrir hreint tákn. Það verður að gæta þess, að það tákn óhreinkist ekki.“ De Gaulle settist að á sveita- setri sínu í Colombey og tók að færa i letur endurminningar sín- ar, og komu þær út í þrem bind- um. Þá kom í ljós, að hann var gæddur fleiri hæfileikum en þeim, sem til herstjómar horfðu. Hann var einnig hinn færasti rit- höfundur. Ef bókmenntaverð- laun Nóbels til handa Winston Churohill hafa verið réttlætan- leg, hefur de Gaulle ekki síður átt rétt á þeirri viðurkenningu. Þegar de Gaulle dró sig í hlé, álitu margir, að hann ætti ekki afturkvæmt á vettvang stjóm- málanna. En sú stund rann aftur upp, að Frakkland þarfn- aðist manns, sem allir treystu, merkis, sem var óflekkað. Þjóðin kallaði de Gaulle til hjálpar á hættustund. Fjórða lýðveldið geispaði golunni, þegjandi og hljóðalaust, og varð fáum harm- dauði. Nokkrir stjórnmálamenn vildu að vísu ríghalda í það, vegna þess að þeir óttuðust, að de Gaulle ætlaði að taka sér ein- ræðisvald. Og það hefði honum raunar verið í lófa iagið, ef hon- um hefði verið þaó alhugað. En það kom brátt í ljós, að hann hugðist ekki upphefja sjálfan sig, heldur Frakkland. Fyrsta verk hans var að skera agnúana af lýðveldinu. En lýð- ræði hélzt í landinu. Það er og sannast mála, að hann bjargaði Frakklandi undan hernaðarein- ræði, sem yfir þvi vofði við enda- lok fjórða lýðveldisins. Og hann hefur á ný hafið það til virðing- ar. Það er aftur orðið stórveldi, sem aðrar stórþjóðir taka mark á. De Gaulle hefur að nýju vakið með þjóð sinni ættjarðarást og þjóðhollustu. Það eru hugtök, sem menn voru hættir að ræða öðru vísi en í gamni. Hann hafði ekki verið lengi við völd, þegar hann sýndi heiminum fram á, að hann léti engan segja sér fyrir verkum. Af þeim sökum hefur honum verið borin á brýn þver- úð og þrályndi. Er raunar al- gengt, að þeir, sem ekki vilja dansa eftir annarra nótum, séu sakaðir um slíkt. Mikið .hefur verið skrifað uim de Gaulle, srvo sem nærri má geta, þar á meðal heilar bækur. Ef þær bækur væru bornar sam- an, er ekki ólíklegt, að ævisögu Þorsteins Thorarensens bæri hátt á rneðal þeirra. Hún er svo fróð- leg og skemmtileg, að það mætti setja á hana gæðastimpil, ef sú merking á bókum væri hugsan- leg. Maður hefur einhvern veg- inn á tilfinningunni, að höfund- urinn hafi ekki aðeins unnið verk sitt af vandvirkni. Hann hefur einnig lagt í það hugarþel, sem er hafið yfir venjulega sagn- fræði. Við höfum eignazt margar góðar ævisögur. En þær eru langflestar um íslenzka menn, ís- lenzkt efni. Það verður áreiðan- lega ekiki bent á margar bækur um erlent efni, sem hér hafa verið samdar og út gefnar, ei framar standi þessari bók. Og þá er brugðið höfðingsskap Frakka, ef þeir veita höfundinum ekki að minnstá kosti hina akademísku pálma fyrir verkið. Bókin er smekkleg að frágangi og útliti. Myndum er dreift inn um textann. Þær eru prentaðar á gljápappír, og er þeim komið einkar vel fyrir á síðunum, Erlendur Jónsson. i Ingimundur Jónsson — Minning ÞANN 4. desember s.l. lézt að heimili sínu, Kieppsvegi 28 í Reykjavík Ingimundur Jónsson, fyrrum formaður frá Strönd á Stokkseyri. Sennilega hefur þennan unga dugmikla sveitapilt ekki grunað, þegar hann kom til Stokkseyrar í fyrsta sinn og virti fyrir sér skerjagarðinn, að þar hefðu ör- lögin haslað honum völl, því að hann átti eftir að stunda for- mennsku á Stokkseyri um 30 ára skeið með þeirri giftu, sem lengi verður minnzt þar eystra. Um mörg ár stundaði hann sjó á skútum frá Reykjavík. Var hann mikill fiskimaður og bar oft góðan hlut frá borði. Árið 1917 gerðist hann formaður á vélbáti á Stokkseyri og var það óslitið til ársins 1947 eða þangað til hann flutti til Reykjavíkur. Lengst var Ingimundur með bát- inn íslending og svo Hólmstein, sem Samvinnufélag Stokkseyr- inga keypti nýjan frá Danmörku árið 1934. Vart er hægt að gera saman- burð á veiðistöðvunum austan Fjalls, Stokkseyri og Eyrar- bakka, og útgerðarstöðvum, þar sem landtakan er örugg. Oft máttu sjómennirnir búast við Því að ná ekki heimahöfn vegna brims, og hygg ég, að fá störf í þjóðfélaginu geri meiri kröfur til skapfestu, áræðis, snarræðis og íhygli en formannsstarf í brim veiðistöð. Stundum kom það fyrir, að ekki var hægt að kom- ast til heimahafnar og var þá, ef vona var í sjó. ekki annað að leita en til Vestmannaeyja. Þótti ekki fýsilegt á litlum bátum að leggja i slíka för, en ef veður var mikið og sýnt þótti, að brim héldist, var það eina lausnin. Ingimundur Jónsson var far- sæll í starfi. Á langri formanns- ævi skilaði hann öllum heilum í höfn. Hjá honum fór saman dugn aður, glöggskyggni, áræði og afla sæld. Það var hollt unglingum að starfa með honum. Ekki man ég eftir, að hann hafi nokkurn tíma mælt kuldalegt orð til okk- ar hásetanna, en ég réri hjá hon- um á íslendingi, þegar ég var unglingur. Hitt man ég aftur á móti vel, hversu hann gerði sér far um að leiðbeina og halda uppi gleðskap og gamansemi. Þegar vel aflaðist var Ingimund- ur vanur að segja „Þetta er mik- ill blessaður afli, drengir mínir,“ og er veður spilltist var við- kvæði hans: „Þetta er meiri bless uð blíðan, drengir mínir.“ Svona var Ingimundur Ijúfur í viðmóti, dagfarsprúður og drenglundaður, og öllum, sem kynntust honum þótti gott að eiga með honum samleið. Oft réri Ingimundur einskipa, en en ekki er mér kunnugt um annað, en að þeir róðrar hafi heppnast vel. Þó að ýmsum hafi þótt full djarflega til þeirra sofn að. Þá naut hann þeirrar ham- ingju að bjarga mönnum úr sjá- varháska. Þó að sjómennska hafi verið aðalstarf Ingimundar, vann hann ýmiss konar landvinnu á sumr- um og var mjög eftirsóttur til allra verka. Hann átti því lífsláni að fagna að eiga góðan og tryggan lífs- förunaut og fagurt heimili. Hinn 11. nóvember 1910 kvæntist hann eftirlifandi konu sinni Ingi- björgu Þorsteinsdóttur frá Sand prýði á Stokkseyri. Þau eignuðst 6 börn, sem öll eru á lífi, en þau eru þessi: Jóhanna, gift Matthíasi Guð- mundssyni, stýrimanni, Konráð, lögregluþjónn, kvæntur Þuríði Snorradóttur, Guðbjörg, gift Har aldi Leonhardssyni, skrifstofu- manni, Sigurður, húsgagnasmið- ur, verkstjóri í Trésmiðju Kaup- félags Árnesinga, Selfossi, kvænt ur Svövu Sigurðardóttur, Jenný, gift Þóri Jenssyni, skrifstofu- manni, Sigurbjörg, kaupkona. Eins og áður er getið, fluttu þau hjónin til Rvíkur 1947. Börn- in voru þá komin Þangað, og vildu hjónin vera nálægt þeim, því að mikil eining og ástríki var innan fjölskyldunnar. Ingimund- ur vann við fiskimatsstörf, eftir að hann flutti til borgarinnar, en síðustu árin var hann starfsmað- ur við veiðafæraverzlun O. Ell- ingsen. í sumarleyfum sínum var Ingimundur vanur að bregða sér á sjó og lifa þannig aftur hinar mörgu unaðsstundir, sem hann átti á hafinu. Um framtíð alla mun brimið svarra við Hlaupós og Stokks- eyrarsund, og enn sækja feng- sælir dugnaðarmenn afla út á miðin. Ingimundur Jónsson og flestir samtíðarmenn hans, sem stóðu í fylkingarbrjósti á fyrri helmingi þessarar aldar, eru nú horfnir, en ininningin um þá lif- ir. Konu Ingimundar og börnum þeirra sendi ég samúðarkveðju. Sigurður Eyjólfsson. Uppkastið í Ifósi sögunnar — Athugasemd í Reykjavíkurbréfi 5. þ.m., er klykkt út með þessum dómi um Uppkastið frá 1908: „Þessvegna er ómögulegt að sjá, hvernig hlutlaus skoðun geti . . . leitt til, annars en þess, að dómur þjóð- árinnar hafi reynzt réttur í ljósi sögunnar.** En það er ekki nóg að hampa sögunni, staðhæfingin verður að lúta sögulegum staðreyndum. Eftir hernám Danmerkur 1940, var skammt stórra högga á milii í viðbrögðum Alþingis. Strax dag inn eftir hernámið voru öll mál tekin inn í landið, sem áður voru í höndum Danmerkur og sömuleiðis embætti þjóðhöfð- ingjans. Rúmu ári síðar var svo lýst yfir rétti íslands til fullra samningsslita við Danmörku, þótt framkvæmdum væri frest- að til ársloka 1943. Sambandslögin frá 1918 var mál, sem Alþingi gat ekki að öllu leyti ráðstafað einhliða, held ur var veigamesta atriðið, kon- ungdómurinn, samkomulagsmái. Nú var það komið á bekk með öðrum málum, sem úrskurða mátti einhliða. Þetta kom fram í stjórnarskrárbreytingu 1942, sem fól i sér eins og segir í rit- inu Lýðveldi íslands, 1943, bls. 19. „. . . að ekki þarf samþykki konungs eða handhafa valds hans á afnámi konungsdómsins, heldur er Það þjóðin sjálf, sem endanlega kveður á um þetta, eins og vera ber.*' Hér var sjálfstætt riki að verki, og samskonar aðgerðir með sömu úrslitum hefðu farið fram, þótt sambandslög hefðu verið sett 1909, samkvæmt Upp- kastinu. Lýðveldisstofnuin hefði aðeins getað dregist til ófriðar- loka (sbr. sama rit, bls. 34). En samþykkt Uppkastsins, sem sambandslaga 1909, hefði stytt fyrir íslandi það niðurlægingar- ástand að vera fjötráð af Stóðu- lögunum, um tæp tíu ár, og þann tíma hefði hið unga íslenzka ríki fengið til uppbyggingar og þroska. Það var láni en ekki fyrirhygju að þakka, að ísiand komst ekki í háskalegt ástand 1918. Það er því fráleitt að telja þjóðardóminn 1908 réttan í ijósi sögunnar. Ásgeir Þorsteinsson. T rúlof unarhr ingar Hjálmar Torfason gullsmiður Laugavegi 28, 2. hæð. Austurstræti 20.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.