Morgunblaðið - 17.01.1964, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 17.01.1964, Blaðsíða 8
8 MORCU N BLADIÐ r Fostudagur 17. jan. 1964 Æ SJSAM ÚTGEFANDI: SAMBAND UNGHÁ SJÁLFSTÆÐISMANNA /— -V" ) [*L JiHffi^ RITSTJÓRAR: BIRGIR ÍSL. GUNNARSSON OG ÓLAFUR EGILSSON Launþegaklúbbur Heimdallar EIN af nýjungunum í hinni fjölbreyttu starfsáætlun Heim dallar FUS er Launþega- klúbbur sá, sem settur verð- ur á stofn um miðjan febrúar mánuð. Launþegaklúbburinn er sér staklega ætlaður ungum verkamönnum og iðnnemum, en aðrir launþegar, sem hug hafa á geta að sjálfsögðu tek ið þátt í starfsemi hans. Segja má, að starfsemi Launþegaklúbbsins verði þrí- þætt. í fyrsta lagi verða flutt erindi um ræðumennsku, fundarstjórn og fundarsköp og jafnframt fá þátttakendur æfingu í ræðumennsku. í öðru lagi verða flutt er- indi um verkalýðsmál svo sem um þróun verkalýðs- hreyfinguna austan og vestan járntjalds, raunhæfar baráttu Fyrirlestrar um þjóðlélagsmál á vecfum Henmdallar Einn athygiisverðasti þáttur- inn í fræðslustarfi Heimdallar í vetur er Fyrirlestrarflokkur um Þjóðfélagsmál, sem efnt verður til á vegum félagsins. Verður hér á eftir gerð nokk- ur grein fyrir efni þessara fyrirlestra. Hinn fyrsti þeirra verður fluttur þriðjudaginn 4. febr. og fjallar um Ríkið og hlut- verk þess. í þessu erindi verð ur m.a. lýst viðhorfi hinna ýmsu stjórnmálastefna til rík- isvaldsins og hlutverks þess, t.d. anarkismans, fasisma, kommúnisma, lýðræðissósíal- isma, og einstaklingshyggj- unnar. Þá verður borið saman hlutverk ríkisins í einræðis- og lýðræðisþjóðfélögum. Enn fremur verður rætt um grund vallarréttindi einstaklinga í rík'inu. Annað erindið verður um Stjórnmálaflokka. í því verð ur fjallað um algengustu flokkakerfi í heiminum nú, svo sem einsflokks-, tveggja- flokka- og margra flokkakerfi. skipulag stjórnmálaflokka o. s. frv. Einnig verður greint frá skipulagi og starfsháttum aðalflokkanna í Bretlandi og Bandaríkjunum og gerður samanburður t.d. við stjórn- málaflokka hér. í þriðja erindin^, sem verð- ur um Almenningsálit og áróð ur verður rædd mótun almenn ingsálits, áróðursaðferðir og frjáls skoðanamyndun. aðferðir í kjaramálum laun- þega o. s. frv. Loks verður svo síðar í vet ur efnt til helgarráðstefnu á vegum Launþegaklúbbsins, þar sem flutt verða nokkur erindi um verkalýðsmál og umræður um þau mál. Þetta er í fyrsta skipti, sem Heimdallur FUS efnir til sér stakrar starfsemi fyrir hina fjölmörgu verkamenn, iðn- nema og aðra launþega sem í félaginu eru. Bindur stjórn Heimdallar miklar vonir við þennan nýja þátt í starfi fé- lagsins og eru þeir, sem á- huga hafa á að taka þátt í starfi Launþegaklúbbsins ein dregið hvattir til þess að hafa samband við skrifstofu Heim- dallar og láta skrá sig til þátt- töku. Fjórði fyrirlesturinn nefn- ist Skipting manna í stjórn- málaflokka og verður í honum gerð grein fyrir því, hvað það sé, sem einkum valdi skipt- ingu manna í stjórnmála- flokka. Fimmti fyrirlesturinn fjall- ar um Löggjafarvaldið og verð ur þar gert grein fyrir kosn- ingum til þjóðþinga í nokkr- um löndum, gerður saman- burður á lagasetningarhætti i þessum löndum og lýst munin um á löggjafarsamkundum i einni og tveimur deildum. Síðasti fyrirlesturinn í þess um flokki mun svo fjalla um Samskipti þjóða og verður þar lýst grundvallaratriðum í samskiptum þjóða og vikið að þjóðarétti. Ennfremur verð ur rætt um helztu bandalög- in í heiminum, bæði stjórn- málalegs, efnahagslegs og hernaðarlegs eðlis og drepið á starfsemi SÞ. Svo sem sjá má af framan sögðu verður í þessum fyrir lestrarflokki Heimdallar fjail að um grundvallaratriði þjóð- félagsmála og fyrirlestrarnir ekki sérstaklega bundnir við ísland eða íslenzkar aðstæð- ur. Fyrirlestrarnir hefjast þriðjudáginn 4. febrúar og verða síðan vikulega á þriðju dögum næstu sex vikur á eft- ir. Stjórn Heimdallar FUS, sitjandi frá vinstri: — Vilborg Bjarn adóttir, Ragnar Kjartansson, varaformaður, Styrmir Gunnarsson, formaður, Sigurður Hafstein, ritari, Sverrir Haukur GunnlaugsSon, gjaldkeri. — Standandi frá vinstri: — Steinar Berg Björnsson, Halldór Run- ólfsson, Már Gunnarsson, Ásgeir Thoroddsen, Jón Magnússon, Valur Vaisson og Eggert Hauksson Víðtækt og fjölbreytt vetrarstarf Heimdallar STJÓRN Heimdallar FUS hefur sent frá sér áætlun um starfsemi félagsins fyrri hluta árs 1964. Er í þeirri áætlun gert ráð fyrir mjög víðtækri og fjölbreyttri vetrarstarfsemi, fundarhöldum, fræðslustarfi og tómstundastarf- semi. Stærsta stjórnmáiafélag ungs fólks á landinu Heimdallur FUS er svo sem kunnugt er langstærsta stjórn- málafélag ungs fólks á íslandi. Hefur félagið jafnan haldið uppi mjög víðtækri pólitískri fræðslu- starfsemi meðal æsku Reykjavík- ur og notið mjög öflugs stuðnings unglinga í framhaldsskólum Reykjavíkur, svo og stúdenta við Háskóla íslands. Innan Heimdallar hafa jafnan farið fram mjög líflegar og vekj- andi umræður um stjórnmál og félagið hefur oft og tíðum sett fram nýjar og djarfar hugmynd- ir um málefni þjóðarinnar og til úrlausnar þeim vandamálum sem hún á við að stríða. Nú í haust var efnt til ráð- stefnu til þess að ganga frá nýrri stefnuskrá félagsins, sem gefin verður út innan skamms, og hef- ur hún að géyma fjölmörg ný stefnumið, sem Heimdallur telur að yrðu til bóta ef í framkvæmd kæmust hjá atvinnuvegum þjóð- arinnar og í öðrum þeim mál- um, sem um er fjallað. Fjölbreytt vetrarstarf Tveggja nýjunga í vetrarstarfi Heimdallar er sérstaklega getið hér á síðunni, en það er stofnun Launþegaklúbbs innan félagsins og fyrirlestrarflokkur um þjóð- félagsmál, sem efnt verður til nú í febrúar. Verður þetta tvennt því ekki gert að umtalsefni hér. Af öðrum starfsþáttum má benda á að hinir vinsælu klúbb- fundir verða haldnir á þriggja vikna fresti að venju. Klúbb- fundir þessir eru haldnir í há- deginu á laugardögum, snæða fundarmenn saman hádegisverð og hlýða á stutt erindi. Þeir fé- lagsmenn í Heimdalli sem ekki hafa hingað til tekið þátt í þess- um fundum geta látið skrá sig til þátttöku á skrifstofu Heim- dallar og fá þeir þá sent fund- arboð reglulega. Á sl. vetri efndi Heimdallur til sérstakrar helgar- ráðstefnu um Sjálfstæðisflokkinn og stefnu hans. Sem framhald þeirrar ráðstefnu verður nú efnt til helgarráðstefnu um hina þrjá andstöðuflokkka Sjálfstæð- isflokkksins, þar sem rætt verð- ur um hlutverk þeirra í íslenzk- um stjórnmálum og áhrif þeirra á gang mála, jafnframt breyting- um á stefnu þeirra um árin. Af öðrum þáttum fundarstarf- seminnar má nefna að ein kvöld- ráðstefna verður haldin í vetur og einnig mun verða efnt til al- menns umræðufundar í Sjálf- stæðishúsinu í febrúar. Aukin þátttaka stúlkna í starfi Heimdallar Að undanförnu hafa stúlkur tekið æ aukin þátt í starfi Heim- dallar og er nú ætlunin að koma á fót sérstökum kvennaklúbb til þess að skapa hinum fjölmörgu stúlkum, sem í Heimdalli eru betri vettvang til þess að ræða um áhugamál sín. Klúbbur þessi tekur til starfa í byrjun febrúar og er ætlunin að starfsemi hans verði sem fjölbreytilegust. Eru stúlkur, sem í félaginu eru, ein- dregið hvattar til þess að taka öflugan þátt í starfsemi klúbbs- ins. Einnig verður í vetur eins og að undanförnu efnt til Fönd- urnámskeiðs fyrir konur. Tómstundastarfsemi í hinni víðtæku starfsáætlun Heimdallar er að venju gert ráð fyrir allmiklu tómstundastarfi á vegum félagsins og má þar benda á, að efnt verður til hraðskák- móts og fjölteflis, bridge-kvöld verða og áráhátíð félagsins verð- ur haldin í marzmánuði. Sérstök ástæða er til að geta einnar nýj- ungar sem stjórn Heimdallar mun beita sér fyrir í vetur, en það er myndarleg kvöldvaka með nýju sniði, sem efnt verður tiL Á þeirri kvöldvöku mun fara fram ljóðaupplestur og upplestur úr leikritum, sígild og létt tón- list verður flutt o.s.frv. Væntir stjórn Heimdallar þess að þetta nýmæli mælist vel fyrir. Þroskandi starf Á því leikur enginn vafi að þátttaka í starfsemi eins og þeirri sem Heimdallur FUS hefur með höndum er mjög þroskandi. Heimdallur vinnur markvisst að því að fræða upprennandi æsku þjóðarinnar um sameigin- leg málefni hennar, þau vanda- mál, sem hún á við að etja og hvernig þau verði bezt leyst. Nútímaþjóðfélag er flókið fyr- irbæri og til þess að rekstur þess geti gengið sæmilega auðveldlega fyrir sig, þurfa þegnar þess að hafa til að bera víðtæka þekk- ingu á veikleika þess og styrk- leika, hvað hægt er að gera og hvað ekki. Það er einmitt eitt af hlutverk- um Heimdallar FUS að veita æsku Reykjavíkur þá þekkingu, sem hún þarfnast til þess að geta myndað sér skoðanir á málefnum þjóðarinar og hvernig þeim er stjórnað. En Heimdallur er líka kjörin vettvangur áhugasamra æsku- manna, sem vilja ræða stjórnmál og þjóðfélagsmál. Hann er upp- spretta nýrra og djarfra hug- mynda, nýrra viðhorfa og nýrra sjónarmiða. Hin þróttmikla starf- semi Heimdallar býður upp á eitthvað fyrir alla, unglinga, framhaldsskólanemendur, há- skólastúdenta, starfandi ungt fólk úr öllum stéttum. Í,1 ÆSKUFÓLK fylkið ykkur undir merki Heimdallar félags tramsœkinnar œsku

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.