Morgunblaðið - 07.02.1964, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐID
! Föstudagur 7. febr. 1964 N
Mikil fjölgun bygging-
arhæfra lóða á árinu
Á fundi borgarstjómar í gær-
kvöldi gaf Geir Hallgrímsison
borgarstjóiri svofel Idar upplýs-
ingar:
Á þessu ári verða alls tilbún-
ar til úthlutunar lóðir fyrir 9Ö0
—986 íbúðir í Kleppsholti, Elliða
vogi og í Selási og Árbæjar-
blettum. >ar af verða 722—756
íbúðir í fjölbýli, 52—84 í tvíbýli,
39 í raðhúsuim og 87—107 í ein-
býlishúsum. — Enn fremur er
gert ráð fyrir 1100 íbúðum í
Fossvogi, en væntanlega verð-
ur það svæði ekki byggingar-
haaft fyrr en á árinu 1965.
að lóðarhafar gætu fengið mæli-
blöð í hendur og látið teikna og
innt af hendi annan undirbún-
ing, en borgarverkfræðingur
telur sig þurfa þriggja mánaða
afihendingarfrest. Vinnuaflsskort
ur gæti þó tafið framkvæmd ir.
Sé miðað við mat lóðanefndar
og borgarverkfræðings um ra.un-
verulega tölu óafgreiddra lóða-
umsókna má ætla, að unnt verði
að fullnægja eftirspum eftir
fjölbýlishúsum á árinu og tölu-
vert verður komið til móts við
eftirspurn eftir öðrum tegund-
um byggingalóða.
Hér sjást fjórir stórir trukkardraga mb. Kristján Guðmundsson eftir fjörunni á Eyrarbakka.
______ (Ljósm.: Kristján Sigrurðsson.
Úthlutun ætti að geta farið
fram í mai til júníloka, þannig
Bauð fram
aðstoð slna
— og hvarf með
geneverkassann
í GÆR fór veitingamaður
einn í Reykjavíik í Nýborg til
þess að sækja áfengi. Keypti
hann þar einn kassa af Gene-
ver og bar hann út í bíl sinn.
Miðja vegu bar að mann, sem
bauðst til að halda á kassan-
um, og þáði veitingamaður-
inn það. Settu þeir kassann
síðan í félagi inn í bílinn, en
síðan brá veitingamaðurinn
sér aftur inn til að greiða
kassann. Er hann kom út aft-
urvar hinn hjálpsami horfinn
á brott og með honum Gene-
verkassinn. Veitingamaðurinn
bar kennsl á manninn, sem er
utanbæjarmaður. Náðist hann
í Hafnarfirði seint í gær-
kvöldi, og var settur inn. Um
örlög geneversins var lítt vit-
að í gærkvöldi.
England —
„heimsliðið“
í Gnmln Bíói
KNATTSPYRNUMYNDIN frá
leik Englands og „heimsliðsins"
var sýnd í Gamla bíó um s.l.
belgi við góða aðsókn og mikinn
fögnuð. Ákveðnar eru fleiri sýn-
ingar og verður sú næsta í
Gamla bíó á morgun, laugardag,
kl. 3 síðdegis en aðgöngumiða-
sala hefst kl. 2.
Afli Akranesbáta
Akranesi 6. febr.
HINGAÐ kom árla í morgun
Haraldur með 1500 tunnur af síld
og Hannes Hafstein frá Dalvík
með 18000 tunnur. Vinna hófst
strax við síldina. Haraldur tók
þorskanótina um borð ef ske
kynni að hann rækist á loðnu-
ger og þorsk í torfu uppi í sjó. —
Afli línubátanna 17, sem lönd-
uðu hér í gær, var samtals 105
tonn. Aflahæstur var Sólfaxi með
12 bonn. — Danska skipið Irene
Friis kom með 400 tonn af salti
í morgun. Ms. Hvítanes kom hér
einnig í morgun og lestar 2000
tunnur af saltsíld. — Vélfeáturinn
Svanur hættir við línuna uim
helgina og byrjar veiðar með
iþorskanet. Sennilega einnig vél-
báturinn Ver.
Kominn á flot
Akurnesingar
í námsför
Akranesi, 6. febrúar.
FJÖRUTIU gagnfræðastoólanem-
endur ásamt tveimur kennurum
fara héðan kl. 7 í fyrramálið í
námsför til höfuðborgarinnar.
>ar munu þeir skoða helztu sofn,
ríkisútvarpið, þinghiúsið og verk
smiðjuna Rafha í Hafnarfirði. —
Um kvöldið sjá þeir sýningu á
Hamlet í >jóðleikhúsinu.
Eyrarbakka 6. febrúar.
1 DAG toomst aftur á flot
vélbáturinn Kristján Guð-
mundsson, sem slitnaði hér
upp 19. janúar s.l. og rak á
land. Kostaði það mikla fyrir
höfn að koma bátnum út aft-
ur, en hann mun nær ó-
skemmdur eftir för sína á sjó
og landi.
Eins og áður hefur verið
skýrt frá í Mbl. var ekki hægt
að setja bátinn fram þar sem
hann hafnaði í fjörunni, svo
til bragðs var tekið að koma
honum fyrir á vögnum, og
flytja hann þannig til í fjör-
unni. í nótt var hann tekinn
af vögnunum og á flóðinu í
morgun var hann dregina á
flot með bílspili. Gengu þess-
ar björgunaraðferðir vel.
Báturirm virðist lítið sem
ekkert skemmdur, en mun þó
fara til Vestmannaeyja til
frekari athugunar í dráttar-
brautinni þar. Eigandi báts-
ins er Ásþór h.f. á Eyrar-
bakka.
Reykjavík leitar beztu kjara
um kaup á olíu og benzíni
éráð að borgin takist á hendur olíudreifingu
Á FUNDI borgarstjómar í gær
kom til umræðu tillaga frá Guð-
mundi Vifússyni um, að Reykja
víkurborg tæki i sínar hendur
bein kaup á olíu og benzíni án
milligöngu olíufélaganna og þar
af leiðandi alla dreifingu henn-
ar með þeim kostnaði, sem
henni er samfara. Af þessu til-
efni var svohljóðandi tillaga
Sjálfstæðismanna samþykkt:
„Með því að Innkaupastofnun
Reykjavíkur hefur nú til með-
ferðar benzín og olíukaup borg-
arstofnana og að tryggt er að
borgarsjóður nýtur hagstæðustu
kjara í þessu efni, telur borgar-
stjóra ekki tímabært að gera sér
stakar samþykktir um þessi mál
og visar tillögu GV til stjórnar
Innkaupastofnunarinnar".
Þá tók Sigurð Magnússon
fram, að sú fullyrðing Guðmund
ar Vigfússonar, að stjóra Inn-
kaupastofnunarinnar eða for-
ráðamönnum borgarinnar hefði
verið kunnugt um, að svör olíu-
félaganna mundu verða sam-
hljóða, þegar útboðið var sam-
þykkt, væri með öllu tilhæfu-
laus.
Guðmundur Vigfússon (K)
gerði grein fyrir tillögu sinni,
æm var á þá leið, að þar sem
útboð á benzíni og olíu til notk-
unar hjá borgarsjóði og borgar-
stofnunum hefði leitt í Ijós, að
olíufélögin þrjú hefðu haft al-
gjört samráð sín í milli og sent
nákvæmlega samhljóða tilboð,
teldi borgarstjórn óhjákvæmi-
legt að leitast við að skapa sér
aðstöðu til beinna kaupa á þess-
um vörutegundum, án milli-
göngu olíufélaganna.
Sigurður Magnússon (S) tók
fram í upphafi máls síns, að
Reykjavíkurborg hefði haft samn
inga við eitt olíufélaganna, sem
hefði veitt þeim þau hagstæð-
ustu og beztu kjör, sem völ hefði
verið á. Nú hefðu olíu og benzín-
viðskipti borgarinnar verið boðin
út og komið í ljós, að þeir samin-
ingar, sem borgin hafði, voru um
200 þús. kr. hagstæðari en tilboð-
in, sem væru samhljóða. Stjórn
innkaupastofnunarinnar hefði
eikki tekið endanlega afstöðu til
þessa máls, en hins vegar hefði
formaður hennar og fram-
kvæmdastjóri tryggt, að borgin
nyti sömu kjara og áður tU vors
ins, en miðað er við þann tíma,
þar sem samningar ríkisins við
olíufélögin renna þá einnig út,
Sagði Sigurður, að því væri
ekki að neita, að stjórn Innkaupa
stofnunarinnar hefði komið það
kynlega fyrir, að öll tilboð olíu-
félaganna skyldu vera samihljóða.
>ess vegma hefði hún talið skyldu
sína að kanna, hvernig á því
stæði. Svör olíufélaganna voru á
þann veg, að útboðsmöguleikar
á olíu væru ekki fyrir hendi, þar
sem samkeppnisaðstaða í inn-
flutningi og dreifingu væri það
ekki. RJkið tæki ákvarðanir um,
hvaðan olían væri keypt og við
hvaða verði, síðan tæki verðlags
nefnd ákvarðanir um verðlagið
hér innanlands. Olíuifélögin ættu
þess því ekki kost að afla olíunn
ar, þar sem bún kynni að vera
ódýrust.
Taldi Sigurður, að í þessu
kæmi fram, að hæpinn grundvöll
ur væri á útboði á varningi, sem
svo væri háttað um. Til þess að
hægt yrði að fá ódýrari olíu, yrði
að hafa bensínkaup til landsins
frjáls.
>á veik Sigurður að tillögu GV,
sem hann taldi bæði óhagkvæma
fyrir þjóðina og Reykjavíkur-
borg, þar sem í henni fælist, að
nýju dreifingarkerfi fyrir olíu
hér innanlands yrði komið upp.
Kostnaður við slíkt mtmdi nema
tugum milljóna, sem engan veg-
inn gæti talizt heppileg ráðstöf-
un, ekki sízt þegar þess er gætt,
að hér hefur þegar verið komið
upp mannvirkjum, sem geta ann-
að þessum viðskiptum. Að svo
mæltu lagði hann fram þá frá-
vísunartillögu, sem fyrr greinir.
Óskar Hallgrímsson (A) átaldi
mjög, að olíufélögin skyldu öll
koma með sams konar tilboð og
lagði fram tillögu um, að borgar-
stjórnin beindi þeim tilmælum til
ríkisstjórnarinnar að hún hafi for
göngu um, að sett verði löggjöf
um rekstur og starfsemi stórfyrir
tækja og fyrirtækjasamsteypa,
þar sem reistur verði sérstakar
hömlur gegn einokunaraðstöðu
svo og gegn samtökum um v.erð-
ákvarðanir, en hagsmunir neyt-
enda vemdaðir. Fulltrúar Sjálf-
stæðismanna tóku mjög vel und-
ir aðalefni þessarar tillögu og
varð samkomulag um að atbuga
hana niánar og vísa henni til 2.
umræðu.
Guðmundur Vigfússon (K)
ítrekaði, að eina rétta svarið við
því, að tilboð olíufélaganna voru
öll samhljóða, væri að ríki og
borg tækju derifingu þess í sínar
hendur. >á staðhæfði hann, að
Sjálfstæðismenn hefðu fallizt á
útboð, þar sem þeim hefði verið
það kunnugt fyrirfram, að olíufé-
lögin sendu samhljóða tilboð.
Einar Ágús.^son (F) kvaðsit
ekki nógu kunnugur málinu til
að hann gæti fjallað um það,
en kvaðst þó hvorki geta verið
sammála GV né SM, hins vegar
yrði þetta mál að athugast.
Birgir ísl. Gunnarsson (S)
undirstrikaði að öll olíuviðskipti
væm bundin við Ráðstjórnar-
ríkin og þar af leiðandi skapað-
ist engin samkeppnisaðstaða um
innflutning hennair. Að vísu værl
rétt, að verðið væri nálægt heims
markaðsverði, en hins vegar
færu allar verðsveiflur fram
hjá okkur, svo að ekki er hæigt
að leita beztu kjara.
Sagði ræðumaður, að Ijóst
væri, að Alþýðubandalagið
stefndi að því að tengja sem
flest viðskipti okkar við Ráð-
stjórnarríkin.
>au viðskipti fara fram á þann
hiátt, að gerðir eru viðskiptasamn
ingar milli ríkisstjórna íslands
og Sovétríkjanna. Allir innflytj-
endur og þeir, sem annast dreif-
ingu á vörunum hér innanlands,
fá sömu vörur á nákvæmlega
sama verði og þurfa þar að auki
að ’hlíta ströngum verðlagsákvæð
um. Samkeppnisaðstaða er þvl
engin. Með því að beita ríkisvald
inu á þennan hátt er grafið und-
an trú almennings á frjálsri sam-
keppni. Og þá er kominn tírnl
til þess að dómi Alþýðubanda-
lagsmanna að flytja tillögu.r um,
að ríki eða sveitarfélög taki 1
sínar hendur verzlunina, seim er
að sjálfsögðu eifct þýðingarmesta
skrefið í átt til kommúnisma.
Sigurður Magnússon (S) upp-
lýsti, ag fuilyrðing GV um, að
stjórn innkaupastofnunarinnar
eða forráðamönnum bæjarina
hefði verið kunnugt um, að olíu-
félögin myndu senda samihljóða
tilboð í benzínviðskiptin, væri til
hæfulaus með öllu,
Óskar Hallgrímsson (A), Guð-
mundur Vigfússon (K) og Björn
Guðmundsson (F) tóku síðan til
máls og að því loknu var uitn-
ræðu lokið.
HLÝINDI eru aftur komin
með lofti sunnan úx hafi.
Sunnan lands og vestan var
þokuloft með 6 til 10 stiga
í gær, og leit út fyrir að í dag
yrði veðurfar svipað. Verður
þá ekki lengi að hiverfa snjór-
inn sem kominn var.
I kvöld má búast við, að
lægðin, sem sézt á kortinu við
Nýfundnaland, verði toomin
norð-ausbur á Grænlandshaf
og valdi þá suð-austan hivass-
viðri með rigningiu við suð-
vest urströndina.
— Oddiur.