Morgunblaðið - 07.02.1964, Blaðsíða 22
22
MÖRGUNÞLAÐIÐ
Fostudágur 7. febr. 1964
Þrefaldur sigur
Austurríkis
— í bruni kvenna í gær
AURSTURRÍSKU stúlkurnar
báru af í brunkeppni kvenna í
gær og unnu öll verðlaunin þrjú.
Var þetta Austurríkismönnum
nokkur uppbót fyrir mörg von
brigði í svigi og stórsvigi. Hávax
in og kröftugleg tvítug stúlka,
Christel Haas sem fyrirfram var
talinn sigurstranglegust brást
ekki og fór af miklu öryggi og
hraða hina 625 löngu braut. Hún
bar talsvert af keppinautum sín
um.
if Saubert vonsvikin
En keppnin var ekki öllum
til jafnmikillar gleði og austur-
rísku stúlkunum. Hin ágæta
bandaríska skíðastúlka Jean
Saubert náði engri ferð og hafn
aði í 26. sæti. Hún sagði við
blaðamenn á eftir á eftir að
henni' hefði orðið á stórkostleg
mistök við smurningu skíða
sinna og hún væri mjög von-
svikin yfir að hafa engin gull-
verðlaun unnið.
Marielle heimsmeitari
Marielie Goitshel, .sem vann
Barizt
f kvöld
I KVÖLD er körfuknattleiks-
kepþni milli úrvalsliðs Banda-
ríkjamanna af Keflavíkurflug-
velli og ísl. úrvalsliðs. Er þetta
f jórði leikur liðanna í keppni um
bikar sem Bandaríkjamenn hafa
gefið. íslendingar hafa unnið 2
leiki, Bandaríkjamenn eiran. Get-
ur svo farið að leikurkin í kvöld
ráði úrslitum um það hvar bik-
arinn hafnar.
Leikirnir hafa verið mjög
spennandi, jafnir og tvísýnir. —
Leikurinn er að Hálogalandi.
gull í stórsvigi og silfur í svigi
fór brautina af miklu öryggi en
ógnaði aldrei sigri þeirra austur
rísku. Hún sagði á eftir að Frakk
ar hefðu engar vonir gert sér
um sigur eða verðlaun í þessari
grein á móti hinum frábæru aust
urrísku stúlkum. Goitshel vann
samanlagt í þríkeppni kvénna í
alpagreinum með miklum yfir-
burðum. Er hún heimsmeistari
1964 í þríkeppni, en fyrirfram
var ákveðið að heimsmeistara-
keppnin skyldi ákvarðast af
Olympíukeppninni í greinunum
þremur.
McDermott fagnar sigruium.
Fékk lánaða skauta og vann
23 ára gamall bandarískj’r
rakari óvæntasti sigurvegu.
inn I Innsbruck
MEÐAL óvæntustu oe fræki-
legustu sigra sem unnir hafa
verið í Innsbruck verður án
efa sigur Bandaríkjamannsins
Ridhard McDermott.
Þessi lítt þekkti skautagarp-
ur steypti af stóli ókrýndum
„hraða-konungi“ Sovétríkj-
anna, h e imsmeth af a n um og
„hinum ósigrandi" Eugeny
Grishin, sem aldrei hefur ver-
ið sigraður á 500 m. vega-
lengd á sínum langa ferli.
500 m. skautahlaupið var
einstætt í sögunni. Grishin
hljóp í 2. riðli og allir töldu
að tíminn 40.6 nægði til sig-
urs og gulls. En í 4. riðli náði
landi hans, V. Orlov sama
tíma og í 7. riðli fór Norðmað
urinn Alf Gjestvang fram úr
öllum björtusbu vonum og
náði sama tíma. Þrír menn
með sama tíma — 3 gullverð-
laun — slikt hafði aldrei áður
skeð. En svo kom McDermott
í 17. riðli, fór stórkostlega af
stað og hélt hraðanum, átti
ógleymanlegt hlaup — og
vann öllum að óvörum.
— Ég keppi næstum aldrei
heima í Bandaríkjunum. Ég
hef ekki ráð á því. Skauta-
mótin taka tvo daga en ég
verð að vinna laugardaginn.
Ég hef ekki róð á að sleppa
laugardeginum því 75 dala
kaup yfir vikuna er ekki of
mikið.
Ég verð því að standa við
rakarastólinm minn nr. 3 í
stofunni hans frænda míns.
Kannski eignast ég stofuna ein
hvern tíma. Þá væri dósam-
legt að vera sinn eigin herra.
— Ég æfi allt of lítið, venju
lega 1 tíma á dag þrisvar í
viku, nema nú þetta árið er
ég komst í æfingabúðir í Colo
rado Springs.
Ég hefði ekki haft efni á að
fara hingað ef konan min
hefði ekki hlaupið undir
bagga. Hún vinnur úti og sér
um heimilið fjárhagslega með
an ég er í burtu. En það var
leiðinlegt að hún Skyldi ekki
geta komið með mér.
— En það skemmtilegasta
og undarlegasta er e.t.v. að ég
hijóp og vann á lánsskautum.
Það er þjálfarinn minn sem á
þá. ‘Þeir eru dálítið lengri en
mínir og hann taldi að þeir
gæfu betra rennsli. Og það
var líka rétt.
Sigurinn er mér ómetanleg-
ur — miklu meira virði en
peningar. Ég vona líka að
hann verði til þess að við í
Bandaríkjumum fáum skauta-
svæði á við þau sem til eru
í Evrópu. Ég hef æft á base-
ball-leikvelli sem sprautað er
á þegar frost er.
Dermott var afar vinsæll
meðal blaðamanna sem segja
að hann sé mesti álhugamaður
inn af öllum keppendum . í
Innsbruok og einn segir: —
Sigur Dermaats er sigur áhuga
mennskunnar yfir atvinnu-
mennskunni. Hann sýnir að
venjulegt fólk á enn mögu-
leika til sigurs í keppni við
þá sem allar aðstæður hafa.
Vindsveipir eyðilögðu hlaup
margra þeirra beztu
Antson sigraði i 1500 m skautahlaupi
ANX Antsson, Eistlenzki heims-
meistarinn í skautahlaupi vann
gullverðlaunin í 1500 m skauta-
hlaupi í Innsbruck í gær. Sigur
hans kom engum á óvart. En
menn sem ekki hafði verði spáð
verðlaunum unnu silfrið og
bronsið, Hollendingurinn Cees
Verkerk var annar og Norðmað-
urinn Villy Haugen þriðji.
•Jc Slæm aðstaða
Aðstæðurnar voru slæmar
og tilviljanakennt hvernig að-
staðan var fyrir skautahlaupar-
an. Veðrið breyttist oft á klukku
stund. Nú vr það ekki sólskinið
sem gerði mönnum erfitt fyrir.
heldur breytilegir stormsveipir
sem skemmdu fyrir skautamönn
unum.
Antson fékk allmiklu verri að
stæður er hann hljóp en til dæm-
is Hollendingurinn Verkerk.
Hollendingurinn fékk algert
logn á meðan hann hljóp. Afrek
hans var óvenjulegt og mjög
gott, en fréttamenn NTB telja
að honum hefði ekki tekizt að
vinna til verðlauna ef hann hefði
hlaupið við sömu aðstæður og
voru þegar margir hinna beztu
hlupu.
Gott hlaup
Antsson hljóp mjög vel og
tókst þrátt fyrir goluna að halda
fyrirhugaðri ferð. En á síðasta
hring kom vindurinn honum úr
jafnvægi og hann varð að betita
sínum síðustu kröftum til að ná
þeim tíma er nægCi til gullverð-
launa.
Vegna vindsins brenndu marg
ir frægir garpar sig á því að
fara of geist í byrjun og svo
þrutu kraftarnir móti vindinum
er þreytan gerði vart við sig.
Meðal þeirra voru sovézki meist-
arinn Grishin og Finninn Jærv-
inen.
Antson er 25 ára gamall. Hann
varð Evrópumeistari fyrir fáum
dögum og var það mót fyrsta
stórmótið sem hann sló í gegn
á. Bezti árangur hans í skauta-
hlaupunum fjórum eru svo frá-
bær að hann á samanlagt einn
bezta árangur sem nokkur
skautamaður hefur náð fyrr og
síðar.
Skíðamót í Skálafelli
á laugardag og sunnudag
UM helgina verða haldin tvö
skíðamót í Skálafelli. Á laugar-
daginn kl. 3 hefst afmælismót
K.R. sem er stórsvigsmót með
þátttakendum frá: Skíðadeild Ár
manns, Í.R., Víkings og K.R.
Á sunnudaginn kl. 11 hefst
Stefánsmótið 1964 og er það
svigmót í öllum flokkum með
þátttakendum frá sömu félöguim
og í stórsvigi. Mót þetta er minn
ingarmót um Stefán heitinn
Gíslason einn af brautryðjend-
um K.R. Stefán dó fyrir mörgum
áurum en félagar hans úr K.R.
Framh. á bls. 23