Morgunblaðið - 07.02.1964, Blaðsíða 6
0
MORGU NBLAÐiB
i
Fðstudagur 7. febr. 1964
Landsbankinn og
Glaumbær
Mdl Sigurbjörns að koma til dóms
MUNNLEGUR málflut'ningur í
fjársvikamáli Sigurbjörns Eiríks
sonar, veitingamanns, mun íara
fram hinn 11. þ.m. og verður
málið þá væntanlega tekið til
dóms.
Að undangenginni réttar-
rannsókn, sem fram fór í saka-
dómi í septiember og október
höfðaði saksóknari með ákæru
útg. 25. nóvember 1963 mál gegn
Sigurbimi Eiríkssyni og gjald-
kerunum Garðari Siggeirss. og
Marinó Hafstein Sveinssyni. —
Sigurbjörn er ákærður fyrir, að
hann hafi framið brot gegn 248.
gr. almennra hegningarlaga —
(fjársvik) með sölu 6 tékka í
Landsbanka Islands 19.—21.
sept. 1963 að fjárhæð samtals
kr. 1.925.000,00. Gjaldkerunum
er gefið að sök, að þeir hafi
misnotað, m.a. í eiginhagsanuna-
skyni aðstöðu sína með því að
greiða áðumefnda tékka gegn
fyrirmælum aðalféhirðis Lands-
bankans, og eru þeir ákærðir til
refsingar skv. 139., 140., 141. og
249. gr. alm. hegningarlaga. —
Sigurbjöm er loks ákærður fyr-
ir hlutdeild í brotum gjaldker-
anna
Forsaga málsins er sú,
að Sigurbjörn keypti snemma
árs 1963 jörðina Álfsnes af Ólafi
Jónssyni, sem þar stundaði bú-
skap, einkum andarækt. Um
sama leyti mun Sigurbjöm ásamt
Ólafi hafa keypt hlutabréf í
Kaupskip h.f sem þá var verið
að stofna. Var Sigurbjörn
skömmu síðar ráðinn fram-
kvæmdastjóri Kaupskipa.
Á miðju síðastliðnu sumri
veittu æðri starfsmenn Lands-
banka íslands því athygli, að
Sigurbjörn Eiríksson stundaði
svokölluð keðjuávísanaviðskipti
milli reikninga í ýmsum bönk-
um. Voru þegar 1 stað gerðar
ráðstafanir til að stöðva þessi
viðskipti. Fengu allir gjald-ker-
ar aðalbankans skrifleg fyrir-
mæli um að kaupa ekki ávísan-
ir af Sigurbirni.
Um svipað leyti tók Sigur-
björn sér á hendur ferð til Egils-
staða. Greiddi hann þar skuld
Ólafs Jónssonar í Álfsnesi við
útibú Búnaðarbankans á staðn-
um. Nam skuldin um 35 þús. kr.
Einnig lagði Sigurbjörn nokkra
fjárhæð inn á hlaupareikning í
eigin nafni hjá útibúinu. Kom
hann að máli við útibússtjór-
ann, Halldór Ásgrímseon, kvaðst
vera framkvæmdasitjóri fyrir-
tækisins Kaupskipa h.f. sem væri
fjárvant um þessar mundir, og
falaði lán af honum. Synjaði
útibússtjórinn málaleitan þess-
arL
Hálfum mánuði eða þrem vik-
um síðar komst Sigurbjörn hins
vegar að skriflegu samkomulagi
við útibússtjórann á Egilsstöðum
um allt að 3 millj. kr. lán í
formi yfirdráttarheimildar á
hlaupareikning sinn. Meðal trygg
inga fyrir láni þessu var 1 millj.
kr. lánsloforð frá Framkvæmda-
bankanum til Ísíélags Keflavík-
ur, sem þó mun hafa verið veitt
með þeim fyrirvara, að ístfélagið
uppfyllti skilyrði til ríkisábyrgð-
ar fyrir láninu. Lán Fram-
kvæmdabankans átti ekki að
koma til útborgunar fyrr en í
febrúarlok 1964, en Sigurbjörn
keypti loforðið, og var talsverð-
ur hluti kaupverðsins greiddur
með ávísunum, sem engin inni-
stæða var til fyrir á þeim tíma.
Jósafat Arngrímsson, forstjóri
ísfélagsins, mun hafa borið fyrir
rétti, að þessi greiðslutilhögun
hafi verið samkvæmt samkomu-
lagi.
Síðar kom í Ijós, að tveir gjald
kerar Landsbankans höfðu ekki
hlýtt fyrirmælum þeim, sem áð-
ur eru netfnd, en haldið áfram
að kaupa ávísanir frá Sigurbirni.
Svipað gerðist í öðrum bönk-
um, unz svikin komust upp hinn
25. september. Höfðu þá næstu
daga á undan verið keyptar í
Landsbankanum ávísanir á aðra
banka að upphæð alls um 2
milljónir króna. Komst einnig
upp um innistæðulausar ávísanir
í öðrum bönkum fyrir eitthvað
á aðra milljón króna. Af yfir-
dráttarheimildinni á Egilsstöð-
um hafði Sigurbjöm notað um
2,5 millj. kr. að mestu leyti í
þágu Kaupskipa h.f. sem nú
hafa tekið á sig þá skuld.
Landsbanki íslands gerði,
strax eftir að upp komst um
svikin, löghald í ýmsum eignurn
Sigurbjöms og hefur síðan
fylgt því eftir með fjárnámum.
Hetfur í Lögbirtingarblaðin-u að
undanförnu mátt lesa auglýsing-
ar um uppboð á þessum eignum.
Svo virðist sem talsvert hafi
verið togazt á um Glaumbæ I
þesssu sambandi. Landsbankinn
hefur hvað eftir annað heimtað
fjárnám þar, en orðið að fresta
kröfum sínum eða falla frá þeim
í bili, vegna þess að vinir Sigur-
björns hafa komið fram í fógeta
rétti og boðið fjárnám í verð-
mætum eignum sínum.
Borgarstjórinn
varnaði blökku-
börnum aðgang
Tuskagee, Alabama,
5. febr. NTB.
• ÞAÐ olli mikilli ólgu í Ala-
bama í dag, er borgarstjóri
bæjarins Notasulga kom í eigin
persónu í veg fyrir, að sex
blökkunemendur fengju aðgang
að einum gagnfræðaskóla bæjar-
ins.
Er bifreiðin, sem flutti nem-
endurna til skólans, nam þar
staðar, beið borgarstjórinn,
James Rea, þar eftir þeim og
bannaði að þau færu inn í skóla-
húsið, — á þeirri forsendu að
bruna — og öryggisútbúnaður
skólans leyfði ekki, að þar væru
fleiri nemendur að sinni.
í öðrum bæ, skammt frá Tusk-
age, voru önnur sex böm inn-
rituð í skóla, áður ætluðum hvit-
um eingöngu, — án þess að til
tíðinda drægi.
Ríkisstjórinn í Alabama,
George Wallace, hefur enn á ný
lýst því yfir, að hann muni berj-
ast gegn fyrirmælum stjórnar-
innar í Washington um samskól-
un hvítra og blakkra — með
valdi ef nauðsyn krefji. Hefur
hann og hvatt hvíta nemendur
Alabama til þess að hrekja úr
skólum sínum þá blökkunemend
ur, sem innritun hafa fengið.
Hefur stjórn Ghana
staðið oð árásum
á sendiráb USA?
Washington, 5. febr. (NTB)
* BANDARÍKJASTJÓRN
hefur formlega sakað stjórn
Ghana um að hafa staðið að
baki óeirðum þeim, er urðu
við bandaríska sendiráðið í
Accra í gær — eða að minnsta
kosti að hafa hvatt til þeirra,
að því er talsmaður banda-
ríska utanríkisráðuney tisins,
Richard Philips, sagði í dag.
í dag hafði aftur safnazt sam-
an nokkur mannf jöldi fyrir fram-
an sendiráðið en ekki dró til
jafnalvarlegra tíðinda og í gær,
er Afríkumenn reyndu að rífa
niður bandaríska fánann.
Þegar í gærkveldi höfðu Menn
en Williams, aðstoðarutanríkis-
ráðherrn, sem fjallar um málefni
Afríku, og sendiherra Bandaríkj-
anna í Accra, William Mahoney,
mótmælt harðlega atburðum þess
um og ítrekuðum árásum stjórn-
ar landsins á Bandaríkin.
Dagblöðin í Ghana, sem eru
undir ströngu eftirliti Nkrumah,
forseta — og túlka vart annað
en skoðanir hans og stefnu —
hafa að undanförnu haldið uppi
sleitulausum árásum á Banda-
ríkjastjórn, borið henni á brýn
að hafa hvatt til uppreisnar gegn
forsetanum og jafnvel að hafa
staðið að baki undangengnum
morðtilraunum við hann.
Aðspurður sagði Richard Phil-
ips, að ekki mundi hafa verið
tekin um það ákvörðun, hvort
tekið yrði fyrir efnahagsaðstoð
við Ghana, haldi slíkum árásum
á Bandaríkjastjórn áfram.
íkvikmin í
Neskaupstað
Neskaupstað, 5. febr.
KL. átta í morgun var slökkvi-
liðið kvatt út. Hafði kviknað 1
húsinu Sjónarhóli. Þegar slökkvi
liðið kom þangað, var eld-ur laua
í kyndiklefa hússins. Tókst fljót
lega að ráða niðurlögum hans-
Nokkrar skem-mdir munu þó
hafa orðið á húsinu, einkum af
reyk, sem var mikill, og lagði
hann um allt húsið. Einnig
komst eldur milii veggja á ein-
um stað, og varð þar að rífa 1
burtu, svo að hægt væri að kæfa
eldinn. Eldsupptökin rnunu hafa
átt sér stað í kyndiklefanum.
80 tonn bárust
Akranesi, 5. febr.
HINGAÐ bárust í gær 10 tonn,
sem fengizt höfðu á línuna. 16
bátar lönduðu. Aflahæstir voru
Sigrún með 10.7 tonn og Sigur-
fari með 7.1 tonn. Aflinn er flak
aður og hraðfrystur. Haraldur
fiskaði í nótt 1.600 tunnur atf
síld.
Rver ætti að þvo upp?
Mbl. sagði frá því í fyrradag,
að slegizt hefði verið um sjón-
varp og útvarp í húsi einu 1
bænum, sumir viljað hlusta á
„Bonanza“, aðrir á Svavar
Gests. Var lögreglan auðvitað
kvödd á vettvang og er sagt,
að hún hafi skrúfað fyrir
Svavar og valið „Bonanza“ af
því að það er ekkert sjónvarps
tæki á stöðinni.
Annars er þetta þjóðráð,
sem fæstum hefur sennilega
komið til hugar: Kalla í lög-
reglulið um leið og ágreining-
ur kemur upp í heimahúsum.
Segjum svo, að ágreiningur
yrði um það milli hjóna, hvort
þeirra ætti að þvo upp eftir
kvöldmatinn. Þá mundi fólk-
ið í sjónvarpsslagnum senni-
lega kalla í lögregluna. En
hvað svo? Hver þeirra þriggja
ætti þá að þvo upp?
Nei, sem betur fer þurtfa
ekki allir lögregluhjálp til að
komast í sokkana.
Óvænt erindi
Annars er bezt að skjóta því
hér inn í samkvæmt ósk eins
af lesendum blaðsins, að full
þörf er á löggæzlu við Sund-
laugarnar. Hundruð barna
ganga þar yfir götuna daglega
— og enda þótt gangbrautin sé
merkt virðast fæstir ökumanna
virða rétt hins gangandi fólks.
Þetta segir einn þeirra, sem oft
fer þarna um.
Hann sagði líka, að ekki alls
fyrir löngu hefði maður ekið
á dreng á þessum slóðum.
Drengurinn hefði verið fluttur
í sjúkrahús, þó ekki lífshættu-
lega slasaður, sem betur fer.
Ökumaðurinn hefði komið
heim til foreldranna daginn
eftir — til þess að spyrjast fyr-
ir um líðan drengsins, héldu
foreldrarnir. En erindið var
allt annað. ökumaðurinn
spurði nefnilega hvort piltur-
inn hefði ekki verið tryggður.
Framrúðan hefði brotnað í bíln
um um leið og drengurinn
skall í hana — og maðurinn
skall i hana — og maðurinn
taldi sig eiga bætur skildar.
Þannig getur gangandi fólk
valdið ýmsu tjóni á bifreið-
um.
Með gamla laginu
Annar lesandi, til heimilis
við Ránargötu, spyr hvenær
bæjaryfirvöld ætli að fjar-
lægja Doktorshúsið svonefnda
og láta nýt.t koma í staðinn.
Sá þriðji þakkar fyrir Passíu-
sálmana í útvarpinu og Guð-
mund Jónsson, sem syngur
jafnan tvö erindi með gamla
laginu á eftir lesturinn.
Palladómar Magnúsar
„Húsmóðir“ skrifar eftir-
farandi bréf:
Kæri velvakandi!
ÞEGAR ég var að lesa um 50
ára afmæli Eimskipafélagsins
og sá myndir af forgöngumönn-
um þess, þá datt mér í hug,
að það var efcki í álna heldur
metravís, sem þessir menn
voru níd-dir og ofsóttir í Tím-
anum á sínum tíma. Þessi
flofckur (Framsókartfttokkur-
inn) hefur alltaf lagzt á móti
öllu, sem hefur orðið þessu
landi til blessunar, enda muna
allir þegar flokfcurinn, sem
kennir sig við bændur, rauí
þing aðeins vegna þess að
stjórnarandstaðan vild; fara að
rafvæða sveitirnar. Flokfcur-
inn var viss með meirihluta í
skjóli rangrar kjördæmaskip-
unar, en ég hugsa, að
minnsta kosti sveitahúsmæður
í dag villji ekfci missa raf-
magnið. Eitt tófc þess flofckur
upp á sína arma. Það voru
kommúnistar, enda alltaf fund-
vís á það, sem til óþurftar er
þjóðfélaginu. í gamla daga
fóru dugnaðarmenn að salta
sild hér og græddu stundum
og sérstatolega varð atf þessu
mikil búbót fyrir verkafólk.
Þetta gat Framsóknarflokkur-
inn ekki horft á aðgerðarlaus,
og nú var reitt hátt til höggs.
Tekinn var próflaus mennta-
skólakennari og gerður að for-
stjóra síldareinkasölunnar, þvf
að nú mátti enginn græða.
Þessi maður hafði ekkert sér
til ágætis nema að vera froðu-
fellandi kommi, og hann sveik
ekki húsbændur sína. Ég man
líka það, að greindur bóndi
trúði mér fyrir því, að versta
plága landsins væri togara-
útgerðin, sem í þá daga skilaði
öllum hlutaðeigendum arði og
ekfci minnst ríkissjóði, en bónd-
inn hafði allan sinn visdóm úr
Tímanum.
Magnús Magnússon ritstjóri
Storms skrifaði einu sinni
palladóma um alþingsmenn.
Þeir þóttu hlutdrægir á sínum
tíma, en annað kemur í ljós nú,
þegar þeir eru skoðaðir í ljósi
staðreyndanna. Það kemur
nefnilega skýrt í ljós. að þegar
talað er um Framsóknarmenn
þá er engu hægt við að bæta.
Þar tala verkin svo skýru málL
Það er nú búið að laga það
mikið kjördæmaskipulagið og
við þurfum aldrei að óttast að
Framsóknarflokikurinn komistf
i stjórn, en það er til skammar
hvað hann hefur marga þing-
menn enn í dag. Þess vegna
skora ég á húsmæður að láta
börn sín lesa palladóma Magn-
úsar, því að þar er að finna
mikinn og lærdómsrífcan fróð-
leik, skrifaðan á skínandi fall-
egri íslenzku.
Húsmóðir.
ÞURRHIÖDUR
ERU ENDINGARBEZIAR
BRÆÐURNIR ORMSSON htf.
Vesturgötu 3.
Simi 11467.