Morgunblaðið - 05.03.1964, Qupperneq 2
I
m
MORCUN BLAÐIÐ
Ffrnmtudagur 5. marz 1964
I I ■: j
Tvær nýjar AB-bækur:
Bók um Mexico og
,Páfinn situr enn í Róm‘
FYRSTU bækur Almenna
bókafélagsins á árinu 1964
eru nú komnar út, bækur
mánaðanna janúar og febrú-
ar. —
Janúar-bókin er Mexíkó eftir
William Weber Jöhnson. Þýð-
andi er Þórður Örn Sigurðsson.
Þetta er áttunda bókin í hin-
um vinsaela bókaflokki AB,
Lönd og þjóðir. Höfundurinn er
bandarískur maður, sem hefur
ritað margt um Mexíkó, enda ná
kunnugur landi og þjóð.
Bókin rekur í stórum dráttum
sögu Mexíkó allt frá dögum Azt-
ekanna, sem réðu í landinu fyrir
komu Spánverja þangað. Segir
hún frá landvinningum Spán-
verja, nýlenduskeiðinu, óánægju
og uppreisnum landsbúa, sem
leiddu til sjálfstæðis þjóðarinnar
árið 1810, og loks sögu seinustu
áratuga. Höfundur lýsir baráttu
leiðtoga þjóðarinnar til að bæta
lífskjör almennings, auka mennt
un og framfarir og skipa land-
inu sess meðal menningarþjóða
nútímans.
Eins og fyrri bækur í þessum
bókaflokki, er Mexíkó um 160
bls. að stærð, prýdd á annað
hundrað myndum. Myndirnar
eru prentaðar á Ítalíu, en texti
er prentaðu r í prentsmiðjunni
Odda. Sveinabókbandið annaðist
bókband.
Febrúar-bókin heitir Páfinn
situr enn í Róm eftir Jón Óskar
rithöfund.
Bókin er að meginefni til ferða
þættir höfundar frá Ítalíu og
Rússlandi. Lýsir hann nokkuð
kynnum sínum af löndum þess-
um og fólki, er á vegi hans verð-
ur. Dregur hann víða upp lif-
andi myndir úr daglegu lífi al-
mennings. Jafnframt beinist at-
hygli hans að ýmsum þeim þjóð-
félagsvandamálum, sem nú eru
efst á baugi og mannkynið glim-
ir við. Er ekki að efa, að niður-
stöður hans munu vekja mikla
athygli.
Ætlunin var, að bók þessi
kæmi út seint á árinu 1963 og
var handrit hennar fullbúið frá
höfundi síðari hluta sumars, en
vegna prentaraverkfallsins varð
að fresta útkomu bókarinnar
þar til nú.
Bókin er rúmar 100 bls. að
stærð, prýdd nokkrum mynd-
um, sem flestar eru teknar af
höfundi.
Víkingsprent annaðist prent-
un, en Félagsbókbandið bókband.
Skógræktarmennirnir, sem sækja fundinn, talið frá vinstri: Hákon Bjarnason, skógræktarstjóri; —
Garðar Jónsson; Haukur Ragnarsson; Einar G. E. Sæmundsson, Ármann Dalmannsson, Indriði
Indriðason, Sigurður Jónasson, Snorri Sigurðsson; Isleifur Sumarliðason; Ágúst Árnason; Sigurður
Blöndal; Daniel Kristjánsson og Baldur Þorsteinsson. (Ljósm.: Sv. Þ.).
Skógræktin hefur 1,1 milii.
plantna til ráðstöfunar í ár
Norskur einsöngvari
með Sinióníusveitinni
XI. tónleikarnir í kvöld
Hinn árlegi fundur skógrækiarstjóra,
fulltrúa og skógarvarða i Reykjavik
• í kvöld verða XI. tónleikar
Sinfóníuhljómsveitar íslands
haldnir í Háskólabíói. Stjórnandi
er að þessu sinni írinn Proinn-
sías 0‘Duinn og einsöngvari
norskur baritónsöngvari, Olav
Eriksen að nafni. Syngur hann
með hljómsveitinni „Den berg-
tekne“, op. 32 eftir Edvard Grieg,
sem margir hafa talið hans bezta
tónsnvð og „Kung Eriks visor“
eftir Ture Rangström. Auk þess
eru á efnisskrá Syir.'ónía í C-dúr
eftir Georges Bizet og Symfó-
nía nr. 7 í d-moll op. 70 eftir
Antonin Dvorak.
Einsöngvarinn, Olav Eriiksen,
er 37 ára að aldri. Hann lagði
fyrst stund á söng- og tónlistar-
nám í höfuðborgum Norðurlanda
og nam síðan við St. Cecilia-
tónlistarháskólann í Róm. Var
'hann einn af hundrað nemendum
er þreyttu inntökuprófið í þann
skóla haustið 1954 og einn af
tíu nemendum, er fengu aðgang
að skólanum. Ári siðar söng hann
í fyrsta sinn í óperu í Róm, „La
finta giardiniera“ eftir Mozart,
og sama ár var hann ráðinn að
óperunni í Mainz. Árin 1958-60
var hann fastráðinn að óperunni
í Regensburg, sem fyrsti bariton
— en á undanförnum árum hefur
hann sungið sem gestur við marg
ar óperur í Evrópu, og haldið
sjálfstæða tónleilka, einkum í
Þýzkalandi, Austurríki, Hollandi
og á Norðurlöndum. Meðal ann-
ars hefur hann surngið undir
stjóm Herberts Von Karajan í
„Töfraflautunni“ eftir Mozart við
ríkisóperuna í Vín, og er ráðinn
til að syngja þar fleiri óperuhlut
verk.
Eriksen sagði í viðtali við
blaðamenn i gær, að hann hefði
kiomið hér fyrír hálfu öðru ári
og sungið á skemmtun Norrænu
félaganna og þætti sér mikill
fengur að koma hér aftur. Hann
fór lofsamlegum orðum um
hljómsveitarstjórann unga
OTíuinn, og sinfóníuhljómsveit-
ina — og hvað það hafa komið
sér á óvart, hve vel hún hefði
leikið verkin eftix Grieg og Rung
ström á æfingunni þá um morg-
uninn.
Erikson syngur að þessu sinni
einnig á Akureyri og Self i si, á
vegum tónlistarfélaganna þar,
Olav Eriksen.
með undirleik Árna Kristjánsson
ar, píanóleiikara. Á efnisskrá hans
þar verða lög eftir Grieg og ljóða
flokkurinn „Dichterliebe“ eftir
Schumann .Einnig er ákveðið, að
hann syngi inn á band fyrir Ríik-
isútvarplð, einnig með aðstoð
Árna Kristjánssonar.
Að sögn Gunnars Guðmunds-
sonar, framkvæmdastjóra hljóm-
sveitarinnar, þykir Eriksen fram-
úrskarandi túlkandi tónlistar
Griegs. Hann hefur sungið verk
hans oftar en nokikur annar á
tónlistarhátíðinni í Bergen eða
al'ls átta sinnum, enda sagði söng
varinn, að Grieg væri orðinn eins
konar „sérgrein" sín.
Proinnsías 0‘Duinn er nú senn
á förum aftur til írlands. Áður
mun hann þó stjórna aukatónleik
um Sinfóníuihljómsveitarinnar,
er væntanlega verða 11. marz
n.k. Þar verður eingöngu leikin
óperutónlist og koma fram a.m.k.
fjórir einsöngvarar. O'Duinn hef-
ur nýlega stjórnað fjórum skóla-
tónleikum hljómsveitarinnar og
kvaðst aðspurður telja, að þeir
hefðu tekizt allvel og hljómsveit-
in náð til hinna ungu áheyrenda.
ÞESSA DAGANA stendur yfir
í Reykjavík hinn árlegi fundur
skógræktarstjóra, fulltrúa og
skógarvarffa Skógræktar ríkisins,
og sitja hann alls 14 menn. Fund
ur hófst sl. mánudag og lýkur
væntanlega n.k. föstudag.
Hákon Bjarnason, skógræktar-
stjóri, sagði í viðtali við Morgun
blaðið, að á fundinum væri gerð
starfsáætlun fyrir árið, ráðstafað
þeim plöntum sem fyrir hendi
eru og gerðar áætlanir um að
afla nýrra og frækaup ákveðin,
rætt um hvaðan skuli kaupa og
hvar plönturnar verði gróðursett
ar. Loks væri tekið fyrir viðhald
SUMARFERÐ er nú
á vegum landsins og
fjallvegir margir vel færir. Það
hefði einhvern tíma þótt saga
til næsta bæjar að bíl væri ekið
frá Hórnafirði um Austfirðina,
yfir Oddsskarð og Fjarðarheiði
um mánaðamótin febrúar/marz
Þetta gerðu hins vegar tveir
Reykvíkingar nú um mánaðamót
in, þeir Kristján Kristjánsson,
sölumaður hjá Kristjánson h.f.,
og Þórhallur Sigurjónsson, heild
sali. Þeir fóru með skipi til
Hornafarðar og lögðu þaðan upp
á Austin Gypsy-jeppa 24. febrúar
um Austfirðina alla. Frá Seyðis-
firði til Vopnafjarðar fóru þeir
að vlsu á skipi til tímasparnað-
ar, en vegurinn var fær þar á
Pólverjarnir
sóttir
MBL. átti í gær til við skrif-
stofu verzlunarfulltrúa Pólverja
hér. Var frá því skýrt að í nótt
eða dag sé von á pólska skip-
inu Pegasus af Nýfundlandsmið-
um, en hingað sækir skipið skip
brotsmenn af Wislok. Pegasus er
rúmlega 1000 tonna verksmiðju-
togari og móðurskip, að þvi Mbl.
var tjáð í gær.
jarðeigna, hús og annarra eigna
Skógræktarinnar.
Skógræktin hefur nú til ráð-
stöfunar 1,1 milljón plantna, en
hefði átt að hafa 1,5 milljón, en
vegna skakkafalla í páskaihretrau
á s.l. vori eru nú fyrir hendi
mun færri plöntur en fyrirhugað
var. Þá má geta þess, að girðing
ar Skógræktarinnar eru nú rösk
lega 350 kílómetrar að lengd og
þarfnast þær allmikils viðhalds
og endurnýjunar.
Eitt af þeim málum sem fund
urinn hefur rætt eru áhrif kulda
kastsins á sl. vori, en þá urðu
einkum tvær trjátegundir, ösp og
milli engu að síður. Þaðan var
ekið með ströndinni til Þórsihafn
ar og Akureyrar og komið þang
að í fyrradag. — Þórhallur mun
síðan hafa farið á öðrum bíl
Syðri leiðina fyrir Skaga frá
Sauðárkróki, og er skýrt frá því
á öðrum stað í blaðinu í dag.
viss afbrigði af sitkagreni, fyrir
talsverðum skakkaföllum, allt
frá Hvalifirði og austur í Vilk í
Mýrdal.
Stendur nú til að breyta nokk
uð um fræsöfnunarstaði í Alaska
og verða nú fræin tekin þar sunn
ar en áður vegna fenginnar
reynslu. Fræ frá Noregi stóðu
sig hins vegar vel í kuldakastinu,
sem mun vera hið versta áhiaup
sam komið hefur á þessari öld.
Póll Giikkjokon-
ungur duuðvonn
Aþenu, 4. marz (NTB)
TILKYNNT var í Aþenu í kvöld
að heilsu Páls Grikkjakonungs
hafi mjög hrakaff, svo vart væri
við þvi búizt að hann lifði nótt-
ina. Hann þekkir ekki fjölskyldu
sina, sem situr við sjúkrabeð
hans, og biffur þess, sem Verða
vill. —
Seint í kvöld var George Pap-
andreu, forsætisráðherra, kvadd-
ur til Tatoi-hallarinnar, þar sem
konungur hefur legið siðan gerð-
ur var á honum uppskurður
vegna magasjúkdóms hinn 2L
febrúar sl.
Beðið hefur verið fyrir kon-
ungi í allan dag í öllum kirkj-
um landsins, og grískar útvarps-
stöðvar hafa sent út sorgartón-
MIKIÐ háþrýstisvæði er fyrir hlíðum hæðarinnar er áttin
austan ísland og beinir til svo að í Vestur-Evrópu eru
landsins hlýju lofti af hafinu kuldar og víða hríðarfjúk eða
suðaustur undan og frá Bret- slydduslitringur. Um hádegið
landseyjum. Því eru hlýindin í gær var jafnvel eins stigs
einráð um þessar mundir. frost í París.
í austurhluta eða austur-
Fóru á bíl um alla Aust-
firði til Akureyrar
Óvenjulegt á þessum árstíma