Morgunblaðið - 06.03.1964, Síða 8
V
MORCUNBLAÐIÐ
r
Fostudagur 6. marz 1964
Rætt um tilboð og
bryggjusmíði
í borgarstjórn í gær
, Guðrún G.K. 37 við bryggju í Hafnarfirði.
Nýr 235 lesta
Stærsti báturinn í HafnarfTrði
FUNDUR var i borgarstjóm í
gær. í upphafi fundarins var
samþykkt tillaga um að umræð-
ur skuli næstu sex mánuði hljóð
ritaðar til reynslu og skráðar eft-
ir hljómbandinu. Var fundurinn
í gær hinn fyrsti, sem þannig
er hljóðritður.
Á dagskrá fundarins voru nokík
rar fundargerðir borgarráðs,
hafnarnefndar og heilbrigðis-
nefndar. Urðu umræður um þrjú
atirði í fundargerðunum, í öll
skiptin fyrir frumkvæði Guð-
mundar Vigfússonar.
Vegna samiþykktar borgarráðs
á tillögu Innkaupastofnunarinn-
ar um að taka tilboði lægstbjóð-
anda í hitaveitu í Skjólin, lagði
Guðmundur fram tillögu um að
stefna beri að því, að hitaveit-
an sjálf getj framkvæmt slík
Finnavaka
í Kópavop;i
NORRÆNAFÉLAGIÐ í Kópa-
vogi efnir til Finnavöku í Fé-
lagsheimilinu sunnudaginn 8.
marz kl. 20.30. Er vel vandað
til dagskrár, og munu Finnar,
staddir hér og búsettir leggja þar
sitt fram. Verða stutt erindi,
kvikmyndasýning, ljóðasöngur
og fiðluleikur o. fl. á dagskránni.
Allir Finnar hér á landi eru sér-
staklega boðnir velkomnir á
vökuna, svo og allir félagar
Norræna félagsins í Kópavogi og
gestir þeirra. Aðgangur er
ókeypis.
verk, þegar tilboð verktaka reyn
ast ekki hagkvæm. Sagði hann
slíkan viðbúnað geta veitt verk-
tökum aðhald.
Borgarstjóri, Geir Hallgríms-
son, kvaðst vera tillögunni sam-
mála í stórum dráttum, en kvað
svo viðamikið mál þurfa rann-
sóknar borgarráðs við og jafn-
framt þyrfti umsögn hitaveitu-
stjóra. Lagði hann til að tillagan
yrði afgreidd í samræmi við það.
Borgarfulltrúarnir Einar
Ágústsson og Óskar Hallgrímsson
tóku mjög í sama streng og borg
arstjóri. Tillaga borgarstjóra var
samþykkt með 12 atkvæðum
gegn atkvæðum kommúnista.
I>á gerði Guðmundur Vigfússon
kvöldsöluleyfi og bryggjusmíði
að umræðuefni, en tillögum hans
var enn hafnað.
Borgarráð hafði lagt til að Val
garð Thoroddsen yrði skipaður
í embætti slökkviliðsstjóra. Það
var samþykkt í borgarstjórn.
HAFNARFIRÐI — f fyrrinótt
kom enn nýr bátur hingað til
bæjarins og hafa þá 8 bátar
verið keyptir erlendis frá á síð-
ustu árum. Af þeim eru 6 norsk-
ir og tveir danskir. Einn fiski-
bátur, Arnarnesið, sem Ingólfur
brú.
Flygenring á, var smíðað hér-
lendis.
Hinn nýi bátur heitir Guðrún
GK 37 og er eign Ása h/f, sem
eiga Auðun fyrir. Hinn nýi bát-
ur er 235 lestir og stærsti fiski-
báturinn hér í Hafnarfirði.
bátur
Hann er smíðaður í Brattvog 1
Noregi og er með Wickman
vél (600 hestafla) og túrbínu.
Ganghraði er 11,2 sjóm. og er
báturinn hið bezta sjóskip. Að
sjálfsögðu er hann búinn ölium
beztu fáanlegu siglinga- og fiski-
leitartækjum, sem eru að Sim-
radgerð. Smíði hans hófst í
septembermánuði 1063 og af-
hentur var hann í lok febrúar
s L — Vistarverur eru allar
hinar ákjósanlegustu og atlur
búnaður hinn vandaðasti. —
Bjarni Árnason skipstjóri hafði
eftirlit með smíði bátsins, en
hann er einn eigendanna.
Skipstjóri er Skarphéðinn
Kristjánsson, 1. stýrim. Árni
Bjarnason og Örn Agnarsson L
vélstjóri. Vélbáturinn Guðrún
fer á netaveiðóu næstu daga.
— G. E.
Eigendur ásamt skipstjóra í
— Minning
Framhald af bls. 6
báðir heimsfrægir tónsnillingar:
tónskáldið Paui Hindemith og
píanóleikarinn Edwin Fischer.
Ef til vill hefir slíkt efni búið
í Ingimundi Árnasyni, ef hæfi-
leikar hans hefðu fengið að þrosk
ast og njóta sín við ákjósanleg
skilyrði.
Söngvinir um allt ísland minn
ast hans með söknuði og þakk-
læti og senda «onu hans og börn-
um hugheilar samúðarkveðjur.
Jón Þórarinsson.
Hafnarfjaröarbíó
50 ára í dag
HAFNARFIRÐI — í dag eru
liðin 50 ár síðan Hafnarfjarðar-
bíó tók til starfa en það var árið
1914. í tilefni af því bj'ður bió-
stjórinn Hafnfirðingum ókeypis
á þrjár sýningar í dag, kl. 5, 7
og 9.
FUNDIR voru í í sam-
einuðu þingi off báðum deild
um. Þetta var 50. fundur sam
einaðs þings, 56. fundur efri
deildar off 65. fundur neðri
deildar.
I sameinuðu þinffi var þings
ályktunartillögunum um lán-
▼eitingar til íbúðabygginga og
nm eignarrétt off afnotarétt
fasteigna, vísað til síðari um-
ræðu og nefndar. Þá hafði
menntamálaráðherra, Gylfi Þ.
Gíslason, framsögu fyrir
þingsályktunartillögu sinni
um kjör fimm
manna nefndar
til úthlutunar
tistamanna-
launa 1964. Hef
ur þessi háttur
verið hafður á
undanfarin ár
og er nú lagt
til, að svo verði
einnig í ár, þar
úthlutun lista-
hafa enn ekki
sett. Það kom fram í
ráðherrans, að lista-
eð lög um
mannalauna
verið
ræðu
mannalaun hafa rúmlega þre-
faldazt síðan 1956.
í neðri deild var jarðræktar
lagafrumvarpinu visað til 3.
umræðu, en breytingartillögur
minni hluta landbúnaðar-
nefndar voru felldar. Frum-
varp um sölu Litlagerðis í
Grýtubakkahreppi var af-
greitt frá deildinni sem lög.
Breytingartillaga dómsmála-
ráðherra um að binda heim-
ildina ekki við nafn, var sam
þykkt.
I efri deild var frumvarpið
um lóðakaup í Hveragerði af
greitt samhljóða til neðri
deildar. Björn Jónsson hafði
framsögu fyrir fnunvarpi
sínu um orlof.
Þá var til 1. umræðu í deild
inni friunvarp rikisstjórnarinn
ar um breytingu á lögum um
stofnlánadeild landbúnaöar-
ins, en frumvarpið er komið
frá neðri deild. Landbúnaðar-
ráðherra Ingólf
]ur Jónsson,
fylgdi frumv.
úr hlaði. Þá tók
til máls ólafur
Jóhanness. og
flutti rök Fram
sóknarmanna
gegn frumvarp
inu. Voru þau
á sama veg og
komið í neðri
fram hefur
deild.
Árni Þorsteinsson stofnaði
bíóið og var það fyrst til húsa
við Reykjavíkurveg í heldur
ófullkomnu húsnæði, en þrátt
fyrir það var það lengi fram
eftir árum eitt af helztu sam-
komuhúsum bæjarins. Var það
eina bíóið í bænum þar til Bæjar
bíó tók til starfa árið 1944, að
vísu var Hafnarfjarðarbíó þá
flutt í hin nýju húsakynni við
Strandgötu árið 1943. Er það með
fullkomnustu sýningarvélum, og
nýlega hafa verið settir í það
nýir stólar, þannig að bíóið upp-
fyllir öll skilyrði, sem gerðar
eru til slíkra húsa.
Á fyrstu árum bíósins voru
kvikmyndir allfrumstæðar, eins
og kunnugt er, og þá þöglar. Var
þá leikið undir á fiðlu eða píanó
og muna eldri Hafnfirðingar
vafalaust þá gömlu góðu daga.
En 1932 komu svo talmyndirnar
og varð þá mi'kil breyting til
batnaðar.
Margar góðar og merkar mynd
ir hafa verið sýndar í Hafnar-
fjarðarbíói frá fyrstu tíð. Má
þar til dæmis nefna Karlsen
stýrimann, sem sýndur var í bíó-
inu frá jólum og allt til hvíta-
sunnu, en það er algert met hér
á landi. Margar fleiri myndir,
sem lengi gengu hafa verið
sýndar, svo sem Marcelino hin
spanski, sem var mjög vinsæl.
En ekki verða fleiri taldar uþp
hér, það • yrði allt of langt mál.
Eigendur að Haf narf j arðar-
bíói eru synir Árna Þorsteins-
sonar, Kristinn og Níels sem er
forstjóri. — Bíóið hefir einka-
rétt á mynduim frá Nordisk
Film og Saga Studio ,í Kaup-
mannahöfn, og þaðan hefir bíóið
fengið margar af sínum beztu
myndum. — G. E.
— /Jbrótfir
Framhald af bls. 22
Karl Guðmundsson. Þetta ráð
mun vinna að því að undirbúa
námskeiðahald á vegum íþrótta-
sambandsins.
í undirbúningi er að tekin
verði upp leiðbeinenda- og í-
þróttanámskeið á ákveðnum stöð
um á landinu. Slík námskeið eru
þegar ákveðin á vegum héraða-
sambanda að Núpi í Dýrafirði og
að Laugum í Þingeyjarsýslu.
Reynt verður einnig að koma á
fót slíkum námskeiðum víðar
t. d. í Reykjakóla í Hrútafirði,
að Eiðaskóla og á ýmsum öðr-
um stöðum, sem tiltækilegir eru.
Sumarbúðir fsf
í ráði er að reknar verði á
vegum íþróttasambands íslands
sumarbúðir á sumri komanda að
Reykholti í Borgarfirði, og að
þeim veiti forstöðu Sigurður
Helgason, skólastjóri í Stykkis-
hólmi. Slíkar sumarbúðir hafa
áður verið reknar af ýmsum
aðilum og íþróttasambandi ís-
lands fyrir nokkrum árum
þóttu nauðsynlegar og áttu mikl-
um vinsældum að fagna, enda
ómetanlegar fyrir það æskufólk,
sem svo lánsamt verður að fá
vist á slíkum stöðum.
Erindrekstur ÍSÍ
Erindrekstur íþróttasamband-
sins hefur á undaniförnum árum
verið aðallega í því fólgin í því,
að heimsótt hafa verið af fram-
kvæmdastjóra og forseta, hin
ýmsu íþróttahéruð í sambandi
við ársþing héraðasambandanna
Slíkt hefur gefið góða raun, en
er hvergi nægi nægilega. Til
stendur að erindrekstur ÍSÍ verði
stóraukinn. Héraðasambönd og
félög verði heimsótt og leiðbent
í starfi og slíikt verði í fram-
tíðinni fastur liður í starfi íþrótta
sambands íslands.
Húsnæðismál
íþróttasambandsins.
Svo sem kunnugt er, stendur
yfir bygging á skrifstofuhúsi
Iþróttasambands Islands og
Iþróttabandalags Reykjavíkur.
Húsið er við hliðina á hinni
miklu íþróttahöll, sem nú er risin
upp í Laugardalnum .Ef áætlan-.
ir standast, er gert ráð fyrir því,
að hús þetta verði það langt
komið á þessu ári, að hægt verði
að flytja i það. Munu þar verða
skrifstofur fyrir fþróttasamband
íslands og öll sérsambönd þess.
Mun það að sjálfsögðu stórbæta
aðstöðuna til starfsins ásamt þvi,
að þar yrði komið á íþróttamið-
stöð þar sem yfirstjórn iþrótta-
málanna er öll á einum stað.
Mun verða leitazt við að búa öll-
um sérsamböndunum þar hin
beztu starfsskilyrði, og þeim lagð
ir til starfskraftar. Rétt þykir i
þes«u sambandi að þakka íþrótta
bandalagi Reykjavíkur fyrir góða
samvinnu og mikinn stuðning við
þetta húsbyggingarmál íþrótta-
sambands íslands.
íþróttaþing ÍSÍ.
Á þessu ári, nánar til tekið
í septemiber n.k. verður haldið
íþróttaþing íþróttasambands ís-
lands. íþróttaþingin eru haldin
annað hivert ár og var hið síðasta
haldið í Reykjavík árið 1962. Á
þessu íþróttaþingi verða tekin
fyrir öll helztu viðfangsefni
íþróttahreyfingarinnar, mótuð
stefna fyrir komandi tíma.
Gísli Halldórsson vék auk
þessa að ýmsum öðrum þáttum
í starfi ÍSÍ, s.s. íþróttamerki ÍSÍ,
málefnum glímunnar, þróttablað
inu, Slysatryggingasjóði ÍSÍ og
formannafundinum sem haldinn
var í Haukadal. Verður vikið að
þeim málum síðar.
aiutuiu
að bonð sainan við útbreiðslu
ei langtum odýrara að auglysa
l Morgunblaðinu en öðrum
blöðum.