Morgunblaðið - 01.04.1964, Page 3
^ Miðvikudagur 1. apríl 1964
MORGUNBLAÐID
3
NÓTTINA eftir páskadag
kom varla nokikrum Vest-
mannaeying blundur á brá.
Ástæðan var sú, að klukkan
fimm á páskadag hafði lítill
drenghnokki, Jón Einarsson,
sem er 2Vz árs gamall, farið
frá heimili sínu og ekki kom-
ið 'heim á venjulegum tíma.
Btrax um kvöldið var hafin
Skipulögð leit að drengnum og
fannst hann í morgunsárið á
annan dag páska, sofandi í
jeppabifreið, örskamman spöl
frá heimili sínu,-
Jón Einarsson er sonur
Fjólu Guðmannsdóttur og
Einars Indriðasonar, skip-
verja á Huginn II. til heimilis
að Hásteinsvegi 16, Vest-
mannaeyjum. Þau hjón eiga
þrjá drengi, 5 ára, 2ja ára og
1 árs. Blaðamaður Morgun-
blaðsins átti tal vig móður
drengsins, Fjólu í gær, og fór-
ust henni svo orð um atburð-
inn á páskadag.
— Jón litli var úti að leika
sér um fimm-leytið, ásamt
eldri bróður sínum og krökk-
Fjóla og Jón litli. „Eg var bara í bíl,
ingar.
sagði hann til útskýr-
gengin í þrjú fór ég niður á
lögreglustöð og var beðinn að
fara með 25 manna leitar-
flokk. Áttum vi ðað leita aust
ast í Austurbænum, eða aust-
urundir Urðarvita. Leitar-
svæðig afmarkaðist að Helga-
fellsbraut að vestan, Austur-
vegi að norðan og Víðivöllum
að sunnan. Þegar við l^omum
að Urðarvita mættum við
öðrum leitarflokki og skiptum
við um svæði. En leitin varð
árangurslaus. Þessu næst fór-
um við í annan leiðangur í
miðbænum, en án árangurs.
Þriðja og síðasta svæðið, sem
við leituðum á, takmarkaðist
að Hásteinsvegi að norSjan,
Heiðarvegi að austan, Brim-
hólabraut að vestan og átt-
um við a.S leita upp að Steypu
stöð. Við vorum nýkomnir-inn
á leitarsvæðið þegar við kom-
um ag bílskúrnum, sem er á
gatnamótum Hásteinsvegar
49 og Hólagötu. Skúrinn stóð
opinn og’ í honum nýleg
Willys-jeppabifreið. Þegar ég
leit inn í bílinn sá ég dreng-
inn sofandi á grúfu í fram-
sætinu. Þá varð allsiherjar
fögnuður í bænum. Bruna-
lúðurinn var settur í gang til
að tilkynna að leitin hefði
borið árangur, lögreglan fór
út fyrir bœinn með vælandi
sírenur til að kalla saman
leitarflokkana, en áætlað er
Fannst sofandi á grdfu í framsæti
jeppans eftir 12 tíma leit
unum i nágrenninu. Um sex-
leytið fór ég að huga að þeim,
en þá var Jón ekki í krafcka-
hópnum. Þá grennslaðist ég
fyrir um hann á þeim stöðum,
sem hann er vanur að koma,
en án árangurs. Um hálf sjö
fórum við að verða óttasleg-
in, maðurinn minn fór niður
á bryggju, til ag vita hvort
hefði sézt til ferða hans þar,
því að sjálfsögðu vorum við
hræddust um að hann hefði
farið í sjóinn, og þá er ekki
að sökum að spyrja um afdrif
hans.
Þessu næst hringdum við á
'lögregluna, hún fór strax á
stúfana, og nokkru seinna
tóku skátarnir þátt í leitinni.
Og þegar líða tók á kvöldið
voru bókstaflega allir Vest-
mannaeýingar að leita að
barninu og hjálpsemi þeirra
voru engin takmönk sett. Veð
var mjög sæmilegt, frostlaust
og rigning öðru hverju.
Ég sat heima alla nóttina
og beið. Þeir sögðu að það
væri bezt fyrir mig, því ég
hafði einhvern veginn ekki
kraft til neins, og einhver
varð ag gæta hinna drngj-
anna. Kvíði minn fór vaxandi-
eftir því sem leið á nóttina.
Nokkru eftir miðnætti kom
sporhundurinn Bangsi fljúg-
andi með Birni Pálssyni til
Eyja. Hann var látinn lykta
af undirlaki úr rúmi Jóns og
síðan tók hann á rás. Komst
hann fljótlega á slóð hans, að
því er virtist, rakti hana til
faúss nokkru vestar við Há-
steinsveginn, þar sem síðast
sást til Jóns. En svo virtist
hann tapa slóðinni, enda mik-
ið búið að traðka þarna í
kring og margir umhverfis
hundinn. Hann fór síðan eitt-
hvað út í hraun. Það dró að-
eins úr kvíðanum að hundur-
inn skyldi ekki fara niður að
sjó. Þó húsið okkar standi
ur var mjög sæmilegt, frost-
laust og rigning öðru hverju.
ekki fast við sjóinn, er stutt
Almáttugur, hvað mér létti,
þegar fregnin barst um að
drengurinn hefði fundizt heill
á toúfi. Klukkan var eitthvað
um sex og tekið að birta. Ég
var farinn að búast við hinu
versta, og ætlaði varla að trúa
mínum eigin eyrum þegar
fréttirnar bárust. Drengurinn
var afskaplega vel klæddur,
en var dálítið kalt á fótunum
þegar hann fannst. Hann
hresstist ótrúlega fljótt, bað
strax um mjólk og bita, og
fór út að leika sér seinna um
daginn. Það var ekki hægt að
halda honum inni, og hann
var alveg útsofinn. Hann seg-
ist ekkert hafa orðið hrædd-
ur, enda held ég hann hræðist
fátt. Þegar við spurðum hann,
favar hann hefði verið, svaraði
hann: „Ég var bara í bíl,“ og
er í aðra röndina hálf undr-
andi á öllu stússinu kringum
hann, sagði frú Fjóla að lok-
um.
•
Maðurinn, sem fann Jón
Einarsson, heitir FriSþór Guð
laugsson, vélsmiður. Hann
sagði í símtali við Morgun-
blaðið í gær, að hann hefði
ekki frétt um hvarf drengs-
ins fyrr en kl. 1 um nóttina. —
Þá fór ég strax og bauð aðstoð
mína, sagði Friðþór. Lokað
hafði verið stóru svæði í bæn
um og stóð ég góða stund á
gatnamótum og beindi um-
ferðinni frá þessu svæði. Þess
má geta, að drengurinn fannst
einmitt innan þessa svæðis
síðar um nóttina.
Þegar klukkan var langt
Sporhundurinn Bangsi, sem
leitaði alla nóttina, og nm-
sjónarmaður han_s, Snorri
Magnússon.
að um þúsund manns hafi tek
ið þátt í leitinni um nóttina.
Meðan þessu fór fram -fór ég
með drenginn til leitarstjóra
skáta, sem býr að Hásteins-
vegi 49 og á hálfan bílskúrinn,
sem drengurinn fannst í.
Hann var nýkominn inn úr
dyrunum til ag fá sér kaffi,
og þeir fengu sér hressingu
saman, leitarstjórinn heitt
kaffi og drengurinn heita
mjólk. Síðan kom læknirinn
á vettvang og rannsakaði
drenginn, og virtist ekkert
ama að faonum. Hann var síð-
an fluttur heim til sín, og
heilsaðist veL
Friðþór Guðlaugsson fann drenginn eftir langa og stranga
leit. Hér sjást þeir brosandi daginn eftir.
STAKSTEIiVAR
’ Kostir stóriGjunnar
SÚ SPURNING hefur heyrzt,
hvemig unnt væri að ráðast í
stóriðju, þegar mannafla skortir
við þá atvinnuvegi, sem fyrir
eru, og við margháttaðar fran>-
kvæmdir hér á landi,-og er eðli- *
legt að menn velti því málefni
fyrir sér, því að fljótt á litið
kann að virðast sem stóriðja
muni torvelda aðra átvinnuupp-
byggingu. En þegar málið er
skoðað nánar, sést, að hér er
um misskilning að ræða. Þegar
vinnuaflsskortur er, riður á
mestu að hagnýta vinnuaflið
þannig, að það skili sem ircstum
afrakstri. í stóriðju skilar ef til
vill einn maður, sem stjórnar
vélum, jafnmiklum afrakstri og
tugir eða hundruð manna við
aðrar starfsgreinar. Þar er það
fyrst og fremst fjármagnið, sem
skapar auðinn. En þá auðlegð,
sem þannig vinnst, m.i aftur
nota til að auka tækni í öðrum
atvinnugreinum og eflir það að
sjálfsögðu framleiðni þeirra.
Þannig er ekki vafi á því, að
það er hagkvæmt öðriim atvinnu
greinum, að hluti vinnuaflsaukn-
ingar I ifokkur ár fari til þess
að byggja upp stóriðju og algjör
misskilningur, að stóriðjan muni
torvelda aðra uppbyggingu. Hún
veldur gífurlegri framleiðslu-
aukningu og er eina leiðin til
að stórbæta lífskjörin, þegar allt
vinnuafl er fullnýtt.
Erlent fjármagn
og áhætta
Sunvr halda því fram, að mik-
il áfaætta sé fólgin í því, að ís-
lendingar hafi samvinnu við er-
lent einkafjlármagn um bygg-
ingu stóriðju. Sannleikurinn er
þó sá, að miklu áhættusamara
væri, ef við tækjum stórlán
erlendis til þess að byggja sjálfir
slík fyrirtæki. Ef illa færi um r
rekstur fyrirtækis, sem við ís-
lendingar ættum einir, vegna
markaðsörðugleika, tæknibylting
ar eða kunná.ttuleysis okkar, þá
værum við einir ábyrgir fyrir
greiðslum. vaxta og afborgana
af stórum lánum. En jafnvel þótt
rekstur t.d. alúmíníumverk-
smiðju í eigu útlendinga gangi
ekki vel, þá mundum við hagnast
af þeim rekstri. Mikið fjármagn
hefði verið flutt til landsins og
við nytum. þess hagnaðar, sem
yrði af orkusöiu samkvæmt
samningum. Eignirnar væru hér
á landi og þær yrðu ekki fluttar
burt, heldur yrðu þær í ein-
hverri mynd lyftistöng íslenzks
atvinnulífs. Þetta er rétt að
menn hafi hugfast, þegar þeir
heyra blekkingavaðalinn um á-é*
hættuna af heilbrigðu samstarfi
við erlenda fjármagnseigendur
Hvers vegna þurfti að
leiðrétta verð-
lagsgrundvöllinn?
Framsóknarmenn hafa oft ver-
ið að því spurðir, hvers vegna
þurft hafi að leiðrétta verðlags-
grundvöll landbúnaðarvara, þar
sem. þeir árum saman hafi haft
meirihluta fulltrúa bænda í S
manna nefnd. Svarið liggur þó
í augum uppi. Verðlagsgrundvöll
urinn skekktist mest haustið 1957.’""
Þá hækkuðu landbúnaðarafurðir
aðeins um 1,88% eftir að kaup-
hækkanir og tilkostnaður við bú-
rekstur hafði hækkað á því ári
um 17%. Það var sem sagt á
tímum vinstri stjórnarinnar sem
verðlagsgrundvöllurinn skekkt-
ist svo, að óhjákvæmilegt var aS
gera á honum. leiðréttingu, sem
nú hefur verið íramikvæmd.