Morgunblaðið - 01.04.1964, Side 13
I
Miðvikudagur 1. aprfl 1964
MORC U NBLAÐIÐ
13
• Á föstudaginn langa gerð-
ust þeir atburðir vestur í
Alaska í Bandaríkjunum, sem
öðrum betur bafa minnt mcnn
á frásagnir guðspjallanna af
þeim deginum er „fortjald
musterisins rifnaði sundur í
tvennt frá ofanverðu og allt
niður í gegn, og jörðin skalf
og björgin klofnuðu".
• Siðdegis þann dag fóru
einhverjir mestu jarð-
skjálftar er sögur fara af um
stærstu borg Alaska, Anchor-
age. Flóðbylgjur, er fylgdu
í kjölfar jarðhræringanna ollu
gifurlcgu tjóni á nærliggjandi
svæði, m.a. í borgunum Cord-
ova og Seward, Kodiak á sam-
nefndri eyju, bæjunum Vald-
ez og Whittier og Crescent
City í Kaliforníu — svo að
eins séu nefndir þeir staðir,
sem harðast urðu úti. En á-
hrifa jarðskjálftanna gætti
miklu víðar, m.a. á Hawai og
1 Japan, án þess verulegur
skaði hlytist af, enda voru
íbúar þar viðbúnir. Síðan hafa
Mynd þessi er af einni aðalgötu Anchorage borgar, áður en jarðskjálftamir höfðu lagt mikinn hluta hennar í rúst. Fremst
til vinstri er Achorage Westward Hotel, sem eyðilagðizt.
Jarðskjálftamir í Alaska með
hinum mestu er sögur fara af
fjölmargir jarðskjálftakippir
fundizt, en valdið tiltölulega
litlu tjóni.
• Mannskaðar munu hafa
orðið margfalt minni, en
ætlað var í upphafi og vænta
mátti af þeirri óskaplegu eyði
leggingu, sem jarðskjálftarnir
hafa vaklið. Herma síðustu
fregnir, að 178 manns hafi far-
izt eða sé saknað. En efna-
legt tjón er lauslega áætlað
ekki minna en 350 dalir, eða
sem nemur eitthvað um það
bil 15.75 milljörðum íslenzkra
króna. Þar við bætist, að efna-
hagslíf Alaska hefur beðið
mikinn hnekki við þessar ham
farir, þar sem sumar mikil-
vægustu fiskiðnaðarmiðstöðv-
ar landsins þurrkuðust ger-
samlega út, svo sem í Kodiak
og Seward.
• Lyndon B. Johnson,
Bandaríkjaforseti, lýsti
þegar yfir neyðarástandi á
jarðskjálftasvæðinu og fyrir-
skipaði að allt skyldi gert, er
þyrfti til aðstoðar við björg-
un og endurreisn. Hermenn
annast varðgæzlu til að forða
frekari slysum og jafnframt
ránum og rupli og um helgina
hefur verið unnið að bólusetn
ingu íbúanna gegn taugaveiki.
Johnson forseta hafa borizt
samúðarkveðjur víða að,
vegna hamfaranna í Alaska,
m.a. frá Elísabetu F.nglands-
drottningu og manni hennar,
Lúbke, forseta V-l'ýzkalands,
og íranskeisara.
• Alaska, sem þýðir „hið
mikla Iand“ á máli Aleúta, er
stærsta ríki Bandaríkjanna
1.518.190 ferkílómetrar að
stærð, meira en tvisvar sinn-
um stærra en Texas, sem er
næst stærst ríkjanna. Hinsveg
ar eru íbúar Alaska færri en
í nokkru hinna rikjanna —
um það hil 226 þúsund sam-
kvæmt landabróí'abók Nati-
onal Geographical Society,
sem út var gefin á. síðasta ári.
Samkvæmt sömu heimild er
Anchorage stærsta borg lands
ins með rúmlega 44 þúsund
íbúa, en sé talið með næsta
nágrenni borgarinnar og her-
stöðin þar, hækkar íbúatalan
verulega eða allt upp í 80-90
þúsundir. Höfuðborgin, June-
au, telur hinsvegar margfalt
færri ibúa. íbúar landsins auk
hvítra manna, eru Eskiir.íar,
Aleútar og Indíánar.
• Frá því Vitus Bering kom
til Alaska á.rið 1741 og fram
til ársins 1807 var Alasika í
eigu Rússa, en þá, 30 marz,
eða fyrir réttum 97 árum
seldu þeir landið Bandarikja-
mönnum fyrir 7.2 milljónir
dollara. Alaska varð svo 49
ríki Bandaríkjanna árið 1959.
• Syðsti hluti Alaska er
mikið fjalla- og eldfjallaland.
Sumarið 1912 varð þar eitt
n.‘sta eldgos, sem sögur fara
af, þegar fjallið Katmai á
Alaskaskaga gaus. Hafði fjall
þetta engin merki sýnt um
eldsumbrot fyrr en toppurinn
bókstaflega fauk af því. Á
svæðinu þar sem jarðskjálft-
arnir urðu nú um páskana,
hafa jarðhræringar verið tið-
ar enda kom það fram í frá-
sögnum margra af atburð-
unum, að þeir höfðu talið, að
hér væri á ferðihni „þessir
venjulegu kippir“.
• Hákon Bjarnason, skóg-
ræktarstjóri, serr. var á ferð
á þessum slóðum fyrir nokkr-
um árum hefur aðspurður
skýrt blaðinu svo frá, að mik-
ill hluti húsa í þeim bæjum,
er harðast urðu úti, hafi verið
úr timbri og fremur smá.
Þó hafi verið byggð nokkur
stórhýsi í Anchorage á síöustu
árum, meðal annars nokkur
10-14 hæða hús.
Anchorage liggur í botni
Cooks-fjarðar, sem er langur
og þröngur ca. 300 km. og
ekki skipgengur.
• 8.2 — 8.7 stig
Jarðhræringarnar mældust
á jarðskjálftamælum víða um
'heim. Bkki voru mælingar
allar samhljóða en Ijóst er að
jarðskjálftinn hefur að styrk-
lei'ka verið 8.2—8.7 stig, sam-
kvæmt hinum svonefnda Ric-
hter skala. Um 40 kippir
mældust á laugardag og
sunnudag flestir að styrklei'ka
6-7 st. Að sögn forstöðumanns
mælingastöðvarinnar í Pas-
adena í Californiu verður
ekki unnt að skera úr styrk-
leika jarðskjálftans með vissu
fyrr en eftir nokkrar vikur
eða jafnvel mánuði, þegar
bornar hafa verið saman mæl
ingar frá 'hinum ýmu stöðvum
heims. Hvort svo sem út-
koman reynist 8.2 eða 8.7 er
jarðskjálfti þessi meðal hinna
mestu sem um getur. Jarð-
skjálftinn sem lagði San
Fransioo í rúst árið 1906 var
8.2 stig á Richter skalanum.
Og jarðskjálftarnir í Cile,
sem urðu 2-3000 manns að
bana, voru svipaðir að styrk-
leika.
Landvarnaráðuneyti Banda
ríkjanna taldi styrkleikann
vera 8.5 stig. Jafnframt voru
af þess hálfu rakin u.pptök
jarðskjálftanss til staðar, er
liggur um 61 gráðu norð-
lægrar breiddar og 145 gráð-
ur og fimm mínútur vestlægr-
ar lengdar. Hafa upptökin
því verið í fárra mílna fjar-
lægð frá borginni Cordova og
einhvers staðar nærri suð-
austursvæði Prince Williams-
sunds.
í frásögn þeirri, sem hér
fer á eftir af atburðunum í
Alaska um páskana er aðal-
lega stuðzt við fréttir AP-
fréttastofunar. Framan af
voru fregnir frá Anchorage
ákaflega óljósar og ósam-
hljóða, þar sem símasamband
hafði slitnað gersamlega og
aðrar samgöngur truflazt
mjög, flugvellir lokazt, járn-
brautarlínur eyðilagzt o. s frv.
Einstöku simtali tókst þó að
ná og á laugardaginn sendi
AP-fréttastofan út frásögn
Joe Rothensteins, aðstoðar-
manns ríkisstjórans í Alaska,
Williams Egans, en Rothen-
stein var þá staddur í Jun-
eau.
Þegar Rothenstein var beð-
inn að lýsa ástandinu sagði
hann: „Við höfum ekki
minnstu hugmynd um hve
margt fólk er grafið í rúst-
unum. Hér er mjög dimmt
yfir, ýmist þoka eða helli-
rigning, og fáar samgöngu-
æðar opnar. Svæðið hefur
verið lokað af, meðan beðið
er björgunar- og hjálpar-
sveita.
Aðal-viðskiptavæði Anchor
age borgar er í rústum og
meðal annars hefur ein nýj-
asta og fallegasta bygging
borgarinnar — J. C. Pennys-
byggingin skemmzt mjög
mikið. Presbyterian-sjúkra-
húsið varð að yfirgefa eftir
að jarðskjálftarnir höfðu
eyðilagt ethergeyma og þetta
eldfima efni rann um alla
ganga og stofur. Flutningur
sjú'klinganna og starfsfólks-
ins gekk greiðlega, allir tó-
legir og æðrulausir. Egan,
ríkisstjóri, hefur verið í sam-
bandi við allar deildir hers-
ins og fleiri stofnanir og feng
ið þær upplýsingar, að birgðir
lyfja og matvæla séu nægar
mNMMaHMHMMHlMirni 4
enn sem komið er. i •
Ljóst er, að vikur muni
líða áður en við getum gert
okkur fyllilega grein fyrir
manntjóni. Flóðbylgjan olli
miklum spjöllum meðfram
strönd Alaska og á Aleutaeyj-
um. Tvö smáiþorp hafa þurrk-
azt gersamlega út en við get-
um ekki gert ok'kur grein
fyrir íbúafjölda þeirra. Á
jarðskjálftavæðinu er mikill
fjöldi lítilla þorpa, verzlunar-
staða og veðurathugunar-
stöðva, sem hafa án efa orðið
fyrir flóðbylgjunum, við höf-
um ekki náð símasambandi við
neinn þeirra staða, og því
er nánast ógerningur að gefa
nokkrar upplýsingar um
manntjón, er mark sé á tak-
andi.
Jarðskjálftinn fór um Anc-
horage á mesta annatima dags
ins kl. 5.30 síðdegis (að stað-
artíma). Tíu húsasamstæður í
hjarta borgarinnar hrundu til
grunna. Aðal samgönguæð
borgarinnar lækkaði um 5-7
metra. Okkur hefur verið sagt
að a.m.k. 50 nýtízkulegustu
húsin í útjaðri borgarinnar
hafi sópazt fram af klettum
og lent á ströndinni fyrir neð-
an. Svo vel vildi víst til, að
lágsjávað var, en við vitum
ek'ki hver urðu örlög íbúanna. I
>á höfum við fengið fregn- I
ir frá Valdez og Seward um J
að eldar logi þar og hafi I
aukizt, er þeir komust í olíu-
geyma er jarðskjálftarnir
hristu sundur“.
Að lokum segir Rotihen:
stein: „Við hér í Juneau er-
um í meira en 400 mílna
fjarlægð frá Anehorage og
stafaði okkur eingöngu hætta
af flóðbylgju. Höfðu nokkur
hundruð manna verið flutt á
brott áður en hún skall á“.
• Kodiak
Það var ekki fyrr en á
sunnudag, sem fréttamenn
fóru að komast til jarðskjálfta
svæðisins og simasamiband
lagaðist ögn. Á sunnudags-
kvöld voru 163 fréttamenn og
ljósmyndarar komnir til Anc-
horage og var þeim öllum
komið fyrir í sérstökum skála,
þar sem þeir gátu komið
fyrir tækjum sínum og tólum. ;
Þaðan héldu þeir til annarra
staða á mánudag og símuðu
fréttir frá þorpum þeim og
bæjum, sem að mestu höfðu
þurrkazt út.
Frá Kodiak símaði einn
Framhald á bls. 30.
Kort þetta sýnir aðal jarðsk jálftasvæðið —■ en flóðbylgjunn-
ar gætti á mun víðtækara svæði.
IVfianntjón ótrúlega lítið miðað við
hið gíffurlega eignatjón