Morgunblaðið - 01.04.1964, Side 17
Miðvikudagur 1. aprfl 1964
MORCUNBLAÐIÐ
17
FRÁ RÉTTARHÖLDIJIMUM í AUSCHWITZ:
YFIR RÉTTARSALNUM GRÚFÐI SPURNING,
SEM ENGINN TREYSTI SÉR TIL AD SVARA
BANDARÍSKI rithöfundur-
inn og leikritaskáldið Arthur
Miller var viðstaddur Ausch-
witz-réttarhöldin í Frank-
furt nú fyrir skömmu. Eftir-
farandi grein ritaði hann sér-
staklega fyrir Herald Xrib-
une, og birtist hún hér í
lausiegri þýðingu. Mbl.
Arthur Miller, Paris:
SPURNING, sem enginn
treystir sér til að svara ligigur
í loftinu í réttarsalnum í
Frankfurt, þar sem 22 SS-
xnenn Hitlers mseta nú fyrir
rétti sakaðir um morð á föng-
um í Auschwitz-fangabúðun-
um í heimsstyrjöldinni síðarL
Eru líkur til þess, að stefna
á borð við þá, sem veitti
slíkum mönnum vald á lífi
og dauða geta nokkru sinni
skotið aftur upp kollinum í
t>ýzkalandi?
Mér fannst einhvern vegin,
þarna sem ég sat öðru megin
í réttarsainum dag einn í síð-
astliðinni viku, að eins og í
öllum réttarhöldum vegna
morða, væru hinir ákærðu
að verða æ óraunverulegrL
Eitt sinni voru þeir hinir
hástígvéluðu herrar veraldar
þeirrar, sem afmarkaðist af
gaddavírsgirðingum. Nú eru
þetta miðaldra Þjóðverjar,
klæddir eins og venjulegir
kaupsýslumenn, nokkuð nær-
sýnir. Sumir skrifa hjá sér
eitt og annað, þar sem þeir
sitja þarna andspænis hinum
háa dómara með bláklæddan
lögreg'lumann að baki. Tvær
undantekningar eru frá þessu
og þeir menn báðir mjög svo
óvenjulegir. í andliti annars
er fábjánaleg heimska rist í
hvern drátt — hinn er svo
ókyrr í sæti og tillitið svo
grimmúðlegt, að menn
myndu hræðast hann, þó svo
þeir aðeins hittu hann á förn-
um vegi hvað þá í réttarsal
þar sem hann á að svara til
saka fyrir morð.
En hinir gætu allir verið
þýzkir frændur hvers sem er.
Og það hefur líka komið í
ljós, að líf það, sem þeir hafa
flestir lifað, síðan þeir skut-
ust í gleymsku og felur rétt
áður en bandamenn komu til
skjalanna í Þýzkalandi, að
þeim er það næsta lagið að
leiða hjá sér allt „klandur".
Sumir hafa snúið sér að kaup-
sýslu, og farist það vel úr
hendi, aðrir hafa starfað sjálf-
stætt að því sem þeir höfðu
mer.nt til eða verið venju-
legir launþegar. Þeir hafa
stofnað fjölskyldur og séð
þeim farborða og jafnvel
orðið máttarstólpar bæjar-
félaga sinna. Þegar þeir voru
teknir höndum, var það eng-
an veginn þannig, að cil
þeirra næðist ölóðra eða með
, óspekir á almannafæri, held-
ur var að þeim komið við
vínnu sína eða í skauti fjöl-
skyldunnar.
Haldinn kvalalosta
Sá þeirra tveggja sem ég
minntist á áðan, er var
hvikuleygur og dýrslegur
tilsýndar var í raun og veru
haldinn sjúklegum kvalalosta.
Hann var nær alltaf drukkinn
í fangabúðunum og hafði sér
það til dægrastyttingar, að
ganga inn í fangaskálana og
hleypa af byssu út í bláinn á
sofandi fangana. Og ef hon-
um leizt ekki á einihvern
fanga, sem gengið varð fram-
hjá honum, fékk sá hinn
sami skot 1 höfuðið á stund-
ixuú.
En eftir stríðið fékk maður
þessi vinnu á sjúkraíhúsi sem
hjúkrunarmaður, og sjúkl-
ingar hans hafa skrifað rétt-
inum og sagt, að hann hafi
verið óvenj ulega nærfærinn,
blíðlyndur og hjartag'óður
maður. Og þeir kölluðu hann
„Papa Kaduk“.
Enginn veit lengur ná-
kvæmlega hve margt varnar-
laust fólk „Papa Kaduk“
myrti þau fjögur ár, sem hann
var í Ausdhwitz. Þetta er stór
og mikill maður og orðinn
allt of feitur. Litlu grimmdar-
legu augun hans loga af
hæðni og sigurhrósi, hvenær
sem einlhverju vitnanna skeik
ar í einhverju, man ekki ná-
kvæmlega dag eða staðreynd
og þá teygir hann sig að svart
klæddum lögfræðingi sínum,
sem rís á fætur til þess að
mótmæla ófullnægjandi rök-
um. Hann virðist, satt að
segja, vera fullkomlega sann-
færður um að hann sé „Papa
Kaduk“ og alls ekki sú mann-
skepna sem mennirnar í
vitnastúkunni lýsa með erfið-
ismunum.
Fjarverandi í veiðiför
Meðal hinna ákærðu er
lyfjafræðingur, sem aðstoð-
aði við að velja fanga í gas-
klefana. Hann var orðinn
vel metin borgari þar sem
hann bjó og þeir er handtóku
hann urðu að bíða þess að
hann kæmi heim úr veiðiför
til Afríku. Samborgarar hans
urðu sem furðu lostnir er
þeir fréttu ákærurnar á 'hend-
ur honum — ekki sizt vegna
þess, að það var hann sem
hafði lagt til að hvenær sem
ráðamenn borgarinnar hitt-
Arthur Miller með konu sinni, sem fædd er í Austurríki, fyrir
utan réttarsalinn í Frankfurt.
ust til þess að ræða málefni
íbúanna skyldu þeir klæðast
samkvæmisfötum „Hvernig“
var spurt í fyllstu alvöru „gat
svo mikill smekkmaður gert
sig sekan um svo glæpsam-
legt og viðurstyggilegt at-
hæfi?“
UNDANFARNA þrjá mánuði
hafa staðið yfir réttarhöld í
Frankfurt í Vestur-Þýzkalandi
yfir 22 mönnum, sem sakaðir
eru um þátttöku í fjöldamorð-
um nazista i Auschwitz-
fangabúðunum á stríðsárun-
um. Réttarhöldunum miðar
seint áfram, og er ekki búizt
við að þeim Ijúki fyrr en seint
á þessu ári.
Undirbúningur að þessum
réttarhöldum hefur staðið í
nokkur ár og hafa bundruð
vitna verið yfirheyrð og
skýrslum safnað um af-
brot um 1.000 fyrverandi
SS-manna.
Flestir þeirra manna, sem
nú eru álkærðir, voru áður lítt
þekktir. En vitnaleiðslur hafa
leitt í ljós að stöðugar fjölda-
aftökur í fangabúðunum
gerðu marga þessara manna
að samvizkulausum þorpur-
um. Eða eins og einn fyrrver-
andi læknir við fangabúðirn-
ar sagði um starfsbræður
sína þar, „þeir hættu fljótlega
að geta gert greinarmun á
góðu og illú. Andrúmsloftið
var þannig að mannslífið var
einskis virði.“ Læknir þessi,
dr. Hans Múnoh, var leiddur
fyrir dóm árið 1948, en sýkn-
aður af ákæru um stríðsglæpi.
Dr. Múnoh segir að flestir
læknanna við Ausohwitz
fangabúðirnar hafi rofið
læknaheit sín með því að
drepa í stað þess að lækna.
„Þarna voru þúsundir manna
teknar af lífi daglega," segir
hann. „Sumir læknanna unnu
að tilraunum, og notuðu
fanga sem tilraunadýr. Hverju
máli skipti það þá hvort
nokkrir fanganna létusL“
Meðal hinna ákærðu eru
Wilhelm Roger, Joseph Klehr
og Oswald Kaduk, sem mörg
vitni hafa ásakað fyrir að
hafa staðið fyrir pyntingum
á föngum og vali á þeim föng-
um, sem senda átti í gasklef-
ana eða taka af lífi á annan
hátt.
Roger starfaði í fangabúð-
unum í tvö ár. Og þótt margir
starfsmanna þar hafi á sér illt
orð, var Roger einna verst
ræmdur, sérstaklega fyrir
pyndingar. Hafa mörg vitni
lýst því hvernig fangarnir
komu blóðugir og bláir frá
yjirheyrslum hjá Roger. Einn-
ig átti hann sérstakt tæki til að
kvelja fangana. Var það nefnt
„Bogersohaukel" eða Roger-
rólan og vakti mikla skelfingu
meðal fanganna. Fleiri pynd-
ingartæki hafði Boger í fór-
um sínum til að fá fangana
til að tala og jafnvel ákæra
sjálfa sig. Þá tók hann þátt í
að velja úr fanga, sem taka
átti af lífi hverju sinni, og er
sakaður um að hafa persónu-
lega tekið þátt í aftökunum.
Klehr starfaði við heilbrigð
iseftirlit í fangabúðunum um
langt Skeið. Þar hafði hann
m. a. þann starfa að velja úr
fanga, sem drepnir voru með
innsprautingum í hjarta. Hafa
vitni lýst því hvernig föng-
unum var raðað niður til
„eftirlits" fyrir framan nokkra
„dómara“, en meðal dómar-
anna var Klehr. Svo ákváðu
dómararnir hverjir ættu að
lifa og hverja ætti að
„hreinsa". Þeir sem dæmdir
voru í hreinsun voru fluttir í
sjúkraklefa þar sem phenol
var sprautað í hjarta þeirra,
og biðu þeir þegar bana. Við
yfirheyrslu var Klehr spurð-
ur hvort hann hafi sjálfur
drepið fanga á þennan hátt, og
játti hann því. Aðspurður
hvort hann hafi drepið meira
en 100 fanga, svaraði hann:
Þeir voru nú fleiri. Ég hef
þegar játað að hafa drepi
250—300.
Eftir nokkurn tíma við heil
brigðiseftirlitið, var Kleihr
fluttur í sótthreinsunardeild-
ina. Þar hafði hann meðal
annars þann starfa að varpa
gassprengjum inn í gasofn-
ana.
Kaduk gerðist sjálfboðaliði
í SS sveitum Hitlers árið
1940 og hóf störf í Auscwitz
1942. Hann er sakaður um að
hafa skotið fjölda fanga til
bana, auk þess sem hann var
einn þeirra, sem völdu úr
fanga til aftöku. Hann drafak
mikið á þessum árum, og þeg-
ar hann var drukkinn átti
hann það til að ganga bers-
erksgang og misþyrma föng-
um eða drepa þá. Er sagt að
stundum, þegar Kaduk var
drukkinn, hafi hann slegið
fanga niður, lagt staf þvert
yfir háls þeirra þar sem þeir
lágu á jörðinni og hoppað á
stafnum þar til fanginn var
látinn.
Þessir þremenningar eru
ekki eins dæmi, því nítján
menn aðrir sitja ákærðir með
þeim, sakaðir um grimmd,
mannvíg og pyndingar í
Auschwitz. Eitt vitnanna hafði
setið í Dachau fangabúðunu.m
alræmdu áður en það var flutt
til Auschwitz. Við réttarhöld-
in sagði vitnið: Samanborið
við Ausdhwitz var Daohau
unaðsríkur staður.
En — læknirinn sem stend-
ur í vitnastúkunni svo tím-
um skiptir þennan dag, leiðir
staðreyndirnar í ljós svo að
ekki verður um villzt. Hann
var sjálfur fangi, en þar sem
hann fékk meira að borða en
ihinir, er hann hér til frá-
sagnar i dag. Og þegar hann
lýsir því hvernig ung’börn
voru rifin úr örmum mæðra
sinna, rúmfatnaði skipt tvis-
var á ári, nær algerum lyfja-
skortinum, hvernig Rauða
kross vagnar voru notaðir til
þess að flytja fanga þangað
sem þeir voru myrtir, píndir
og barðir — og nefnir hvern
hinna ákærðu á fætur öðrum,
sem sannanlegan gjörnaðar-
mann þessarra verka, bresta
þýzku húsmæðurnar sem eru
í meirihluta í kviðdóminum £
grát eða sitja stjarfar af
hryllingi.
Og þegar horft er á þær,
verður manni ljóst af útliti
þeirra og aldri að þær lifðu í
Þýzkalandi á tímum nazist-
anna, meðan þessu fór fram.
Þær voru að verzla, koma
börnum í háttinn, skreppa
út úr bænum á sunnudögum,
huga að brúðarkjólnum dótt-
urinnar eða spyrjast fyrir um
það hvort syninum liði ekki
vel í hernum, á sama tíma oig
mæður eins og sjálfar þær og
börn sem í engu voru frá-
brugðin þeirra börnum, voru
neydd til að afklæðast í köld-
um skálum fangabúðanna og
anda að sér eiturgasinu, sem
sumir þeirra er hér sitja á
bekk hinna ákærðu sáu um
að bjrla þeim.
90% á móti réttarhöldunum.
En þó er það svo að lög-
fræðingar þeirra, sem starfa
fyrir hina fámennu saksókn,
eru þess fullvissir, að 90%
þýzku þjóðarinar sé mótfail-
inn þessum réttadhöldum og
öðrum af svipuðu tagi. Þeir
byggja þennan dóm sinn á
bréfum sem þeim berast og á
erfiðleifaum þeim, sem þeir
eiga í við að fá fólk til að-
stoðar við sumar þær hand-
tökur sem þeir hafa fram-
fcvæmt og loks síðast en ekki
sízt á því að engin skýr rödd
eða hreyfing virðist vera uppi
meðal Þjóðverja er krefjist
þess, vegna heiðurs landsins
sjálfs, að slífair morðingjar
verði dregnir fyrir iög og
rétt.
Það er þvert á móti almenn
skoðun, að því er þessir lög-
fræðingar segja, að réttar-
höld á borð við þessi, dragi
nafn Þýzkalands í svaðið, að
þetta hafi allt saman átt sér
stað fyrir svo löngu.
Hvers vegna að raska lífi
manna þegar svona langt sé
um liðið, o. s. frv.? Æ ofan í
æ hefur það komið fyrir, að
lögfræðingarnir hafa orðið
að fara sjálfir með handtekna
menn um þvert Þýzkaland til
Frankfurt, vegna þess að ekfai
var neinn lögreglumann að
finna, sem vildi veita aðstoð
sína.
Stjórnin greiðir þeim 26
mörk á dag fyrir kostnað við
þessi ferðalög, enda þótt
ódýrasta næturgisting kosti
11 mörk. En samt sem áður
hefur þessi litli hópur Þjóð-
verja í hyggju að leita uppi
hvern og einn einasta mann,
allt að vörubílstjóranum, sem
ók föngunum að, gasklefun-
um, unz nRtlætinu verði full-
nægt.
Frh. á bls. 25