Morgunblaðið - 01.04.1964, Qupperneq 28
2&
MORCUNBI AOIÐ
M!5vn<u(?ag«r 1. aprf! 19C4
Rólegir Páskar
í Reykjavík
SAMKVÆMT upplýsingum lög-
reglunnar voru páskarnir með
rólegra móti í Reykjavík og ná-
grenni. Engin stórslys urðu né
stórinnbrot, en nokkuð bar þó
á þjófnuðum, einkum aðfaranótt
Skírdags og aðfaranótt þriðju-
dags.
Aðfaranótt Skírdags stálu tveir
ungir piltar bíl í Hafnarfirði.
Hafði bíllinn verið skilinn eftir
ólæstur og stóð lykillinn í kveikju
lásnum. Piltarnir óku til Reykja
víkur, o>g síðan upp að Geithálsi.
Komu þeir síðan aftur til Reykja
— Krúsjeff
i'ramhald af bls. 1.
áreiðanlegum heimildum, að
Moskvublöðiin muni, áður en
langt um líður, hella úr skál-
um reiði siniuar yfir hinum
sleitulausu árásum Peking-
stjórnarinnar á Krúsjeff og
stjórn hans.
Þessi skoðun tékk byr undir
vængi, er tengdasonur Krúsjeffs,
Alexei Adsjubei,, ritstjóri mál-
gagns Sovétstjómarinnar Izvest-
ia, sagði í París, að Sovétstjóm-
in muni ekki um alla framtíð
taka með þögn og þolinmæði ár-
ásum kinverskra kommúnista á
kommúnistaflokk Sovétríkjanna.
Sagði Adsubei, að Sovétstjóm
in liefði að vísu ákveðið að sneiða
hjá þrætum við Kínverja, en
þar með væri ekki sagt, að sú
ákvörðun væri gjörsamlega ó-
hagganleg.
Hann líkti ágreiningt ríkjanna
við hnefaleikakeppni, þar sem
annar aðilinn léti andstæðinginn
koma á sig nokkrum vel úti lótn
um höggum til þess eins að
sjálfstraust hans og sjálfsánægja
ykist og hann hætti að vera eins
var um sig. „Þá getur hnefaleik-
arinn hafið mótleik siwn“, sagði
AdsjubeL
SAMEIGINLEGUR
MÓTLEIKUR?
AP-fréttastofan hefur fyrir
satt, að stjómir kommúnista-
flokkanna í Sovétríkjunum, Ung
verjalandi, Póllandi og Búlgaríu
hafi orðið ásóttar um sameigin-
legan mótleik í deilunni við Kín-
verja. Þyki líklegt, að endanleg
ákvörðun verði tekin um stefn-
una gagnvart Pekingstjórninni
þegar leiðtogar þessara flokka
hittast í Moskvu í næsta mánuði,
er Krusjeff verður sjötugur. Hins
vegar muni hann í Ungverjalands
ferð sinni nú ganga frá mólinu
í ölluan aðalatriðum. í ferð með
bonum eru Andrei Gromyko, ut
anríkisráðherra Sovétríikjanna og
margir helztu forystumenn
stjómarinnar og flokksins.
Á jórnbrautarstöðinni í Búda-
pest tók Janos Kadar á móti gest
unum, ásamt öðrum fremstu
stjórnmólamönnum Ungverja-
lands og erlendum sendiherrum.
Krusjeff og Kadar skiptust a
ávarpsorðum en hvorugur minnt
ist einu orði á ágreininginn við
Kínverja. Krusjeff kvaðst til
Ungverjalands kominn til þess
að halda áfram þeim viðræðum
við ungverska ráðamenn, er haf-
izt hefðu í fyrrasumar og þær
viðræðum miðuðu að því að efla
einingu og styrk kommúnismans.
Þegar síðdegis í dag hófust við
ræður Krusjeffs og fvlgarmanna
hans við Kadar, Istvan Dobi, for-
seta og fleirL
ÁRÁSIR KÍNVERSKRA
UÖGFRÆÐINGA
Skömmu áður en Krusjeff köm
til Búdapest hófst þar í borg
alþjóðleg ráðstefna lögfræðinga.
Nokkru eftir að hún var sett, las
formaður kinversku sendinefnd-
arinnar yfirlýsingu, þar sem far-
ið var hörðum orðum um stór-
víkur og stöðvaði lögreglan þá
á Langlholtsvegi. Bóðir voru pilt
arnir réttindalausir, annar hafði
misst réttindi, hinn aldrei öðlazt
þau. Skiptust þeir á um að aka
bílnum. Báðir fengu þeir nætur-
gistingu í Síðumúla. Bíllinn
reyndist óskemmdiir með öllu.
Sömu nótt var ungur piltur
tekinn á Lækjartorgi, en hann
hafði brotið nokkrar rúður í bið-
skýli SVR þar við torgið. Piltur
inn var ölvaður.
Að kvöldi annars páskadags
var 16 þúsund krónum stolið úr
skáp í herbergi í húsi einu við
Rauðarórstíg. Eigandi pening-
anna brá sér frá til þess að fá
sér kaffi. Læsti hann herlberginu,
en er hann kom til baka klukku-
tíma síðar hafði læsingin verið
stungin upp, svo Og læsing á
skápnum, og voru peningamir á
brott. Málið er í rannsókn.
Um helgina var brotizt inn í
Radíóver við Skólavörðustíg og
stolið þaðan 4 „transistor“ út-
varpstækjum, sem þar voru til
viðgerðar. Þó var brotin rúða í
Vogaveri, en ekki varð séð að
neinu hefði verið stolið. Loks var
brotin rúða í geymsluhúsi Mjólk
ursamsölunnar við Sólheima, en
ekkert var geymt þar inni.
Annan páskadag varð lítil telpa
fyrir bíl á Bústaðavegi, en slapp
ómeidd að heita.
Aðfaranótt þriðjudags var brot
izt inn í Borgarnesti við Miklu-
braut. ar var stolið nokkru af
sælgæti. Engir peningar voru
geymdir þarna að næturlægi.
Sömu nótt var reynt að brjótast
inn í bílskúf við Sólheima 44.
Var bílskúrshurðin mikið brotin,
og brömluð en ekki tókst þjóf-
um að komast inn.
Bærinn að Óskoti í Mosfelishreppi þar sem atburðirnir gerðust. Ljósm. ÓL K. M.
— Fjölskylda flýr
Framhald af bls. 32.
í gangi bæjarins kom skyndilega
moldargusa á mig og virtist mér
hún koma úr skemmudyrum
fyrir enda hans. Ég fór inn í
skemmu til að athuga hverju
þetta sætti, en sá þar engan
mann, né nein vegsummerki.
Meðan ég var þarna inni kom
önnur gusa og virtist mér hún
koma úr rjáfrinu, en ég varð
einskis vísari að heldur. Seinna
um kvöldið var öll fjölskyldan
stödd í stofunni og þá var eins
og upp væri lokið stofuhurð--
inni og komu sendingar inn, torf,
dósir, spýtur og allskyns lausa-
munir. Ég fór fram á gang að
athuga hverju þetta sætti en sá
enga lifandi sálu, en meðan ég
var í burtu héldu sendingar á-
fram inn í stofu. Hélt þessu á-
fram allt til miðnættis", sagði
Kristján.
„Ég.hélt í fyrstu, að einhverj-
ir ólátastrákar úr Reykjavík
staaðu fyrir þessu, en gat ómögu
lega skilið hvers vegna þeirra
yrði ’ekki vart.
yfé/WSÍ'rtl ywty/ss-w?'yss■■■■'■■Kvnvyv.-y-y* ’wipiv-s
Kristján glímir við hestasteininn, rétt tekst að lyfta honum.
Ljósm. Ól. K. Magn.
veldi, er fylgdu stefnu, sem ein-
kenndist af uppgjöfum og mis-
tökum. Var enginn í vafa um það
hver sneiðina ætti, enda hefur
Pekingstjórnin að undanförnu
borið sovézkum kommúnistum á
brýn, að þeir séu endurskoðunar
sinnar og Trotskyistar, og hafi
svikið kommúnismann með und
anlátssemi við Vesturveldin.
Þá kvað útvarpið í Tírana í
Albaníu, upp úr með það í dag,
að sú ráðstöíun Rússa að láta
lausa flugmennina af RB-66 flug
vélinni bandarísku, sem skotin
var niður yfir A-Þýakalandi á
dögunum, væri enn ein upp-
gjöf Krusjeffs. Bætti útvarpið
því við, að undanlátssemi Krus-
jeffs og stjórnar hans væri stór-
hættuleg Sovétríkjunum, því að
þar fengju bandarískir njósnar-
ar að leika lausum hala og vinna
að undirróðursstarfesmi sinni að
vild. •
Þó brá mér í brún daginn eft-
ir, þegar hestasteinn, sem er
um 200 pund á þyngd, var kom-
inn upp á þak. Það hefur ekki
þurft neitt simáátak til að koma
honurn þangað, því það er ekki
meira en svo að sterkur maður
lofti honum. Þegar á daginn leið
byrjuðu sendingamar á nýjan
leik og enn sem fyrr varð ég
einskis vísari um hvaðan þær
kæmu.
Mágur minn, Haraldur Guð-
mundsson, sem er bílstjóri í
Reykjavíki kom í heimsókn um
kvöldið og var vitni að þessu.
Hann fékk á sig moldargusur,
diskar og bækur flugu um alla
stofuna.
Okkur var nú ekki farið að
lítast á blikuna og börnin orð-
in talsvert skelkuð og við hjón-
in líka. Við lokuðum vel stofu-
dyrunum og dundu sendingar á
þeim látlaust allt til miðnættis,
en þá hætti þeim sem fyrr. Har-
aldur snéri þá aftur til Reykja-
víkur, eftir að hafa gengið um
allan bæinn með mér, en við
urðum einskis vísari. Við erum
öll sammála um, að enginn mann
legur máttur hafi verið valdur
að þessu.
Á annan páskadag þegjar ég
kom út var hestasteinninn kom-
inn ofan af þaki og á sinn gamla
stað og þá varð mér ekki um
sel og sama er að segja um
konuna mína. Og þegar sending-
amar byrjuðu aftur ákváðum við
að flytja til Haralds, því ekki
er okkur vært að Óskoti."
Þegar Morgunblaðsmennimir
komu að Óskoti í fylgd Kristjáns
var greinilegt, að þar hafði ekki
svo lítið gengið á. Allt var á
rúi og stúi á bænum. Á göngun-
um og í stofu lá alls konar dót
og drasl um öll gólf, torf, gler-
tau, bækur og meira að segja
bein. Mold var á víð og dreií,
einkum á ganginum við bæjar-
innganginn og við stofuhurðina.
Kristján sagði, að kona sín
hefði reynt að hreinsa það mesta
upp til að byrja með, en gefizt
upp á því þegar gauragangurinn
hélt áfram.
Nánar aðspurður um fyrir-
brigðið sagði bóndinn, að send-
ingamar hefðu aJdrei verið
nema á einum stað í senn og ann
aðhvort hafi öll fjölskyldon ver-
ið þar saman eða einn og einn
hefði orðið fyrir því. Hann sagði,
að hann hafi lesið sálma á
páskadagskvöld þegar reimleik-
amir hafi verið mestir og þá hafi
um stund eins og dregið úr þeim
en það hafi ekki staðið lengi.
Morgunblaðsmennimir skoð-
uðu hestasteininn og var rétt
svo að þeir gætu bifað honum.
Það liggur í augum uppi, að
enginn einn maður hafi getað
komið honum upp á bæjarþekju,
enda var það einimtt það sem
Kristján virtist vera einna mest
sleginn yfir.
Á meðan Morgtinblaðsmenn
dvöldust að Óskoti með Kristjáni
varð ekki neinna fyrirbæra vart
og virtist bónda létta mikið við
það. Hann sagðist þó mundu
ætla að vera í Reykjavík með
fjölskylduna í nokkra daga og
sjá hverju fram fæiri, enda hefði
hann ekki komið sér upp bú-
stofni ennþá, nema hvað hann
ætti tvo hesta sem gætu gengið
úti.
Aðstpurður um fyrirbrigðin &
Saurum vildi bóndi ekki segjja
annað, en að sjaldan væri eia
báran stök.
Kjararáð
óánægt
FRÉTT frá Kjararáði Banda-
lags starfsmanna ríkis og
bæja:
Kjaradómur kvað í gær dóm
um kröfu Bandalags starfs-
manna ríkis og bæja um 15%
launahækkun til ríkisstarfs-
manna og var kröfunni alger-
lega synjað af meirihluta dóm-
enda.
Krafa Bandalagsins var
byggð á ákvæðum 7. gr. samn-
ingsréttar laganna, sem
tryggja eiga, að opinberir
starfsmenn fái hliðstæðar
launahækkanir og aðrar launa
stéttir.
Kjararáð telur, að með úr
skurði sínum hafi meirihluti
dómsins gengið í berhögg við
lögverndaðan rétt opinberra
starfsmanna, og gert að engu
eitt þýðingarmesta ákvæði
samningasréttarlaganna.
Stjórn B.S.R.B. mun ræða
hin nýju viðhorf, sem skap-
azt hafa með dómi þessum, á
fundi sínum síðdegis í dag.
ffltltvarpiö
Miðvikudagur 1. apriL
7:00 Morgunútvarp. ***
12:00 Hádegisútvarp.
13:00 „Við vinnuna*4: \
14:40 „Við, sem heima sitjum**: Her-
steinn Pálsson les úr ævisögu
Maríu Lovisu, eítir Agnesi d#
Stöckl (11).
15:00 Síðdegisútvarp.
17:40 Framburðarkennsla 1 dönsku o0
ensku.
18:00 Útvarpssaga barnanna: „Land-
nemar‘” eftir Fredirck Marryat,
í þýðingu Sigurðar Skúlasonar;
XII. (Baldur Pálmason),
18:20 Veðurfregmr.
18:30 Þingfréttir. — Tónleikar.
20:00 Varnaðarorð: Vilberg Helgason
öryggiseftirlitsmaður talar á ný
um losun og lestun skipa.
20:05 Létt lög: Hljómsveit Aifrede
Hause leikur.
20:20 Kvöldvaka:
a) Lestur fornrita: Norðlend-
ingasöngur, — Víga-Glúmur
(Helgi Hjörvar).
b) íslenzk tónlist: Lög eftir
Friðrik Bjarnason.
c) Gunnar Guðmundsson frá
Heiðarbrún í Holtum flytur er-
indi: Endalok þjóðveldisins og
uppreisn Rangæinga 1264.
d) Oscar Clausen rithöfundur
flytur frásöguþátt: Kríumálið
eða Stokksmálið.
21:45 íslenzkt mál (Dr. Jakob Bene-
diktsson).
22:00 Fréttir og veðurfregnir.
22:10 Lög unga fólksin* (Guðný Aðal*
steinsdóttir).
23:00 Bridgeþáttur (Hallur Simonar-
son).
23:25 Dagskrárlok.