Morgunblaðið - 05.04.1964, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 05.04.1964, Qupperneq 17
Sunnudagur 5. apríl 1964 MORCUNBLAÐIÐ 17 Næturmynd frá Hafnarfirði. Ljósni.: asa. Á að f ækka helgidögum? Því er stundum hreyft, bæði í blöðum og viðræðum manna í milli, að helgidagar séu óþarf- lega margir hér á landi. Þetta berst ekki sízt í tal um páska- helgina, enda er bent á, að dag- launamenn megi illa við áð missa káup alla þá frídaga, svo og, að þrátt fyrir almennt frí verði ýms- ir, t. d. húsmæður, bændur og sjómenn, að gegna skyldustörfum sínum þessa daga jafnt sem aðra. Páskafríið verður og lengra en ella vegna þess að í ýmsum at- vinnugreinum og stofnunym, a. m.k. hér í bæ, er ekki unnið laug- ardaginn fyrir páska. Ætíð er erfitt að segja um tilfinningar annarra, en tæplega er þó rangt til getið, að fremur megi telja til undantekninga, að trúartil- finning knýi íslendinga til að leggja niður vinnu á skírdag, 2. í páskum, uppstigningardag og 2. í hvítasunnnu. Um þetta eru þó vafalaust skiptar skoðanir. Heyrzt hefur, að forystumenn þjóðkirkjunnar hafi hug á endur- skoðun laganna um almannafrið á helgidögum þjóðkirkjunnar. Við þá endurskoðun hlýtur þetta að koiiia til athugunar og þarf •ú athugun engan veginn að bein *st gegn kristnihaldi í landinu. Vitað er, að víðs vegar þar sem kristni er ekki síður í heiðri höfð en hérlendis, eru allir þessir dagar venjulegir vinnudagar. Svo er og víða um föstudaginn langa, »ern fáir fslendingar mundu kunna við að væri sviftur helgi •inni. Mörgu að sinna í>ó að drepið sé á framan- greindar bollaleggingar skal fús- lega játað, að þeim, er þetta ritar, þykir gott að njóta hvíldar öðru hvoru frá önnum og þvargi. Þrátt fyrir bliðviðri nú má segja, •ð inönnum veiti ekki af að létta *ér upp eftir langan og oft mis- viðrasaman vetur. Upplyftingin er þó með misjöfnu móti. Vegna •lysfara Sigurðar Ágústssonar var frá því skýrt, að þingmenn Vésturlandskjördæmis héldu fund með kjósendum I Breiða- víkurhreppi á skírdag. Til að •ækja hann þurftu þingmennirn ir allir að fara langa leið og hafa þess vegna ekki notið mik- illar hvíldar þann daginn, jafn- r«L þótt ekki hltyist verra af nema fyrir Sigurð einan, hinn elzta þeirra og ferðavanasta, er •karst i andliti þó ekki alvar- lega sem betur fer. Ef Sigurður hefði ekki lent í árekstrinum á Kerlingarskarði mundu utanhér- aðsmenn ekki hafa veitt þessum fundi athygli. Hann er einungis dæmi þess álags, sem á þingmönn hvílir, og fæstir gera sér REYKJAVÍKURBRÉF eru þeir ekki einir um að nota frí daga til að leysa a£ höndum störf, sem ekki er hægt að fram- kvæma, þegar allir eru bundnir við hversdagsiega vinnu, en þó verður að fá tíma og færi tiL. Nýtt Lögfræð- ingatal Öllum er hollt að fá næði til að sinna hugðarefnum, sem liggja utan eiginlegra skyldustarfa. Gaman var t. d. að geta gefið sér tíma til að blaða í hinu nýja Lögfræðiingatali Agnars Kl. Jónssonar, sem kom út rétt fyrir bænadagana. Agnar er einn rnesti eljumaður í hópi íslenzkra em- bættismanna. Skyldurækni hans hefur ætíð verið við brugðið. Starfsorku hans hefur ekki ver- ið fullnægt í vandasömum em- bættisrekstri, svo sem mikils- háttar sendiherrastörfum og for- stöðu utanrikisráðuneytisins nú og fyrr. Rækilegustu vitni þeirr- ar atorku eru Lr " rtuingatölin tvö, sem hann hefur gefið út. Hið fyrra birtist 1950. Þangað til í maí 1963 höfðu 172 lögfræð- ingar bætzt við þá, sem í því voru taldir. Eru það ámóta marg- ir og fullu lögfræðiprófi luku í Kaupma.nnahöfn allan þann tíma, sem íslendingar urðu að sækja lögfræðinám til Hafnar- háskóla þangað til Lagaskólinn í Reykjavík tók til starfa. Agn- ar hefur ekki einungis safnað æviágripum allra þessara ungu lögfræðinga, heldur þurft að bæta við ævisögur þeirra, sem enn voru á lífi 1950; og leiðrétt ef hann hafði rekið sig á vill- ur í æyispgum fyrri tíðar manna. Allt er þetta ótrúlega mikið starf, sem krefst þolinmæði, natni og vandvirkni. Aldrei verð ur komizt hjá einhverjum mis- fellum í sliku verki, en óhætt er að .treysta því, að þær séu færri hjá Agnari en öðrum. Saga Stjórnar- raðsi sms í ráði mun vera, að samin verði saga Stjórnarráðs íslands. Þetta kom fyrst til orða á fimmtíu ára afmæli Stjórnarráðsins fyrir 10 árum. Þá var frá því horfið vegna þess, að enginn hæfur maður var tiltækur. Um sextugsafmæl- ið í vetur vaknaði þessi hugmynd að nýju. í augum uppi liggur, að við hendina er nú hæfur mað- úr til starfsins, Agnar Kl. Jóns- fulia grein fyrir. Að sjálfsögðuson. Fyrir tíu árum vár hann Laugard. 4. apríl sendiherra í London. Nú er hann kominn heim og hefur lokið samn ingu Lögíræðingatalsins að nýju. Allt frá barnæsku er hann nákunnugur Stjórnarráðinu og störfum þess. Það kom öðrum fremur í hlut föður hans, Klem- ens landritara, að skipuleggja störf Stjórnarráðsins, þegar hin æðsta stjórn var flutt inn í land- ið 1904, og síðan hafði Klemens verkstjórn þar í 13 ár. Enn síðar varð hann ráðherra um tveggjá ára bil. Tæpum tíu árum síðar var Agnar ráðinn til starfa í Stjórnar ráðinu. Hann hefur að vísu inn á milli dvalið langdvolum er- lendis, en þó lengst af haft náin samskipti við Stjórnarráðið og sjálfur gegnt þar bæði fulltrúa- og ráðuneytisstjórastarfi. Það er því ljóst, að þegar dugnaður og fræðihneigð Agnars bætast við hans einstöku persónulegu þekfc- ingu á þessum efnum, þá er hér tækifæri, sem ekki má láta sér úr greipum ganga. „Hvað verður úr þessu lista- mannsefni?64 Þótt gaman sé að blaða í Lög- fræðingatali, þá er það óneitan- lega heldur þurr lesning til lengdar. Þess vegna er gott að breyta til og þá er ekki síður skemmtilegt að rekast á þessa grein úr Lögréttu hinn 19. ágúst 1908, sem prentuð er í Ritsafni Jóns Trausta: „Málverk hafa nú um tíma verið sýnd í GT-húsÍnú uppi, flest landslagsmýndir. Máður- inn, sem hefur málað þau, heitir Jóhannes Sveinsson. Það er gamla sagan, sem hér endurtekur sig. Maður með ó- slöfckvandi löngun til þessarar listar fær sér liti og léreft og fer að mála tilsagnarlaust. Enginn kostur er á tilsögn; engin efni til að afla sér hennar heldur. Tvennt er það, sem mest ber á, er litið er á þessar myndir. Það er eðlisgáfan og lærdóms- leysið. Nánar á ekki við að lýsa þeim. Eðlisgáfan er rfkari en menn eiga að venjast hjá þeim, sem bera þetta við. Kunnáttuleysið er ekki meira en við er að búast. Þessi einkenni bera flestar fagrar listir hjá þessari þjóð ,— einkenni ótaminna gáfna. Hvað verður nú fslandi úr þessu lista- mannsefni?" Sjálfur var Jón Trausti, Guð- mundur Magnússon, smekklegur frístundamálari. Þess vegna er hin 55 ára gamla umsögn hans og spurningin, sem hún endar á, því athyglisverðari. Að undan- förnu hefur verið allhart deilt um sumt það, sem gerðist á árinu 1908. En enginn getur verið í vafa um svarið við þessari spurn irtgu, sem þá var varpað fram. Kunnátta, æfing og þroski hafa verkað svo á „ótamdar gáfur' Jóhannesar Sveinssonar Kjar- vals, að engum blandast hugur um, að hann er mesti núlifandi myndlistarmaður íslenzku þjóð- arinnar, snillingur, sem á engan sinn líka. Aldrei fleiri myrtir Á síðustu misserum hafa í Bret landi og Bandaríkjunum birzt margar bækur um upphaf ófrið- arins 1914 og einstaka þætti hans. Þá hafa á síðustu vikum komið út tvær ævisögur Vil hjálms H. Þýzkalandskeisara, önnur í Bandarikjunum og hin í Bretlandi. Nær samtímis var gef- in út í Bretlandi ævisaga Ját- varðar VII., móðurbróður Vil- hjálms og hans höfuðóvinar. Þessi áhugi er naumast einber tilviljun og minnir raunar nokk- uð á hitann, sem hér hefur hlaupið í umræðurnar um upp kastið frá 1908. E.t.v. er nokkur hluti skýringarinnar sá, að nú eru þeir orðnir rosknir og marg- ir komriir á efri ár, er enn muna sjálfir þessa atburði og menn. Þgir njóta því þess að rifja upp gamlar endurminningar og kaupa gjarriari bækúr og lesa greiriar, sém um þær fjalla. Þó er þetta namuast einhlít skýr ing. Hitt ræður áreiðanlega einn- ig miklu, að alveg eins og við fsíendingar gerum okkur grein fyrir — hvernig sem við annárs litum á málavexti, -— að atburð- irnir 1908 réðu úrslitum í sögu okkar, Þá réði heimsstyrjöldin 1914—18 úrslitum í heimssög- unní. Þá leystust úr læðingi öfl, sem síðan hafa sí og æ látið meira að sér kveða. Fráleitt væri að halda þyí fram, að þau hafi einungis verkað til ills. Þvert á móti er öruggt, að allur þorri manná á nú við mUn betri kjör að búa og nýtur meiri hamingju en fjöldinn gerði fyrir 1914. En spurningin er, hvort þessum gæðum hefði ekki alveg eins eða miklu fremur verið náð, án alls þess djöfulgangs, serh síðan hef- ur yfir dunið. Það er vissulega rétt, sem stóð í grein Arthurs Millers hér í blaðinu fyrir skemmstu, að aldrei í allri sögu mannkynsins hafa fleiri menn verið myrtir en á þessari öld. Um alla þá óhamingju og sví- virðingu, sem af heimsstyrjöld- unurn tveimur hefur leitt, er ó- þarft að fjölyrða. Þess vegna er eðlilegt að menn spyrji, hvað aflaga hafa farið, er til þessa leiddi, og hverjir beri höfuð- ábyrgðina á allri þessari ógæfu. Af öllum valdamönnum 1914 hafði Vilhjálrrfur II. sig mest í frammi. Hann setti ljós sitt aldrei undir mæliker, heldur sagðist vera „Arbiter mundi“, þ. e. sá, sem að lokum skæri úr um gang heimsmálanna. Þess vegna er eðlilegt, að menn velti örlögum hans fyrir sér, þó að lokadóm- urinn verði sennilega sá, sem Játvarður móðurbróðir hans felldi og var Vilhjálmur þó miklu merkari þeirra frænda. En Ját- varður sagði nokkrum árum fyr- ir 1914 um systurson sinn: „He is the most brilliant failure in history.“ Okkar að vclja ög hafna Hin nýja brezka ævisaga Vil- hjálms II. nefnist „The Kaiser and his times“ og er rituð af Michael Balfour. Það leynir sér ekki, að sagan er rituð frá brezku sjónarmiði, en þó af þeirri víð- sýni og skilningi á skoðunum annarra, sem mörgum Bretum flestum fremur er eiginlegt. I lokaorðum bókarinnar segir m.a. í lauslegri þýðingu: „í dag mundi enginn neita á- hrifum erfða og umhverfis, og síðari tíma vísindarannsóknir hafa staðfest sum áhrif þeirra, sem menn höfðu ekki áður veitt athygli. En ef við teljum þessi tvö öfl ein skera úr, ómerkjum við þarmeð vitneskju okkar um valfrelsi og allar hugmyndir um siðferðilega ábyrgð. Því að hvern ig er hægt að lofa mann eða lasta fyrir það, sem hann gerir, ef at- hafnir hans eru ákveðnar af ætt- erni, umhverfi og menningu? Ætterni okkar og menning eru sjálf samansöfnuð afleiðing ótölu legra liðinna ákvarðanna, sem foreldrar og forverar okkar, kennimenn okkar, húsbændur, og þeir, sem yfir okkur ráða nú og réðu á þeim árum, sem liðín eru, hafa valið. Við getum ekki sloppið undan afleiðingunum af vali þeirra og ákvörðunum: Því, sem gert hefur verið, verður ekki breytt. Eigið valfrelsi okkar er stórlega takmarkað af þessari staðreynd. En þó að við játum, að við séum mjög bundnir af því, sem gerzt hefur, neitum við ekki þar með, að við höfum nokkurt valfrelsi. Bismarck kallaði sjálf- an sig „hjálparvana barn síns tíma“, en hélt áfram og sagði: „Einmitt þess vegna verðum við að gera skyldu okkar dyggilega í þeirri lífsstöðu, þar sem drottni hefur þóknazt að setja okkur.“ Við verðum ætíð að muná að það er val okkar og okkar ákvarð- anir, sem munu takmarka frelsi þeirra kynslóða sem síðar koma. Þó að hver þeirra kunni að sýn- ast smávægileg út af fyrir sig, þá skapast örlögin við það, þegar ákvarðariir okkar og anriarra safnast saman. Sú staðreynd, að við getum skilið af hverju einhver hefur valið ákveðna leið, gerir það ekki að verkum, að val hans hafi verið viturlegt eða sanni, að hann hafi ekki get'að valið annan veg. Ef við erum skynsamir, þá er rétt að hafa í huga, að við hefðum mátt vera heppnir að gera betur sjálfir, en sú samúð, sem sameiginleg mannúð krefst, má ekki leiða til þess, að við hikum við að kveða upp dóm, því að einungis á þann veg getum við lært af reynsl- Getum við lært reynslunni? Allt er þetta út af fyrir sig Framihald á bls. 31

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.