Morgunblaðið - 05.04.1964, Qupperneq 32
Skartgripum fyrir
85,000 kr. stolið
í NÓTT var brotinn sýn-
ingargluggi eða kassi í eigu
gullsmíðaverkstæðis K.iart-
ans Asmundssonar, Aðal-
stræti 8. Var öllu, sem í
sýningarkassanum var, stol
ið, og nemur verðmæti
munanna 84—86 þúsundum
króna að því er Kjartan Ás
mundsson tjáði Mbl. í gær.
Samkvæmt upplýsingum
rannsóknarlögreglunnar
hafa þjófarnir spennt upp
kassann um nóttina.
f viðtali við Kjartan Ás-
mundsson í gær kom það
fram að hann selur ekki
nema gullvarning, og „vör-
urnar eru ekki lengi að ná
þúsundinu ef þær eru úr
gulli“, eins og hann orðaði
það.
Kjartan sagði að þarna
hefði einkum verið um að
ræða hringa, þar af einn
demantshring, 12 trúlofun-
arhringa, svo og armbönd,
hálsfestar o. fl., flest prýtt
eðalsteinum. í flestu var
14 karata gull.
Kjartan sagði að kassinn
hefði tvisvar verið rænd-
ur áður. í annað skiptið
verið teknir þar tveir mun-
ir, sem hefðu verið 5,000
kr. virði, en í hitt skipið
kom lögreglan að þjófun-
um, þar sem þeir voru að
stela úr kassanum.
Munirnir í glugganum
voru vátryggðir. — Málið
er í rannsókn.
Sex þingmenn í boðs-
för til Bretlands
Á MORGUN, mánudag, leggja
sex íslen23kir þingmenn af stað í
Bretlandsför í boði brezku ríkis-
stjórnarinnar. Þingrrfennirnir eru
Birgir Finnsson, forseti Samein-
aðs þings, Sigurður Óli Ólafs-
.son, forseti Efri deildar, Jónas
Pétursson, Halldór E. Sigurðs-
son, Jón Skaftason og Einar Ol-
geirsson.
Þingmennirnir munu koma
heim 16. apríl n. k. Fara þeir
fyrst til Glasgow en þaðan til
London daginn eftir. Á dagskrá
er m. a. k völdverðarboð brezku
deildarinnar í alþjóða þing-
mannasambandinu. Þeir munu
og skoða brezka þingið, West-
minster Abbey, og ferðast um
landið. Þá munu þingmennirnir
einnig skoða brezkar fiskvinnslu
stöðvar.
AKRANESI, 4. apríl. — 20 bátar
lönduðu hér í gær. Afli þeirra
var alls 264 tonn. Höfrungur III
landaði 28 tonnum, sem hann
fékk í þorskanótina. Trillubátar
reru í gærmorgun árla en sneru
aftur vegna ónæðis. Þeir fiska á
handfæri. — Oddur.
Enn var reynt að toga í Wislok á flóðinu í gærmorgun. Mun togarinn eitthvað hafa tommað í rétta
átt, en þó ekki mikið. Björgunarmenn halda enn áfram aðgeroum. — Myndin sýnir einn björgun-
armanna í stól á leiðinni milli skips og lands. (Ljósm. Mbl.: Vig.)
Frú Guðný Ámundadóttir við pianóið að Hverfisgötu 39.
(Ljósm. Mbl.: Sv. Þ.)
Endurnýjaði miöann
á elleftu stundu
— og hieppti stærsta happdxættisvmning
á íslandi:
STÆRSTI happdrættisvinningur,
sem dreginn hefur verið út á Is-
landi, féll í fyrradag í skaut frú
Guðnýjar Ámundadóttur, Hverfis
götu 39. Hún hreppti þá einbýlis-
hús í Kópavogi með viðbyggðum
bílskúr, í hverjum stóð splunku-
nýr Volkswagenbíll, en saman-
lagt verðmæti þessa er talið 1,2
milljónir króna. Frú Guðný hef-
ur átt einn miða í happdrætti
DAS í eitt ár. Hún endurnýjaði
miðann á elleftu stundu í fyrra-
dag, eða kl. hálf fjögur, en út-
dráttur vinninga hófst kl. 5.
Kl. 7 komu heim til hennar
forráðamenn DAS og tilkynntu
henni að hún hefði hreppt
stærsta vinninginn!
Fréttamaður Mbl. átti stutt
samtal við frú Guðnýju í gær.
Hún sagði að þetta hefði komið
íslandsmótið í
Handknattleik
f KVÖLD fera fram 2 leikir í
I. deild karla á Handknattleiks-
meistaramóti íslands. Mætast þá
Í.R og Ármann og Fram og K. R.
fslandsmótinu lýkur 18. april
KluEtkunni
flýtt
UM þessa helgi verður
klukkunni flýtt, og fer þá
dag að lengja svo um mun-
ar. Er kl. er 12 á miðnætti
á laugardagskvöld skal
hún færast klukkutíma
fram, þannig að hún verði
eitt. Kvöldsvæfir geta mið-
að við 12 á hádegi á sunnu-
dag.
sér heldur betur á óvart. Hún
hefði setið og spilað á píanó sitt,
er forráðamenn DAS knúðu dyra,
og leizt prýðilega á.
Guðný sagði í gær að hún
væri ekki ákveðin hvað hún
mundi gera við húsið. Sömu
sögu væri að segja um bílinn.
Guðný Ámundadóttir á þrjú
börn, son í Háskólanum og tví-
burasystur, sem stunda nám i
Kvennaskóla Reykjavíkur.
Eiginmaður hennar, Úlfar Jóns
son læknir, lézt fyrir fáum árum.
jWonnwH «
fylgir blaðinu 1 dagr og er efnl
hennar sem her segir:
Bks. 1 Sósíalvísindalegar niður-
stöður um áhrif fjölmiðl-
unartækja, eftir Jóhann
Hannesson, prófessor
— 2 Svipmynd: Oamal Abdel
Nasser
— 3 Hermaðurinn í La Ciotat,
smávaga eftir Bertolt
Brecht
— 3 Þagnarskil, Ijó* eftir
Sveinbjörn Beinteinsson
— 4 Oscar Clausen: Fáfróðasti
prestur á íslandi? Presta-
sögur 13.
5 Sjónvarp og sjálfsvirðing,
eftir Sigurð A. Magnússon
— 6 Hagalagðar
— 7 Lesbók Æskunnar: Söng-
leikur um „gallabuxna-
töffgæja'*
— S Erling Norlev: Árið 2000
verðum við orðnir „næst-
um ódauðlegir".
— 9 Gísli J. Á.vtþórsson: Eins
mér sýnist.
— 11 Fjaðrafok
— 12 Rauða Kína tekur stórt
stökk fram og fær langt
fall aítur á bak
— 13 Úr annálum miðalda.
Guðmundur Guðni Guð-
mundsson tók saman.
—14 Fornvinir Hitlers leita frlð-
ar í Heilagrí ritningu
Eftir Jack Comben
— 16 Krossgáta
— - Bridge.